Dagskrá

Eksemplar

Dagskrá - 26.11.1898, Side 4

Dagskrá - 26.11.1898, Side 4
76 þingi, að það þarf að róa vel undir ef einhverju góðu á að verða framgengt. Nj'órður. * * ❖ * * Þótt línum þessum sé beint tilmín sem spurning, finn ég mér ekki skylt að svara þeim, en þess má vænta að hr. Magnús gjöri það sjálfur og á það betur við. Ritstj. Dagbók Reykjavíkur. Laugardagur. Suðaustanstormur fyrri partinn, lygndi eftir hádegið og snjóaði töluvert. Kvennfélagið hélt tombólu i Iðn- aðarmannnahúsinu. Sunnudagur. Lygnt veður og gott, en dálítið frost, Indriði revísor Einarsson lagði af stað austur, í bindindisför, ætlar að flytja þar fyrirlestra og ef til vill stoína stúkur. Gufuskipið „Ásgeir“ kom frá út- löndum með ko), en engar fréttir. Áframhald af Kvennfélagstomból- unni í Iðnaðarmannahúsinu. Stúkan Einingin nr. 14 hélt 13 ára afmæli sitt í Good-Templarahúsinu, með mikilli viðhöfn. Fyrst söng Stef- ♦ anía Guðmundsdóttir kvæði, er ort mun hafa Jón Ólafsson og kallað var „Lyst- ug vísa", var það einkennilega ort, íjör- ugt og skemtilegt, og aðdáanlega vel sungið. Þá talaði Jón Ólafsson lengi fyrir minni Einingarinnar, Borgþór Jós- efsson fyrir minni Reglunnar hér á landi og Jón G. Sigurðsson bæjarfó- getaskrifari fyrir minni hinna stúknanna, bæði' Reykjavík og úti um land. Fór- ust honum bezt og viturlegast orð allra þeirra. Þá varsungiðannað kvæði.ernefnt var „Hljóð úr horni,, en Stefanía Guð- mundsdóttir lék stutt eintal, sem er mjög lítitilfjörlegt í sjálfu sér, en var snildarlega leikið og því til mikillar skemtunar. Þá söng Þóra Sigurðardóttir kvæði og fórst það ágætlega, en það var ó- viðkunnanlegt að velja til þess útlent (danskt) kvæði. Loksins mælti Þorv. Þorvarðarson fyrirminni kvenna. Afmælishátíðin fór vel fram, en nú eru Templarar orðnir svo margir að ekki gátu fleiri en Eining- armenn einir saman verið þar og nokkrir aðrir, er boðnir voru. Er nú í ráði að byggja nýtt hús, miklu stærra eða stækka það gamla. Mánadagur. Lygnt veður og gott, frostlítið. Fór fram jarðarför Þórunnar sál. Halldórsdóttur og fylgdi henni fjöldi fólks. Þriðjidagur. Suðaustan rok fram á hádegi, lygndi þá nokkuð og var ailgott veður til kvelds; frostlítið og þurt. Miðvikudagur, Bjart veður og nokkurt frost, lygn á austan. Kom út jólanúmer «Herópsins» lit- prentað, mjög skrautlegt, óefað lang- fallegasta blað, sem komið hefir út hér á landi; er það til sölu hjá útgefanda og kostar 15 aura. Fimtidagur,. Sunnankaldi; kafald öðruhvoru, lítið frost. Föstudagur. Suðaustan kaldi, lítið frost, kaf- aldsél, rigning um kveldið. Hvítárvallagreifinn kom hér til bæjarins ásamt fóstursyni sfnum. Segja sumir að hann muni vera kominn í því skyni, að leita sér upplýsinga hjá lög- fræðingum, til þess að geta klekt á þeim sveitungum sínum fyrir það, hversu hátt útsvar þeir hafa lagt á hann (500 kr). Gufuskipið „Ásgeir Ásgeirsson" fór til ísafjarðar. Óróna sjóvetlinga vel stóra—og tómar steinolíu-tvHlll— UIT, kaupir háu verði Th, Thorsteinsson (Iáverpool.) Mr’ SJ.5 sem stalst undirsænginni úr læstu herbergi á hæsta lofti í Glasgow, ert hér með alvarlega ámintur um, að skila henni tafarlaust, því ella verður nafn þitt gefið upp fyrir lögreglustjóra bæjarins. Tveir menn sáu tii þín þegar þú fórst með sængina. Skamma-Jón; æfisaga þessarar persónu byrjar í næsta blaði Dagskrár, og má ætla að marga fýsi að lesa, því sagan verður bæði fróðleg, skemtileg og lærdómsrík. Sagan verður prentuð neðanmáls, til þess að kaupendur geti átt hana sér- staka. Sá, sem kynni að eiga kvæði, er heitir „Brot úr þulunni um Jón mann- orðsþjóf", er vinsamlega beðinn að ljá það ritstjóra Dagskrár ogsömuleiðis að gefa honum allar upplýsingar, er hann getur, um þá persónu. Gó9 jólagjöf! „Vegurinn til Krists“ 159 bls, innb. í skrautbandi. Verð 1 kr. 50 aurar. Fæst eins og fleiri góð- ar bækur til kaups hjá D. 0stlund. Vallarstræti 4, Rvík.. Náttúrusafnið er lokað í skammdeginu, frá 27. þessa mánaðar. Benedikt Gröndal, Dýraverndunarfélagið heldur fund í kvöld, 26. nóv. kl. 7 í Framfarafélagshúsinu. Áiíðandi að all- ir mæti. Bindindismannadrykkurinn ,Chika‘, er ljúffengur og fínn svaladrykkur. — »Chika« er ekki meðal þeirra drykkja sem meðlimum Stórstúku Danmerkur af N. I. O. G. T. er bannað að drekka. Martin Jensen, Kjöbenhavn. Umboðsmaður fyrir ísland: F. Hjorth.