Alþýðublaðið - 20.11.1906, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 20.11.1906, Blaðsíða 6
130 ALF’ÝÐUBLAÐIÐ mættu sýna honum sóma, með því að viðurkenna gildi lians og starf í þaríir þjóðarinnar. Einmitt þetta hefir hr. Sig. Kristjánsson gert og' farist ágætlega úr hendi, með því að gefa út bók þá, sem að ofan er nefnd. Hann liefir fengið í lið með sér 5 af ágætustu mentamönnum þjóðarinn- ar til að lýsa Gröndal sjálfum, æíi hans og æfistarfi. Eiga þeir sinn þáttinn hver í bókinni. Það var Sigurði likt að gangast fyrir þessu, því hann er sjálfur alþýðumaður í húð og' hár, og veit hvað alþýðunni lætur. Hann er líka einstaklega laginn á að gera svo vel líki, bæði lærðum og' ólærðum. Það hefir verið ritað svo mikið um efni bókar þessarar í öðrum blöðum, að engin ástæða er til að gera það hér. Það yrði ekki annað en endurtekning. Alþýðublaðið vildi gjarna hafa sagt um Gröndal flest af því sem sagt er í bókinni, og er það hr. Sig. Krist- jánssyni stórlega þakklátt fyrir að hafa gefið hana út. Fjallarósir og Morgun- bjarmi. Kvæöi og saga, eftir Jens Sæmunclsson og Magnús Gíslason. Verö 75 au. Höfundarnir eru ungir alþýðu- menn, og hafa notið lítillar mentun- ar. Yerður því að taka mýkri hönd- um á þessu frumsmíði þeirra, heldur en væri það eftir hálærða menn og' þaulvana. Fallegur er titillinn og góður er pappírinn í kverinu, ekki vantar það. En skaðlaust held ég það hefði verið öllum almenningi og ekki sízt höfundunum, þó sumt af þessum kvæðum hefði aldrei lag't lag sitt við prentsvertuna. Þeir ern báðir nýsveinar í skóla skáldlistar- innar. Það er engin furða þó þeir geri lélega »stíla í I. bekk«. Þeir geta útskrifast með góðri einkunn samt ef til vill. En mig furðar á þvi, að þeir skuli gefa þessa stíia úl á prenti. Iívað kemur til þess. Ekki eig'a þeir óskilið mál, því Jens er miklu léttara um hendingar. Er lildeg't að hann verði dágott tæki- færisskáld, og ef tii vill meira. Mér þykir t. d. kvæðið; »Æsku-stöðvar« skemtilegt. Eg hefi séð skáld »með prófi« yrkja miklu ver og fá þó hrós fyrir. Svo virðist sem Magnúsi sé jafn styrt um að hugsa og ríma. Það er eins og hann gangi með háíleygar hugmyndir hvað eftir annað; en þeg- ar þær koma í Ijós, eru þær ýmist vanskapaðar, — vantar höfuð eða fætur, skinn eða bein — eða þær aflagast í fæðingunni, af rímnauð og rangri meðferð. En verið getur að þetta lagist með tímanum. »Ef þig langar«, er bezt af kvæðum Magnús- ar; en að það er orðið til er auð- sjáanlega því að þakka, að Þorsteinn Erlingsson er til; þó ekki hafi hann ort þetta kvæði,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/157

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.