Lögberg-Heimskringla - 18.08.1960, Síða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 18. AGÚST 1960
3
Busincss and Professional Cards
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI Foraetl: DR. RICHARD BECK 801 Lincoln Drive, Grand Forka, North Dakota. StyrklS félagið með þvi að gerast meðlimir. Arsgjald $2.00 — Timarlt félagaina frftt. Sendlat til fjármálaritara: MR. GUÐMANN LEVY, 186 Lindaay Street, Winnipeg 9, Manitoba.
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggaata eldavörn og ávalt hreinir. Hitaeinlngar- rör, ný uppfyndlng. Sparar eldi- við, heldur hita frá að rjúka út með reyknum.—Skrifið, almið til KEIXY SVEINSSON (25 Wall St. VVinnJpeg Just North of Portage Ave. SPruoe 4-1034 — SPruce 4-1034 Minnist BETEL í erfðaskróm yðar
A. S. BARDAL LTD. G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited
FUNERAL HOME
843 Sherbrook Street Wholesale Distributora ol
Selur likkistur og annaat um út- FRESH AND FROZEN FISH
farir. Allur útbúnaður aá beztt 16 Martha St. WHitehall 2-0021
Stofnað 1894 SPruce 4-7474 PARKER, TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND
systur sinni og átti hún það
víst margfaldlega skilið, því
hún hafði alltaf verið bróður
sínum góð systir, og ekki
gleymdi ræðumaður að láta
ánægju sína í ljósi viðvíkj-
andi ágætum, prúðum og góð-
um tengdabróður, Dr. Sigmar,
sem hann hafi þekkt svo mæta
vel í fjölda af árum, jafnvel
löngu áður en hann kvæntist
systur hans. Séra Octavius
kryddaði ræðu sína með ýms-
um gamanyrðum, svo veizlu-
gestir hlógu ánægjulega að
ræðu hans og klöppuðu hon-
um lof í lófa.
Nú voru sungnir nokkrir
fallegir, almennir söngvar,
sem allir tóku þátt í. Þá tók
séra Eric Sigmar aftur til
máls og beindi þá orðum sín-
Um sérstaklega til foreldra
sinna, og afhenti Dr. Sigmar
þakklætisskírteini fyrir 49
ára prestsþjónustu. Með mikl-
um heiðri og sóma hafi Dr.
Sigmar starfað öll þessi ár
undir merkjum hinnar evan-
gelisku lútersku kirkju á með-
al íslendinga í Vesturheimi.
Við þessa athöfn hélt séra
Eric fagra og mjög kröftuga
ræðu, og beindi hann orðum
sínum sérstaklega til heiðurs-
hjónanna, og sagðist hann tala
fyrir hönd allra barna þeirra,
eins og bróðir sinn hefði
niinnzt á.
Séra Eric minntist á elsku-
legar og blessunarríkar end-
urminningar frá æskuárun-
um, ánægjulegt og kærleiks-
ríkt heimilislíf og sannar
kristnar dygðir, sem þeim
systkinum hefði verið inn-
rætt, hann minntist á elsku
°g ástríki móður sinnar til
allra barnanna og móðurlega
umhyggju undir öllum kring-
umstæðum, einnig ástúðlegt
samkomulag milli foreldra
sinna og friðsælt og ánægju-
legt heimilislíf, sem haldizt
hafi fram til þessa dags, og
ttieð myrgum fleiri orðum lét
séra Eric hjartans þakklæti
sitt í ljósi til foreldra sinna
fyrir allt gott og indælt frá
þeirra hendi og fyrir að inn-
ræta börnum sínum kristin-
dóm, sem hafi reynzt hald-
góður undir öllum kringum-
stæðum.
Nú var aftur sezt að kaffi-
drykkju og borðað af þessari
Ijómandi skrautlegu brúðar-
köku, afmælisköku og prest-
vígsluköku, sem reyndist
mjög gómsæt. Allt þetta féll
svo ljómandi vel saman í
sannan veizlufögnuð.
