Lögberg-Heimskringla - 02.05.1968, Page 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MAl 1968
Úr borg og byggð
SUMARSAMKOMAN
Kvenfélag Fyrstu lútersku
kirkju bauð gestum sínum
valið prógram á sumardaginn
fyrsta: Miss Roslyn Storry,
sem vann Ferguson verðlaun-
in (sjá L.-H. 4 apr.), heillaði
alla með píanóleik sínum og
hinn sjö manna blandaði kór
undir stjórn Mrs. E. A. Isfeld,
gladdi alla þá sem unna svo
mjög gömlu íslenzku söngv-
unum. Kvæði Davíðs Björns-
onar var vel fagnað og vænt-
um við að hann sýni L.-H.
þá velvild, að birta það í blað-
inu. — Vestur íslendingar
hafa flestir litið á kirkju
þessa safnaðar sem nokkurs-
konar dómkirkju sína; sú
virðing sem skapast hefir í
hugum fólks almennt fyrir
þessari kirkju mun ekki sízt
því að þakka, að hún hefir
átt því láni að fagna, að njóta
þjónustu þ r i g g j a frábærra
kennimanna frá því söfnuð-
urinn var stofnaður fyrir
níutíu árum; þeirra séra Jóns
Bjarnasonar, séra Björns
Jónssonar og séra Valdimars
J. Eylands. Og söfnuðurinn
hefir kunnað að meta gáfur
þeirra og forustu, bæði innan
og utan safnaðar.
Séra Valdimar flutti eina
af sínum bráðskemmtilegu
ræðum þetta kvöld; hann er
g æ d d u r góðri kimnisgáfu,
sem léttir skapið og kemur
fólki til að brosa. Mættum við
lengi njóta þessa hæfileika-
manns. Ræða hans birtist í
þessu blaði.
Forseti kvenfélagsins Mrs.
Valdheiður Thorlakson stýrði
samkomunni mjög myndar-
lega og svo þáðu gestir kaffi
og veitingar af hinum elsku-
legu konum sem veitt höfðu
okkur þennan sumarfagnað.
Þökk sé þeim og öllum sem
hlut áttu að máli. — I. J.
* * *
The Ladies Aid of the Un.i-
larian Church of Winnipeg
will hold a Spring Tea and
Bake Sale, Thursday May 9th,
from 2-4.30 in the T. Eaton
Company Assembly Hall. Re-
ceiving the guests will be
Mrs. W. P. Jenkins and Mrs.
W. F. Vemer.”
* * *
Leiðrétting við æviminningu
frú Stefaníu Magnússon
(L.-H. 18 apríl 1968)
Undir myndinni átti að vera:
Slefanía Björnfríð, 18 ára
gömuL
Ruglast hafa línur sem
ættu að lesast:
Stefanía var ein af stofn-
endum og ávalt meðlimur
kvenfélagsins „Djörfung“ og
hafði jafnan velferð þess í
huga. Hún var heiðursmeð-
limur síðustu árin. Þ e 11 a
kvenfélag er enn starfandi:
hjálpar bágstöddum, styrkir
kirkjuna lútersku, og önnur
félagsmál, gefur eitt „Scholar-
ship“ í tólfta bekk á hverju
ári, og fleira.
Þriðja ljóðlína í fyrsta versi
í lok greinarinnar á að vera:
„Sem barn mér finst ég
borin heim.“ K. S. ,B.
* * *
BOARD AND ROOM
Wanted by working girl near
116 Edmonton area. Phone
Office 942-7209 Res. 772-9674
Christine Magnússon
* * *
HÓF
SÆNSKA KARLAKÓRSINS
Svíar komu sér upp einstak-
lega fallegu samkomuhúsi út
í ríki náttúrunnar í Charles-
wood fyrir nokkrum árum.
Þar hélt Sænski karlakórinn
sína árlegu samkomu, sem á-
valt fer fram síðasta laugar-
daginn í apríl. Um stund
skrafaði fólk við kunningja
sína og þeir sem þess óskuðu
gæddu sér á guðaveginum.
Síðan var gengið að borði —
smorgasbord hlaðið gómsæt-
um réttum og hlóð hver á
disk sinn eftir vild. Að mál-
tíð lokinni tók Skapti Thor-
valdson forseti kórsmanna
við stjórn og er hann bráð-
snjallur samkomustjóri. Kon-
súll Svía hér í borg Ed O.
Carlson flutti kveðju frá
G u s t a f Adolf Svíakonungi;
Mrs. Caroline Solberg lék á
píanó og söng gamansöngva
og fékk dynjandi lófaklapp að
launum.
