Lögberg-Heimskringla - 28.03.1963, Blaðsíða 1
Högberg - ©etmsímngla
Stofnað 14. jan., 1888
Stofnuð 9. sept., 1886
t^ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN, 28. MARZ 1963
NÚMER 13
Vestur íslendingum býðst af-yinna á íslandi
Frá Los Angeles
Bréf frá forseta íslands
Bessastöðum, 22. marz, 1963.
Síra Robert Jack, prestur á Tjörn á Vatnsnesi, hefir tjáð
Jer, að hann sje á förum vestur um haf í þeim erindum að
r°nnsaka, hvort ekki muni fært að fá hingað til íslands
að ríS^k ffá Kanada á þeim tíma árs, sem atvinnuleysi kann
^era þar, en mestar annir hjer. Slíkt samstarf væri mjög
^skilegt fyrir báða aðila.
"feg hefi 'þekkt síra Robert Jack frá því hann kom fyrst
gað til íslands fyrir 27 árum, og eingöngu að öllu góðu.
g mæli því með því, að erindi hans sje vel tekið og í fullri
Voru, og nota þetta tækifæri til að biðja hann fyrir kæra
Ju til allra manna af íslenzkum stofni vestur þar, og
^'klu þakklæti fyrir síðustu samfundi.
Ásg. Ásgeirsson.
TRANSLATION
^ The Reverend Robert Jack, Minister at Tjörn at Vatnsnesi,
s informed me that he is about to leave Iceland for North
^fica for the purpose of investigating whether it would
be possible to engage people from Canada to work in
eiand during that part of the year when there may be
^nempioyment in Canada, but a busy time here. Such co-
°Peration would be very desirable for both parties concerned.
J have known the Reverend Robert Jack since he first
came to Iceland 27 years ago, and only in the best way
^aginable. I, therefore, recommend strongly that his mission
°uld be given the fullest and most earnest consideration,
a°d I take this opportunity of asking him to convey to all
Pe°ple of Icelandic descent in North America my warmest
j^gards and much gratitude for the time recently spent with
mem.
(sig.) Ásg. Ásgeirsson.
úréf frá Landssambandi íslenzkra Útvegsmanna
Pósthólf 1034 — Reykjavík
^ 21. marz 1963
r- r®ðismaður
^rettir Johannson,
Winnipeg.-
Séra Robert Jack, Tjörn, Húnavatnssýslu, var fenginn til
taka. sér ferð á hendur til byggða Vestur-íslendinga bú-
aettra í Kanada, til að kanna það, hvort ekki væri unnt að
a fólk þar til starfa hér á Islandi.
Tör séra Roberts er kostuð af Landssambandi ísl. útvegs-
^nna’ Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Síldarverksmiðjum
Vasntum vér þess, herra ræðismaður, að þér aðstoðið séra
°bert á ferðalagi þessu eftir því sem unnt er og hann kann
a° °ska.
Allra virðingarfyllst,
f. h. Landssambands ísl. útvegsmanna
Gunnar I. Hafsteinsson (signed).
v*níur gestur
^ mánudagskvöldið, þegar
a h var að safnast saman á
. ^nsfundinn í Lutheran Par-
Hall í Winnipeg til að
yða á Dr. Sigurð Þórarins-
hirtist óvæntur gestur frá
,s andi, séra Robert Jack. Var
°num vel fagnað af fund-
armönnum, því hann aflaði
Ser, ^urgra vina meðan hann
Pjónaði hér vestra og síðar
yrir fréttabréf hans frá ís-
^ndi.
