Lögberg-Heimskringla - 13.01.1966, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 13. JANÚAR 1966
Dagskrá helguð íslenzkum söngvum og dönsum á
sjónvarpinu í Winnipeg á sjónvarpssiöðinni Ch. 7 í
Winnipeg kl. 9.30 þann 23. janúar næslkomandi.
Dagskrárliðurinn CANADIANS ALL á sjónvarpsstöðinni
Ch. 7 í Winnipeg verður helgaður íslendingum sunnudaginn
þann 23. janúar n. k. Sextán ungar stúlkur sýna íslenzka
þjóðdansa, blandaður kór syngur íslenzk þjóðlög og hinar
kunnu Westdal systur frá Fort Garry syngja tvísöngva. í
ráði er, að þessi dagskrárliður verði síðar sýndur á sjónvarps-
stöðvum utan Manitóba, og er fólki, sem hug hefir á að
fylgjast með sýningunni, ráðlegt að hringja í heimastöðvar
(sjónvarpsstöðvar) sínar og fá nánari upplýsingar hjá þeim.
Úr borg og byggð
Safnaðarráð Fyrstu lútersku
kirkju hefir ákveðið að þrjá
fyrstu og köldustu mánuði
ársins verði messað aðeins
einusinni í mánuði á íslenzku
og fara þessar messugjörðir
fram sem hér segir:
30. janúar, 20. febrúar og
20. marz. Eftir þessar guðs-
þjónustur fer fram kaffi-
drykkja og spjall í neðri sal
kirkjunnar.
* * * *
Mr. og Mrs. Pall Hallson
eru nýkomin heim, þau
dvöldu hjá dóttur sinni og
manni hennar og börnum um
jólin. Á leið heim komu þau
við í Chicago, en þar á Mrs.
Hallson eina systir.
* * ❖
Kvenfélag Fyrstu lútersku
kirkju efnir til sölu á lifra-
pylsu og blóðmör í neðri sal
kirkjunnar fimmtudaginn 20.
janúar frá kl. 2 til 6 e. h. —
Kaffi verður til sölu fyrir þá
sem óska. Til arðs fyrir bygg-
ingarsjóð Betel II í Selkirk.
* * *
Kona óskasf til að taka að
sér störf á góðu heimili, aðal-
lega að líta eftir tveim börn-
um, 3 og 7 ára, $100 á mánuði,
fæði og eigin herbergi. Frí
eftir hentugleikum. Símið:
GR 5-4562.
* * *
Heimilisfang séra Guð-
mundar P. Johnson er: 1350
North Callow, Bremerton,
Wash. U.S.A., Sími: ES 3-3008.
❖ *4t
Síðasfa fölublað Lögbergs-
Heimskringlu nr. 49 er geng-
ið til þurðar og þætti okkur
afar vænt um ef einhverjir af
áskrifendum blaðsins létu
okkur það í té.
* * *
Gifting
Valdine, dóttir Mr. og Mrs.
C. H. Scrymgeour og Second
Lieutenant Sigfred Hernes,
sonur Mrs. Knut Leistad frá
Trondheim, Noregi 18. des.
1965 í St. Stephens lutersku
kirkjunni í Winnipeg.
* * *
Aðfararnótt föstudagsins,
þegar frostið varð 40 stig í
Winnipeg, var 54 stiga hiti í
Reykjavík.
*4« * *
Verzlun
brennur á Hellu
Mikill eldsvoði varð í gær-
kvöldi á Hellu, er verzlun
Árna Jónssonar brann. Húsið,
sem er einnar hæðar hol-
steinshús, klætt með timbri,
gereyðilagðist, svo og allar
vörur sem í því voru. Ekkert
slökkvilið er á Hellu og' búið
var að loka símstöðinni á
Hvolsvelli, þar sem slökkvi-
liðið er, og varð að aka aust-
ur til þess að ná í slökkviliðs-
mennina.
Tíminn 5. des.
* * *
Þess má geta
sem gjört er
Fyrst allir aðrir þegja þá
ætla ég að segja vþað má ekki
minna vera, enn maður þakki
fyrir sig“.
Ég hef verið að vona að ein-
hver hinna mörgu gesta er
þáðu boð Icelandic Canadian
Club 20. desember síðast lið-
inn, léti í ljós, þakkarvott til
allra þeirra meðlima úr fyrr-
nefndum félagsskap, sem
tóku höndum saman til að
halda íslenzka Jólaskemmtun
fyrir hina mörgu svo nefndu
Icelandic Senior Citizens hér
í borg.
