Dagskrá - 24.12.1898, Page 3
91
síður þegar hann fer með hana reiður
frá föður hennar, eða þegar gamli
maðurinn leitar aftur á náðir hans.
Skyldutilfinningin fyrir því að
hann eigi að liðsinna tengdaföður sín-
um, föður konunnar sinnar, er hann
elskar svo mjög, á harða og langa or-
ustu í huga hans við aðra skyldu, dreng-
skaparloforð hans, þvíhann hefir svarið
það, að veita honum enga hjálp fyrri
en hann hafi fallið á kné frammi fyrir hon-
um eins og Klara varð að gjöra frammi
fyrir föður sínum forðum. Þetta leikur
Árni svo vel að fáir myndu feta þar í
fótspor hans.
Gunnþórunn Halldórsdóttir leikur og
ágætlega, einkum skóarasveininn, sem
er þó ekki hægðarleikur fyrir kvenn-
mann. Strákurinn á að vera svo undur
glettnis- og hrekkjalegur á svipinn þegar
hann er að tala við húsbónda sinn, og
það tekst Gunnþórunni mjög vel.
Þá er Þóra Sigurðardóttir, hún leikur
mjög vel, einkum þegar hún á að sam-
eina angurblíðu og gremju; það fer
henni ágætlega, t. d, þegar hún ætlar
að fá Leopold bróður sinn til þess að
láta karlinn hætta við að reka fátækan
leiguliða út á klakann; hún er gröm yfir
hörku föður sfns, en ætlar að vinna
bróður sinn með blíðu, Og sama er að
segja þegar hún fréttir að maður henn-
hafi rekið Mörup út á vinnustofuna.
Þá vakna í huga hennar gamlar minn-
ingar frá því að faðir hennar rak hana
burt, og það skapar gremjuna, en aftur
á móti rennur blóðið til skyldunnar;
hún kennir í brjósti um föður sinn, sem
orðið hefir að reyna hverflyndi ham-
ingjunnar og þessar tilfinningar sam-
blandaðar fara henni einkarvel. Ekki
þarf að taka það fram, að Stefanfa
leikur ágætlega, hún gjörir það altaf.
Þuríður Sigurðardóttir fer vel með
sitt hlutverk. Hún er -fyrst glöð og
áhyggjulaus vinnukona, sem lætur sér
ekki alt fyrir brjósti brenna; svo trú-
lofast hún og giftist, en litlar tilfinning-
ar virðast vera því samfara. Það sýn-
ist svo sem skeyti Amors hafi ekki
gengið djúpt inn í hjarta hennar; en
þar á móti er hún öll í búskapnum;
hún er forsjál og hugsunarsöm, en ekki
viðkvæm eða kvennleg. Svona leikur
hún og svona á hún að leika; henni
tekst það mjög vel.
Eg gat þess fyrir skömmu að mér
hefði þótt Sigurður Magnússon leika ekki
sem náttúrlegast. Öll hin blöðin hafa
tekið í annan streng, en ég sé ekki
betur en Dagskrá hafi þar á réttu að
standa. Það er næsta ótrúlegt og ó-
náttúrlegt, að önnur eins stúlka og
Emma á að vera, verði ástfanginn í
manni, sem ekki er nettari í framgöngu;
mér finst það alveg óhugsandi.
Með þessu er það alls ekki sagt,
að Sigurður leiki ekki vel, hann leikur
altaf vel, en í þetta skifti hefði honum
getað tekist betur; af þeim, sem mikið
er lánað, verður mikið heimtað. Hinir
leikendurnir eru tilkomuminni; þó leika
þeir sumir laglega, svo sem Friðfinnur
Guðjónsson.
Mánadagur.
Norðaustan kaldi og frost fram
eftir deginum, gekk þá í suður og hvesti
nokkuð.
Þriðjidagur.
Sunnankaldi og hláka.
Maður fótbrotnaði í glímuæfingu, er
Þórður hét Erlendsson að austan. Hann
er einn af nemendum Alþýðuskólans.
Miðvikudagur.
Sunnanstormur og rigning meiri
hluta dags.
Ný verzlun byrjaði hér í bænum;
hún er uppi í latínuskóla. Rektor sel-
ur þar nemendum »frí«, en það eiga
þeir að borga með „stillingu“. Þess
háttar skifti eru dálítið einkennileg.
Fimtidagur.
Suðvestan stormur og éljagangur,
lítið frost.
