Lögberg-Heimskringla - 02.05.1968, Síða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MAÍ 1968
3
lék við hvern sinn fingur, og
k j a f t a ð i á karlinum hver
tuska! Litli Bjórinn beið eftir
mér og aðstoðarráðherra ein-
um ómerkilegum, sem var á
leið til austurhafna að sefa ó-
róaseggi og nöldrara þar. Eft-
ir hálfsannars tíma bið kom
þrætumála aðstoðarráðherra
loks niður að bryggju og við
hófum okkur til flugs. Var
flogið til Lewisport m e ð
friðarpostulann og skiluðum
við honum af okkur í hóp
þrætudólga sem s a f n a s t
höfðu á hafnarplássi til að
kvarta um lágt fiskiverð og
lélega sölu. Síðan flugum við
tveir áfram til Gander, en
þar beið Canso-vél eftir okk-
ur, orðin tveimur tímum á
eftir áætlun.
Voru nú garnir mínar með
gaul og nöldur út af lélegum
og fátíðum fæðuskömmtum.
Keypti því nokkra flug-verði
í pökkum og kók, og hlupum
svo út í vélina. Sænskur ná-
ungi, víkingslegur mjög, og
Gunnar að nafni, var flug-
stjóri. Var nú ekki beðið boð-
anna en flogið af stað í hasti.
Vélin var tóm og nóg rúm
í aðallestinni. Sátum við þar
tveir, ég og velklæddur mið
aldra maður, sem hafði sleg'
ist í för, og var í einhverjum
söluerindum. Hóf ég strax at
göngu skarpa að átmeti mínu
og ropavatni, og bauð félaga
og flugmönnum að neyta
með mér. Fyrrnefndur far-
andsali opnaði sinn ask og
tók þar út pyttlu dávæna og
setti á vör sér. Vildi hann
engin afskifti hafa af sam-
vizkum mínum og roksafa,
en stútaði pela sinn. Þegar
ég hafði hvílt mig um stunc
og tottað eina pípu, fór ég
á stjá, að litast um.
Vorum við yfir austur-
ströndinni, stefnan N-NV, og
var fagurt um að litast. FogO'
eyjan og Twillinggate og
Notre Dame flóinn á stjórn
en framundan Langfjalla'
skaginn og White Bay. Er
skaginn hærri miklu á vest-
urströndinni, allhár fjallgarð-
ur, aflíðandi til austurstrand'
ar, og lækkar í stöllum til
norðurs. Ýms fjöll skera sig
úr, t. d. Bláfjöll og Gros Pate
um miðbik skagans, en Indian
Lookout (Rauðskinna skimir i
og Gros Morne á bakborða
nokkru sunnar, sitt hvoru
megin við St. Paul’s Bay.
Ég leit inn í stjórnklefa
Gunnar hafði heyrt að ég
hafði flugmannapróf og bauð
hann mér að taka við stjórn
Þáði ég það og settist að
stjórnvelli. Sagði Gunnar mér
að stýra 350 gráður. Fannst
mér það skrýtið í fyrstu, því
að stefnan virtist eiga að
vera um 320°. En þarna er
30° gr. segulskekkja, vestlæg.
sem ég hafði ekki áttað mig
á strax, en í Swan River er
skekkjan 13° austlæg. Við
flugum í 5000 feta hæð
Skýjabólstrar hengu yfi
fjallgarðinum, og hófum við
okkur yfir þá. Canso-flug- drunur vélarinnar í bak-
skipið hefur vængjahaf vítt,! grunni. Fór mér nú að síga
103 fet, og blakir hún vængj-
unum eins og fugl á flugi.
Er hún mjög óvölt, eða hlið-
stöðug, vegna vængþansins.
Hinsvegar er stélið stutt, og
heldur lítið. Geigar því loft-
farið gjarna og er erfitt að
halda beinni stefnu. Þegar
reynt er að rétta stefnuna
með vængstýrum (ailerons),
sem venja er, þá geigar hún
bara meira, og því meir sem
meira er reynt að rétta við!
Skjökraði ég þá allt upp í 20°
á stjórn og bak, og heyrði ég
flugstjóra og stýrimann
hlægja dátt aftur í lestinni,
og svelgjast á samvizkunum.
Fór ég þá að nota stélstýri,
sem ekki er kölluð góð flug-
mennska, og hélt vélin þá
stefnu. Fann ég brátt að bezt
var að sparka snarplega í
fótafjalirnar, sem hreyfa stél-
stýrið, öðru hvoru, en halda
bara vængstýrinu kyrru. Eft-
ir nokkra stund kömu flug-
menn frammí til mín í stjórn-
klefagáttina, sögðu að ég
hefði þá uppgötvað leyndar-
mál flugunnar og brostu í
campinn. Flaug ég nú áfram
í nær tvo tíma, og skiftu flug-
stjórar sér ekkert af minni
stjórnmennsku.
