Dagskrá

Eksemplar

Dagskrá - 14.01.1899, Side 4

Dagskrá - 14.01.1899, Side 4
104 (Frh. af bls. 102). til sín taka á tjörninni og þykir veður- fróðum mönnum það illsviti. Andaðist Þórður Þórðarson verzl- unarmaður, sonur Þórðar bónda í Vig- fúsarkoti. Hann var dugnaðarmaður, miðaldra. Föstudagur. Lygn og blíðviðri allan daginn. Björn Sveinsson skipasmiður hjó sig í annað hnéð og meiddist töluvert. Þrír Good-Templarar fóruútíEng- ey og héldu bindindisfund; kom til orða að stofnuð yrði þar Good-Templara- stúka og skrifuðu sig þegar á tíu. Eyjarbúar eiga örðugt- með að sækja fundi í land og væri miklu hent- ugra fyrir þá að hafa stúku heima fyr- ir. A eyjunni munu veranær40 manns, og þar gæti því verið öflug stúka. Skipstrand í dag kom hr. Guðmundur Kristj- ánsson skipstjóri frá Englandi með kol og salt á skipi, er Thor. kaupm. Jensen átti, en skipið rak upp á Gróttu- tanga og strandaði þar; var þó veður hið bezta. Mannbjörg varð, en vörur að líkindum ónýtar. Hr. Guðm. hafði verið 15 daga frá Liverpool og fengið versta veður. Engin blöð og engar fréttirmerkar. Þríbura <S1 kona ein hér íbænum nýlega. Fyrsta barnið ól hún á þriðjadag 11. þ. m. kl. iH/zsíðd., annað miðvikud. kl. io1/* síðd., er tekið var með verkfærum, og hið þriðja flmtadag kl. 11. árdegis. Eitt þeirra dó í fæðingunni, en 2 lifa. Konan heitir Elinborg Pétursdóttir, en faðirinn Tobías Tobíasson, skósmiður; þau áttu 5 börn áður. Konan hefir legið lengi að undanförnu og mun fá- tækt og örbirgð vera þar nokkuð um að kenna. Þeim til leiðbeiningar, sem kynnu að vilja og geta veitt þessum hjónum einhverja hjálp, skal þess get- ið að þau búa við Lindargötu í Skugga- hverfi. Húsbruni. Um miðja þessa viku brann áEyr- arbakka — að sögn — hús Odds Odds- sonar frá Sámsstöðum til kaldra kola. Litlu eða engu varð bjargað af innan- hússmunum. Sagt að kviknað hafi í tréskúr. Trúlofuð eru ungfrú Guðrún Jakobsdóttir og Jón snikkari Guðmundsson. Dagskrá ósk- ar þeim til hamingju. Skamma-Jón heldur áfram í næsta blaði. Kvennmannsúr keðjulaust hefir tapast á götum bæjar- iiís. Skila má á afgreiðslustofu Dagskrár. Látið ykkur ekki muna um að Iesa auglýsinguna! Fyrst skal geta þess, að ég sel alt með betra verði en áður — alt með betra verði en aðrir, það munu þér bezt vita, ef þér reynið. Karlmannsskó sóla ég frá þessum tíma fyrir kr. 2,50, sem aðrir sóla fyr- ir kr. 3,00. Kvennmannsskó fyrir kr. 1.75, sem aðrir gjöra fyrir kr. 2,00 og allar við- gjörðir eftir þessu. Sömuleiðis sel ég karlmannsskó fyrjr kr. 8,00, 9,06, 10,00 og 10,50. Kvennskó fyrir kr. 7,00, 7,50 og 8,00. Sjó- og landsstígvél sel ég líka með betra verði en allir aðrir, hálfstig- vél fyrir kr. 15,00, sem aðrir selja fyr- ir kr. 17,00—18,00. Sjóstigvél, hnéhá fyrir kr. 20,00, sem aðrir selja fyrir kr. 