Lögberg-Heimskringla - 02.03.1961, Page 2

Lögberg-Heimskringla - 02.03.1961, Page 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MARZ 1961 Afmælisfagnaður Sunnudaginn 5. febrúar fór fram myndarlegt samsæti á hinu prýðilega heimili Mr. og Mrs. Gulli Magnússon í White Rock, B.C. Tilefnið var, að 2. febrúar átti hinn vinsæli Gísli Benedictsson frá Berufirði 70 ára afmæli. Þátttakendur voru 41, vinir og ættingjar af- mælisbarnsins, með viðeig- andi skemmtiskrá. Forseti hófsins var Skapti Steinsson kaupmaður í Cleverdale, sem að loknum formálsorðum af- henti Gísla gjöf til minningar um merkisdaginn. Ræður Gísli Benedictsson fluttu Sam Johnson frá Van- couver, B.C. og Marja Björn- son; en kvæði fluttu Páll Bjarnason frá Vancouver, B.C. og undirritaður. Heilla- skál var auðvitað drukkin og söngvar hljómuðu um salinn, en þeim stýrði V. Baldwins- son frá Vancouver. Varð af öllu þessu hin bezta skemmt- un. Að lokum sagði afmælis- barnið nokkur þakkarorð og mæltist vel eins og ávallt. Að því loknu báru konur fram myndarlegar veitingar og var þá dagur að kvöldi kominn, því hann, eins og aðrir dagar, hlaut að kveðja. Mun hann þó lengi verða minnisstæður þeim, sem þarna áttu sam- fund, og þá ekki sízt afmælis- barninu sjálfu. Ræðumar hefi ég ekki til birtingar, en kvæð- in læt ég fylgja þessari um- getningu. En það má ekki skilja svo við þetta efni, að ekki sé nokkur grein gerð fyrir mann- inum, sem heiðraður var með þessu hófi. Gísli Benedictsson var fæddur á Berufirði 2. febr. 1891, og voru foreldrar hans Benedikt Eyjólfsson prestúr og fyrri kona hans, Guðlaug Gísladóttir, systir Gíslínu Kvaran, konu Einars skálds Kvaran. Gísli innritaðist í Flensborgarskóla og útskrif- aðist þaðan 1907. Vann þá við verzlunarstörf um skeið, en futtist til Vesturheims 1911, þá tvítugur að aldri. Um það leyti voru íslendingar sem óð- ast að nema lönd í Vatna- byggðinni; Saskatchewan og Wynyard varð eins konar mið- stöð þeirra þar. Þangað fór og Gísli og gerði hveitikaup að sínu lífsstarfi. Árið 1917 kvæntist hann Rúnu Eyjólf- íWhite Rock, B.C. son af Stuðla- og Svínaskála- ættum. Synir þeirra eru Lorne Erling, bifreiðakaup- maður í Calgary, Alberta, kvæntur Annie Hornseth, af norskum ættum og eiga þau einn son. Hinn sonur Gísla og Rúnu er Benedict Verne, yfir- maður veðurstofunnar hjá R.C.A.F. í Comox, B.C. kvænt- ur Marion Jónu, dóttur Sveins læknis og Marju Björnsson, og eiga þau hjón fjögur börn, tvo syni og tvær dætur. Þess má geta hér, að á starfsárum sínum í Wynyard þjónaði Gísli sextán ár í bæj- arstjórn og þá einnig í skóla- nefnd í mörg ár, og á meðan þessu fór fram mun Rúna ekki hafa látið sinn hlut eftir liggja. Um hæfileika þeirra beggja hefir aldrei farið tvennum sögum og góðvild og gestrisni þeirra hefir verið við brugðið. En um það má ekki orðlengja, einungis vil ég benda á kvæðið hans Páls, sem lýsir þeim betur en mér yrði auðið að gera; en Páll var samferðamaður þeirra í mörg ár og það, sem hann seg- ir í kvæðinu, er talað af reynslu og þekkingu nágrann- ans, sem stóð þó á öndverðum meið í ýmsum málum. S. E. Björnsson Gísli og Rúna Gísli og Rúna, glæsihjón, gefa á þessum degi okkar bæði önd og sjón örvun lífs á vegi. Fríðleiks ásýnd oft þó sé eðlistákn hins bezta, annað vænna veltufé veittist