Dagskrá - 22.10.1898, Page 3
57
menn „bandingja" og má nærri
geta, hvílíkar kvalir það hljóta að vera
fyrir fuglinn, að vera þannig bundinn
þangað til hann deyr úr kulda oghungri
og mikið að enn skuli vera til menn
sem geta fengið af sér að hafa slíka
grimd í frammi. Þessi ósiður mun reyndar
vera að leggjast niður, sem betur fer,
en hann hefir tíðkast til skamms tíma.
og er ekki alveg úr sögunni enn.
Drangey er mjög einkennileg að lögun;
alt í kring eru þverhnýftir hamrar, af-
arháir, en uppi er eyjan grasivaxin og
er beitt þangað fé úr landi; öðru meg-
in er drangur einn hár og mjór, þráð
beinn í loft upp^, og nokkurn spöl frá
eyjunni og segja menn að svo hafi
einnig verið hinum megin.
Gömul þjóðsaga segir, að eyjan og
drangarnir séu þannig tilkomin, að karl
nokkur og kerling hans hafi verið á
ferð með kú á næturþeli. Það voru
tröll. En sökum þess að þau urðu of
sein á sér, og sólin kom upp
fyrri en þau næðu heim til sín,
varð þá alt að steini. Kýrin er
eyjan, en drangarnir eru karl og kerl-
ing; hann teymir en hún rekur á eftir.
Þegar maður fer fram hjá Drangey,
getur maður naumast annað en hlegið
að þessari sögu, en hins vegar hljóta
einnig að vakna alvarlegar og angur-
blíðar tilfinningar í hjarta hvers manns,
þegar hann hugsar út í það, að þarna
var Grettir, atgjörfismaðurinn mikli, sem
ef til vill hefir haft mesta hæfileika allra
íslenzkra manna, en sem gæfan hafði
gjörsamlega snúið við bakinu. Það
sannaðist bezt á honum, að ekki er sama
gæfa og gjörfileiki.
Á Sauðárkróki er fremur fagurt;
snotrar byggingar og lagleg húsaskip-
un. Kirkjan er ljómandi fögur, en
ekki stór. Við fórum þar upp í turninn
sáum þaðan yfir allan kaupstaðinn og
tókum mynd af honum eins ogöllum þeim
stöðumer okkur þótti nokkurs um vert.
Kirkjugarðurinn er uppi á háu
kasti fyrir ofan bæinn og liggur þang-
að gata gjörð með mörgum krókum.
Á Sauðárkróki er verzlun, sem
Gránufélagið á; er það hlutafélag og
eign norðlenzkra bænda. Félagið byrj-
aði þar, en er nú komið um alt norð-
urland og kveða menn það hafa kom-
ið miklu góðu til leiðar, en skuldugt er
sagt að það sé.
Á Sauðárkróki voru segl notuð á
uppskipunarbátum og hefi ég hvergi
séð það annarstaðar. — Þar er einhver
öflugasta Good-Templarastúka á land-
inu, næst Reykjavíkurstúkunum, enda
er presturinn, séra Árni Björnsson,
einkar áhugamikill og dugandi Templar.
Félagið hefir átt nokkurri mót-
spyrnu að mæta þar, síðan það var
stofnað, og er það, ef til vill, ein ástæða
fyrir því, hversu fast Templarar
fylgja fram sínu máli, því stríð kveikir
áhuga og kapp og án þess er ekki
sigurs að vænta. Þeir hafa bygt sér
þar einkar snoturt hús og haganlegt,
það er þannig gjört að í þvf er laust
þil sem velta má til og frá á hjólum,,
þannig, að fundarsalurinn verði svo lít-
ill sem minn vilja. Þegar leiknir eru þar
sjónleikir er þili þessu velt nokkuð
fram eftir húsinu. Það er á hjörum
um miðjuna og má því leggja út af
efri partinn, þannig að hann gangi
upp að húsgaflinum, myndast þá leik-
pallur og undir honum lítið herbergi
til þess að klæða í leikendurna. —
Þegar við komum til Siglufjarðar
var hávaða stormur, og ætlaði ekki
að ganga greitt að komast f land, því
þar var lítið um ferjur og fátt af róðr-
arfæru fólki. Þó hepnaðist okkur loks-
ins að fá far með Færeyingum; var þar
allmargt af þeim og svo á hverri höfn
er þangað komu norður.
