Dagskrá - 19.11.1898, Page 4
72
Var svo hvast um nóttina að töluverð-
ar skemdir urðu hér í bænum. Þar á
meðal fauk helmingur þaks af bæ ein-
um í Grjótagötu, hús þeirra Oddfélaga
fauk og molbrotnaði og nýtt hús, er W.
Ó. Breiðfjörð kaupmaður átti í smíðum
nálægt Grímsstöðum, skemdist töluvert.
Þar að auki skektust og skemdust
hjallar og skúrar til og frá.
Annar fundur haldinn í leynifélagi
því, er getið var um nýlega. Menn
þykjast heyra mun á því, hve slúður-
sögum hafi fækkað síðan það myndað-
ist.
Þriðjidagur.
Suðaustan rok og kafald fyrripart-
inn, lygndi nokkuð er á daginn leið
og gjörði bleytuslyddu. Svo mikið var
brim um nóttina að sjór gekkyfirgöt-
ur bæjarins og ruddi þangað þara og
gijóti. Bryggjur skemdust og skip brotn-
uðu nokkuð, þar á meðal tók út mastra-
laust skip, er Seltirningar attu í Bakka-
sandi og brotnaði það f spón; engar
urðu þó stórskemdir aðrar.
Miðvikudagur.
Suðaustan stórviðri með kafalds-
éljum; töluvert frost er á leið daginn.
Dagskrá var send ný skáldsaga, sem heitir:
„Æfisaga Skamma-Jóns“, en söguhetj-
an er máluð svö svört, að „Dagskrá"
er um og ó að taka hana. Það verð-
ur samt undir atvikum komið, hvort
saga þessi birtist eða ekki, það erauð-
vitað rétt að sýna svörtu myndirnar á
leiksviði heimsins. Það getur orðið til
aðvörunar.
Fimtidagur.
Vestanrok og kafaldshríð fram yfir
hádegi, lygndi síðari hluta dags og
gjörði miJt veður.
Orð var á því haft, að hrafnagang-
ur ærinn væri vestur í fjöru, þar sem
skip þeirra Seltirninga brotnaði; enda
er kola lítið í bænum um þessar mundir
og veður kalt.
Föstudagur.
lygnt fram á hádegi, en hvast á suð-
austan er á leið óg gjörði regn.
Ungfrú Guðrún ísleifsdóttir og
Sigurður Briem póstmeistari opinber-
uðu trúlofun sína, Dagskrá óslcar þeim
til hamingju.
Þíílltíll manns hafa gengið
í Good-Templarstúkurnar hér í bænum
þessa viku.
DAGSKRÁ Nr. 16, i. síðu,
3. dálki, 4. 1. að neðan hefir svo ólán-
Jega tiltekist að eftir 100, vanta orðin
„er það ekki gróðavænlegt fyrir bænd-
ur“. En það er samt lán með óláni,
hve fagurt Ijós þessi vangá hefir kveikt
í rófunni á Nýju Öldinni 12, nóv. s. 1.
J. B.
Marmalát.
5. okt. andaðist Sigurður Jósefssor.
Hjaltalín að Ósi á Skógarströnd; 76
ára gamall.
30. okt. lést Eiríkur Ketilsson
sýslunefndarmaður á Járngerðarstöðum
í Grindavílc, 36 ára að aldri; hann var
sonur Ketils í Kotvogi; byrjaði á námi
í lærðaskólanum, en hætti við það eftir
eitt ar. Eiríkur sál. var kvæntur og
átti Jóhönnu Einarsdóttur bónda Jóns-
sonar í Garðhúsum.
I. nóv. andaðist uppgjafaprestur
Jíón Brynjólfsson að Hala í Holtum.
4. nóv. lést Jóhannes Sveinsson á
Svarfhóli í Stafholtstungum, fyrrum
bóndi á Síðumúlaveggjum. Hann var
um sjötugt.
13. nóv. andaðist hér í bænum Þór-
unn Halldórsdóttir, móðir Björns kaupm.
Kristjánssonar.
Misprentað í þessu bl. á bls. 70.
I. d. í fyrirsögninni: Jarðskjálftinn
mikli 1897, á að vera 1896.
Tombóla
,hins islenzka Kvennfélags*
verður haldin í Iðnaðarmannahúsinu í
kvöld (19. þ. m.) kl. 5—7 og 8—11,
og sunnudagskvöldið (annað kvöld) 20.
þ. m. kl. 6V2—7V2 og 8—11.
Aðgangur kostar 15 aura.
Drátturinn — 25 —
Lúðraþeytarafélagið skemtir bæði
kveldin-
Nýr
fugl í eyjunni.