Dýraverndunarfélagið hélt fund í
húsi kaupm. W. Ó. Breiðfjörðs. í dóm-
nefnd voru þeir kosnir: Magnús Ein-
arsson dýralæknir, Tryggvi Gunnarsson
bankastjóri; Sighvatur Bjarnason banka-
bókari, Olafur Olafsson bæjarfulltrúi og
B. H. Bjarnason kaupm. Nefnd þessi
á að skera úr því, hvað teljast skuli ill
meðferð á skepnum, et félagsmenn eiga
hlut að máli, og ákveða sektir á hend-
ur þeim, er sekir verða.
Stjórninni falið að skora á bæjar-
stjórnina að láta framfara rækilega
hrossasmölun til þess að ko.mast eftir,
hvort ekki séu hér aðkomuhross án
húss og nægilegrar hirðingar. Þrír
menn kosnir í nefnd til þess að sjá um,
að frumvarp verði samið og lagt fyrir
næsta þing, er ákveði nákvæmar en nú
er, hvað talin skuli ill meðferð á skepn-
um og hvað við liggi. Kosnir voru
þeir: Tryggvi Gunnarsson, Ólafur Ó-
lafsson og W. O. Breiðfjörð. Stjórn-
inni falið að skrifa öllum dýraverndun-
arfélögum öðrum, og fá þautil að gjöra
eitthvað 1 sömu átt.
Fðstudagur.
Suðvestan kaldi; Kafaldsél öðru
hvoru, lftið frost.
Kom kolaskip til Fischersverzlunar,
er legið hafði í Keflavík og Hafnafirði
nokkra daga.
Stúdentafélagið hélt veizlu í Iðn-
aðarmannahúsinu til heiðurs Þorláki
biskupi hinum helga. Voru þar sungin
tvö kvæði og fluttar margar ræður.
Dánir eru tveir merkisbændur í
Miðdölum: Sumarliði Jónsson á Breiða-
bólsstað, um ftmtugt og Benedikt Þórð-
arson á Svínhóli, liðlega þrítugur. Þeir
voru báðir í röð allra fremstu bænda
þar í héraði og er að þeim mannskaði
mikill.
Ofsarok gjörði á Seyðisfirði 14.
nóv. af suðvestri. Bátar flugu í loft
upp, þök fuku af húsum, hey fauk á
Dvergasteini, vörugeymsluhús Gránufé-
lagsins skektist á grunni og særokið
var svo mikið að nam við hæstu fjöll.
Gufuskipið „Alpa“, sem strandaði
á Hornafirði í fyrra, hefir nú náðst út.
Tulinius kaupmaður keypti það fyrir
1000 kr. og ætlar að senda það út til
viðgjörðar.
Náhveli hljóp á land á Hringvers-
reka á Tjörnesi 22. f. m. Var um 7
álnir á lengd og ákaflega feitt, en tönn-
in alt að þrem álnum.
Ætti „náttúrusafnið" að leggja
drögur fyrir tönnina, áður en hún verð*
ur send til Danmerkur.
ári lífsábyrgð til útborgunar þegar það
er 55 ára, er árlegt iðgjald 12 kr.
Borgi ábyrgðareigandi þetta sama
iðgjald í 50 ár, hefir hann borgað út
004 kl*. en þá mundi ábyrgðin með
viðlögðum „bonus" vera orðin 1500—
1600 kr.
Er það rétt af kaupmönnum bæj-
arins, að panta ekki nauðsynjavörur
landsmanna upp til landsins fyr ensvo
seint að þær hafa hækkað mjög í verði,
svo almenningur á mjög erfit með að
kaupa þær, t. d. eins og kolin núna,
sem flutt voru hingað til bæjarins og
eru seld hér fyrir 5 krónur skpd., sem
þykir geypiverð, þar sem kol frá Dys-
art í Skotlandi kostuði í næst síðast-
liðnum mánuði 6 shillings tonnið (87
aura skpd.) þar á staðnum
Hafa kolin hækkað í verði ytra?
eða er flutningur á þeim orðinn dýrari
en áður? Hver ráð eru til þess að
kaupmenn hér etir hugsi meira um
velferð þjóðarinnar? — Svar næst.
LESIÐ!
ÞAÐ BORGAR SIG.
Hjá undirrituðum er úr talsverðu að
vtlja, af mínum góðkunna skófatnaði.
Gott efni, góð vinna.
Sömuleiðis er pantaður skófatnað-
ur smíðaður nákvæmlega eftirmáli.
Enn fremur allar aðgjörðir fljótt
og vel af hendi leystar.
Þeir, sem enn ekki hafa fengið sér
skó til jólanna, komi sem fyrst og
semji við mig. Ég gef háar
prosentur til nýárs mót borgun
út í hönd.