Farandsali var farinn að
syngja, Gunnar hraut bers-
erks-hrotum, en stýrimaður
reykti og tók undir með söng'
manni. Var ég nú svangur aft-
ur og farin nað þreytast af
þessu bölvuðu sparki í pedal-
ana, og kallaði í skipstjóra og
bað þá að taka við stjórn.
Þeir önzuðu mér engu, en
hættu hvorki hrotum né har
móníu. Fór svo að ég gekk úr
stjórnklefa aftur í lest. Sagði
ég þeim að skipið gæti siglt
sinn sjó en ég ætla að fá mér
bita og blund. Var þá allt
uppurið nema dreytill úr
annarri pytlu mangara, og
bað ég hann að njóta dreggj
anna, með því að ég drekk
ekki sjálfur. Ekki höfðu flug-
menn snert neitt af brenni-
víni, en tekið þeim mun rösk
legar til matar síns og svala-
drykks. Varð það nú úr að
ég tók við samsöngshlutverki
stýrimanns, en Gunnar nudd
aði stýrur úr augum, bölvaði
á bjargaðri sænsku, og settist
að stjórn, en aðstoðarmaður
honum á hægri hönd og fór
að rýna á kort. Kallaði sá
hinn sami brátt til mín og
kvað mig ári-slyngan við
navígasjón, ekki nema 5 míl-
ur af „kúrs,“ og þurfti að
breyta stefnu um 2° til vest
urs vegna reks.
Við vorum nú komnir inn
yfir Labradorfjöllinn, og lágu
illviðris skýjaflákar yfir öllu
Hinn söngvi sölumaður var
nú farinn að draga seiminn og
hixta öðru hvoru, og smá-dró
úr söng. Tók og að skyggja og
von bráðar var söngurinn
þagnaður. Úr því varð allt
hljótt, utan smáhrotur með
einstaka hixta á milli, og
i brún og var brátt sofnaður.
Framhald í næsta blaði
LOFTLEIÐIR
11. þessa mánaðar undirritaði
flugmálastjóri fyrir hönd ís-
lenzkra flugmálayfirvalda og
aðstoðarflugmálastjóri Bret-
lands samkomulag um flug-
réttindi Loftleiða til og frá
Bretlandi með Rolls RoyCe
flugvélum sínum. Samkvæmt
samkomulaginu er Loftleið-
um heimilað að fljúga einu
sinni í viku á leiðinni Reykja-
vík-Glasgow-Lundúnir. Við-
urkennd eru réttindi félags-
ins til að flytja allt að 170
farþega í hverri viku frá
Bretlandi og Bandaríkjanna
en engar takmarkanir eru á
farþegafjölda frá Bretlandi
til íslands. — Frá og með 1.
maí verða eingöngu notaðar
Rolls Roce 400 flugvélar til
áætlunarferða Loftleiða.
Farnar verða 19 ferðir í viku
til og frá New York og 15
milli Islands og Luxenborgar.
Tvær af DC 6 B-flugvélum
Loftleiða hafa nú verið leigð-
ar til Hollands og sennilegt
er að hinar flugvélarnar
srjár verði bráðlega seldar.
* * *
Aflabrögð voru góð hjá bát
um fyrir Suðurlandi í vik'
unni og mikið barst á land
Hornarfirði, í Vestmanna-
eyjum og Grindavík. Neta
bátar á Breiðafirði fengu lít
inn afla og hafa margir leit-
að á miðin syðra. — Frá ára-
mótum til fimmtánda þessa
mánaðar höfðu borist á land
Vestmannaeyjum 1 5.6 2 4
lestir af fiski. — Afli í Vest
firðingafjórðungi frá áramót-
um til marzloka var 10.734
lestir
ICELANDiC GENEAL0GIES
Americons of lcelandic origin can have
their lcelandic ancestry traced ond In-
formation about nearest living relatives
in lceland.
MODERATE FEE. PLEASE CONTACT
Stefón Bjarnason, P.O. Box 1355,
Reykjovík, lceland
FRÁ VINI
Mr. A. G. EGGERTS0N, Q.C.
Barrister and Solicitor
303-209 Nolre Dame Ave.,
Winnipeg 2. Man.
Office 943-5635
Residence 453-0603.
Minnist
BETEL
í erfðaskrám yðar
Business and Professional Cards •
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA í VESTURHEIMI
Forseli: SÉRA PHILIP M. PÉTURSSON
681 Banning Street, Winnipeg 10, Manitoba
Styrkið félagið með því að gerast meðlimix.