Almenningi gefst til vitundar að
ég undirritaður tek til aðgjörðar allskon-
ar gamlan skófatnað, sömuleiðis nýjan,
og laga hann eftir því sem hlutaðeig-
andi óskar.
28 Vesturgötu 28.
Reykjavík.
Kr. Guðmundsson.
Gagnlegt, skemtilegt.
fróðlegtl
Stúkan „Bifröst" nr. 43 heldur
aukafund í kveld kl. 7V2 síðd.. Fyrst
verða teknir inn nýir msðlimir, margir;
þar næst rætt mikilsvarðandi málefni,
sem allir verða að taka þátt í
og loksins verður haldin skemtun fyrir
þá, sem mæta.
'Lífsábyrgð fyrir börn,
Lífsábyrgð sú, sem hér er um að
ræða, er stofnuð fyrir nokkrum árum
af lífsábyrgðarfélaginu „Star“, og er
það sú Jífsábyrgðartegund, er sýnist
munu verða mest notuð framvegis.
Hér skal bent á aðalkosti
þessarar lífsábyrgðartegundar.
I. Árlegt iðgjald er ekki nema 1 /2—V3
af því, sem fullorðið fólk borgar.
II. Fyrir börn þarf ekkert lsekn—
isvottorð, sem stundum hefir í
för með sér, að menn ekki fá trygt
líf sitt.
III. Lífsábyrgðin er laus við hinar venju-
legu takmarkanir og skilyrði, þannig að,
a. Ábyrgðareigandi má ferðast o
dvelja hvap sem vera
skal á hnettinum, án þess að
gera félaginu grein fyrir því.
b. Ábyrgðareigandi má Stuntía
sjómennsku og hverja
aðra atvinnu, án þess að iðgjald hans
hækki.
Sem ellistyrkur er lífs-
ábyrgð þessi einkar hagfeld.
Kaupi maður t. d. barni á fyrsta
ári Iífsábyrgð til útborgunar þegar það
er 55 ára, er árlegt iðgjald 12 kr.
Borgi ábyrgðareigandi þetta sama
iðgjald í 50 ár, hefir hann borgað út
604 kr. en þá mundi ábyrgðin með
viðlögðum „bonus" vera orðin 1500—
1600 kr.
Vilji ábyrgðareigandi verja „bonus"
til þess að lækka iðgjöldin, hverfa þau
smámsaman alveg og hann á ábyrgð
sína sér að kostnaðarlausu, en getur
eftir þann tíma fengið „bonus" lagðan
við, eða þá borgaðan jafnóðum.
Þegar ábyrgðareigandi er fulls 21
árs, öðlast ábyrgð hans eiginlegt gildi
og nýtur eftir þann tíma allra réttinda
félagsins um uppbót, lántöku, endur-
kaupsgildi o. s. frv.
Deyi ábyrgðareigandi fyrir þann
tíma, eru iðgjöldin endurborguð foreldr-
unum eða þeim, sem hafa trygt líf
barnsins.
Ef allir hér á landi, sem með góð-
um vilja hafa efni á því, vildu tryggja
líf barna sinna, mundu ekki líða marg-
ir mannsaldrar áður landsmenn ættu
lífsábyrgðir, sem svaraði þúsund krónum
á mann, en það væri sama sem að ár-
lega borgaðist inn í landið 1,750,
OOO kr. með sama fólksfjölda og
nú er.
Fineste Skandinavisk Export
Kaffe Sorrogat,
F. Hjort & Co.
Kjöbenhavn K.
VIÐGERÐ og HREINSUN á saumavél-
um tekur að sér GUÐJÓN JÓNSSON
á Smiðjustfg nr. 7 mót mjög vægri
borgun.
Verkafólkseklan. .
1.
Þar eð nú fæst ekkert íslenzkt
vinnufólk með öðrum kjörum en
að það sé látið hafa sómasarhlegt
fæði, viðunanlegt húsriæði og rúm
og það afsegir að vinna 16 klukku-
stundir á sólarhring, þá er það til-
laga Fjósakonunnar, að ráðnarséu
nokkrar þúsundir af Lassarónum og
Kínverjum í vinnumennsku til vor.
