Lögberg-Heimskringla - 30.12.1965, Side 1

Lögberg-Heimskringla - 30.12.1965, Side 1
Högber g; - J^eímslmngla Stofnað 14. jan.. 1838 Slofnuð 9. sept.. 1886 79. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 30. DESEMBER 1965 arffjjp*. NÚMER 49 Gullbrúðkaup í Glenboro, Maniloba Bréf frá séra Robert Jack 17. nóvember 1965, áttu hin vinsælu hjón Mr. og Mrs. B. S. Johnson, Glenboro, Manitoba, 50 ára giftingarafmæli. í til- efni af deginum tilkynntu dætur þeirra og tengdasynir, Mr. og Mrs. Reg. Rawlings (Ellen), Glenboro, og Dr. og Mrs. R. E. Helgason (Mar- garet), S. Burnaby, B.C., a'ð þau væru að halda upp á dag- inn með “open house” sam- sæti á heimili foreldra sinna, og buðu þangað velkomna vini og ættingja. Margir komu sem vænta mátti, hátt á þriðja hundrað manns. Veðrið var gott, bjart sólskin, en snjór á jörð. Allir vildu koma til að gleðjast með heiðursgestun- um, og óska þeim til ham- ingju. Margar voru kveðjurn- ar og kortin, sem þau fengu, bréf og skeyti — jafnvel frá Islandi — og svo gjafir frá ættingjum og vinum. Dæt- urnar og menn þeirra fögn- uðu gestunum, þegar þeir komu og báru fram ríkman- legar veitingar. Björn S. Johnson er fædd- ur í Gardar, N.D. 16. janúar 1887. Hann kom til Canada 1902 með foreldrum sínum og systkinum, þau settust að á bújörð þeirri þar sem Grundarkirkjan stendur skammt frá. Hann giftist Hillu Frederick- son, 17. nóvember 1915 á heimili foreldra hennar, Borgu og Olgeirs Frederick- son. Séra Friðrik Hallgríms- son gifti þau. Fjórum árum seinna keypti Björn bújörð tengdaföður síns 4 mílur suð- ur frá Glenboro, þar bjó hann og kona hans góðu búi til 1958. Þegar þau hættu búskap þá fluttu þau til Glenboro og byggðu sér þar fallegt heimili. Það má segja með sanni að Hilla og Björn hafa verið leiðandi hjón í sinni byggð, Argyle, þar sem þau. hafa óspart lagt fram efni og krafta sína öllum góðum félagsmálum til stuðnings. í 50 ár hefur Björn verið í stjórnarnefnd Frelsissafnaðar í Grundarkirkju og flest árin forseti safnaðarins. Hann var í sveitarstjórn Argyle í fjölda mörg ár og í stjórnarnefnd Glenboro Pool Elevator í 25 ár. Þá var hann einnig í stjórnarnefnd Glenboro Hospital, svo árum skipti og Sec. treas. fyrir Hóla og Hekla sveitaskólanna. Marg- ar fleiri ábyrgðarstöður gæti ég talið. Manitoba Travel and Convention Association heiðr- uðu Björn með “Golden Boy Award”, 7. nóvember 1964. - Og er ég tel upp þátttöku Björns í félagslífinu í Argyle og Glenboro, minnist ég þess að ávalt við hlið hans var hans góða eiginkona Hilla, honum samtaka í öllu starf- inu. Það er hún sem hefur spilað á orgelið í Grundar- kirkju við allar messur, jarð- arfarir og svo til í 45 ár. Munu fáir hafa betur gjört. Einnig hefur hún starfað í kvenn- félagi Frelsissafnaðar í 50 ár, unnið þar af trúmennsku og verið starfandi í Glenboro Hospital Aid og Red Cross. Kæru góðu vinir, Hilla og Björn, ég hugsa til ykkar á þessum tímamótum og sam- gleðst ykkur. Ég vona að þið fáið að njóta lífsins við góða heilsu, umkringd ástvinum ykkar. Megi gullnir geislar sólsetursins lýsa leiðina, sem eftir er, og Guðs blessun fylgja ykkur alla daga. * „Heyr börn þín, Guð faðir, sem biðja þig nú“ var sungið við giftingar fyrir 50 árum — og kveð ég ykkur nú með þessum orðum: — „Þinn friður og náð þeirra farsæli ráð.