Alþýðublaðið - 20.11.1906, Page 4

Alþýðublaðið - 20.11.1906, Page 4
128 ALÞ ÝÐUBLAÐIÐ sig, en skiljanlegra verour það, ef litið er á fleiri ritgerðir eftir hann, í sama blaðí. (Framh.) Er alþýðan sofandi-------? Er ísleznk alþýða dauð úr öllum æðum, eða er hún sofandi? Þessi spurning hefir oft ílogið mér í hug síðan »Alþýðublaðið« fór að koma út. Mér hefir sýnst þeir vera svo fáir, sem vilja nota tæki- færið til að brjóta af sér ánauðar- okið, sem legið hefir á herðum al- þýðunnar, og sem hún — að von- um — er orðin þreytt að bera. Eg vildi feginn geta svarað þess- ari spurningu neitandi, en því er ver og miður að það er ekki hægt, enn sem komið er. En undir hvaða málefni ætti alþýðan að taka vel, ef ekki það, sem miðar því á allar lundir að bæta kjör hennar? Og hverjum ætti henni að vera ljúfara að fylgja og sjá stuðning sinn, en þeim, sem bjóða henni aðstoð sína að fyrra bragði? Mér fanst sjálfsagt þegar blaðið fór að koma út, og ég sá hvaða stefnu það hafði, að alþýðan myndi taka því feginshendi. Eg hefi verið heyrnarvottur að mörg- um óánægjuandvörpum í flestum þeim stöðum þar sem ég hafi dvalið. Eg hefi verið sjónarvottur að illri meðferð á mörgum manni, sem illa hefir þolað þrælkunina og óskað eftir betri kjörum. Nú gefst þeim kostur á af hrista af sér ánauðar- fjötrana sem legið hafa á úlnliðum alþýðunnar, mann fram af manni. En mér finst sem þessir sömu menn dragi sig í hlé af ásettu ráði, eins og þeir sáu búnir að sætta sig við kjör sín og óski ekki að fá þeim breytt. Þetta verð ég að álíta ósjálf- stæði af vesta tægi, — eins konar dauðamörk, að vilja ekki ganga í lið með þeím fáu mönnum, sem hafa ótilkvaddir tekið að sér málefni þeirra. Hvort er það hræðsla við yfirboðarana sem veldur þessu? Eða er það hin fánýta von um aukabita eða aukasopa af hendi húsbóndans, sem ræður þessu hugarfari sumra verkmanna? Fyrir slíkan kjark er ekki gefandi eyrisvirði. Það má vera að það sé gott fyrir einstaka menn í svipinn, að fylg'ja málstað þeirra, sem eru andhverfir frelsisviðleitninni. En til frambúðar verður það ekki. Það hefir oftast verið svo, þegar um umbætur er að ræða, að þeir draga sig í hlé og vilja hvergi nærri koma, sem mest hafa kvartað og verið ó- ánægðastir; — að örfáum mönnum undanskildum. Getur verið að suma skorti hæfileika til að veita hjálp sem um munar; en allílestum mun aftra kjarkleysi og marg-innblásinn þræl- dómshugsunarháttur. Eg beini þessum orðum ekki frem-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.