Lögberg-Heimskringla - 18.08.1960, Síða 5

Lögberg-Heimskringla - 18.08.1960, Síða 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1960 5 Fréttabréf úr Húnaþingi Kæra Ingibjörg og lesendur Lögbergs-Heimskringlu. Héðan úr Húnaþingi er allt gott að frétta; góð tíð og þar af leiðandi góður heyskapur. Auk þess er gott að fá verm- andi sól hér norður við fs- hafið til að undirbúa líkam- ann undir skammdegið og kuldann. En lítið skeður í út- kjálkasveit á íslandi. Við fjöruna leika selir sér; fuglar unga út í hreiður í rústum gamalla bæja og útihúsa og lömbin fylgja mömmu sinni upp í fjöllunum. Allt þetta í kringum mann er eins og það var fyrir mörgum árum og er enn í fersku minni hjá mörg- um góðum löndum, sem setzt hafa að langt í burtu frá átt- högunum.. Það eru bara mennirnir sem breytast, hugs- unarhátturinn og lífskjörin. Það er sjaldan að ég þarf á hjálp að halda í Reykjavík, að minnsta kosti í sambandi við gistingu, en um daginn, þeg- ar ég var í heimsókn þar, lá við að ég yrði að gista á göt- unni. En á síðustu stundu kom Vestur-íslendingur til bjarg- ar- Hann heitir Sigurður Stef- ánsson. Hann var lengi í Ár- borg og fluttist síðar á síð- ustu stríðsárunum til Van- couver. Ég hitti hann af hend- ingu á hóteli í bænum, þar sem ég átti von á gistingu, en þar var fullt. Hann bauð mér strax upp í sitt herbergi, þar sem var nóg pláss. Sigurður er Vopnfirðingur að ætt og ætlaði að heimsækja gamla staðinn eftir rúml. 40 ára úti- vist. Hann hafði aldrei komið til Reykjavíkur áður, svo ég sýndi honum bæinn og fór með hann í nokkur hús. Hann furðaði sig eins og fleiri yfir öllu athafnalífi og fram- kvæmdum. Þá í þetta skipti hitti ég góðan vin okkar, Richard Beck. Hann lofaði því að heimsækja okkur á Tjörn, og svo bíðum við með eftirvæntingu að taka á móti honum. Fimmtán ár eru nú liðin síðan íslendingar hófu fyrstu millilandaflugferðir. Ég var einn af fjórum farþegum, sem fór frá Skerjafirði 11. júlí 1945 í Catalina-flugbát á leið til Skotlands. Afmælisins var minnzt með blaðagreinum og lofsamlegum orðum um þenn- an sögulega viðburð. Það er ánægjulegt fyrir mig að hafa geymt farseðilinn minn og ef til vill er hann dýrmætari fyrir það, að nöfnin allra á flugvélinni eru skrifuð á hann. Fékk kort frá séra Valdi- mar. Hann var þá í London og leið vel óg bjóst við að koma hingað innan skamms. Vona að ykkur öllum líði sem bezt. Með beztu kveðjum frá okkur öllum á Tjörn. Ykkar einlægur, • Roberl Jack Sigurbjörg Johnson (Fædd 15. nóvember 1864 — dáin 5. júní 1960. — Tileink- að vinum og vandamönnum hinnar látnu.) Eftir langan ævidag er að lokum breytt um hag; sigruð hver þín sjúkdóms- þraut, svifin Guðs í náðarskaut, létt á öldum ljósvakans leiftrar ofar skynjun manns. Minninganna myndin þín munarljúf í hugum skín. Vina þinna viðnámsþrótt vakið fær og sælugnótt þig að vita þrautum fjær, þar sem ríkir friðar blær. Samtíð geymir sæmdar spor sérhvert þitt, og táp og þor; íslendingsins auðnu gjöld alveg fram á hinzta kvöld, samúðina, sólskinstrú, sem að öllum léðir þú. Hjartans móðir huggun ljær harmi gegn þótt dveljir fjær, aðeins stutta eftir bið aftur saman dveljum við; alla fyrir yndisgnótt, ástarþakkir, góða nótt. Jóhannes H. Húnfjörð Frú Saskatchewan 7. ágúst 1960 Kæra Ingibjörg: Þökk fyrir verk vel unnið a síðastliðnu ári, ég hefi sann- arlega fengið margar ánægju- stundir að lesa tvíburana. Og nú er komið að skuldar- óögum og þá skal nú borga