Lögberg-Heimskringla - 27.06.1963, Page 1
I
lögberg-líeimsferingla
Stofnað 14. jan., 1888 Slofnuð 9. sept., 1886
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 27. JÚNI 1963
NÚMER 26
Vestur-íslendingapisl'ill
fró Reykjavík
Hinn mæti og vinsæli
kennimaður séra Sveinbjörn
S. Ólafsson kvaddi söfnuð
sinn í Little Falls, Minnesota,
síðastliðinn sunnudag, eftir
jrjátíu og tveggja ára prests-
jjónustu hjá Methodista-
Lætur af embætf-i
séra Sveinbjörn S. Ólafsson
kirkju Bandaríkjanna. —
Hann var fæddur að Akra-
nesi á Islandi 1897 og fluttist
með foreldrum sínum og
systkinum til Winnipeg 1911.
Ári síðar lézt Jónas faðir hans
en móðir hans, Anna Svein-
bjarnardóttir náði háum aldri
dó 1948.
Sveinbjörn stundaði nám
við Jóns Bjarnasonar skóla
1918—20, lauk B.A. prófi við
Valparaiso háskólenn í Indi-
ana 1925, innritaðist í Gerrett
Biblical Institute í Evanston,
111. 1928 og lauk þar guð-
fræðiprófi — B.D. 1931.
Séra Sveinbjörn hefir þjón-
að Methodistasöfnuðum í
Princeton, 111., Duluth, Thief
River Falls, Minneapolis,
South St. Paul og Little Falls.
Og á öllum þessum stöðum
hefir hann notið vinsældar
vegna ljúfmennsku sinnar og
hæfileika sem ræðumaður;
margar ræður hans hafa
birzt í dagblöðum þar sem
hann hefir þjónað.
Hann kvæntist Miss Maur-
ine Finnegan 1926 ættaðri frá
Indiana og eiga þau tvö
börn: Nancy Lou — Mrs.
Ibsen, hjúkrunarkona og Paul
James.
Séra Sveinbjörn hefir kennt
til sjóndepru og leggur því
niður prestsstörf fyrr en
annars hefði orðið, en hon-
um kemur ekki til hugar að
setjast í helgan stein; þau
hjónin eiga heimili að 7120
Stevens Ave., Richmond,
Minn. Þar á hann stórann
trjágarð og hefir í hyggju að
rækta þar jólatré.
17. júní í Los Angeles
77. ÁRGANGUR
Sextugur
K. W. (Bill) Johannson
Þriðjudaginn 2. júlí á Kári
Vilhelm (Ásmundsson) Jo-
hannson sextugs afmæli.
Hann er vel kunnur hér í borg
og víðar, er eigandi og for-
stjóri Building Mechanics
Ltd. í Winnipeg og hefir tekið
mikinn og heilladrjúgan þátt í
félagsmálum Islendlnga.
Hann er eftirsóttur í fram-
kvæmdanefndir þeirra, þegar
til stórræða kemur, sökum
þess hve hann er ötull og á-
reiðanlegur í hverju því máli
sem hann lætur sig skipta,
hann lætur aldrei setja við
orðin ein. Hann var kjörinn
féhirðir byggingarnefndar
Betelheimilisins þegar sú
stofnun var endurbyggð og er
nú varaforseti Betels, hann
hefir verið lengi og er enn í
safnaðarráði Fyrstu lútersku
kirkju og var forseti safnað-
arins þegar ráðist var í að
reisa hið myndarlega Parish
Hall safnaðarins. Hann var
féhirðir útgáfunefndar Lög-
bergs og tók að sér það em-
bætti þegar blöðin voru sam-
einuð, hefir mikinn áhuga
fyrir því að Lögberg-Heims-
kringla komist á fastan fjár-
hagslegan grúndvöll og eru ó-
talin störf hans í þágu blaðs-
ins. Bill, eins og vinir hans
nefna hann, er í frímúrara-
reglunni og nýtur þar vin-
sælda og virðingu sem ann-
arstaðar.