&Co. Stafur. var skilinn eftir í leikhúsi W. Ó. Breið- fjörðs síðastliðið laugadagskvöld. Vitja má til ritstjóra þessa blaðs. Lífsábyrgð fyrir börn. Lífsábyrgð sú, sem hér er um að ræða, er stofnuð fyrir nokkrum árum af lífsábyrgðarfélaginu „Star“, og er það sú lífsábyrgðartegund, er sýnist munu verða mest notuð framvegis. Hér skal bent á aðalkosti þessarar lífsábyrgðartegundar. I. Árlegt iðgjalder ekki nema ‘/2—V3 af því, sem fullorðið fólk borgar. II. Fyrir börn þarf ekkert laekn— ÍSVOttOPð, sem stundum hefir í för með sér, að menn ekki fá trygt jíf sitt. III. Ltfsábyrgðin er laus við hinar venju- legu takmarkanir og skilyrði, þannig, að a. Ábyrgðareigandi má ferðast og dLvelja hvar sem vera skai á hnettinum, án þess að gera félaginu grein fyrir því. b. Ábyrgðareigandi má StUllda sjómennsku og hverja aðra atvinnu, án þess að iðgjald hans hækki. Sem ellistyrkur er lífs- ábyrgð þessi einkar hagfeld. Kaupi maður t. d. barni á fyrsta án lifsábyrgð til útborgunar þegar það er 55 ára, er árlegt iðgjald 12 kr. Borgi ábyrgðareigandi þetta sama iðgjald í 50 ár, hefir hann borgað út 604 kr. en þá mundi ábyrgðin með viðlögðum „bonus" veraorðin 1500— 1600 kr. Vilji ábyrgðareigandi verja „bonus" til þess að lækka iðgjöldin, hverfa þau smámsaman alveg og hann á ábyrgð sína sér að kostnaðarlausu, en getur eftir þann tíma fengið „bonus" lagðan við, eða þá borgaðan jafnóðum. Þegar ábyrgðareigandi er fulls 21 árs, öðlast ábyrgð hans eiginlegt gildi og nýtur eftir þann tíma allra.réttinda félagsins um uppbót, lántöku, endur- kaupsgildi o. s. frv. Deyi ábyrgðareigandi fyrir þann tíma, eru iðgjöldin endurborguð foreldr- unum eða þeim, sem hafa trygt líf barnsins. Ef allir hér á landi, sem með góð- um vilja hafa efni á því, vildu tryggja líf barna sinna, mundu ekki líða marg- ir mannsaldrar áður landsmenn ættu lífsábyrgðir, sem svaraði þúsund krónum Álftnesingar, Hafnfirðingar og Mos- fellssveitarmenn eru vinsamlega beðnir að vitja Dagskrár í búð Jóns kaupm. Jónssonar, Aðalstræti 10. Lífsábyrgðarfélagið ,STAR‘. Skrifstofa félagsins Skólavörðustíg M 11, er opin hvern virkan dag frá 11—2 og 4—5. '^X^dirritaður kennir að tala og lesa ensku. á mann, en það væri sama sem að ár- lega borgaðist inn í landið 1,750» OOO kr. með sama fólksfjölda og nú er. Nýfluttur til íslands er hinn heimsfrægi litur Omnicolor tilbúinn af efnafræðisverkstofu Baumanns í Kassel. Festist ekki við hendurnar, hefur engin eitruð efni og upplitun á sjer ekki stað. Hefur þegar við fyrstu reynslu fengið bestu meðmæli. 20 litartegundir. — pakkinn kostar 35 aura og fylgja litunarreglur á íslensku. Einkaútsöiu fyrir ísland hefur Gunnar Einarsson. Tjarnargötu 1. Reykjavík. Nýr fugl í eyjunni. Almenningi gefst til vitundar að ég undirritaður tek til aðgjörðar állskon- ar gamlan skófatnað, sömuleiðis nýjan, og laga hann eftir því sem hlutaðeig- andi óskar. 28 Vesturgötu 28. Reykjavík. Kr. Guðmundsson. Ný barnastúka verður stofnuð í Good-Templarhúsinu sunnudaginn 4. desember kl. 4. síðdeg- is. Svo var til ætlast að það yrði gjört á morgun, en sökum vissra orsaka varð því ekki við komið. Allir þeir, sem vilja láta börn sín vera í þessari nýju stúku, gjöri svo vel að snúa sér til Sig Júl. Jóhannessonar. Fineste Skandinavisk Export Kaffe Sorrogat, F. Hjort & Co. Kjöbenhavn K. Útgefandi: Félag eitt í Reykjavík. Abyrgðarm.: Sig. Júl. Jóhannesson, cand. þhil. Prentsmiðja Dagskrár. 37 Laugarvegi 37. Sigurður Pétursson. Lovenskjold Fossum-Fossumpr.Skien tekur að sér að útvega kaupmönnum við. Einnig eftir teikningum að byggja hús. Semja má við PÉTUR M. BJARNASON á ísafirði. Síenn ættu að nota tækifærið, því hvergi mun fást ódýrari viður, eða með betri kjörum en hjá undirskrifuðum. Pétur M. Bjarnason.

x

Dagskrá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.