Dagskrá - 15.10.1898, Qupperneq 4
5°
Þrítuglyft hús er nú verið að
byggja í Chícago. Grunnflöturinn er
1400 ferhyrningsmetrar. í þvl eiga að
vera 1000 skrifstofur og 10 lyftivélar
neðan úr gólfi og upp í efsta loft.
Húsið er bygt á 3500 súlum og er V2
meter á milli þeirra. Á hverri súlu á
að hvíla 16 smálesta þungi.
Náttúrufrœðingur einn hefir reikn-
að það út, að eftir 45000 ár hafi vind-
ar og vötn sléttað svo jörðina, að hún
verði öll eins flöt og Holland.
Fyrir sextíu og þrjú þúsund krón-
ur hefir safn eitt í Englandi nýlega
keypt kvennmannsmynd eina, er Georg
Rommey málaði 1789. Sjálfur fékk
hann ekki meira fyrir hana en 1200
krónur,
Áttatíu þúsund krónur voru í fyrra
vetur gefnar fyrir eitt eintak af biblíu
Guttenbergs, í Lundúnaborg. Bókinvar
með fjölda mörgum teikningum.
---- "7-
Olíunámur hafa nýlega fundist við
strendur Svartahafsins, nálægt Kákasus-
fjöllum. Námurnar eru í landi auðmanns
eins í Moskva.
Bismark hefir látið eftir sig 27
miljónir króna.
Dagbók Reykjavíkur.
Laugardagur.
Þurt veður en þerrilítið.
Kom seglskipið »Anna« til Geirs
kaupmanns Zoéga með kol og olíu.
___________a
Kom Kristján Bjarnason skipstjóri
á seglskipi með kol frá Englandi.
Sunnudagur.
Regn um morguninn, en létti upp
um dagmálabilið og var bezta veður
allan daginn.
Leikið á horn á Austurvelli.
David 0stlund hélt fyrirlestur í
Iðnaðarmannahúsinu um„Verði ljós'1 og
sabbatsdaginn. Var svo mikil aðsókn-
in, að ekki komst inn meira en á að
gizka helmingur þeirra, er óskaði.
Hr. 0stlund fór allhörðum orðum
umsér Jón Helgason; kvað það sorglegt
að maður, sem væri prestur og presta-
skólakennari, hefði ritað aðra eins grein
og birtst hefði í síðasta tbl. „Verði
ljóss“ Talaðihann af svo miklum áhuga
og svo liðugt að þess gætti vart að
hann var útlendingur; einstöku beyg-
ingar voru rangar en furðu fáar.
Mánudagur.
Bezta veður allan daginn, lygnt og
þurt,
Reykjavíkin fór suður í Keflavík
og með henni Indriði Einarsson til þess
að halda þar bindindisfyrirlestur
»Laura« kom og með henni ung-
frú Margrét Stephensen, dóttir landshöfð-
ingja, og Tryggvi Andersen með konu
sinni. Hann er danskt skáld og ætlar
að dvelja hér vetrarlangt. Enn fremur
Árni Gíslason úr bindindsferð frá Vest-
mannaeyjum.
ÞrlOjudagur.
Sama góðviðrið fram eftir degin-
um, hvast síðari partinn.
Reykjavíkin fór upp í Borgarnes
og með henni Indriði Einarsson, Marta
Pétursdóttir og Ólafía Jóhannsdóttir upp
á Akranes til þess að halda þar opin-
bera bindindisfyrirlestra. Til Borgarness
fóru með henni Pétur Pétursson fráLang-
árfossi:, Sigurður bróðir hans o. fl.
TAPAZT
hefir vasaúr. —
P'innandi skili á
skrifstofu Dagskrár gegn sanngjörnum
„Thyra" kom norðan og vestan um
land og með henni fjöldi farþega, þar
á meðal: ungfrú Helga Havsteen, Schev-
ing læknir frá Stykkishólmi með frú
sinni, Sigurður Thoroddsen, Guðmundur
Þorláksson cand. mag., Stefán Runólfs-
son ritstjóri, verzlunarmennirnir Björn
Þórðarson og Gísli Helgason.
Miðvikudagur.
Sunnanrok, en þurt og gott að
öðru leyti.
Sigtryggur Guðlaugsson cand. theol
var vígður að Svalbarði og Presthólum.
(Misprentað var Þóroddstað í síðasta
blaði,) og Friðrik Hallgrímsson, biskups,
sem prestur við holdsveikraspítalann.
Kom gufuskip frá Englandi með
kol til Brydesverzlunar. Skipið er frá
þeim Zölner & Vídalín og ætlar upp á
Akranes til þess að taka fé.
Fimtudagur.
Féll stúlka ofan í laugarnar og skað-
brendi sig.
Hve nær skyldi eitthvað verða
gjört til þess að koma í veg fyrir þessa
sífeldu bruna í laugunum?
Samsæti hélt stúkan „Hlín“ í
Goodtemplarhúsinu til þess að kveðja
séra Sigtrygg Guðlaugsson, töluðu þar
margir og var fundurinn hinn skemti-
legasti, þótt ekki væri Bakkus á borð-
um.
Föstudagur.
Sunnanstormur og þurkur.
Guðmundur Þorsteinsson prentari
og ungfrú Sigríður Benediktsdóttir (gull-
smiðs) voru gefin saman í hjónaband.
þeir, sem vilja Iæra ensku í vet-
ur, ættu að koma sem fyrst til Magn-
úsar Magnússonar Vinaminni.
Heima 4—5. e. h.
Nýfluttur til íslands
er hinn heimsfrægi litur
Omnicolor
tilbúinn af efnafræðisverkstofu
Baumanns í Kassel.