Hún leggur það einnig til, að
þeim séu goldnir 16—17 aurar á
dag eða ein króna umvikima, auk
einhvers lélegs fæðis, sem búa má
til úrnæstumtómu vatni. Hæfilegt
væri,aðlátaþávinna 14—18 klukku-
stundir á sólarhring. Svo geta
þeir legið á gólfinu, breitt undir
sig strigatusku og haft ekkert of-
an á sér. Með þessu ættu þeir
að geta haft 200—300 krónur af-
gangs eftir sumartímann, 4 mán-
uði. Ef reiknaðir eru 26 virkir
dagar í mánuði, bá hefir maður
26’X4=i04 og í04.X 16=30000,
Sjá ekki allir, hversu þetta er rétt
reiknað? og eru ekki allir sam-
dóma Fjósakonunni um það, að
tillögur hennar séu bendingar til
mikilla framfara?
Lífsábyrgöarfélagið ,STAR‘,
Skrifstofa félagsins Skólavörðustíg
M 11, er opin hvern virkan dag frá
11—2 og 4—5.
■W'Hús'P*
nýbygt, mjög vandað, með góðri lóð
er til sölu á hentugum stað í bænum.
Ritstj. vísar á.
nrLESIÐ.-p®
Stúlka, sem er vel að sér og æfð
í allskonar saumaskap, óskar eftir at-
vinnu nú þegar.
Ritstjóri vísar á.
^^Tndirritaður kennir að tala og
lesa ensku.
Laugarvegi 37
Sigurður Pétumon.
Fæði, húsnæði og þjónustu selur
frú Sigríður Eggerz f Glasgow.
TVÍLYFT HÚS með góðum kál-
garði á hentugum stað í bænum er til
söiu. Ritstjóri vísar á.
Álftnesingar, Hafnfirðingar og Mos-
fellssveitarmenn eru vinsamlega beðnir
að vitja Dagskrár í búð Jóns kaupm.
Jónssonar, Aðalstræti 10.
SAMTAL,
V. Hvaða ráð ætli sé annars vænleg-
ast til þess að auka álit og útbreiðslu blaða?
Kaupendum að' Fj.konunni fækkár óðum;
ég veit ekki hvernig ég á að að fara. Ég' er
nú eldri blaðamaður en þú, en þó finn
ég engan veg. Þú hefir altaf þúsund ráð“.
B. Það sem mér hefir reynst bezt,
góði minn, síðan ég byrjaði að fást við
þessi blöð, er það að reyná að koma því
áliti á aðra, sem gefa út samskonar
blöð, að þeir séu ekki hæfir til þess, alt
sem þcir riti, sé einskisvirði. Ég hefi meira
að segja tekið heila daga til þess að ganga
hús úr húsi o> rægt þá og logið uppáþá
ýmsurn óhróðri; ég hefi.ferðast um fjarlæg
héruð og beitt sömu brögðum, ýmist heíi
ég reynt að gjöra þá grunsama í augum
þeirra, sem ég hefi talað við eða ég hefi
blátt áfram spunnið um þá heilar sögur,
sem ég vissi að hlytu að sverta þá. Ég
skal ekki segja hvort þetta eru sem vönd-
uðust meðul, en hvað tjáir að tala umþað;
það dugir elcki að láta sér alt fyrir
brjósti brenna.
V. Það lá að, að þú hefðir eitthvert
gott ráð; ég hefi nú aldrei gjört þetta.
en ég sé að það er vænlegt til árangurs
ég tek það upp líka.
B. Já, það er að vísu gott, en það er
verst að ég hefi farið heldur langt stund-
um, svo mér gengur miklu ver að fá
menn til að trúa mér þess vegna.
Ég dauð-kvíði fyrir að þettaráð dugi
ekki lengur. Mér hefir gefist það vel,
því það var ég, sem fyrst notaði það,
en það er bezt að fara varlega. Við
skulum samt gjöra það, sem við getum;
og ef við leggjumst á eitt, þá hljótum
við að koma nokkru til leiðar.
Mörgum þykir enn gaman að heyra
óhróðursögur um náungann, svo er guði
fyrir þakkandi, og ég er lagin á að
smíða þær, það held ég að sé ekkert skrum.
Útgefandi: Félag eitt i Reykjavik.
Abyrgðarm,: Sig. Júl. Jóhannesson,
cand. phil.
Prentsmiðja Dagskrár.
Lavenskjold Fossum-Fossumpr.Skien
tekur að sér að útvega kaupmönnum við. Einnig eftir teikningum að byggja
hús. Semja má við PÉTUR M. BJARNASON á ísafirði.
M>enn ættu að nota tækifærið, því hvergi mun fást ódýrari viður, eða með
betri kjörum en hjá undirskrifuðum.
Pétur M. Bjarnason.
Kemur oftast út
einhvern dag vik-
unnar, ef ritstj.
er ekki á túr.
FJÓSAKONAN.
Kostar 3 kr., er
dýrasta blað eft-
ir stærð og frá-
gangi.
október.
189.,