Vildi ég mega þakka fyrir
hönd allra hinna eldri kvenna
er mér eru bundnar félags-
lega á einn eða annan hátt.
Sér í lagi vildi ég þakka
Axel Vopnfjörð og Ninnu
Stephenson er mér skildist
hafa planlagt þessa kveld-
stund. Þá ekki síður þeim er
skemmtu fólki. Mætti geta
Jónu Kristjanson, Neil Bardal,
Lilju Thorvaldson og dóttur
hennar Mrs. Allan að Prof.
Haraldar Bessasyni ógleymd-
um.
Ég veit að meðlimum Ice-
landic Canadian Club er
veittu af svo mikilli rausn
þettað kveld fundu sér fylli-
lega goldið alla fyrirhöfnina
með að horfa á öll þau eldri
upljómandi andlit er þar skip-
uðu bekki.
Þettað er í annað sinn er
þettað fólk leggur á sig svona
fyrirhöfn og kostnað í þágu
þeirra eldri.
Með innilegu þakklæti,
Valdheiður Thorlakson.
Dánarfregnir
Guðný Jakobina Nordal
andaðist 6. janúar 1966,
áttræð að aldri. Hún átti fyrr-
um heima í Argyle en síðustu
árin í Winnipeg að 624 Agnes
St. og svo Central Park
Lodge. Hún var tveggja ára,
er hún kom frá íslandi með
foreldrum sínum. Hún giftist
Magnúsi Nordal og bjuggu
þau fyrirmyndarbúi í Argyle
og tóku mikinn þátt í kirkju-
og félagsmálum. Hann dó árið
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
Á ensku: kl. 9.45. f. h.
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e.h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
1935. Hér í Winnipeg var hún
virkur meðlimur kvenfélags
Fyrsta lúterska safnaðar og
Jon Sigurdson Chapter IODE.
Hana lifa sex börn: Agnes
Evans, Vancouver, Rúna Jóns-
son, Winnipeg, Jón í Cypress
River, Helga Johnson á Gimli,
Elmer í St. Boniface og Victor
í Vancouver; 19 barnabörn og
5 barna-barnabörn og tví-
burasystir hennar Mrs. John-
son, Gimli. Kveðjuathöfn fór
fram í Winnipeg er Dr. V. J.
Eylands stjórnaði og einnig
kveðjuathöfn í Brú kirkjunni
í Cypress, Man.
* * *
Guðrún Anna Erlendson
lézt að heimili sínu í Árborg
31. des. 1965, 69 ára að aldri.
Hún var fædd í Norður
Dakota en átti heima í Arborg
mestan hluta ævinnar. Hún
missti mann sinn Halldór,
árið 1961 og son þeirra Andrés
1952. Hana lifa tveir synir,
Theodore í Los Angeles og
Thor í Arborg, og fósturson-
ur, Bryan, í B.C. Ennfremur
fimm systur og fimm barna-
börn.
4« * *
Elizabeíh Bennell, 1161 Byng
Place, Winnipeg andaðist 16.
nóv. 1965, 89 ára gömul. Hún
var fædd á íslandi og flutti
til þessa lands fyrir 60 árum.
Hún lætur eftir sig eina dótt-
ur,. Mrs. A. W. (Dorothy)
Hermans; fimm barnabörn og
eitt barna-barnabarn. Enn-
fremur lifir hann ein systir á
íslandi, frú Dorothea Thor-
steinsson.
* * *
Paul Johnson, Vogar, Mani-
toba lézt á Eriksdale spítalan-
um 23. des. 1965, átræður. —
Hann syrgja systkini hans,
Helga Arnason í Winnipeg og
John að Vogar. Ennfremur
sex systkinabörn. Séra P. M.
Petursson stjórnaði kveðju-
athöfninni í kirkjunni að
, Vogar.
Fréttir frá fslandi
Framhald af bls. 1.
til þess að ganga endanlega
frá samningauppköstunum.“
Iðnaðarmálaráðuneytið
3. desember 1965.
Af hálfu íslendinga tóku
þátt í umræðunum, auk
bandarísks lögfræðings, Jó-
hannes Nordal, bankastjóri
Seðlabankans, Brynjólfur
Ingólfsson, ráðuneytisstjóri,
Steingrímur Hermannsson,
Eiríkur Briem og Hjörtur
Torfason.
