Dagskrá

Eksemplar

Dagskrá - 15.10.1898, Side 1

Dagskrá - 15.10.1898, Side 1
Dagskrá kemur út á hverj- um laugardegi, kostar 3,75 (erlendis 5 kr.), gjalddagi 1. október. DAGSKRÁ Afgreiðsla og skrifstofa er Tjarnargötu 1, opin hvern virkan dag kl. 11 —12 og 4—5 síðd. III. M 13. Reykjavík, laugardaginn 15. október. 1898. Til minnis. Bæjarstjórnat-fundir i. og 3. Fmtd. í mán., kl. 5 síðd. jFdtœkranefndar-hmá'n 2. og 4. Fmtd. f mán., kl. 5 síðd. ForngripasafniS opið Mvkd. og Ld. kl. 11—• 12 árdegis. Landsbankinn opinn dagl. kl. 11 árdegis til 2 slðdegis. — Bankastjóri við kl. ii1/*— i1/*. — Annar gæzlustjóri við kl. 12—1. Landsbókasafnid'. Lestrarsalur opinn dagl. kl. 12—2 síðd. á Mánud. Mvkd. og Ld. til kl. 3 síðd. — Utlán sötnu daga. Ndttúrugriþasafnið (í Glasgow) opið á sunnu- dögum kl. 2—3 síðd. Söfnunarsjódurinti opinn í barnaskólanum gamla kl. 5—6 síðdegis 1, Mánud. í hv. mánuði. Fastir fundir í Good-Templarhúsinu. hHlím Mánud. kl, 8 síðd. »Verðandh Þriðjud. - — nBifrösh Miðv.d. - — •stEiningim Fimtudag - — David 0stlutid Sunnud. kl. 6V4 síðd. Bindmdisfélag ísl. kvenna; 1. föstudag hvers mánaðar kl. 81/* síðd. Barnaguðspjónusta hvern dag kl. 10 árd. Fastir fundir í Framfarafélagshúsinu. Fundir Fratnfarafélagsins á hverjumsunnu- degi. kl. 4 síðd. Til allra auglýsenda D agskrá tekur auglýsingar fyr- ir það verð sem hér segir: Hverja línu með meginmálsletri (Corp- us), ef minna er auglýst en / þumlung- ur 10 aura. Hvern þumlung, alt upp aðj þuml. jo a. Hvern þuml. ef augl. er j—10 þuml. 60 aura. ogsé auglýst meira en tíu þuml. þá jo a. og þar að auki afslátt, ef oft er aug- lýst. Þetta er svo lágt auglýsingagjald, að allir ættu að sjá sér hag i því að aug- lýsa í Dagskrá, þar sem það erþriðj- ungi ódýrara en í sumum hinum blöðunum og jafnvel meira. Þakkarávörp verða tekin fyrir sama verð. Hærra. Hetjum merki vort hátt syngjum sigurlag dátt tengjumst tí-sterku einingarbandi. Elskum drengskap og dygð hötum hræsni og lygð —, hrekjum kúgunaranda úr landi, Horfum ófeimnir hátt, lengur krjúpum ei lágt; föllum eigi að harðstjórans fótum. Sjáið fjallvættafans stíga darraðar-dans svo að dunar í björgum og gjótum. Óma frelsis-ljóð fríð. — Út við sæ, upp við hlíð, ljómar árroði fegurri tíða. Bráðum útrennur öld, þá sé alls þessa kvöld er vér eigum við þungbært að stríða. Berum höfuð vor hátt. Lifum saman í sátt, vörumst alt það er vakið fær greining. Réttum hjálpandi hönd, hverri aðþrengdri önd; ávalt höldum við sjálfstæðri meining. Heyrum nútímans nið. Sjáið menningar sið. — Allra þjóðar er orðtækið „hærra“. — Yfir urðir óg grjót, flytjum einhuga fót. Einnig vér skulum keppa’ að því stærra. Lárus Sigurjónsson. Til hr. Eiríks Magnússonar. H. ritstjóril Viljið þér leyfa lín- um þessum rúm í háttvirtu blaði yðari Það er mér þvert um geð, að fara að eiga neitt stímabrak við hr. Eírík Magnússon út af grein hans um „víl- mögur" í Dagskrá þ. 27. júlí, enda er nú langt um liðið. En mig hálflangar þó engu að síður að láta það sagt verða, að hr. E. M. hefir algjörlega rangt fyrirsér, þar sem hann segir, að orð- ið víl-mógr sé getgáta, af því að ekki standi broddur yfir i-inu í hdr. Það veit hver, sem átt hefir við hdr., að brodda í handritum er lítið að marka, og að þá vantar oftast. í Konungsbók