Þeir, sem ekki hafa peninga,
geta fengið skó, eða skóviðgjörð-
ir móti innskrift.
Virðingarfylst.
Yilhjálmur Kr. Jakobsson.
(Austurstræti 5.).
Vilji ábyrgðareigandi verja „bonus“
til þess að lækka iðgjöldin, hverfa þau
smámsaman alveg og hann á ábyrgð
sína sér að kostnaðarlausu, en getuj
eftir þann tíma fengið „bonus“ lagðan
við, eða þá borgaðan jafnóðum.
Þegar ábyrgðareigandi er fulls 21
árs, öðlast ábyrgð hans eiginlegt gildi
og nýtur eftir þann tíma allra réttinda
félagsins um uppbót, lántöku, endur-
kaupsgildi o. s. frv.
Deyi ábyrgðareigandi fyrir þann
tíma, eru iðgjöldin endurborguð foreldr-
unum eða þeim, sem hafa trygt líf
barnsins.
Ef allir hér á landi, sem með góð-
um vilja hafa efni á því, vildu tryggja
líf barna sinna, mundu ekki líða marg-
ir mannsaldrar áður landsmenn ættu
lífsábyrgðir, sem svaraði þúsund krónum
á mann, en það væri sama sem að ár-
lega borgaðist inn í landið 1,750,
OOO kr. með sama fólksfjölda og
nú er.
NýTT tímari
ríkirkjan. Mánaðarrit til stuðnings
frjálsri kirkju og frjálslyndum kristin-
dómi, byrjar að koma út 1. jan. 1899.
Utg. Lárus Halldórsson, fríkirkjuprest-
ur. Blaðið verður að stærð eins og
Kirkjublaðið var, og með myndum.
Verð 1 kr. 50 au. Fæst hjá öllum út-
sölumönnum bóksalafélagsins. Kaupendur
gefi sig fram sem fyrst.
Fineste Skandinavisk Export
Kaffe Sorrogat,
F. Hjort & Co.
Kjöbenhavn K.
KlNA-LlFS-ELlXÍR.
Lífsábyrgð fyrir börn.
Lífsábyrgð sú, sem hér er um að
ræða, er stofnuð fyrir nokkrum árum
af lífsábyrgðarfélaginu „Star“, og er
það sú lífsábyrgðartegund, er sýnist
munu verða mest notuð framvegis.
Hér skal bent á adalkosti
þessarar lífsábyrgðartegundar.
I. Árlegt iðgjalder ekki nema V*—£/i
af því, sem fullorðið fólk borgar.
II. Fyrir börn þarf ekkert lækn-
isvottorð, sem stundum hefir í
for með sér, að menn ekki fá trygt
líf sitt.
Vottorð.
Ég hefi lengst æfi minnar verið
mjög veikur af sjósótt, en hefi oft orð-
ið að vera á sjó í misjöfnu sjóveðri;
kom mér því til hugar að brúka Kína-
lífs-elixír herra Valdemars Petersens í
Friðrikshöfn, sem hafði þau áhrif, að
ég gat varla sagt, að ég fyndi til sjó-
sóttar, þegar ég brúkaði þennan heilsu-
samlega bitter. Vil ég því ráðleggja
öllum, sem eru þjáðir af veiki þessari,
að brúka Kína-lífselixír þennan, því
hann er að minni reynzlu áreiðanlegt
sj ósóttarmeðal.
Sóleyjarbakka.
Bx. Einarsson.
KÍNA-LÍFS-ELIXÍRINN fæst hjá
III. Lífsábyrgðin er laus við hinar venju-
legu takmarkanir og skilyrði, þannig, að
a. Ábyrgðareigandi má ferðast og
dvelja hvar sem vera
skal á hnettinum, án þess að
gera félaginu grein fyrir því.
b. Ábyrgðareigandi má stunda
sjómennsku Og hverja
aðra atvinnu, án þess að iðgjald hans
hækki.
flestum kaupmönnum á íslandi.
Til þess að vera viss um, að fá
hinn ekta Kín-lífs-ehxír, eru kaupendur
beðnir að líta vel eftir því, að ^.p‘-
tandi á Flöskunum í grænu lakki,
eins eftir hinu skrásetta vörumerki
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
endi, og firma nafnið Valdemar Peter-
en, Frederekshavn, Danmark.
Sem ellistyrkur er lífs-
ábyrgð þessi einkar hagfeld.
Kaupi maður t. d. barni á fyrsta
Leikhúskíkir
nýr, mj'óg góður er til sölu; vœgt verd.
Ritstj. vísar á.