Svo eftir allt þetta ánægju-
lega borðhald kvað sér hljóðs
Mrs. Sigmar, kona Dr. Sig-
mars. Hún þakkaði og bless-
aði alla, bæði fjær og nær,
sem hefðu sýnt þeim hjónum
þennan mikla heiður á þess-
um merku og viðburðarríku
timamótum í lífi þeirra, þakk-
læti þeirra hjóna og blessun-
aróskir næðu til allra, bæði
nær og fjær, fyrst og fremst
til barna þeirra, tengdabarna
og barnabarna, sem hefðu
beitt sér fyrir slíku ógleyman-
legu veizluhaldi þeim hjónum
til óútmálanlegrar ánægju og
gleði, svo til allra viðstaddra,
síðan vildi hún þakka og
blessa alla, sem hefðu minnzt
þeirra á þessum mikla heið-
ursdegi, bæði með bréfum og
skeytum, svo til allra þeirra
mörgu og óteljandi vina, sem
hún vissi að hugsuðu vel til
þeirra á þessari ógleymanlegu
ánægjustund.
Að síðustu talaði Dr. Har-
aldur Sigmar. Það þarf tæp-
lega að lýsa hvernig hann lét
sína ánægju og hjartans þakk-
læti í ljósi til allra og allra
sinna mörgu ástvina og skyld-
menna, bæði nær og fjær, til
óteljandi vina bæði í Kanada
og Bandaríkjunum, sem hefðu
sýnt sér og fjölskyldu sinni
sérstakt traust og órjúfanleg-
an vinskap öll þessi ár, sem
hann hefði starfað á meðal
þeirra, bæði í sorgum og svo
líka á óteljandi gleðistundum,
sem í sannleika væru ógleym-
anlegar.
Kærleikurinn í orðum Dr.
Sigmars og fridarbjarminn á
andliti hans sýndi vel hans
ljúfa innra hugarþel, frið-
sæld og elsku til allra manna.
Margir kysstu og föðmuðu
Dr. Sigmar í þakklætisskyni,
en öllu tók hann þessu með
ljúfmannlegu brosi.
En ekki var heldur öll á-
nægjan búin enn þá, því nú
kallaði veizlustjóri á okkar
allra uppáhald hér á strönd-
inni, söngmanninn og söng-
stjórann Tana Björnsson frá
Seattle. Hann söng ljómandi
söng á ensku, „Through the
Years“, sem hreif alla veizlu-
gesti, síðan söng Tani Faðir-
vorið af dásamlegri snilld.
Að þessu búnu lýsti veizlu-
stjóri, séra Harold S. Sigmar,
blessun Drottins yfir alla og
sagði þessu myndarlega veizlu-
haldi slitið með hjartans þakk-
læti til allra. Yfir 70 manns
sátu þar að borðum.
Ég vil líka geta þess hér
með, að í býrjun veizlunnar,
þegar fólk var leitt til sætis,
þá spilaði ungur og efnilegur
maður inngangsmars að borð-
um og síðan við endalok veizl-
unnar. Hann spilaði á nýmóð-
ins harmoníku af mikilli
snilld og með lífi og fjöri.
Margir sátu veizlu þessa,
sem Dr. Sigmar hafði gert
margvísleg prestverk fyrir
öll þessi prestsjcaparár, sem
hann hefir verið þjónandi
prestur, og þar var líka við-
stödd fyrsta konan, sem séra
Sigmar gaf saman í heilagt
hjónaband fyrir 49 árum síð-
an, rétt eftir að hann hafði
verið vígður; hún heitir Aldís
Eyolfson, ekkja eftir Jónas
Eyolfson, hjónavígslan fór
fram í Wynyard, Sask. rétt
eftir að Dr. Sigmar tók þar
við prestsembætti. Mrs. Eyolf-
son býr nú með börnum sín-
um í Portland, Oregon.
Veizlan er ógleymanleg og
munu allir þeir, sem þar voru
viðstaddir, minnast þeirrar
stundar með fögnuði í huga.
Fró Vestur-
slendingum
Eins og kunnugt er hafa
vestur-íslenzku blöðin Lög-
aerg og Heimskringla verið
sameinuð. Það var, sem kunn-
ugt er, ei unnt að rísa lengur
undir að halda þeim úti með
sama hætti og áður, vegna
oreyttra aðstæðna, og var það
heillaráð tekið að sameina
jau, en það verður að teljast
mjög mikilvægt, m. a. með til-
liti til tengsla þjóðarinnar við
ójóðarbrotið vestra, að vestur-
íslenzk blaðaútgáfa leggist ei
niður. Ekki skal neinu um það
spáð, hversu lengi tekst að
nalda úti hinu eina sameinaða
blaði ,Lögbergi-Heimskringlu‘,
eins og það nú heitir, en von-
andi er, að það verði sem
lengst, bæði til þess að landar
vestra geti betur fylgzt með
ýmsu hér hjá okkur, og eins
að við getum fylgzt sem bezt
og lengst með fólki af íslenzk-
um stofni vestra, því að í
blaðinu er getið margra landa
við ýmis tækifæri, og minn-
ingargreinar um þá, sem falla
í valinn. Og ef íslenzk blöð
gætu þeirra líka væri mörg-
um, bæði hér í Reykjavík og
úti um landið, greiði gerður,
dví oft hefir sambandið milli
skyldmenna og vina rofnað,
og mörgum kærkomið að
frétta um þá, jafnvel þótt það
dragist stundum.