Hann er kvæntur Maríu
Mathews, myndarlegri ágæt-
iskonu og er heimili þeirra að
910 Palmerston Ave. Þau eiga
einn son, Albert Pétur og
fjögur sonarbörn — þrjár
stúlkur og einn dreng. 1 til-
efni þessa merkis afmælis
óskum við Bill gæfu og geng-
is í framtíðinni.
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA
Eina íslenzka vikublaðið í
Norður Ameríku
Siyrkið það.
Kaupið það
Lesið það
Mikið hafa viðtökurnar á
íslandi verið lofaðar bæði af
þeim sem komu hingað í hóp-
ferðunum frá Winnipeg og
Vancouver og einstaklingum
sem komu bæði fyrr og síðar.
Gamlir og nýir vinir og ætt-
ingjar hafa tekið þeim opn-
um örmum, borið þá á hönd-
um sér og auk þess hafa ein-
staklingar, félög, fyrirtæki og
stofnanir keppt að því, að
gera þeim dvölina á ættland-
inu ógleymanlega.
Báðum hópunum var ekið
um borgina og nágrenni í boði
Þjóðræknisfélagsins í Reykja-
vík undir stjórn ágætis leið-
Islendingar og íslandsvinir
hérna í Norður-Kaliforníu
komu saman á sunnudaginn,
16. júní 1963, í Marin Town
and Country Club í Fairfax,
Marin County, til þess að
halda hátíðlegan Þjóðhátíðar-
dag Islendinga. Byrjaði hóp-
urinn að safnast kl. 10 f.h.,
foreldrar með börn sín, ungir
og gamlir. Var hátíðarblær
yfi picnic area no. 3, fánar
íslands og Bandaríkjanna
blöktu á milli trjánna. Margir
fóru í sund, börnunum var
skemmt með reiptogi og fleiri
leikjum, hádegisverður var
eldaður og allslags sælgæti
fram borið.
Um kl. 3 e.h. kallaði Sveinn
Ólafsson, formaður íslend-
ingafélagsins hér, fólkið sam-
an. Bauð hann alla velkomna
á samkomuna og flutti kveðju
frá séra S. O. Thorlakson,
ræðismanni Islands í San
Francisco, sem er á ferðalagi
um þessar mundir.
Því næst flutti frú Gunn-
hildur S. Lorensen minni
frelsishetju Islands Jóns Sig-
urðssonar. Prófessor Loftur
Bjarnason frá The U.S. Naval
Postgraduate School í Mon-
terey, hélt fróðlega ræðu um
fyrstu íslendingana, sem sett-
ust að í Bandaríkjunum að
undanskyldum Þorfinni
karlsefni, en það voru Mor-
mónarnir. Það var um 1854
að Samúel Bjarnason frá
Vestmannaeyjum, ásamt konu
sinni Margrétu og annari
konu, Helgu Jónsdóttur, lagði
upp í ferð til Bandaríkjanna,
éftir að hann hafði tekið trú
Mormóna. Settist hann að í
Spanish Fork í Utah, á landi,
sem Brigham Young gaf hon-
um. Fleiri komu á eftir, og
sagði prófessorinn frá þeim
erfiðleikum, sem margt þessa
fólks átti við að etja á leið-
sögumanna sem færðu gest-
unum mikinn fróðleik um
sögu og þróun Reykjavíkur,
Kópavogs og Hafnarfjarðar.
Sérstaklega mun sú ferð vera
metin af þeim sem voru í
Winnipeg-hópnum, því stanz-
að var á hinu glæsilega heim-
ili próf. Finnboga Guðmunds-
sonar og konu hans, frú Krist-
jönu Helgadóttur í Hafnar-
firði sem veittu kaffi og kræs-
ingar rausnarlega.
Sunnudaginn þann 16 voru
hátt á annað hundrað manns
fluttir upp á Akranes í boði
bæjarstjórnar þar. Fyrst var
Framhald á bls. 8.
inni vestur. Hann sagði, að
íslendingarnir í Utah hefðu
víða komið við mennta- og
menningarsögu þess ríkis og
að yfirleitt hefði þeim farnast
mæta vel í hinu nýja um-
hverfi. Að ræðunni lokinni
var sungið og seinna um dag-
inn lék Jóhann Sörenson á
harmóníku.
