Lögberg-Heimskringla - 28.03.1963, Blaðsíða 5

Lögberg-Heimskringla - 28.03.1963, Blaðsíða 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 28. MARZ 1963 5 Æ v i m i n n i n g : Guðrun Jónsdótf-ir Guðmundsson var fædd 19. maí 1880 á Laugavatni í Þingeyjarsýslu á íslandi. Foreldrar hennar voru Jón Þórarinsson frá Hall- dórsstöðum í Laxárdal, og Þuríður Sveinsdóttir frá Garði í Aðaldal í Þingeyjarsýslu. Guðrún misti föður sinn þeg- ar hún var ellefu ára. Þá fluttist móðir hennar til Ame- ríku með fimm börnum sínum á unga aldri. Nöfn þeirra voru: Þórvör, Guðrún, Þórar- inn, Sveinn og Metúsalem. Systir Þuríðar var gift Jóni Halldórssyni, og áttu þau hjón þá heima í Long Pine, Ne- braska. Þangað fór Þuríður fyrst með barna hópinn sinn. Þau reyndust henni mjög góð og hjálpsöm. Dvaldi hún í Frú Guðrún J. Guðmundsson Long Pine í fimm ár, og naut Guðrún þar skólagöngu þann tíma. Einn f a g r a n sumardags morgun í júní tók Þuríður sig upp með alla fjölskylduna og lagði af stað í langferð tíl Norður Dakóta. Þau ferðuðust í tjölduðum vögnum, þremur að tölu, með allt sitt dót. Eitthvað höfðu þau af land- yrkju verkfærum meðferðis og tuttugu hesta. Ferðin tók sex vikur. Til jafnaðar fóru þau um tuttugu og fimm mílur hvern dag. Brautir voru vond- ar og leiðin lá yfir háar hæð- ir. Þau fóru á ferju yfir Mis- souri-fljótið. Fegin voru þau og glöð þegar þau loks komu til Mountain, N.D., þar sem bróðir Þuríðar, Sigurjón Sveinsson, bjó. Þau systkynin höfðu ekki sézt í tuttugu og fimm ár. Þetta var því sannur fagnaðarfundur. Upp frá þessu ólst Guðrún upp í Mountain, og átti heima í því byggðarlagi allt til æviloka. I maí 1897 var hún fermd af séra Friðrik J. Bergmann. Sú athöfn var henni ekki að- eins helgur kirkjusiður, held- ur persónuleg trúarjátning og heitstrenging að reynast Guði og frelsara sínum trú og hlýð- in í tilbeiðslu og þjónustu, starfi kirkju hans og ríkis til eflingar; og bar líf hennar allt þess vott að hún stóð stöðug í þeim sáttmála. Fyrsta júlí 1899 giftist Guð- rún ekkjumanni, Guðmundi Guðmundssyni, sem heima átti á bújörð skammt frá Mountain. Hann átti þrjá unga drengi: Sveinbjörn, Guðmund og Torfa. Hún reyndist þess- um stjúpsonum sínum sem bezta móðir, og elskaði þá sem sín eigin börn. Þeim Guðmundi og Guð- rúnu varð ellefu barna auðið, og eru þau sem hér segir: Sigurlaug, gift John B. Sny- dal, Grand Forks, N.D.; Jón- ína, gift V. G. Guðmundson, Seattle, Wash.; Sigríður, gift S. V. Hannesson, Mountain; Þórarinn, Grand Forks; Kon- ráð, Walter og Guðmundur, Mountain; Soffía, gift S. E. Snydal, Hensel, N.D.; Krist- inn, Seattle, Wash.; og tveir synir dánir, Erlingur og Law- rence. Stjúpsonur hennar, Guðmundur, dó í apríl 1916. Mann sinn misti hún 25. september 1941. Hún mætti annari djúpri sorgarreynslu 27. júlí 1957, er sonur hennar Lawrence og kona hans og þrjú börn þeirra drukknuðu öll vestur við Kyrrahaf þegar lítill bátur sem þau voru á fórst. Og enn annað reiðarslag sorgarinnar, það síðasta, heim- sótti hana þegar sonur hennar Erlingur varð bráðkvaddur 23. júlí 1962. Það þjakaði henni mikillega, en þá voru líka líkamskraftar hennar næstum að þrotum komnir. Samt var hún þá, eins og hún hafði ávalt verið í gegnum alla hennar lífsreynslu, ævin- lega ljúf og brosandi í viðmóti við vini sína og samferðafólk. Hin einlæga, sterká og bjarta kristna trú hennar studdi hana og styrkti og dró svið- ann úr sárunum. Það rættist á henni, sem skáldið okkar kæra, Steingrímpr Thor- steinsson, segir í einni af hans gullfögru vísum: „Sorgarhjör mér sviða gerði, samt ei vann mér slig; lífsteinn var í sáru sverði, sem að græddi mig.