Eddu- kvæða standa þeir reglulaust. Á sömu síðu, sem vil- stendur, stendur ritað likn, = líkn, glikir = glíkir, og aftur hins vegar fírna (io„) = jirna. Hér eru ótal dæmi. Vil- má því jafnt lesa víl sem vil; þetta hélt ég að hr. E. M. vissi eins vel og ég. Þarnæst vildi eg sagt hafa, að víl- mögr, sem allir — það er ekki ég einn, sem hefi lesið svo — hafa lesið svo og skýrt á einn veg, er gamalt og al- kunnugt orð, og það gefur ágæta hugs- un, þar sem það er (sömu hugsun og E. M. fær með sínum lestri). Orðið vilmagi er tilbúningur hr. E. M. sjálfs; orðið finnst hvergi í fornu máli né nýju, prentuðum bókum eða óprentuðurn. Þetta er næg ástæða til þess að hafna orðinu, þegar þar að auk ekkert er unnið með því, að hafa það hér á þeim stað, er um er að ræða, En það er þar að auki margt fleira móti því haf- andi, en það er ekki blaðamál. Alt eldhússhjal hr. E. M. má hann eiga sjálfur; það er alt hans eigin til- búningur, og ég viðurkennni ekki, að í vísunni, sem um er að ræða, sé átt við neitt, sem hangir uppi í eldhúsi til reykingar. Þar með er loku skotið fyr- ir neinji árangur af viðræðum milli okkar um þann hlut. Það þykir stundum bregða fyrir smekkleysum í fornum kveðskap — sem ég þó álít mjög sjaldgæft —, en reyktir kálfsmagar finnast ekki þar. Þeir eru 19. aldar matseld og þó eða því lítt girnilegir til fróðleiks. Khöfn., í sept. 1898. Finnur Jónsson. Lovisa Danadrotning. Með Láru fréttist lát LovÍ6u Dana- drotningar; hun lézt 29. september eft- ir langa legu í vatnssýki. Hún var 81 árs að aldri og hafði verið gift Kristjáni konungi í 56 ár. Hún var mörgum góðum kostum gædd og þótti vera atkvæðameiri en maður hennar, og sumir telja hann eiga henni það að þakka, að hann var viðurkendur sem konungur Dana. Sambúð þeirra hjóna var fyrirmynd og þau áttu svo miklu barnaláni að fagna, að dæmafátt mun vera. Þegar lát drotningar barst hing- að, var flaggað í hálfa stöng og kennslu hætt í öllum skólum nema prestaskól- anum. í Frakklandi er naumast um annað talað en Dreyfus. Eru allharðar deilur meðal manna um það, hvort taka skuli mál hans fyrir að nýju eða eigi; og verður það ekki gjört nema því að eins, að hæsti réttur telji það rétt, en þá verður Dreyfus að vera sjálfur við- staddur samkvæmt lögum Frakka, og þá verður hann sóttur frá Djöfulsey. Hann hefir verið þar í 4 ár. Hershöfð- ingjarnir gjöra alt til þess að sporna á móti því að Dreyfusmálið verði rann- sakað af nýju og ofsækja Piequert af alefli; en hann hefir gjört alt mögulegt til þess að sanna sakleysi Dreyfusar, eins og Emil Zola og leiða í ljós sví- virðu Esterhazy. Hertoginn af Or- leans rær undir eftir megni; því hann telur sig réttborinn til ríkiserfða á Frakklandi og vill fyrir hvern mun að uppreisn verði; því þá hefir hann von um að geta komist til valda. Hann hefir samið ávarp til þjóðarinnar þar sem hann reynir að ófrægja ráða- neyti Brissons. Hann segir að það vilji láta endurskoða Dreyfnsmálið í ill- um tilgangi. P. Holm skraddari er nýlega dáinn úr lungnabólgu. Hann var, eins og flestir vita, ákafur jafnaðarmaður og hafði verið settur í varðhald fyrir tveim mánuðum fyrir grun um óráðvendni, og þar dó hann. Feliibyljir ákafir hafa geisað á Vestureyjum um miðjan f. m. 300 manns létu líf sitt og fjöldi húsa hrundi til