Meðal þeirra, sem kynnt
voru, var Professor Haakon
Hamre, kona hans og tveir
synir, en Professor Hamre er
yfir norrænu deildinni við há-
skólann í Berkeley; ungur
Bandaríkjamaður að nafni
Peter Carleton með konu sína,
Barbara, en þau kynntu sig
sem Kári Marðarson og Þór-
katla, og eru þau á förum til
íslands, þar sem hann hefir
áður stundað nám við háskól-
ann og hyggst nú að lesa til
doctorsprófs í íslenzkum
fræðum (skáld 20. aldarinn-
ar); Þórir Ólafsson og kona
hans, Ingunn Valtýrsdóttir,
með tvö ung börn, og eru þau
hjónin frá Laugarvatni, hafa
verið hér síðan í september
s.l., en Þórir hefir Fulbright
styrk og les efnafræði við
Stanford háskólann; tvær
ungar konur, sem eru ný-
komnar til San Francisco,
þær Katla Ólafsson, dóttir
Ólafs >Ólafssonar, yfirlæknis
á Sólvangi í Hafnarfirði og
Alda Guðmundsdóttir Hall-
dórssonar, og er hún önnur ai
þeim tveim ungu íslenzku
stúlkum, sem Pan American
Airways réðu til sín sem
flugfreyjur fyrir nokkrum
árum. Einnig voru kynnt
hjónin Lloyd og Dena Adam-
son frá Filmore í S.-Kali-
forníu, en frúin er systir Lofts
Bjarnasonar, og Margrét
Weber Halldórson frá Ari-
zona. Þarna voru líka þær frú
Bushnell frá Seattle og frú
Eins og að auglýst hafði
verið, hafði íslendingafélagið
hér „Dinner Dance“ laugar-
dagskvöldið hinn 15. júní í
Móna Lísa matsöluhúsinu að
3343 Wilshire Blvd. í Los
Angeles, en á þessum fína
stað brosti Móna Lísa sínu
blíða brosi og mjög umdeilda
á síðari tímum. — Hinir
tvístruðu íslendingar komu
úr öllum áttum og á stuttum
tíma voru þar saman komnir
140 manns, prúðbúið og glæsi-
legt fólk á þessu dásamlega
kvöldi um Jónsmessuleytið.
Tom Croak hinn duglegi og
nýji forseti félagsins setti
samkomuna og bauð fólk vel-
komið. Við hlið hans sat hin
bjarta og fríða kona hans
Jóhanna ólafsdóttir. Með
Stefanie’Oddstad, en sú síðar-
nefnda er á leið til íslands og
Noregs í enda júlí mánaðar
með syni sínum, Andres Odd-
stad.
Má að lokum segja, að úti-
skemmtun þessi hafi lánast
vel og verið öllum, sem hana
sóttu, til hinnar mestu
skemmtunar.
G.S.L.
fyrstu réttunum voru sungn-
ir þjóðsöngvar Bandaríkjanna
og Guð vors lands undir
stjórn Gunnars Matthíassonar
og undirspil hljómsveitar
Alais Slovacek sem að líka
spilaði á meðan matast var og
svo fyrir dansinum til kl. 1%
um nóttina. Þess má minnast
að kona Alais er Þórdís Guð-
jónsdóttir frá Húnavatns-
sýslu; hafa þau átt heima í
Hollywood árum saman. Síð-
an var almennur söngur.
Enda þótt að svo margir af
fólki okkar séu nú fjarverandi
þá virðist sem ætíð séu aðrir
við hendina til þess að fylla
í skörðin og var þessi góðra
vina fundur engin undan-
tekning hvað það snerti.
Á meðal gesta frá íslandi
var frú Ingibjörg ólafsdóltir;
er hún kona hins kunna prests
Neskirkjunnar í Reykjavík
séra Jóns Thorarensen. Frú
Ingibjörg, sem að er mjög
höfðingleg kona, dvelur á
heimili Borghildar og Guð-
mundar Guðlaugssonar í
nokkrar vikur. Þar var líka
frú Ágústa Jónasdóttir, er hún
í heimsókn hjá dóttur sinni
og tengdasyni Donald Lucas í
Framhald á bls. 5.
17. júní í Norður-Kaliforníu