brúsann með því að senda þér Póstávísun. Ég fer nú að verða eins og ^Lugga-Sveinn forðum daga, því nú er ég í nýju plássi eins °g þú sérð á fyrirskriftinni. Ég vinn hjá Wells Construc- tion sem tímamaður og bók- haldari, og er þetta annað skólahúsið, sem við erum að byrja á síðan í ágúst í fyrra, »Composite High School". Héðan úr fylki er mestallt gott að frétta, góða heilsu, góða stjórn og góða veðráttu, hema nokkuð heitur júlí og þurr, en nú hefir rignt, svo allt er með feldu. Nú fara farfuglarnir að búa sig undir flugið suður aftur, ég á við Höllu, Kötlu, Ingu og Hichard. Gaman væri nú að beyra ferðasögu þeirra í blað- inu, því vafalaust hafa þau frá mörgu að segja, sem gaman vaeri að hlusta á. Og þá eigið þið nú gott þarna austur frá að fá að sjá °g heyra hina góðu gesti, sem koma að heimsækja ykkur að heiman, og þá kemur í huga minn sú löngun, sem ég fæ þegar ég les bréfin að heiman frá séra Robert Jack og frænda mínum Einari Krist- leifssyni, að þakka þeim inni- lega og hjartanlega fyrir vilj- ann og velvildina að senda okkur línur þessa löngu leið og rifja upp fyrir cfkkur menn, staði og stundir frá löngu liðn- um tíma. Og einnig þeim hér í landi, sem eru svo framtaks- söm og ræktarleg í sér að senda blaðinu greinar; mörg af okkur gætum sent greinar í blaðið, sem mundu verða til þess að lífga upp samkomu- lífið á meðal okkar, sem erum stráð um þetta víðáttumikla og góða land. Krislinn O. .Oddson, Delisle, Sask. Prevenlion is better than cure = betra er að byrgja bijunninn, áður en barnið er dottið ofan í. Out of sight, out of mind svo fyrnast ástir sem fundir. So many men, so many minds = svo er margt sinnið sem skinnið. The early bird gets the worm = morgunstund ber gull í mund. There is no royal road to learning = enginn verður óbarinn biskup (royal = easy). Forsefri frók við embæfrfri Forseti íslands, Ásgeir Ás- geirsson, tók við embætti í þriðja sinn síðastliðinn mánu- dag við hátíðlega athöfn. At- höfnin hófst í Dómkirkjunni kl. 3.30 með því að dómkórinn söng undir stjórn Páls ísólfs- sonar sálmana, „Ó, sæll er sá, er treystir“ og „Himneski faðir“. Að því búnu las bisk- upinn yfri Islandi, Sigurbjörn Einarsson, ritningargerð og flutti ávarp. Úr Dómkirkjunni var geng- ið fylktu liði yfir í alþingis- húsið. Fyrstir gengu Ásgeir Ásgeirsson og Þórður EyjólfS' son, forseti Hæstaréttar, þá forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir og Sigurbjörn Einarsson bisk up, en því næst Ólafur Thors forsætisráðh., Friðjón Skarp- héðinsson forseti Sameinaðs Alþingis, ráðherrar, sendi- menn erlendra ríkja og aðrir gestir. í alþingishúsinu fór athöfn- in fram í fundarsal Samein- aðs Alþingis. Forseti Hæsta- réttar lýsti forsetakjöri og las síðan eiðstafinn, sem forseti undirritaði. Þá söng dómkór- inn „Rís fslandsfáni“ undir stjórn Páls ísólfssonar, Þor- steinn Hannesson söng ein- söng, en Lúðrasveit Reykja- víkur lék undir. Þessu næst gekk forseti Is- lands fram á svalir alþingis- hússins og minntist fóstur- jarðarinnar, en mannfjöldinn á Austurvelli hyllti forseta. Síðan gekk hann í þingsalinn aftur og flutti ræðu. Athöfn- inni lauk með því, að Lúðra- sveit Reykjavíkur lék þjóð- sönginn. Alþbl., 3. ágúst Hvar er hvíti . . . Frá bls. 4. væru — tréverkið utan um lyftitækin hefir verið úr mjög léttri viðartegund.