Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 02.03.1961, Qupperneq 8

Lögberg-Heimskringla - 02.03.1961, Qupperneq 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MARZ 1961 Úr borg og byggð Þakkarorð Sigurður Sigurðsson og fjöl- skylda, Mary Hill, Manitoba, færa þakkir öllum þeim, sem sýndu þeim samúð og hlýhug í sambandi við fráfall Mrs. S i g r í ð a r Sigurðsson, með blómum, samúðarkveðjum og nærveru sinni. Þau biðja þeim öllum Guðs blessunar. ☆ The Viking Club of Manitoba 18th Annual Viking banquet and ball, Saturday, March llth, at 6.30, Elks Hall, 108 Osborne St., at River Avenue (formerly the Osborne Thea- tre). Parking permitted at Safeway Store, Osborne and River Ave., entrance from River Ave., West. A brief program. Refresh- ments—Full course Smorgas- board. The dance begins at 9 p.m., Scholin’s Orchestra. Admittance $2.50. Reserve early. Phone: The Dahl Co. Ltd., 325 Logan Avenue, WH 3-8749 or Mrs. J. O. Anderson, 692 Calrossie Avenue, GL 2- 9102. „ H. A. Brodahl, Secretary ☆ Meeting of Jon Sigurdson Chapter IODE will be held at the home of Mrs. G. H. Nich- olson, 557 Agnes St. Tuesday, March 7 at 8 o’clock. Co- hostess, Mrs. G. Grimson. ☆ Til leigu herbergi með eða án húsgagna að 639 % Lang- side Street, Winnipeg. Óskað eftir eldri manni eða konu. ☆ Veiiið alhygli auglýsingu Wally’s Electric Repairs; hann gerir við alls konar rafmagns- tæki og leggur rafmagnsvíra eins og þarf. ☆ Kveðið á þjóðræknis- þingi Gamanspjall er gleði manns, gáskinn allur hollur. Fegri skalla forsetans finnst mér Halla kollur. P. G. ☆ Dánarfregnir Þórður Árnason Sigurðson Eiríkson andaðist í Melfort, Sask. 12. des. 1960, 87 ára. Hann var fæddur í Fagradal í Vopnafirði 21. marz 1873. Foreldrar Þórðar voru Árni Sigurðsson og Kristjana Soffía Stefánsdóttir. Þrír bræður Þórðar, Sveinn, Andrés og Gunnlaugur, eru allir dánir. Ein systir, Stefanía, Mrs. J. Thomasson, er í Smeaton, Sask. Þegar Þórðar var 16 ára, fór hann með bróður sínum, Sveini, til Kanada og var þar í þrjú ár, þá fór hann til N. Dakota til foreldra sinna en 1899 fluttist hann með for- eldrum sínum til Morden, Man. Hann kvæntist 14. des. 1902 Sigurrósu Tómasdóttur | Johannson. Árið 1906 flutti 1 hann sig til Vatnabyggðar í I Sask. á heimilisréttarland ná- ; lægt Mozart, Sask. Hann tók I merkan þátt í öllum byggðar- | málum. Var „councilor“ fyrir j fyrstu sveitarstjórn í Wyn- ! yard (Rural improvement dis- j trict) og fyrsti oddviti (reeve) : R. M. of Elfros. Hann var ; skrifari Grain Growers fé- I lagsins í sveit sinni og hjálp- ■ aði til að stofna „Wheat Pool“ i í Mozart, Sask. Hann var í ! skólaráði og skrifari Little : Quill skólahéraðs. Þórður var j lengi forseti lúterska safnað- j arins í Mozart. Þórður ráð- lagði börnum sínum að mennta sig og hjálpaði þeim til þess eins mikið og hann gat. Mörg af þeim fóru á há- skóla (university) og tveir náðu Ph.D. gráðu. Börn Þórð- ar og Sigurrósar voru átta: Árni í Ottawa; Thomas í