Eru þeir mjög kurteisir og við-
feldnir og ekki var nærri því kom-
andi að þeir vildu taka við ferjutolli
þar sem þeir fluttu okkur úr landi eða
út á skip. Flestir töluðu þeir nokkuð
á íslenzku og allir skildu þeir hana sem
væri hún þeirra eigin mál. Á Siglufirði
er nýbyrjuð lýsisbræðsla og er það
Gránufélagið sem það gjörir. Það var
ekki þægilegt fyrir sjóveika farþega að
fá framan á sig ódaun þann er út á
sjóinn lagði og gjörðu útlendingar orð
á því. Þeir fóru þar í land og vildu
fá keypt hvalbein, en það var enginn
sem treystist að flytja það út og varð
því ekkert af þeim kaupum,
Næst komum við til höfuðstaðar
þeirra Norðlendinga. Ég hafði hugsað
mér gott til glóðarinnar að skoða Eyja-
fjörð og mundi eftir þessum vísuorðum:
„Eyjafjörður finst oss er
fegurst bygð á landi hér“.
Þar er líka einkarfagurt, það er ekkert
skrum. Akureyri stendur undir hárri
brekku; hagar þar eins til og á Sauð-
árkrók að því leyti að kirkjugarðurinn er
þar uppi og krákuvegur liggur þangað.
Uppi á háu melkasti er Eyrarland og
sést þaðan yfir mikinn part fjarðarins.
Beint á móti er Vaðlaheiði sem skilur
Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur, en að
vestan eru Súlur; eru það tveir tindar
allháir. Utan í brekku þeirri sem Ak-
ureyri stendur undir, er mikið af kart-
öflugörðum, enda munu hvergi á land-
inu vaxa betur kartöflur eða vera meira
ræktaðar en þar. Bygging er þar mjög
snotur og fremur regluleg; nokkuð
mörg hús allstór og ekki sett niður
af handa hófi.
Oddeyri virtist mér hafa útlit fyr-
ir að verða aðalkaupstaðurinn innan
skamms; þar er næstum eins mikil
bygging og á Akureyri og byggingar-
arsvæði miklu meira og hentugra.
Gránufélagið á nálega alla Oddeyrina.
Þar eru verzlunarhús þess, sem eru stór
en ekki falleg tilsýndar.
Skamt frá Oddeyri eru tóvinnuvél-
ar þeirra Norðlendinga og eru þær ný-
lega komnar. Þar er prentsmiðja Stefn-
is og þar er bókasafn.
Þar var nýbygt hús afarstórt og
mjög fagurt; átti það Snorri trésmiður
og þar verður kvennaskólinn. Vegur
er ágætur lagður á milli Akureyrar
og Oddeyrar og hvergi sáum við hjól-
reiðar á ferð okkar nema þar. Þar er
allstórt leikhús og f því halda Good-
Templarar fundi sína. Hjá því var ver-
ið að byggja hús til þess að hafa
þar allar veitingar, nema áfengi. Ak-
ureyrarmenn eru gleðimenn miklir eins
og Norðlendingar yfir höfuð. Leikfé-
lag þeirra heitir „Gleðileikafélag" en
þó leikur það einnig sorgarleiki.
Kafli úr gamalli ræðu.
.... Það er ekki vinsælt verk, að
brjóta bág við fornan vana og almenna
spillingu. Það er miklu fremur hörmu-
legt, hvað viðleitni þeirra fáu manna,
sem ræða og rita gegn áfengisnautninni
og öðrum slíkum þjóðarlöstum, sýnist
að vera árangurslítil og óvinsæl. Allir
verða þó að játa, að hér er um alvar-
legt mál að ræða. Nautn áfengra drykkja
er hið sama fyrir vort andlega og lík-
amlega líf og kongavatnið er fyrir gull-
ið, þ. e. áfengisnautnin, einkum ofdrykkj-
an, eyðileggur líffæri mannlegs líkama,
allt eins og kongavatnið eitt fær breytt
gildi gullsins. Og þó er ekkert verk
vanþakklátara, ekkert verk erviðara en
að forða mönnum frá áfenginu.......
......I æskunni er oss sýndur sá
rétti vegur sem vér eigum að ganga á-
fram til dygða og ráðvendni. En hin-
ir andlegu le<ðtogar vorir leggja marg-
ir hverjir ótrúlega litla áherzlu á, að
vara oss við hinum hálu villigötum
vínsins. Þeir brýna fyrir oss, að þjófar
og ræningjar ekki muni guðsríki erfa,
samkvæmt orðum Páls postula í i. Kor.