24,00—26,00. Sjáið muninn I Til að gjöra mönnum hægra fyrir, þá tek ég nokkuð í innskritt. Virðingarfylst. Benedikt Stefánsson, (skósmiður). (Aberdeen, við norðurenda Glasgow). fO "bJO CT3 -CD M— í— ctS ro bJO 'CTá 00 ctS co c: æ co PJ <0 a c c o3 c JX J* O c v- B 3 c a fO 'O Cuo "Cti E c U c u :<=> D X H :0 3? o> -o J4 a e 3 C V<U ÖjC öjo b 3 ro jo > £ <u jc 03 ro bJO u. >> Xl voJ ,7> C 3 3 3 -g § i2 - O ■§ ^ S ■§ *= S V Z 42 3 v_. t/3 k-* rt 4« ”2 '5b .h ^ 13 _ - u 2 g 10 öjö 2 >- m o m e '3 ^ i = S t fl g 0 w n Æ © ,S (Ö « bjO ~ .C n sd «s 2 5 .2, ^ •*- co ? a a p 3 to <0 2 A b s ÍO u cö _c C s~ (1) DQ o3 '52 bjo b <u JCL. V bJD SKEMTISAMKOMU heldur stúkan „Einingin" nr. 14 á morg- un (sunnud., 15. jan.) kl. 8 síðd. Að- göngumiða fá stúkufélagar kl. 10— 12 árdegis og 5—6 síðd. sama dag, hjá Sig. Júl. Jóhannessyni, en aðrir fé- lagsmenn 6—7 síðdegis, ef nokkuð verð- ur afgangs. Nýp heíllbekkur er til sölu með góðu verði. Borgun út í hönd. Semja má við. Símon D. Bech G. Polyphon (spiladós) er til sölu, alveg nýr, mjög vandaður fyrir afarlágt verð. Ritstj. vísar á. Skrifborð nýtt og einkar vanda® er til sölu fyr- ir gjafverð. Ritstj. vísar á. TIL SÖLU nýr hnakkur vandaður; gjafverð. Ritstjóri vísar á. Dugleg Og húsvön vinnukona óskar að fá vist 14. maí næstkomandi. Ritstj. vísar á. Þakkarávarp. Hér með vottum við undirrituð verzlunarfélagi Reykjavíkur okkar inni- legasta hjartans þakklæti fyrir skemt- un þá, er það veitti börnum okkar sunnudaginn 8. þ. m. þar sem ekki einungis var gjört alt mögulegt til þess að skemta þeim sem bezt og láta alt í té, er þau gátu þegið, með innileg- asta og þýðasta viðmóti, heldur var þeim einnig gefið að endingu. Þessar velgjörðir biðjum við al- góðan guð að launa. Reykjavik 14/1- '99. Árni Árnason- Ingibjörg Gestsdóttir. pRÉTTABRÉFUM til DAGSKRáR er þakksamlega veitt móttaka, hvaðan af landinu sem er. KlNA-LlFS-ELlXÍR. Vottorð. Ég hefi lengst æfi minnar verið mjög veikur af sjósótt, en hefi oft orð ið að vera á sjó í misjöfnu sjóveðri; kom mér því til hugar að brúka Kína- lífs-elixír herra Valdemars Petersens í Friðrikshöfn, scm hafði þau áhrif, að ég gat varla sagt, að ég fyndi til sjó- sóttar, þegar ég brúkaði þennan heilsu- samlega bitter. Vil ég því ráðleggja öllum, sem eru þjáðir af veiki þessari, að brúka Kína-lífselixír þennan, því hann er að minni reynzlu áreiðanlegt sjósóttarmeðal. Sóleyjarbakka. Br. Einarssort. KÍNA-LÍFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinnekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að lita vel eftir því, að — standi á Flöskunum í grænu lakki, eins eftir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og firma nafnið Valdemar Peter- sen, Frederekshavn, Danmark. Lífsábyrgð fyrir börn, Lífsábyrgð sú, sem hér er um