Sas- katoon; Laura, Mrs. A. Van- ness, Rossland, B.C.; Thordís, Mrs. T. Card, Edmonton, Al- berta; Sveinn Thordur dó ungur; Olive, Mrs. R. J. Casey, Prince Albert, Sask.; Margrét, Mrs. J. C. Walker, og Thordur í Mozart, Sask. Barnabörnin eru 21 og eitt barna-barna- barn. Þórður var vinsæll og góður maður. Rev. R. T. Hill jarðsöng. Hann var jarðaður í Pioneer grafreitnum í Mo- zart, Sask. Vinur Frá Þjóðræknisþinginu í næsta blaði mun prófessor Haraldur Bessason, ritari Þjóðræknisfélagsins, skrifa fréttir af því helzta, sem gerð- ist á nýafstöðu ársþingi fé- lagsins. Við getum þó ekki stillt okkur um að láta í ljósi ánægju yfir því, að á síðasta kvöldi þingsins var frú Kristín Thorsteinsson frá Gimli kjör- in heiðursfélagi Þjóðræknis- félagsins og birtist sérstök grein um hana í næsta blaði. ☆ J. B. Johnson frá Gimli og Ólafur Hallson frá Eriksdale voru í bænum á mánudaginn og sátu ársfund North Ameri- can Publishing Co. Ltd., út- gáfufélags Lögbergs - Heims- kringlu. Skýrsla um þann fund verður birt í næsta blaði. ☆ Mrs. Sigríður Sigurðsson lézt nýlega á heimili sínu, Mary Hill, Manitoba. — Sigríður hét fullu nafni Árn- ína Sigríður Sigfúsdóttir. Hún var fædd á Nesi í Norðfirði 29. júlí 1872, dóttir hjónanna Sigfúsar Sveinssonar og Ól- afar Sveinsdóttur (systir Skúla Sigfússonar fyrrverandi þingmanns). Hún kom hingað vestur um haf með foreldrum sínum 1887. Árið 1898 giftist hún eftirlifandi manni sínum, Sigurði Sigurðsson, og voru þau hjónin með allra fyrstu landnemunum í Mary Hill byggðinni, og þar bjuggu þau svo til óslitið til dánardægurs hennar. Þau eignuðust 7 börn, af þeim lifa 5 móður sína, ólöf, Mrs. Axel Johnson, MESSUBOÐ Fyrsla lúlerska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. AUir ævinlega velkomnir. Lundar; Helga, Mrs. Snorri Rögnvaldsson, Lundar, Man.; Óskar á Lundar, Manitoba; Skúli og Albert, báðir heima í föðurgarði á Mary Hill, Man. Jarðarförin fór fram frá lút- ersku kirkjunni á Lundar 13. febrúar síðastl. J. B. ☆ Einar Vicior Helgason að Ste. L Cornwall Apts., Winni- peg, andaðist þann 19. febrúar s. 1., 65 ára að aldri. Hann var •fæddur í Winnipeg; foreldrar hans voru Helgi Einarsson Nikulássonar frá Gíslastöðum í Vallanessókn, Suður-Múla- sýslu, og seinni kona hans, Pálína Einarsdóttir, ættuð úr sömu sýslu. Einar Victor átti heima í Winnipeg alla ævi ut- an nokkurra ára í Chicago. Hann var múrari að iðn og var félagi í International Union of Bricklayers. Hann lifa kona hans, Laufey; fjórar dætur, Mrs. F. J. Whitehead , Regina, Sask., Mrs. P. Hreho- rak og Mrs. R. Brisson, báðar í Winnipeg, og Mrs. R. Cina- Mars í Vancouver, og stjúp- dóttir, Mrs. Marian Melnyk í Winnipeg; 13 barnabörn; ein systir, Mrs. Lilja Thoman í Elmhust, 111. Útförin fór fram frá Bardals, séra Philip M. Pétursson jarðsöng. „Hann á að vaxa — en ég að minnka" Frá bls. 3. manninum, og hann bætir þessum konunglegu orðum við: „Hann á að vaxa, en ég að minnka." Jóhannes er enn þá ungur maður. Hér er ekki um eðli- lega uppgjöf ellinnar að ræða. Það hvarflar ekki að honum, cð dapurlegt sé að vera nú dæmdur úr leik og eiga fyrir sér að gleymast. Eftir' glæsi- legt starf og aðdáun þúsund- anna, hneigir hinn ungi og geðríki maður hljóðlega höfði og gengur auðmjúkur inn í þögnina, gleymskuna, með þessi orð á vörum um mann- inn, sem var að erfa áhrif hans og vald: „Hann á að vaxa, en ég að minnka.