þeim hið mesta. Gegnum barning, böl og stjá bæði keiprétt stóðu. Þarfaslóðum öndvegs á eins og blys þau glóðu. Fyrst og síðast, fús og hröð, framtak hvert þau studdu. Erfiðleikum, ör og glöð, annarra burt þau ruddu. Þannig iðja oftast má einum þungbær verða; áhrif þess þó enginn sá átök þeirra skerða. Eftirsjá á aðra hönd ögn þótt hugann mæði, velkomin að vesturströnd veri þau nú bæði. P. B. Gísli Benedicfson frá Wynyard 70 ára 2. febrúar 1961 I Þú kvaddir ungur þinn æskulund á útleið til Furðustranda, og leitaðir frama á frjálsri grund, um frjólönd og eyðisanda; með andans kyngi og kraft í mund, sem kappi, með víkingsanda. Sú þrá er ei bundin stað né stund er stefnir til nýrra landa. Hún bar þig til Wynyard, á vesturleið, er vildir þú sjá og kanna. Þar frétt þú hafðir um frjólönd breið, sem fræg voru í sögum manna. Þar sem lán þitt og lífsstarf beið, í landnámi frumbyggjanna, æskuhugur þinn engu kveið í annríki kynslóðanna. Lán þitt hlaut byr um lífsins höf: Þú lentir á ástarfleyti, og konuna sendi þér guð, að gjöf á gæfunnar ævidegi. Þú hirtir þá lítt um tímatöf þó takmarkið gleymdist eigi. Draumarnir ná yfir dauða og gröf með dásemdir lífs á vegi. •Þú stundaðir vel þín hveiti kaup og korni þú fylltir geyminn. Þá var ei dvalið við stút né staup né stóðst þú í skuld við heiminn. Og þegar vinur á víni saup varst þú af ráði gleyminn og kærðir þig sízt um karla raup en kvaðst þó ei við það feiminn. Svo komu dagar með sifjalið, og sólskin í húsi fínu; íslenzka drengsins mark og mið, var máttugt í eðli sínu; og trú hans örugg, með fögnuð, frið og frelsi í hverri línu, er lýsti um gjörvöll lífsins svið unz lokið var starfi þínu. Við sólarlagið má lesa í kvöld landnámsbók fyrri daga, að hér hefir gerzt nær heila öld harma og frægðar saga. Löng reyndist vakan, og veður köld er veturnin næddi um haga, en letruð stendur á tímans tjöld trúin á Sögu og Braga. Þú helgaðri starf þitt í hálfa öld heill þinnar kjörnu jarðar. Á hólminn þú gekkst með skyggðan skjöld frá skólavist Berufjarðar. Og lán var þinn arður og ævigjöld, sá orðstír, er mestu varðar; því aldrei hann fellir ellin köld né örlaganornir harðar. S. E. Björnsson Nýir varaforsetar Loftleiða Albert E. Blomquist Sverre Marcussen Forseti Loftleiða í New York, Robert E. Delaney, hef- ir nýlega skipað Albert E. Blomquist varaforseta félags- ins. Hann hefir gefið sig að flugi síðan 1933, hefir verið ráðunautur Loftleiða síðan 1954. Hann segir, að flugvél- arnar DC-6B, sem Loftleiðir notar, séu þær hagkvæmustu og þess vegna séu fargjöld Loftleiða lág og farþegum veitt góð þjónusta og þægindi. Til dæmis er farið fyrir fjög- urra manna fjölskyldu til Evrópu aðeins $526.00. Forseti Loftleiða í York, Robert E. Delaney, heí' ir tilkynnt, að Sverre MarcUS' sen hafi verið skipaður vara' forseti félagsins. Hann er fæddur í Noregi, frumherji 1 flugviðskiptum þar og í þj°^ ustu skandinaviskra flug^e laga. Hann gekk í þjónustu Loftleiða 1952 og hefir veri^ söluforstjóri félagsins s. 1- ár. Mr. Marcussen tekur mi^' inn þátt í norskum þjóðr®^11' ismálum. Education for horizons unlimited EDUCATION WEEK MARCH 5-11 The School reflects the Community SUPPORT YOUR SCHOOL M|S I the manitoba TEACHERS’ societY

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.