“ Guðrún leysti stórt og bless- unarríkt lífsstarf ,af hendi. Það tekur mikið þrek og þol- gæði, ást og óeigingjarna fórnfærslu að ala upp fjórtán börn og gefa þeim kristilega undirstöðu til að byggja líf þeirra á. En fyrir hið nána .samlíf hennar við Guð og frelsara sinn veittist henni það er til þess þurfti. Hún varðveitti trúlega og ávaxtaði hið kristna pund er henni var gefið í æsku. Hún var hjarta- góð og trygg í lund, gestrisin og góð heim að sækja, og ávalt hjálpsöm í garð samferða- fólksins. Hún var meðlimur Víkursafnaðar á Mountain í sexfíu ár, og starfaði trúlega í kvennfélagi safnaðarins, og einnig í ýmsum öðrum góðum félögum. Minning hennar lifir björt og blíð og hjálpsamleg í hjörtum ástvinanna og sam- ferðafólksins. Ég kynntist Guðrúnu síðast- liðið sumar á þeim tíma sem ég þjónaði Mountain presta- kalli; og er ég þakklátur fyrir þá viðkynning við hana, þó stutt væri. Hún var þá farin að heilsu og rúmföst mest af þeim tíma. En það var andleg uppörvun og styrkur að koma að sjúkdómsbeði hennar, tala við hana, og mæta hlýju og styrk trúarinnar á Guð og frelsandi náð hans, sem hún bar í brjósti. Nokkrar síðustu vikurnar af ævinni jarðnesku var Guð- rún á heimili dóttur sinnar, Sigurlaugar, sem er hjúkrun- arkona og gat því látið henni í té hina innilegustu og beztu umönnun. Þaðan hóf hún ferð sína yfir hafið, sem aðskilur tíma og eilífð, þ. 26. nóvember 1962. Öll systkini hennar voru farin héðan á undan henni. Útför hennar fór fram frá Víkurkirkju og var stjórnað af núverandi presti þar, séra Claude Snider. Eftirfarandi erindi eru kveðju orð frá börnunum hennar, og finst mér eiga vel við að láta þau birtast hér. „Nú hvíldar nýtur þreytta höndin þín, og þrautastundin sára burt er liðin; og döprum augum aftur sólin skín; þú öðlast hefir varanlega friðinn. Vertu sæl! Þitt höfuð hvíldu rótt, hjarkær ástrík móðir, „góða nótt“. „Þinn dagur var langur, og leiðin oft hörð, en ljúfur hinn síðast blær. Við kyssum þig móðir, er kveður þú jörð, og kvöldroða á himininn slær.“ Vel eiga einnig við hér þessi orð úr sálminum al- kunna: „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir alt og alt. Gekst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhoss þú hljóta skalt.“ Kolbeinn Sæmundsson. Ræða Framhald af bls. 4. fremur viljað vera. Snæfell ingar voru sem sagt stórgáfað- ir bandittar, spámenn og dul spekingar á næstum hverjum bæ. Slíkt fólk gat aldrei orðið leiðinlegt. Kannske er þessi Snæfellska ríkjandi þjóðareinkenni ís- lendinga. Sálir þeirra eru ekki snjóhvítar fremur en sálin hans Jóns bónda í þjóðsög- unni. En þeir eru gáfaðir og hreinasti gull- þeim, þegar þeim syndaselir kjaftur á tekst upp. Framhald. Leskaflar í íslenzku handa byrjendum Prof. Haraldur Bessason Prof. Richard Beck, Ph.D. XXXVII Following