“ Guðlaug Johannesson. Tjörn, Vatnsnesi, V. Hún., des. 1965. Kæra Ingibjörg og lesendur L-H. Kalt er í verðri á íslandi og vetur í algleymingi um gjör- valt landið. Það hefur snjóað töluvert hérna á slóðum og ekki alstað- ar greiðfært. Þó er verst á Austfjörðum, og samgöngurn- ar þaðan við umheimin rofn- ar vegna hríða veðurs, nema á skipum. Ég man ekki eftir svona löngum kafla vonds veðurs á þessum tíma árs. Að undanförnum árum hefur tíð- arfarið verið venjulega gott fram að nýjári. Þessi kuldi hefur dregið úr hreyfingu manna og einnig vegna skammdegismyrkurs, er lítið skemmtilegt að segja. Það er þessvegna að ég hefi kosið þennan dimma tíma til að liggja í lungnabólgu — og skrifa þessar línur. Það var mjög ánægjulegt að fá um daginn tvær bækur sendar alla leið til mín frá Canada, önnur frá Winnipeg og hin frá Montreal. En það dró ekkert úr gleðinni að fá bækurnar þótt þær væru nákvæmlega eins. Þær heita The Icelandic People in Mani- toba. Ég bjóst við annari frá Njáli Bardal og kom hin frá Donald Johnson í Montreal. Ég þakka þessum ágætu mönnum fyrir þetta merki- lega heimildarit, sem Wilhelm Kristjanson hefur gert. Það er ætíð vandasamt verk að skrifa sagnfræðilegt rit og ekki sízt um þjóðarbrot og baráttu þess í fjarlægu landi. Engin sem tekur þetta erfiða verk að sér kemst fram hjá því að nefna menn að nafni og menn og gjörðir þeirra hafa verið sterkur þáttur í sögu íslend- inga í Manitoba. Bæði hinir nefndu og ónefndu hafa mark- að spor á Manitoba grund, sem hvorki kuldi né heiti tímans mun geta afmáð. Ég held að hvergi í veröldarsögu hafi eins lítið þjóðarbrot af- kastað svo miklu, eins langt frá ættlandi sínu og íslend- ingar í Manitoba . Formálinn eftir prófessor Harald Bessason er einnig ágætur og bendir réttilega á að endurvakning til sjálf- stæðis Islands, sem brann í brjósti þeirra manna og kvenna sem fluttust til Mani- toba, hefði dugað þeim til atorku og framkvæmda í nýja landi, sem þessi bók um íslendinga í Manitoba geta hæglega gefið öðrum ritfær- um mönnum hugmyndir sér efna um þá Islenzk brautryðj- endur í Canada og Bandaríkj- unum. Nýlega kom bandarískt skip hingað beint frá Detroit hlað- ið bílum. Þetta skip flytur einnig sama varning á aðrar Evrópu hafnir. Bílaöldin ríkir hérlendis og nú virðist það vera metnaður unglinga sem annara að eignast bíl, hvort að það er nauðsynlegt eða ekki. Og auðvitað aukast nú umferðaslys og fólkið hraðar sér í dauðann. „Þessi bíla- menning hér og sem annars- staðar í dag gerir gagn,“ eins og náungi minntist á við mig í haust. Hún lætur óþokka drepa sig,“ sagði hann, „og þar með losnar þjóðfélagið við þá á ódýran hátt.“ Eins og ykkur er nú liklega kunnugt er séra Bjarni Jóns- son vígslubiskup látinn. Ég eins og allir aðrir prestar, kynntist sér Bjarna vel, sem var ágætur maður og klerkur og átti sérlega skemmtilegar kymnisgáfur. Ég man einu sinni sem oftar að ég mætti honum í Reykjavík. Brosandi sagði ég við hann: „Ég er að verða í vanda staddur í hvert skipti sem ég tala við þig.