“ L ý s i n g u m síðastnefndra fræðimanna á fornminjunum ber saman í aðalatriðum við skilgreiningar próf. Gunn- laugssonar, þar sem hann seg- ir á einum stað: „Með upp- fyndingum sínum á (vinnu-) vélum hófu þeir (Indlands Aryarnir) Indland á framfara- stig . . .“ o. s. frv. (Sjá hér að framan). Það var ekki fyrr en nokkrum áratugum eftir að Gunnlaugsson ritgerðin var rituð, að fornleifafundur sá, er hér um ræðir, fór fram. Aldrei hefir verið eins mik- ill möguleiki á að vinna bug á fjarlægðunum landa og staða á milli eins og á þessari öld, sem nú er að líða. Af því sem hér að framan er skráð virðist sem vestrænir menn séu nú haeir en áður, bæði með þessu og öðrum framför- um, að sanna hinn Indó-Aryj- anska uppruna sinn. Fyrir auknar samgöngur landa á milli hafa nútíðar- fræðimenn og konur frá Bret- landi og Bandaríkjunum farið til Austurlanda og kynnt sér hin fornu fræði, sem þar höfðu geymzt um aldaraðir, ritað svo um þau, þegar heim kom. Hér fara á eftir nákvæmari skilgreiningar um ofanskráð efni, úr ritum þeirra, einkum úr bókinni „My life in Tibet“ eftir brezkan mann, E. J. Dingle að nafni, og fáein at- riði úr „Autobiography of a Yogi“, rituð af indverskum fræðimanni í Bandaríkjunum, einiíig úr „History of the Rasi- crucian Order“ eftir hinn mikla vestræna fræðimann H. S. Lewis, og „Webster’s United Encyclopedia and Dic- tionary“. Allar þessar bækur voru gefnar út í Bandaríkjun- um á tímabilinu milli 1929 til 1960, og er það sem hér fer á eftir samandregið úr þessum bókum og ber í aðalatriðum saman við skilgreiningar próf. Gunnlaugsonar, það sem þær ná, og um leið gerð grein fyrir öðrum stað í Mið-Asíu, sem önnur kynkvísl hvítra manna hafðist við á. Framh. í næsta blaði Syndin á ætt og uppruna „Ein fölsk nóta eyðileggur fegurstu hljómkviðu. Ein synd, sem í fljótu bragði virð- ist smávægileg, getur lagt í rústir líf, sem miklar vonir voru tengdar við. Hún vefur um herfang sitt neti ófyrir- sjáanlegra afleiðinga, sem engin leið er til að losna úr.“ („Life Here and Hereafter“, Canon MacColl. Enskur guð- fræðingur.) ">,Hver framin synd skilur eftir „synda spor“, bæði á fín- gerðum eiginleikum sálarinn- ar og grófgerðum taugavef líkamans. Og það, sem verra er, hún kyndir undir óviðráð- anlegri ástríðu að fremja syndina aftur. Því „ein synd býður annarri heim.“ Synd, sem framin er í dag, á ætt að rekja til syndar, sem framin var í gær eða dagana þar á undan. Hún er afkomandi og afleiðing marg - endurtekinna synda.“ (Henry Drummond.) An iron hand in a velvet glove = mjúkmáll en ó- sveigj anlegur. A storm in a ieacup = mikið veður út af litlu tilefni. Easier said than done = hæg- ara sagt er gert. In at one ear out at the other = inn um annað eyrað og út um hitt. LÆGST allt óriS FLUGGJÖLD TIL ÍSLANDS LÆGRI EN NOKKURT ANNAÐ AÆTLUNAR- FLUGFÉLAG Frá New York um ísland til STÓRA-BRETLANDS • HOLLANDS • NOREGS • SVÍÞJÖÐAR • DANMERKUR • ÞYZKALANDS • Með lægri fargjöldum en „Eco- nomy“ bjóða ICELANDIC AIR- LINES hina einu fullkomnu „Tourist“ þjónustu . . . tvær ágætar máltíðar, að ógleymdu koníaki, allt ókeypis! Færri far- þegar, meira fótrými. Stytztu áfangar yfir úthafi frá New York . . . aldrei meira en 400 mílur frá flugvelli. UPPLYSINGAR í ÖLLUM FERÐASKRIFSTOFUM n /71 F& ICELANDICl AUtLINES 15 West 47th Street, New York 36 PL 7-8585 New York • Chicago • San Francisco FOR RESERVATIONS CALL OR TELEPHONE Tel. WH 2-8424 P. LAWSON TRAVEL LTD. (D. W. Collett) Authorized Agents 247 NOTRE DAME AVE., WINNIPEG 2. MAN.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.