Dagskrá - 17.12.1898, Blaðsíða 3
87
Irá og eins er það ekki Htill kostur við
ræður, ef maður hefir hjá sér dæmi til
þess að benda á.
Annars leist mér mjög vel á margtá
Húsavík. Neðan frá sjónum upp i bæ-
inn er upp háan bakka að fara, en þar
liggur upp stíg: fyrir gangandi fólk, og
í öðru lagi sporbraut til þess að fiytja
eftir vöruvagna. Er það þannig utbú-
ið að spil er uppi á bakkanum og eru
vagnarnir festir í bönd, er írá þeim liggja,
eru þeir látnir renna niður á bryggju
og fermdir þar, en síðan dregnir upp
með spili; er mjög bratt upp á bakk
ann og erfitt að ná vögnunum upp.
Þegar þeir eru látnir fara tómir niður
situr oft á þeim fólk, helzt kvennfólk
og börn, og var mér nóg boðið þegar
vagninn rann niður með þau með
fljúgandi hraða og ég held að ég
hefði ekki þorað að sitja í vagninum.
Lækur eða lítil á rennur til sjávar á Húsa-
vík og er þar vatnsmylnagóð og vel gjörð,
þar er malað alt fyrir Örum og Wulfs-
verzlun. Mikið var talað uui það um
kveldið að sýslumaður ætlaði að legja
„Hóla" til þess að elta ensk botnvörpu-
skip, er þar lægi rétt upp við landstein-
ana, að fiski. Töluðu sumir um að skora
á hann að gjöra það, ef hann tæki það
ekki upp hjá sjálfum sér, og var í þeim
allmikill vígahugur að berja á Englend-
ingum ef til kæmi. Var svo að heyra
sem þeir væru búnir til þess að ganga
á hólm við hvaða berserki’ sem vera vildi
og horfa hvössum augum framan í gömlu
Helju, ef svo vildi verða. Þeir stæltu
hnefana hver framan í annan þegar þeir
ræddu um þetta, en orustan við Eng-
lendinga komst aldrei langra en á var-
irnar í það skifti; kendu þeir það sýslu-
manni, því þeir sögðu að ekki skyldi
standa á sér, ef þeir væru til hernaðar
kvaddir.
A Húsavík er mikið af matjurta-
görðum og vel ræktuð tún, og sést það
á mörgu að þar hljóta að búa dug-
andi menn og starfsamir.
Síldveiði er þar mikil, en varla hafði
hennar orðið vart um langan ti'ma að
undanförnu þangað til skömmu áður
en við komum, og var nú komin ágæt
síldveiði. Sögðu menn að það myndi
vera orsök þess, hve ölvaðir margir
væru, því það væri venja að gjöra sér
»glaðan(!I)» dag þegar góður afli kæmi
eftir langt fiskileysi. Má vel vera að
þetta sé satt. —
Sá merkisatburður skeði á Húsa-
vík að þar hitti ég starfsystur mína,
Briet Bjarnhéðinsdóttur, og má nærri geta
að þar hafi orðið fagnaðar fundir. Hún
ferðaðist umhverfis land á kostnað gufu-
skipafélagsins, í þeim erindum líklega, að
finna að máli kaupendur blaða sinna.
Lofa þeim að sjá þá veru í eigin per-
sónu, sem þeir náttúrlega höfðu gjört
sér óljósar og mismunandi hugmyndir
um. Við urðum svo samferða þaðan
austur um land og alla leið suður til
Reykjavíkur. Bar þá margt á góma
eins og vanalegt er þegar gamlir góð-
kunningjar finnast í eins góðu næði og
við höfðum á leiðinni.
Dagbók Reykjavíkur.
Laugardagur.
Lygn á austan, lítið frost, kafalds
él öðru hvoru.
Thorvaldsensfélagið hélt hlutaveltu
og útsölu í Iðnaðarmannahúsinu.
Dansskemtun í Good-Templarhúsinu.
Stúdentafélagsfundur og þar rætt
um að bindast samtökum við önnur
félög bæjarins til þess að gjöra leikvöll
suður á melum, þar sem sýndar yrðu
íþróttir á þjóðminningardögum o. s. frv.
Ólafía Jóhannsdóttir hélt fyrirlest-
ur í húsi Hjálpræðishersins; um ferðir
sínar í Ameriku.
Verzlunarmannafélagið hélt fund á
Hótel ísland. Þar hélt hr. bankabókari
Sighvatur Bjarnason fróðlegan fyrirlest-
ur um vöruflutninga.
Sunnudagur.
