Lögberg-Heimskringla - 02.05.1968, Side 7

Lögberg-Heimskringla - 02.05.1968, Side 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MAÍ 1968 7 Hundar E n g i n n veit með vissu, hvenær hundar voru fyrst vandir, en svo mikið er áreið- anlegt, að það eru margar aldir síðan að þeirra var fyrst getið í fylgd við manninn. Keltar höfðu hunda í orust- um, og það er skráð í sögum, að orustunni við Maraþon (490 f. kr.) barðist hundur í liði Grikkja og móti Persum. Svo löng og dygg fylgd þessa dýrs við mannkynið á hinum ýmsu menningarstig- um þess hefur auðgað dyggð- ir hundsins og haft áhrif á hann í þær ýmsu áttir, sem maðurinn hefur óskað eftir. — Langar bækur væri vanda- lítið að skrifa um vit og tryggð þessa dýrs; hér skulu sagðar tvær sögur af hyggni þess: „Foreldrar mínir áttu hund, sem þau höfðu miklar mætur á, og var hann látinn sofa á gæruskinni u n d i r borði í svefnherbergi þeirra. — Það bar við að faðir minn kom seint heim á kvöldin frá skrifstofustörfum sínum, og var það þá vandi seppa að hann lá til fóta í rúmi móð- ur minnar, þegar hún var háttuð. — Undir eins og hann heyrði föður minn hringja dyrabjöllunni — hann hringdi bjöllunni mjÖg ein- kennilega — hljóp hann ofan úr rúminu og á sinn stað und- ir borðið. — Vinnukona var hjá foreldr- um mínum og hún hafði tam- ið sér að hringja dyrabjöll- unni alveg á sama hátt og faðir minn, í því skyni að gabba seppa. — Eitt kvöld, þegar faðir minn hafði verið venju fremur lengi að heim- an, fór stúlkan ofan og þreif í klukkustrenginn. Við heyrð- um þegar hringt var og okk- ur var ómögulega að gera nokkurn mun á því, hvernig hún hringdi og faðir minn var vanur að gera, en seppi lá grafkyrr. — Nokkrum mín- útum seinna var aftur hringt og þá þaut seppi undir eins ofan úr rúminu, og lagðist á skinnið sitt. — Það var faðir hiinn, sem hringt hafði í þetta sinn.“ „Þegar landgreifinn í B ... tók sér ferð á hendur í kring- um hnöttinn, skildi hann eft- ir heima hund, sem lengi hafði fylgt honum. Greifan- um var mikil forvitni á að vita, hvort hundurinn þekkti sig aftur eftir 10 mánaða fjar- vist, og lagði hann því ríkt á við vandamenn sína og vini, að þeir skyldu ekki fagna Rétta aðferðin til að veiða það sem þú vilt á öngulinn öngulveiðar í vötnum? Þær eru hvergi eins spennandi og í Manitoba. Þær eru svo eftirsóttar nú á dögum að heimilisfaðirinn fær ekki að fara einn — ekki lengur. Öll fjölskyldan fer með! öngulveiðar eru sport — hrífandi — og eins og annað sport fylgja þeim reglur, sem verður að fylgja, ef veiði- menn eiga að hafa sem bezt upp úr veiðunum. Notið aðeins eina stöng við öngulveiðar á sumrin. Og veiðið ekki meir á dag en löglegt er.... Fiskur er mikill í Manitobavötnum, og dagur kemur ávalt eftir degi. verið vissir um að hafa löggilt leyfi þegar þér eruð á öngulveiðum. Leyfið með áföstum spurningum, sem nú er notað, veitir hverjum einum tækifæri til að hlynna að sport-veiðum með því að leggja fram ýmsar upp- lýsingar varðandi öngulveiðar. Með því að svara þess- um spurningum, tryggir hann það að geta haft ánægju af öngulveiðum í framtíðinni. Gefið unga fólki þínu, sem er á veiðum, gott fordæmi. Það er skemmtilegra ef þér kunnið réttu aðferðina til að veiða það sem þú vilt fá á öngulinn. DEPARTMENT OF MINES AND NATURAL RESOURCES FISHERIES BRANCH HON. DONALD W. CRAIK W. WINSTON MAIR Minlster Deputy Minieter KEN DOAN Dlreetor líANITOs: Test your skill lor a Master Angler Award. No entry fee required. sér öðru vísi en hverjum öðr- um gesti og gangandi, er hann kæmi til heimilis síns. Daginn sem greifinn kom heim var hann í ferðafötum sínum og bar sig sem allra ókimnuglegast. Þegar hund- urinn sá að gest bar að garði, tók hann að gelta og urra, en brátt sljákkaði í honum, er hann leit framan í komu- mann. Hann þefaði af fótum hans og skóm og snuðraði kringum hann nokkra stund, þangað til hann allt í einu laust upp fagnaðarópi og stökk upp um greifann, svo hann átti fullt í fangi að verj- ast falli.