“ Vér skiljum það andspænis þessari mynd, að einmitt þennan mann gat Guð notað til þess að greiða Kristi veg, manninn, sem sjálfum sér gat fullkomlega gleymt í þjón- ustunni við sannleikann. Athafnir manna og afstaða til umhverfisins stjórnast tíð- um af allt öðrum hvötum en menn gera sér ljóst, lítt með- vituðum eða ómeðvituðum með öllu. Oss býr svo margt í barmi, sem vér þekkjum ekki. Áhrif frá „gleymdum“ atvikum, sem þó eru geymd. Sjálfselskan er oft meginrót þeirra athafna vorra, sem vér hyggjum stjórnast af öðrum og göfugri hvötum. Þess vegna er sagan af Jóhannesi skírara, sú er eitt af guðspjöll- um þessa helgidags geymir, lærdómsrík. Hér er hin algera óeigin- girni auðsæ. Hér er það guð- lega hugarfar að verki, sem enginn hefir kennt mönnun- um eins og hann, sem vér bú- umst nú til að fagna á jólum. ☆ Mrs. Winnie Paul, ekkja William G. C. Paul, andaðist í Chicago 28. jan. 1961. For- eldrar hennar voru Björn Pét- ursson, sem lengi var í þjón- ustu pósthússins hér í borg, ættaður frá Stóru-Þverá í Fljótum í Skagafjarðarsýslu, og Dorothea Jóelsdóttir. Hin látna lætur eftir sig tvö syst- kini, Edith og Jóel Pétursson í Winnipeg. Mrs. Paul starfaði lengi í íslendingafélaginu Vísi í Chicago. Enginn veit sína ævína fyrr en öll er. ☆ Er það nú vit í vettlingsfit. Good Reading for the Whole Family •News • Facts • Family Features rh« Chrbtlan Sclanc* Monltor On« Norwoy Jt., Boiten 15, M«M. Send your nowipopcr for tho tlmo rhookod. Enclotod flnd my chock or nonoy ordor. I yoar $20 □ 6 monthc $10 □ I monthc |S Q Nomo ~ Addrccc • --ch?---X55—mir“ Þess vegna völdu vitPr menn á löngu liðnum öldufl1 þetta guðspjall til huglei^' ingar kristnum mönnum 1 síðustu guðsþjónustunni fyrir jól, síðasta sunnudeginum fyr' ir hina heilögu hátíð. Morgunbl. 18. deS Enginn er verri þó han11 vökni. ☆ Ekki liggur á, enginn seg’1 flýttu þér. ☆ Engin ósköp standa leng1- WALLY'S ELECTRIC REPAIRS Appliance repairs — Wirinð alierations Call WALLY EYOLFSON 1606 Maniioba Ave. JUsiice 2-7451 ROSE THEATRE SARGENT at ARLINGTON CHANGE OF PROGRAM EVERY FOUR DAYS Foto-Nite Every Tuesday and Wednesdoy SPECIAL CHILDREN'S MATINEí Every Saturday —AIR CONOITIONED— GOOD GOING March 29, 30 31 RETÚRN LIMIT — 25 Return Fares Froi» WINNIPEG In Coaches Only: To Vancouver To Vicioria To Nanaimo *In Tourist Sleepers: To Vancouver To Vicioria To Nanaimo $59.6» $63.75 $62.1° $6«.75 $72.70 $69.25 *On payment of tourist fare. bert»> Walch for Bargain Far«s effeciive April 27, 28, 29 Train Travel •* Low-Cost Travel Full information from 7°*^ Agant f

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.