\ ^°k fundarins bauð forseti,
l0r- Haraldur Bessason, séra
°bert að taka til máls. Eftir
f ann hafði flutt fundarfólki
Veðjur frá forseta Islands,
biskupi og Þjóðkirkju Islands,
skýrði hann frá erindi sínu
vestur og þótti það nokkrum
tíðindum sæta. Hann er hing-
að kominn í umboði Lands-
sambands íslenzkra útvegs-
manna, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Síldarverk-
smiðjanna ríkisins til að leita
starfsfólks meðal Vestur-ís-
lendinga. Starfskraftar eru
ekki nægilegir á íslandi til
þess að þjóðin geti fært sér í
nyt öll þau miklu tækifæri,
sem sjávarútvegurinn hefir
upp á að bjóða. Vitaskuld
gætu íslenzkir útgerðarmenn
fengið starfsfólk frá öðrum
þjóðum, en kjósa helzt fólk af
íslenzkum ættum, ef það gef-
ur kost á sér. Ofan birt bréf
frá forseta Islands og Lands-
sambands íslenzkra útvegs-
manna skýra sig sjálf. —
Sennilega er það tólf mílna
landhelginni að þakka hve
geisilega mikill aflinn hefir
verið við íslandsstrendur upp
á síðkastið. Togurum er nú
ekki lengur leyft að skafa
sjávarbotninn innan þessara
takmarka, aðeins leyft að
veiða með línu, færi og í net
sumstaðar.
Séra Roberl Jack
Hvað er í boði?
Séra Robert hefir í hyggju
að ráða til að byrja með 20 til
30 duglega einhleypa menn,
sem færu til íslands nú þegar.
Myndu þeir ráðnir á fiskibáta
eða ýmisleg störf í sambandi
við ‘ fiskframleiðslu í landi,
svo sem við frystihúsin, síld-
arverksmiðjurnar og fl. Enn-
fremur er mikil þörf á mat-
sveinum, og á stúlkum til að
starfa við framleiðsluna.
Verbúðir fiskimanna á ís-
landi eru nú notarlegar eins
og gistihús, að því leyti, að
herbergi eru hlý og hrein, raf-
lýst með rennandi vatni, ný-
tízku útbúnaður í eldhúsum,
lærðir matsveinar framreiða
máltíðir. — Starfsfólkið fær
frítt fargjald til íslands, en
þess er eiiidregið óskað að það
ráði sig til tveggja ára. Um
kjör og kaup mun séra Robert
Jack ræða persónulega við
væntanlega umsækjendur á
Royal Alexandra hótelinu,
Room 211, milli 10 og 12 f.h.
og milli 1 og 5 e.h. alla daga
nema sunnudaga.
Aðalmennirnir á íslandi,
sem hafa áhuga fyrir þessu
máli, eru Sveinn Benedikts-
son, formaður Síldarverk-
smiðja ríkisins, Sverrir Júl-
íusson, formaður íslenzkra út-
vegsmanna, Kristinn Olsen
stofnandi Loftleiða og í stjórn
þess og Helgi Zoega útgerðar-
maður. —
Þing fiskimanna í Manitoba
verður haldið á fimmtudaginn
Hinn 9. marz þ. árs höfðu
íslendingar hér þorrablót og
grímuball í Danish Autorium í
Los Angeles, á 24. götu. Um
130 manns sótti samkomu
þessa, allmargir grímuklæddir
allt frá Islenzkum búningum
til Amerískra Indíána búning-
um með fjöðrum. Þriggja
manna hljómsveit spilaði fyrir
dansinum til miðnættis, en-
fremur almennur söngur und-
ir öflugri stjórn Gunnars
Matthíassonar. íslenzkur mat-
ur var þar í stórum stíl, sem
að konur í félaginu höfðu mat-
reitt af miklum myndarskap
og kunnáttu.
Meðal gesta var frá Winni-
peg hin merka kona Guðbjörg^
Sigurdsson var hún með bróð-
ursyni sínum Guðmyndi Berg
og syni hans sem að hér eiga
heima, sömuleiðis Ásgrímur
Ásgrímsson frá N.D. en við
hann kannast margir í gegn-
um ágæt skrif hans í íslenzk-
um blöðum. Ásgrímur á hér
4 systur og aðra vandamenn.