Kafald um morguninn fram á há-
degi, stytti þá upp og gjörði gott veð-
ur þegar á daginn leið. Hafði fent mik-
ið um nóttina.
Var stofnuð ný stúka í Good-Templ-
arhúsinu mcð hundrað og tuttugu með-
limum; þar af voru áttatíu og prír nýir.
Fyrir stofnun stúku þessarar geng-
ust einkum skipstjórar og sjómenn yfir
höfuð; fyrir stofnun Hlínar og Bifrastar
gengust helzt skólapiltar. Hvenær skyldu
embættismennirnir gangast fyrir stúku-
stofnun?
Aframhald af hlutaveltu Thorvald
sens félagsins í Iðnaðarmannahúsinu.
Mánadagur.
Sunnan stormur og kafald örðu
hvoru, nokkuð hvass, frostlítið.
Kosin 3 manna nefnd í stúkunni
Hlín til þess að fara þess á leit við alla
kaupmenn bæjarins að þeir hættu að
selja og flytja áfengi.
Þriöj idagur.
Suðaustan stórviðri með kafalds-
éljum; Lygndi um kveldið.
Gufuskipið „Mors“ fór aftur til
Austurlandsins og útlanda.
Miðvikudugur.
Lygnt og frostlítið, suðaustan kaldi.
Stofnað viðaukadeild við glímufé-
lagið „Armann" fyrir unglinga.
Fimtidagur.
Norðankaldi fram eftir deginum;
gekk í austur síðari hluta dags og gerði
hávaðarok. Skúrir öðru hvoru.
Föstudagur.
Suðvestan rok með éljum; lítið frost.
Um nóttina hafði sjór gengið upp
á götur bæjarins og borið þangað grjót
og þara og brimið var svo mikið, að
hús skulfu og titruðu eins og í' jarð-
skjálfta.
Yinnustofan
|^í Bröttugötu 5,
M. A, MATTHIESEN.
í BrÖttUgÖtU er flest að fá
fyrir lítið verð,
skótau er þar unnið
af allra beztu gerð.
Svo er eitt ekki sízt,
þar alt er gjört svo fljótt,
Þar margir vinna’, en verða samt
að vaka fram á nótt.
Sjómenn kaupa stígvél sterk,
stúlkur fín og nett,
þau blessuð börnin þurfa
bæði sterk og létt.
Reimar, svertu’, áburð eins
allir þurfa að fá;
það bezt er alt í BrÖttUgÖtU
bæði að reyna og sjá.
Við þekkjum mörg hann Matthías,
sem mest er pantað hjá;
hann selur skó úr skinni
sem skín og gljáir á.
Komi sveinn, kæra mær,
og kveðji þig á dans,
þá þarftu að fá þér fína skó
— og farðu til hans.
Um jólin, ef þú opinberar,
eflaust þarftu skó,
því ekki viltu’ að unnustan þín
eigi ljóta skó.
Og því er bezt að biðja í tíma
í BrÖttUgÖtU um skó,
Hjá Matthiasi Og engum öðrum
áttu‘ að kaupa skó.
L^venskjold Fossum-Fossumpr.Skien
tekur að sér að útvega kaupmönnum við. Einnig eftir teikningum að byggja
hús. Semja má við PÉTUR M. BJARNASON á ísafirði.
Míenn ættu að nota tækifærið, því hvergi mun fást ódýrari viður, eða með
betri kjörum en hjá undirskrifuðum.
Pétur M. Bjarnason.
voT
aS
c/5
2
oö
s
*o
s
n
ctf
bo
JL
G
'O
04
<
►J
O
H
'Tí
oí
h—«
W
>
H
Bók
hefir týnst á leiðinni ofan úr Þingholt-
um vestur fyrir Hlíðarhús. Bólcin heit-
ir „Mad og Drik“. Á titilblaðið er
skrifað: Anna Guðmundsdóttir. Finn-
andi gjöri svo vel að skila bókinni til
ritstj.
------------------------
Nýtt tímafmT
ríkirkjan. Mánaðarrit til stuðnings i
frjálsri kirkju og frjálslyndum kristin- í
dómi, byrjar að koma út I. jan. 1899.
Utg. Lárus Halldórsson, fríkirkjuþrest-
ur. Blaðið verður að stærð eins og
Kirkjublaðið var, og með myndum.
Verð 1 kr. 50 au. Fæst hjá öllum út-
sölumönnum bóksalafélagsins. Kaupendur
gefi sig fram sem fyrst.
Fineste Skandinavisk Export
Kaffe Sorrogat,
F. Hjort & Co.
Kjöbenhavn K.