“ „Af hverju“? spurði hann glettnislega. „Það er af því“, svaraði ég, „að nú ertu með svo mörgum titlum, að ég veit varla hvemig ég á að ávarpa þig.“ Hann leit á mig, brosti og svaraði: „Þegar ég er í vondu skapi skaltu kalla mig doktor eða biskup, en þegar ég er í góðu skapi segðu bara séra Bjarni.“ ísland ér að breytast og þegar allar þessir týpur, sem sett hafa svip á ýms kauptún landsins í síðustu 30—40 ár eru dánar, mun eitthvað vanta. Þessar „týpur“ voru alltaf sérstaklega íslenzkar og þótt að nýjar komi fram, held ég, að þær myndu hafa ein- hvern útlenzkan blæ og þess vegna frábruðgnar því ramm- íslenzka, sem einkenndi menn hér fyrir síðustu heims- styrjöldina. Þegar þjóð sem var landbúnaðarþjóð í þús- und ár breytir til á örfáum árum í Kaupstaðaþjóð, hljóta róttækar breytingar á högum manna að eiga sér stað. Á meðan ég er að skrifa á breytingar man ég eftir því í haust þegar ég var að ferðast, ásamt Vígdísi og öðrum Is- lendingum á hinum fagra bakka við Loch Lomond í Skot land. Við ókum fram hjá ein- um stórbóndabæ. Allt í einu sagði einn kaupmaður úr Reykjavík: „Sjáið gamaldags vélar á túninu?“ „Ég er viss Framhald á bls. 8. Kvöldsýn Sólin er nú að síga til viðar, sjálf þó nýtur ei hvíldar né friðar, glóhár dagsetrið gull þráðum vefur gliti upprisu, meðan þú sefur. S. E. B. Fréttir frá fslandi Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, er kominn heim frá Róm, þar sem hann dvaldi í 10 daga, en honum var boðið að vera við- staddur þingslit hins mikla kaþólska kirkjuþings. Biskup hitti m.a. páfa Pál VI og ræddi í um hálfa klukkustund við hann. Færði biskup páfa Ijósprentun af Guðbrands- biblíu, en páfi leysti biskup út með veglegri gjöf, ljósprent- aðri útgáfu af einu elzta handriti að Nýja testament- inu, Codex Vaticanus Graecus, og áritaði hana eigin hendi. Auk þess gaf hann honum sérstakan silfurpening, sem páfi lét slá í sambandi við förina til Sameinuðu þjóð- anna. Mbl. 14. des. * * * Sovézkt skip rífur nót Enn einu sinni hefur sovézkt skip siglt yfir nót ís- lenzks síldveiðibáts og rifið hana. Hafa íslenzkir bátar orðið fyrir miklu tjóni af völdum sovézku skipanna á undanförnum árum, og erfið- lega mun ganga að fá skaða- bætur úr hendi Rússa. í fyrrinótt sigldi sovézkt reknetaskip yfir nót vb. Jóns Kjartanssonar frá Eskifirði og reif hana illa. Skipstjórinn, Aðalsteinn Finnbogason, lagði fram kæru við bæjarfógeta- embættið í Neskaupstað í gær, en hvorki náði hann nafni né númeri sovézka skipsins, sem sigldi í burtu. Gífurlegur fjöldi sovézkra skipa er nú við Austurland, en minni brögð hafa verið að því, að þeir sigli á nætur ís- lenzku skipanna. Telja menn það að þakka reglugerðinni um ljósaútbúnað fiskveiðivél- báta og veiðum með herpinót og kraftblökk, sem birt var 12. nóv. sl. Þar er slíkum skip- um heimilað að hafa tvö raf- gul ljós, hvort þrábeint upp af öðru, á þaki stýrishússins, sem tendrast og slokkna á víxl, meðan veiðarfærið er í sjó, og vara þannig önnur skip við að fara of nærri. Sovézk yfirvöld vita um reglugerð þessa. Mbl.

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.