Af hálfu Sviss Aluminium
tóku þátt í viðræðunum tveir
forstjórar fyrirtækisins, Mey-
er og dr. Miiller, tveir sér-
fræðingar fyrirtækisins og
Einar Baldvin Guðmundsson
hdl., sem er lögfræðingur
þeirra.
Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra fylgdist með
samningaviðræðunum og
einnig tveir fulltrúar Alþjóða-
bankans í Washington.
Hið endanlega samnings-
uppkast verður lagt fyrir Al-
þingi, þegar gengið hefur ver-
ið frá ýmsum smærri atrið-
um sem ráðgert er að verði
lokið á næstunni.
Tíminn 5. des.
FARIÐ VEL MEÐ . . .
Framhald af bls. 3.
að borða oft en lítið í einu, af
venjulegum mat, heldur en
að stunda sultarfæði. Tilraun
var nýlega gerð í Englandi
á hópi magasárssjúklinga og
varð reyndin sú, að þeir sem
fengu tíðar máltíðir af venju-
legu fæði læknuðust fljótar
en hinir sem einnig voru látn-
ir borða oft, en aðeins létt-
meti.
Sjúklingur með sár í
skeifugörninni g e t u r a ð
minnsta kosti huggað sig við
eina staðreynd, sem er sú, að
hann fær að líkindum aldrei
magakrabba. Því þótt engum
sé ástæða til þess kunn, er
það vissa, að minnst sjötíu af
hundraði magakrabbatilfella
verða í magapoka með of litl-
um sýrum og of litlum sam-
dráttarhreyfingum, sem vit-
anlega eru gagnólíkir maga-
pokum þeim, er valda gama-
sárum.
Ef til vill væri það ekki
ófyrirsynju að vísindamenn
þeir, er leggja sig í líma við
að finna aðferðir til að lækna
magasjúkdóma, vildu kynna
sér háttu sægúrkunnar
nokkru nánar. Því hún kann
eina óbrigðula aðferð. Hún
lætur sem sé engin andleg
áhyggjumál valda sér maga-
meinum. Sé hún ert, fleygir
hún bara magapokanum frá
sér og syndir sína leið. Síðar
meir fær hún, sér nýjan maga.
Sunnudagsblaðið.
LJÓS YFIR LANDAMÆRIN
Framhald af bls. 7.
ist hjá mér. Ég kom með plöt-
urnar með mér frá London
og missti ekki sjónar á þeim,
nema rétt á meðan myndin
var tekin, fylgdi ljósmyndar-
anum inn í myrkraklefann og
horfði á, meðan myndin var
framkölluð. Á myndinni kom
fram skýr mynd af mannin-
um mínum fyrir ofan vinstri
öxl mína, en í kringum mynd-
ina var eins og útfrymisþoka.
Ekki er mynd þessi lík neinni
mynd, sem til er af Haraldi,
ekki heldur lík þeirri mynd,
sem kom fram á mynd með
Soffíu dóttur hans og Sveini
manni hennar. Það þótti mér
einkennilegt, að myndin af
Haraldi kom fyrr fram en mín
mynd, hún var orðin alveg
skýr áður en ég sá votta fyrir
minni mynd.
Þröngt mega sáttir sitja.
* * *
Það fer enginn ofan í mig
með skónum.
BETEL HOME FOUNDATION
Stjómarnefnd Betels fagnar því, að geta nú tekið á móti
umsóknum frá öldruðu fólki, er óskar inngöngu í nýja
heimilið, sem nú er verið að reisa í Selkirk, Manitoba,
Þetta nýja fullkomna heimili mun verða reiðubúið að taka
á móti 62 manns þann 1. apríl 1966 eða um það leiti.
Þeir sem óska inngöngu sendi skriflegar umsóknir til:
J. V. Jónasson, ritara,
133 Kitson St., Winnipeg 6, Man.
FEMALE HELP WANTED
ARE YOU DISSATISFIED WITH
YOUR PRESENT JOB.
WE CAN GUARANTEE YEAR ROUND
EMPLOYMENT WITH NO LAYOFFS.
We have several openings for
EXPERIENCED SEWING MACHINE OPERATORS
We offer you:
Top Wages
Modern downtown plant close
to all bus stops
Pleasant working condiiions
Apply To:
RICE SPORTSWEAR LTD.
168 MARKET AVE. EAST
WINNIPEG 2, MANITOBA.
Near The City Hall