Vísir, 6. júlí
Glæsileg hótið
í góðu veðri
Þjóðhátíð Vestmannaeyinga
var sett á föstudaginn af for-
manni íþróttafélagsins Þórs,
Sveini Ársælssyni, en það fé-
lag sér um hátíðina að þessu
sinni.
Þá var guðsþjónusta, og
prédikaði séra Jóhann Hann-
esson, en kirkjukórinn söng
undir stjórn Guðjóns Pálsson-
ar. Piltar úr KR sýndu fim-
leika undir stjórn Benedikts
Jakobssonar, og Kristín Ein-
arsdóttir sýndi akrobatik.
Guðlaugur Gíslason alþingis-
maður flutti minni Vest-
mannaeyja og Guðmundur
Guðjónsson söng einsöng við
undirleik Fr. Weisshappels,
Skúli Theódórsson sýndi
bjargsig, kleif hann Fisk-
hellanef og seig síðan aftur
niður bjargið og þótti takast
ágætlega.
Brenna var kveikt á Fjósa-
kletti kl .12 á miðnætti laug-
ardagsnóttina og þá skotið
flugeldum.
1 gær hófst samkoman aftur
kl. 2 e. h. Fluttu þá ræður
Stefán Árnason yfirlögreglu-
þjónn og Richard Beck pró-
fessor. Milli atriða alla hátíð-
ina lék Lúðrasveit Vest-
mannaeyja undir stjórn Odd-
geirs Kristjánss, tónskálds.
Veður var eins fagurt og á
varð kosið og mikill hiti í
Herjólfsdal, þar sem aðalhá-
tíðahöldin fara fram. Fjöldi
gesta sækir hátíðina, komu
P. T. Guttormsson
BARRISTER. SOLICITOR,
NOTARY PUBLIC
474 Groln Exchange Bldg.
147 Lombord Street
Offlce WHJteliall a-4820
Residence GL 3-1820
SPruce 4-7855 ESTIMATES
FREE
J. M. Ingimundson
Reroof Aphalt Shinglea. Roof
repalra, lnatall vont8, aluminum
wlndowa, doora. J. Ingimundaon.
SPruce 4-7855
632 Slmcoe St. Winnipeg 3, Man
Thorvaldson. Eggertson.
Saunders & Mauro
Barristert and Solicitort
209 BANK OF NOVA ECOTIA Bldf
Portage and Garry St.
WHlteball 2-8291
S. A. Thorarinson
Barrister and BnHcitor
2nd Floor Crown Trnst Hlilt
304 MAIN ST.
Offlce WHltehall 2-7061
Residence HU 9-6488
The Business Clinic
Anna Larusson
Office at 207 Atlantic Ave
Phone JU 2-8548
Bookbeeplng — Income Tax
Inaurance
Dr. ROBERT BLACK
SérfræCIngur I augna, eyrna, nef
og hálsajökdömum.
401 MKDICAIj arts bijjg.
Graham and Kennedy St.
Office WHltehall 2-5861
Residence: HU 9-3794
margir með Esju frá Reykja-
vík og flugvélum þaðan, Herj
ólfi frá Þorlákshöfn og bát
beint frá Landeyjum.
ölvun var lítil sem engin og
öll hátíðahlödin með miklum
sóma og glæsibrag. — S.K.
Tíminn, 7. ágúst
Sufficienl unto the day is the
evil thereof = látið hverj-
um degi nægja sína þján-
ingu.
MARTIN
BARRISTERS — SOLICITOR8
Ben C. Parker, Q.C.
(1910-1951)
B. Stuart Parker. Clive K. Tallln,
Q.C.. A. F. Kristjansson. Hugh B.
Parker, W. Steward Martin
5th fl. Canadian Bank of Commerce
Building, 389 Main Street
Winnipeg 2, Man. WUltehall 2-35«!
CANADIAN FISH
PRODUCERS LTD.
J. H. PAGE. Managing Director
Whoiesale Dlstributors of Fresh and
Frozen Fish
311 CHAMBERS STREET
Office: Res.:
SPruce 4-7451 SPruce 2-3917