6. io. En í sömu málsgrein telur
postulinn drykkjumenn með öðrum
glaepamönnum er eigi muni Guðsríki
erfa. — Vér skulum engar getur leiða
að því, hvers vegna kennendur vorir og
kirkjustjóm hefir felt þessa setningu úr
barnalærdómi vorum. En ég leyfi mér
það eitt að segja, að drykkjuskapurinn
sé argastur allra þeirra lasta, sem post-
ulinn telur upp í áminnstrí grein. I
fyrsta lagi af því, að það er engin svo
syndsamleg girnd til, í mannlegri nátt-
úru eða voru spillta eðli, að hún ekki
æsist og margfaldist við áhrif víneiturs
ins. í öðru lagi af því, að alt það rán,
þjófnaður og alskonar ódáðaverk, er
druknir menn hafa framið á síðari tím-
um, er smáræði eitt í samanburði við
hið ómetanlega tjón er hann óbeinlínis
hefir valdið. í þriðja lagi af því, að
drykkjuskapurinn er ekki kallaður glæp-
ur, heldur saklaus og leyfileg skemtun,
meðan hann ekki veldur sýnilegu stór-
tjóni, og þá í mesta lagi, mannlegur
breyskleiki. í fjórða lagi af því, að
dauð og tilfinningarlaus sár eru hættu-
legri en lifandi .svíðandi sár..
. . . . Ef áfengið með verkunum sín-
um einungis dræpi niður vora tímanlegu
velgengni, ef það aðeins eyddi efnum
vorum, spilti heilsunni, truflaði skynsem-
ina og svifti oss lífinu, gjörði konur
vorar að ekkjum og börn vor að mun-
aðarleysingjum og yllu hringinn í kring
um sig brunaauðn og dauða, þá væri
þetta alt þolandi, ef sál vor yrði hrein
og óflekkuð, ef hinn ódauðlegi partur
vor næði að búa sig undir dýrð og
sælu hins eilífa lífs.
.... Hvað er glæpur í orðsins fyllsta
skilningi, ef það er ekki að svifta sig
skynseminni, sem guð hefir gætt oss
með fram yfir dýrin? Hvað er brot
gegn siðferðislögmálinu, ef það er ekki
að svifta sig vísvitandi vitinu, eyða fjár-
munum sínum og tíma til ills eins?
Vaninn getur ekki helgað slíkt ókristi-
legt framferði, en hann blindar þráfald-
lega augu vor skammsýnna manna, svo
vér sjáum ekki rétt frá röngu. — Ef
maður með óbrjálaðri skynsemi talar
ógætilegt orð, eða tekur krónu virði frá
öðrum, jafnvel aðeins til þess að seðja
hungur sitt, má draga hann fyrir lög
og dóm. En þótt drukkinn maður steli,
rŒni, Ijugt, sviki og misþyrmi mönnum
og skepnum, þá getur hann komist hjá
refsingu, jafnvel í skjóli laganna, af því
hann er ekki fullkomlega með sjálfum
sér, af því hann er viti sínu fjær, sjá
almenn hegningarlög (39—40) gr. _________
Hann gjörir þetta ekki sjálfur, heldur
hinn óhreini andi, sem í honum býr,
hinn illi vínandi sem hann hefir gleypt,
— Þannig líta of margir á brot drykkju-
mannsins. — Er ekki drykkjuskapurinn
sjálfsköpuð vitfirring? Er ekki mörg
dæmi til þess, að menn hafi drukkið sig
fulla til þess að hafa meiri djörfung að
fremja eitthvert glæpaverk, er þeir al-
gáðir ekki höfðu kjark til.
Maðurinn, s«m vísvitandi sviftir sig
hinni dýrustu guðs gjöf, skynseminni,
ogr eetur því ekki stjórnað girndum
sínum og tilhneigingum, sem æsast og
margfaldast við áfengisnautnina, hefir
meiri ábyrgð á gjörðum sínum en sá,
sem algáður af breisklegri náttúru, frem-
ur það sem er á móti guðs og manna
boðum. Oss er skynsemin gefin til þess,
að stjórna tilhneigingum vorum og á-
stríðum; vér höfum því engan rétt til
þess að svifta oss henni, framar en að
taka af oss lífið, sem hefur verið álitið
og er enn þá álitið að vera einhver
stærsta og voðalegasta ofdyrfska gegn
guði almáttugum..........
Smávegis.
Mannfjöldi á íslandi hefir farið
óðum vaxandi eftir að fólkið var talið
síðast. Fólkið var 1890 70927.
Eftir skýrslum prestanna var fólks-
tala hjer á landi 31. des. 1890 69977.
31. des. 1891 70494.
31. des. 1892 71221.
31. des. 1893 71685.
31. des. 1894 72177.
31. des. 1895 73449-
31. des. 1896 74682.
Utflutningur á fólki hefir verið lít-
ill eftir 1890, hans gætir valla, svo
dánarskýrslur presta verða nærri sanni
á þessu tímabili. Mannfjölgun á 6 ár-
um hefir verið eftir skýrslum prestanna
4705, en hér um bil þúsund manns
lægri ef fólkstalan 1890 er lögð til
grundvallar.
Helzt verða menn að álíta að
fólkstalan 1890 sé hérumbil 1000 manns
of há, og að þeir sem voru tjarverandi