Sunnudaginn 3. marz komu
saman um 60 manns að heim-
ili Jack W. og Ragnhildar
Johnson á Fullbright Ave. í
Canoga Park hér úti í San
Farnendo dalnum. Hjón þessi
höfðu opið hið fagra heimili
sitt fyrir vinum og velunnur-
um föður frúarinnar Magnúsi
Magnússyni (Cambridge) var
þetta 90 ára afmæli hans. Dag-
urinn var dásamlegur og vorið
auðsætt í öllum áttum. Frú
Ásthildur og Magnús tóku á
móti vinum sínum með opn-
um örmum umkringd barna-
börnum sínum og hina Is-
lenzku gestrisni í hásæti sínu,
en ríkumannleg máltíð var
borin fram og síðar með kaff-
inu var fín afmæliskaka.
Magnús og Ásthildur hafa nú
verið í hjónabandi í 56 ár,
áunnið sér ást og virðingu
samferðafólksins hvar sem að
leiðir þeirra lágu. Afmælis-
barnið dansaði eins og sá, sem
að valdið hefur léttur og lipur
í hreyfingum. Mr. og Mrs.
Johnson og börn þeirra 4, eiga
þakklæti fyrir að lofa svo
mörgum mönnum og konum
og föstpdaginn 28. og 29. marz
í Marlborough hótelinu. Hefir
fulltrúi Manitobastjórnar fyr-
ir fiskimenn, Helgi K. Tomas-
son ráðstafað því, að séra
Robert Jack ávarpi fiskimenn
kl. 1 e.h. á föstudaginn og mun
.hann þá útskýra greinilega
hvað hér stendur vestur-ís-
lenzkum fiskimönnum og öðr-
um sem vilja starfa að fram-
leiðslu íslenzku þjóðarinnar
til lands og sjávar^ til boða.
að eiga skemmtilegan dag á
heimili sínu og um leið árna
hinum aldna sæmdarmanni
til hamingju með daginn.
Nýlega andaðist í Los Ang-
eles Þórður Þórðarson frá
Kópavogi, var hann í blóma
lífsins. Auk konu sinnar Lísu,
lætur hann eftir sig þrjú smá-
börn. Kona hans fór með lík
hans til íslands samkvæmt
óskum hans.
Skúli G. Bjarnason.
Fréttir frá íslandi
The Icelandic
Hið ’fræga ameríska tón-
skáld, Henry Dixon Cowell,
hefur tileinkað 16. sinfóníu
sína Vilhjálmi Stefánssyni,
landkönnuði, en þeir voru
góðir vinir. Sinfóníuna, sem
hann nefnir „The Icelandic“,
samdi hann fyrir William
Strickland og Sinfóníuhljóm-
sveit Islands, og verður hún
frumflutt á tónleikum sinfón-
íuhljómsveitarinnar n.k.
fimmtudag.
Henry Dixon Cowell, sem
er nýkominn til landsins til
þess að vera viðstaddur frum-
flutning verks síns, ræddi við
fréttamenn í dag. Cowell er
66 ára að aldri, lágvaxinn,
kvikur og alúðlegur, kíminn
og skemmtilegur í viðræðum.
— Hann er einn af þekktustu
höfundum nútíma tónlistar.
Cowell kvaðst ungur hafa
orðið mikill tónlistarunnandi.
— En ég átti engin hljóðfæri,
svo að ég varð bara að hugsa
tónlistina, og ég setti mér fyr-
ir einnar stundar „tónlistar-
hugsun“ á dag. Þannig varð
ég tónskáld!
Tíminn 19. marz.
☆
Valiýr Stefánsson lálinn
Valtýr Stefánsson, ritstjóri,
andaðist s.l. laugardagskvöld
á B o r g a r sjúkrahúsinu í
Reykjavík, eftir langa legu og
margra ára vanheilsu, rúm-
lega sjötugur að aldri.
Tíminn 19. marz.
☆
19. marz 1963.
Talið er víst að tveir menn
hafi farist á flugvél, sem var
að koma frá Ameríku — milli
Nýfundnalands og Grænlands.
Mennirnir voru S t e f á n
Magnússon flugstjóri hjá Loft-
leiðum, mjög ágætúr maður,
og Þórður Úlfarson læknis
Þórðar á Kleppi. Voru búnir
að senda út neyðarkall. Er tal-
ið að ís hafi orðið þeim að
grandi.
V.G.
Framhald á bls. 2