Festist ekki við hendunar,
hefurengin eitruð efni og upplitun
á sjer ekki stað.
Hefur þegar við fyrstu reynslu fengið
bestu meðmæli.
20 iitartegundir.
— pakkinn kostar 35 aura og fylgja
litunarreglur á íslensku.
EinkaútsÖIu fyrir ísland hefur
Gunnar Einarsson.
Tjamargötu 1. Reykjavík.
fundarlaunum.
FYRIRLESTUR í IÐNAÐAR-
MANNAHÚSINU sunnudag kl. 6*/2
síðd. Efni: Kirkjan fyr og nú.
Áður útgefnir miðar gilda.
DAVID ÖSTLUND.
Takið eftir!
5 Bröttugötu 5.
Með Vestu seinast fékk ég útlend
an skófatnað mjög ódýran, en vel vand-
aðan t. d.
KARLMANNSSKÓ á . . 6,85-
KVENNSKÓ með lakkskinns-
forblöð...........7,35
KVENNSKÓ reimaða með
táhettum úr lakkskinni . 6,00
KVENNSKÓ hnepta . . 6,00
BARNjASKÓ á . . 5,50—2,00
Enn fremur hefi ég til vatnsstígvél
og skó, unnið á minni eigin, alþektu
vinnustofu. Allar aðgjörðir eru fljótt og
vel af hendi leystar. Alt mjög ódýrt
mót peningum út í hönd. Enn fremur
hefi ég til þann bezta stígvélaáburð sem
hægt er að fá, ágæta skósvertu, leður-
reimar og snúrureimar.
Það mun borga sig að verzla við
mig.
Virðingarfyllst
M. A. Matthiesen
(skósmiður).
Kennsla : Undirritaður tek-
ur að sér að kenna börnum og fullorðn-
um flcstar hinar almennu námsgreinar.
Kennslutíminn síðdegis.
Rvík. 7. okt. 1898.
Sigurður Jónsson.
kennari.
Eitt herbergi með öllu til-
heyrandi er til leigu á ágætum stað
í bænum. Ristjóri vísár á.
MdöC ÓDÝRA KENNSLU
í dönsku og þýzku veitir skólapiltur.
Ritstj. vísar á.
■^'Lesiöl'wa
Maður, sem talar og ritar ensku,
veitir tilsögn í henni fyrir væga borg-
un. Ritstj. vísar á.
T.l kaups er falleg kvíga að
fyrsta kálfi, jólabær. Borgunarskilmál-
ar góðir. Sig. Þórólfsson vísar á selj-
anda.
SUNDMAGA
kaupir
Gunnar Einarsson.
Tjarnargötu 1.
Slitföt úr fallegu vaðmáli eru
til sölu.og mega borgast í innskrift. Rit-
stjóri vísar á.
HeRBERGI til leigu fyrir einhleypa.
Ritstjóri vísar á.
V innustofa
Jóns Guðjónssonar
40. Vesturgötu 40.
Þar er allskonar skófatnaður gjörð-
ur og sniðinn eftir máli; ekkert útlent.
Efni er alt mjög vandað og viðskifti
fljót og greið. Sem sönnun fyrir því,
að þar sé vel unnið, skal þess getið, að
einungis vinna þar útlærðir sveinar,
enginn viðvaningur. Verð mjög lágt.
NB. Þar er seldur stígvélaáburður
sem aldrei hefir flutst hingað áður
(Everetts Premier Creams). Það er rjómi,
og heldur hann stfgvélunum símjúkum.
Þenna áburð ættu menn að reyna.
Þar eru korksólastígvel með nýju
lagi og betra en hér hefir áður þekst.
Ég hefi skoðað efni það sem herra
Jón Guðjónsson vinnur úr og er það
einkarvandað. Sömuleiðis get ég vott-
að skófatnaði frá honum er mjög
hrósað af þeim, sem reynt hafa.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Góð LÓÐ undir hús er til sölu.
Ritstjóri vísar á.
Fæði, húsnæði og þjónustu selur
frú Sigríður Eggerz í Glasgow.
Takið eftir!
Fornaldars. Norðurlanda
í góðu bandi, eru tii sölu með mjög
vægu verði. Ritstjóri vísar á.
2falleg herbergi í ný-
bygðu husi,fásttil Ieigu
með eða án húsbunaðar.
Ritstjóri vísar á.
Lífsábyrgðarfélagið ,STAR‘,
Skrifstofa félagsins Skólavörðustíg
J\§ 11, er opin hvern .virkan dag frá
II—2 Og 4—5.
Fineste Skandinavisk Export
Kaffe Sorrogat,
F. Hjort & Co.
Kjöbenhavn K.
Bindindismannadrykkurinn
,Chika‘,
er ljúfíengur og fínn svaladrykkur. —
»Chika« er ekki meðal þeirra drykkja
sem meðlimum Stórstúku Danmerkur af
N. I. O. G. T. er bannað að drekka.
Martin Jensen, Kjöbenhavn.
Umboðsmaður fyrir ísland:
F. Hjorth.&Co.
Framsókn;
kvennablað, sem gefið er út á Seyðis-
firði af Sigríði Þorsteinsdóttur og Ingi-
björgu Skafta-dóttur, kemur út einu sinni
í mánuði, kostar eina krónu. Blaðið er
bæði fróðlegt og skemtilegt og vandað
að öllu leyti. Útsölu hefir Sig. Júl.
Jóhannesson.
Yfirfrakki
nokkuð briikaður,
er til sölu fyrir hálfvirði.
Guðm. prentari Þorsteinsson, vísar
á seljanda.
Útgefandi: Félag eltt i Reykjavik.
Abrgðarm.: Slg. Júl. Jóhannesson,
cand. phil.
Prentsmiðja Dagskrár.