“ (Úr norsku). HEIMILISBLAÐIÐ Frá Ríkisútvarpi íslands Framhald frá bls. 1. 1966 hafi verið unnið að tæknilegum undirbúningi að lagningu hraðbrauta hér á landi. Áformað er að leita til Alþjóðabankans um lán til þessara framkvæmda og að kröfu bankans verður að gera heildarathugun á samgöngu- málum íslendinga áður en á- kvörðun er tekin um lánveit- ingar til einstakra fram- kvæmda. 1 áætlun um kostnað við undirbúning hraðbrautafram- kvæmda á þessu ári hefur verið við það miðað að það verk verði áfram unnið af ís- lenzkum aðilum eins og verið hefur til þessa. Tveir íslendingar eru í hópi 18 manna frá aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins sem fengið haf styrki til fram- haldsrannsókna á ý m s u m s v i ð u m frá bandalaginu, Benedikt Gröndal alþingis- maður og Þorsteinn Thorar- ensen rithöfundur. * * * Hinn 15. þessa mánaðar rann út umsóknarfrestur um em- bætti skólameistara við Menntaskólann á Akureyri. Umsækjandi er einn, Stein- dór Steindórsson settur skóla- meistari. — Sama dag rann út umsóknarfrestur um starf fréttastjóra við fréttastofu útvarpsins. Umsækjendur eru tveir, Margrét Indriðadóttir varafréttastjóri og ívar Guð- mundsson blaðafulltrúi. — Auglýst hefur verið laus til umsóknar staða skólastjóra Myndlista- og handíðaskóla Islands. * * * Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikrit Guðmund- ar Kambans Vér morðingjar, leikstjóri er Benedikt Árna- son. — Leikhúsið átti 18 ára afmæli í gær. — í júní í sum- ar eru 80 ár liðin frá fæð- ingu Guðmundar Kambans. — Almenna bókafélagið hef- ur fengið rétt til útgáfu á skáldverkum hans og vinnur Tómas Guðmundsson skáld að útgáfunni sem gert er ráð fyrir að verði í sjö bindum. — Þjóðleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á nýju leik- riti eftir Arthur Miller, það heitir á ensku The Price. * * * Norðurla ndameislar amótinu í Körfuknattleik lauk í Rvík. á annan í páskum. Finnar urðu Norðurlandameistarar, hlutu átta stig, næstir voru Svíar, Islendingar þriðju, þá Norðmenn og Danir ráku lestina. * * * Guðmundur Sigurjónsson v a r ð skákmeistari Islands 1968, hlaut níu og hálfan vinning af ellefu möguleik- um. * * * Á annan í páskum var tekin í notkun hluti hins nýja fé- lagsheimilisins á Húsavík. Þar er meðal annars salur sem rúmar 170 manns í sæti. Smíðin hófst 1962, heildar- kostnaður nú er 7,8 milljónir króna. * * * Á páskadag var tekin í notk- un endurgerð félagsheimilis á Bíldudal, en það brann í desember í vetur. Síðan þá hefur verið unnið sleitulaust að endursmíði hússins, mest í sjálfboðavinnu. * * * Á miðvikudaginn hefjast 12 daga háiíðahöld í Esbjerg í tilefni aldarafmælis bæjar- ins. Væntanlegir eru margir erlendir gestir, m. a. hefur bæjarstjórn Neskaupstaðar, vinabæjar Esbjerg á Islandi, verið boðið að senda tvo full- trúa. Í968 CANADA Látið alla aðra vita hvert þér eruð að flytja. Fáið ó k e y p i s adressu- spjöld frá Pósthúsinu. Skrifið upp- lýsingarnar á þau og leggið í póst- inn (engra frímerkja krafist) og þá er búið að ganga frá því.

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.