að ræða, er stofnuð fyrir nokkrum árum af lífsábyrgðarfélaginu „Star“, og er það sú lífsábyrgðartegund, er sýnist munu verða mest nötuð framvegis. Hér skal bent á aðalkosti þessarar Hfsábyrgðartegundar. I. Árlegt iðgjald er ekki nema l/a—V3 af því, sem fullorðið fólk borgar. II. Fyrir börn þarf ekkert lsÐkll— ÍSVOttorð, sem stundum hefir í för með sér, að menn ekki fá trygt líf sitt. III. Lífsábyrgðin er laus við hinar venju- legu takmarkanir og skilyrði, þannig, að a. Ábyrgðareigandi má ferðast og dvelja hvar sem vera skal á hnettinum, án þess að gera félaginu grein fyrir því. b. Ábyrgðareigandi má Stunda sjómennsku og hverja aðra atvinnu, án þess að iðgjald hans hækki. Sem ellistyrkur er lífs- ábyrgð þessi einkar hagfeld. Kaupi maður .d .t barni á fyrsta ári lífsábyrgð til útborgunar það þegaa er 55 ára, er árlegt iðgjald 12 kr. Borgi ábyrgðareigandi þetta sama iðgjald í 50 ár, hefir hann borgað út 604 kr. en þá mundi ábyrgðin með viðlögðum „bonus" vera orðin 1500— 1600 kr. Vilji ábyrgðareigandi verja „bonus“ til þess að lækka iðgjöldin, hverfa þau smámsaman alveg og hann á ábyrgð sína sér að kostnaðarlausu, en getua eftir þann tíma fengið „bonus" lagðan við, eða þá borgaðan jafnóðum. Þegar ábyrgðareigandi er fulls 21 árs, öðlast ábyrgð hans eiginlegt gildi og nýtur eftir þann tima allra réttinda félagsins um uppbót, lántöku, endur- kaupsgildi o. s. frv. Deyi ábyrgðareigandi fyrir þann tíma, eru iðgjöldin endurborguð foreldr- unum eða þeim, sem hafa trygt líf barnsins. Ef allir hér á landi, sem með góð- um vilja hafa efni á því, vildu tryggja líf barna sinna, mundu ekki líða marg- ir mannsaldrar áður landsmenn ættu lífsábyrgðir, sem svaraði þúsund krónum á mann, en það væri sama sem að ár- lega borgaðist inn í Iandið 1,750, OOO kr. með sama fólksfjölda og nú er. til sölu með^ góðu verði. Ritstj. vísar á. AtvinnA óskast, helzt við búðarstörf, skriftir eða einhverja aðra hæga vinnu. Ritstjóri vísar á. jUTAÐUR um tvítugt óskar eftir '***'atvinnu við verzlun í Reykjavík Lífsábyrgðarfélagið ,STAR‘. Skrifstofa félagsins Skólavörðustíg J\/s u,er opin hvern virkan dag frá II—2 Og 4—5. Magasinofna Og eldavélar af ýmsum gerðum selur Kristján Þorgrímsson. Fineste Skandinavisk Export Kaffe Sorrogat. F. Hjort & Co. Kjöbenhavn K. Bindindismannadrykkurinn ,Chika‘, er ljúffengur og fínn svaladrykkur. — »Chika« er ekki meðal þeirra drykkja sem meðlimum Stórstúku Danmerkur af N. I. O. G. T. er bannað að drekka. Martin Jensen, Kjöbenhavn. Uboðsmaður fyrir ísland: F. Hjorth.&Co. DUGLEG VINNUKONA getur fengið vist á góðum bæ í Árnessýslu. Ritstjóri vísar á. Ú-gefandí: Félag eitt i Reykjavik. Abyrgðarm.: Slg. JÚI. Jóhannesson, cand. fihil. Prentsmiðja Dagskrár.

x

Dagskrá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.