the declension of enginn in the last lesson, the indefinite pronoun neinn and nein (anybody, anyone) and neili (anything) will now be considered. It may be added that neinn, in its various forms, is used only after negations. The complete declension goes thus: Sing. Masc. Fem. Neut. Nom. neinn nein neitt Acc. neinn neina neitt Dat. neinum neinni neinu Gen. neins neinnar neins Plur. Nom. neinir neinar nein Acc. neinna neinar nein Dat. neinum neinum neinum Gen. neinna neinna neinna Translate into English: Hér er ekki neinn póstur til þín. Hann sá ekki neinn drengjanna úti á götunni. Ég hefi ekki sagt neinum þetta, nema frænku minni. Ekkert bréf er héf til neins bræðranna. Hingað koma aldrei neinir gestir. Heíir þú ekki heyrt neinar fréttir? Nei, ég hefi ekki fengið nein blöð nýlega. Systir mín sendi mér ekki neina gjöf á afmæli mínu, en það gerir ekki neitt til, því hún gaf mér fallega íslenzka bók um jólin. Englendingurinn kom einn hingað í gær, en ekki með neinum öðrum erlendum ferðamönnum. Það er ekki til neins fyrir þig að reyna þetta. Það var ekki neitt vatn í brunninum, því ekki hafi rignt lengi. Vocabulary: afmæli, neuter, birthday, an-'gestir, masc., guests, visitors, niversary, dat. sing of afmæli blöð, neuter, newspapers, masc. plur. of blað brunninum, masc., the well, dat. sing. of brunnurinn bræðranna, masc., of the brothers, gen. plur. of bróðirinn drengjanna, masc., of the boys, gen. plur. of drengurinn ekki til neins, of no use en, but Englendingurinn, masc., the Englishman, nom. sing. ind. I erlendum, adj., foreign, dat. plur. of erlendur fengið. got, received, past participle of fá fréttir, fem., news, acc. plur. of frétl gaf, gave, 3rd per. sing. past ind. of gefa gerir ekki neitt til, does not matter nom. plur. ind. of gestur gjöf, fem., a gift, present, acc. sing. of gjöf gölunni, fem., the street, dat. sing. of gatan heyrt, heard, past participle of heyra lengi, adv., long, for a long time með, with nema. except póstur. masc., mail, nom. sing. ind. reyna. try, here the infinitive að reyna, to try rignt, rained, past participle of rigna sagt, told, past, participle of segja % úti á. out on valn, neuter, water, nom. sing. ind. því, because, for öðrum, other, dat. plur. of annar PUBLIC NOTICE TO ALL PARTNERSHIPS OR PROPRIETORSHIPS IN THE PROVINCE OF MANITOBA Notice is hereby given that an amendment to The Partnership Act now provides for renewal by April 30, 1963, of all partnerships or proprietorships prior to November 1, 1962. Renewal application forms are available at the Department of Provincial Secretary, Room 345, Legislative Building, Winnipeg 1, or at the office of your local Deputy Clerk of the Crown and Pleas. The Partnership Act further provides that all persons engaged with others in partnership for trading, manu- facturing or mining purposes are required to register. Individuals carrying on such a business in a name other than his own, or in his own name but including the words “and Company”, “Sons”, etc, or a name indicating that others are associated with him, are also required to register under this Act. GURNEY EVANS Provincial Secreary

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.