grunna. Embættisveiting. Eskifjarð- arlæknishérað var veitt 26. f. m. Bjarna Jenssyni lækni í Vestur-Skaftafellssýslu. Kína. Þara hefur verið róstusamt að undanförnu. Tveir flokkar, sem eru andvigir; hvor öðrum, hafa átt í brösum saman er keisari annars vegar og hans fylgis- menn; þeir vilja semja sig sem mest að siðum Evrópumanna en hins vegar keisara- ekkjanog Li-Hing-Chang, stjórnmálamað- urinn mikli. Hann vill halda öllu sem lengst frá áhrifum Evrópumanna". Englendingar styðja keisarann en Rússar Li-Hung-Chang. Sagt erj að þau ekkjan, og hann hafi nú orðið ofan á og keisarinn sé tekin fastur og hafður í fangelsi. Lausa- fregnir hata jafnvel borist um það, að hann myndi hafa verið myrtur, en á þeim er ekkert að byggja. Enn aðrir kveða hann hafa flúið og segja að gjörðir hafi verið út menn til þess að leita hans. Öll blöð eru í uppnámi út af þessu, einkum ensku blöðin, vilja þau láta ensku stjórnina skerast í leik- inn. Krít. Þar eru altaf uppþot öðru- hvoru og þykir útlitið ískyggilegt en sagt er að stórveldin ætli sér að taka í taumana, ef þessu fer fram. Tveir stjörnieysingjar frá Ítalíu, urðu fyrir skömmu uppvísir að því að sitja á svikráðum við krónprinsinn og ætla að ráða honum bana. Þeir voru teknir fastir í Vfnarborg; fjöldi stjórn- leysingja hefir þess utan verið tekinn fastur á Ítalíu, jafnvel svo hundruðum skiftir. Kúgunin og eymdin sverfur nú svo að alþýðunni, að þeir þykjast ekki mega horfa á, án þess að aðhafast eitt- hvað, og ráðið er það að drepa og eyðileggja. Vesuvíus á Ítalíu hefir gosið og valdið æfar miklu tjóni. Hraunið hefir runnið miklu lengra en nokkru sinni áður og öskufallið voðalegt. Hraunleðj- an er >/2 míla að breidd, en klofn- ar skamt frá gígnum og er hver kvísl um 50 metra á breidd. Hraunið rennur áfram 35 metra á klukkustundinni Drunur og dynkir voðalegir í gígnum og stendur mönnum af hinn mesti ótti sem von er. Búfræðis- Og búnaðarbálkur. 111. Jarðvegurínn og jurtalífið. Hitinn í jarðveginum stafar aðal- lega frá sólunni. Aðeins lítilsháttar hita- myndun á sér stað í jarðveginum sjálf- um, af ýmiskonar efnabreytingum, sem þar fara fram. Einnig leiðist ávalt lítið eitt af hita út frá jörðunni sjálfri. Það er þessum hita að þakka að jörð- in er víða þíð undir klaka á vorin, þegar leysir af, og leysist þar klakinn af yfirborðinu og jarðveginum engu síður af hlýindum að innan en af regni og sólarhita að ofan. Aðal hitauppsprettan í jarðvegin- um er sólin. Hún er viðhald alls lífs á jörðunni. Hún sendir jarðveginum ilgeisla og hitar yfirborðið fyrst, og leiðist svo hitinn smám saman nið- ur í jarðveginn. Er hitinn ávalt mest- ur næst yfirborðinu á jarðveginum. Loftið umhverfis jörðina fær ekki hita sinn beinlínis frá sólunni heldur óbein- línis. Hitageislar sólarinnar fara í gegn- um andrúmsloftið til jarðarinnar, en án þess að verma það minnstu ögn. En svo sleppir jörðin aftur hitanum út frá sér og vermist þannig loftið næst jörðunni óbeinlínis frá sólarhitanum. Eftir því sem lengra dregurútfrájörðunni, eftir því er andrúmsloftið kaldara. Því er eins varið með hitalát jarð- arinnar og líkama mannsins, að eitt eða annað, sem leiðir illa hitann, getur skýlt og varið hana hitaláti, svo sem snjór,

x

Dagskrá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.