Sendist til f jármálarilara
Arsgjald $2.00 — Tímarit félagsins frítt
MR. GUÐMANN LEVY.
185 Lindsay Street, Winnipeg 9, Manitoba
Phone 783-3971 Building Mechanics Ltd. Painting - Decorating - Construction Renovating - Real Estote K. W. (BILL) JOHANNSON Manager 938 Elgin Avenue Winnipeg 3 Lennett Motor Service Operated by MICKEY LENNETT IMPERIAL ESSO PRODUCTS Hargrave & Bannotyne WINNIPEG 2, MAN. Phone 943-8157
A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Steret Selur líkkistur og annast um útfarir. Allur útbúnaður sá bezti Stofnað 1894 SPruce 4-7474 G. F. Jonasson, Pres ond Man. Dir. KEYSTONE FISHERIES LIMITED Wholesole Distributors of FRESH ond FROZEN FISH 16 Mortho St. 942-0021
Goodman and Kojima Electric ELECTRICAL CONTRACTORS 770 ELLICE AVE., WINNIPEG 10 774-5549 ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA SP 2-5561 LE 3-6433 Evenings and Holidoys Canadian Fish Producers Ltd. J. H. PAGE, Managing Director Wholesate Distributors of Fresh ond Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Bus.: 775-0481 772-3917
SPruce 4-7855 ESTIMATES FREE J. M. Ingimundson Re-roof, Asphalt Shingles, Roof Repairs, Install Vents, Insulation and Eavestroughing. SPruce 4-7855 632 Simcoe St., Winnipeg 3, Mon. Investors Syndicate of Canada, Limited H. Brock Smith Manager, Winnipeg Region 280 Broadway Ave. WH 3-0361
Thorvaldson & Company Barristers and Solicitors etc. 209 Bank of Nova Scotia Bldg. Portage Ave. and Garry St. Winnipeg 1, Manitoba Telephones: 942-8291-2-3-4-5 LATHING AND PLASTERING CONTRACTORS H. Mel Sigurdson, Monoger Office and Warehouse 1212 St. Mary's Road Winnipeg 8 Ph. 256-4648 - Res. 452-3000
S. A. Thorarinson Borrlster & Solicitor 2nd Floor, Crown Trust Bldg. 364 MAIN STREET Office WHiteholl 2-7051 Residence HU 9-6488 TALUN, KRISTJANSS0N PARKER, MARTIN & MERCURY Barristers & Solicitors 210 Osborne Street North WINNIPEG 1, MANITOBA
OSCAR HJ0RLEIFS0N Accountant ond Auditor 1471 Main Street Telephone: 589-5309 T 52 te Wes 1 HARGR/ |£RR1 JBKdTHQjj 10UU PAlN1 J. SHI A. h tern Point Co. Ltd. kVE ST. WINNIPEG "THE PAINTERS' SUPPLY HOUSE" SINCE 1908 WH 3-7395 MNOWSKI, President . COTE, Treoiurer
Divinsky, Birnboim & Company Chartered Accountonts 1471 Main Street 707 Montreal Trust Bldg. Telephones: 589-5309—943-0526 Capital Lumber Co., Ltd. 92 Higgint Avenue Board, Ceiling Tile, Finishing Materiols, Everything in Lumber, Plywood, Woll Insulatlon and Hardware J. REIMER, Manager WH 3-1455 Phone WH 3-1455
Benjaminson Construction Co. Ltd. 911 Corydon Avenuo GR 5-0498 GENERAL CONTRACTORS Rosidentiol ond Commerciol E. BENJAMINSON, Monoger H. J. LAWRIE LUDLOW Barrister and Solicitor 2nd Floor, Crown Trust Bldg. 364 MAIN STREET WINNIPEG 1, AAANITOBA Ph. WH 2-4135 At Gimll Hotel every Fridoy 9:30 to 12:30
RICHARDSON & COMPANY
Barristers and Solicitors
274 Gorry Street, Winnlpeg 1, Manitoba Telephone 942-7467
G. RICHARDSON, Q.C. J. F. R. TAYLOR, LL.B.
C. R. HUBAND, LL.B. W. S. WRIGHT, B.A., LL.B.
W. NORRIE, B.A., LL.B. W. J. KEHLER, B.A., L.L.B.
G. M. ERICKSON, B.A., LL.B. E. C. BEAUDIN, B.A., L.L.B.
"GARTH M. ERICKSON of the firm of Richardson & Company attends at the
Gimli Credit Union Office, Gimli, 4:00 p.m. to 6:00 p.m. on the first ond third
Wednesday of eoch month."