Heimir Thorgrimson minnt-
ist vorsins fagurlega og lauk
máli sínu með ljóðlínum
Kambans: Á hækjum kom
vorið, á vængjum það fór
o. s. frv. Síðan söng Karla-
kórinn nokkur lög undir
stjórn síns góða söngstjóra
Arthur A Anderson, en hann
hefir nú verið söngstjóri hans
í rétt 40 ár. Islendingar eru
í m i k i 11 i þakkarskuld við
hann því hann og kórinn hafa
margoft skemmt þeim vel
á samkomum hér í borg og á
íslendingadeginum á Gimli.
Helmingur meðlima kórsins
þarna voru íslendingar,
Gunnar Erlendsson lék undir
af list eins og venjulega. Síð-
an dunaði dansinn af krafti
fram á miðnætti. Hin bezta
skemmtun. — I. J.
,
* * *
Munið eftir Spring Tea á Bet-
el heimilinu í Selkirk, sem
forstöðukona og starfslið
heimilisins efnir til á sunnu-
daginn 5. maí kl. 2 til 5 og
7 til 9.
Dánarfregn
Oddur H. Oddson, Lundar,
Man., lézt 6 apríl 1968. Hann
lifa Sigrún kona hans; Allan
sonur hans í Chicago; þrjár
dætur, Mattie — Mrs. S. B.
Sigfússon að Lundar, Kristín
— Mrs. S. B. Sigurdson í
Montreal og Verna — Mrs.
J. P. Sinclair í St Vital; þrjár
systur, Júlía — Mrs. Frank
Gold í Vancouver, Una —
Mrs. T. H. Thorkelson í Chi-
cago og Ella — Mrs. William
Bullis í Denver Colorado; 18
barnabörn og 6 barna-barna-
börn.
MESSUBOÐ
Fyrsla lúterska kirkja
Prestar:
Séra V. J. Eylands, D. D.,
Séra J. V. Arvidson, B. A„
Sr. Laufey Olson. Djákna-
systir.
E n s k a r guðþjónustur á
hverjum sunnudegi kl. 9:45
og kl. 11.00 árdegis.
Sunnudagaskóli kl. 9:45 f.h.
Guðþjónustur á íslenzku, á
sunnudagskvöldum, sam-
kvæmt tilkynningum í viku-
blaði safnaðarins.
Jóhann Sigurbjörnsson
látinn
Jóhann Sigurbjörnsson fyrr-
um landnámsmaður og bóndi
við Leslie, Sask. andaðist
laugardaginn 13. apríl á elli-
heimilinu G o 1 d e n Acres í
Wynyard. Hann var fæddur
22 apríl að Skógum í Vopna-
firði, árið 1875, og alla ævi
taldi hann sumardaginn fyrsta
sinn afmælisdag. Hann hefði
orðið 93 ára þennan næst-
komandi sumardag. Foreldr-
ar hans voru hjónin Sigur-
björn Sigurðson, og Guðrún
Björnsdóttir, sem b j u g g u
fyrst að Skógum, en lengst
af á Ytra-Núpi í sömu sveit.
Jóhann var fyrstur af sinni
fjölskyldu að flytja til Amer-
íku 1903 til Winnipeg. 27.
maí, 1905, giftist hann Sófíu,
dóttur Sigurjóns Jónssonar
og Jóhönnu Jóhannesdóttur
frá Húsavík í Borgarfirði
e y s t r a . Jóhann og Sófía
dvöldu í Winnipeg í þrjú ár
þar sem hann vann að hús-
byggingu.
1908 náði Winnipeg-Edmon-
ton járnbrautin til Leslie,
Sask. og um það tímabil flutt-
ist mikið af íslenzku fólki frá
Winnipeg inn í þá byggð, þar
með Sigurbjörnsson fjölskyld
an. Jóhann tók heimilisréttar-
land nálægt Leslie og bjó þar
í byggðinni um fjörutíu ár.
Þegar þau tóku að eldast
færðu þau sig inn í Leslie og
bjuggu þar þangað til Sófía
dó í nóvember 1964.
Eftir það var Jóhann til
heimilis hjá bróður-dóttur
sinni, Guðrúnu, og manni
hennar William Dunlop, í
Wynyard, Sask. Síðasta hálft
annað árið var hann á elli-
heimilinu, „Golden Acres“ í
Wynyard.
Hann lifa uppeldisdóttir,
Torfhildur, gift John Diet-
zer, og börn þeirra Brett,
Dawn, og Nora, í Vancouver.
Við bróðurdætur hans mun-
um með þakklæti hvað hann
tók okkur vinsamlega þegar
við komum að sjá hann, og
svo eins börnum okkar og
tengdabörnum. Oft voru erf-
iðir tímar, en alltaf var Jó-
hann glaður og vongóður, og
treysti með barnslegri trú á
góðan Guð.
Mrs. Sigríður Inglehart,
Wynyard 18. apríl 1968.
GJAFIR TIL HÖFN - 1968
VANCOUVER, B.C.
Dr. B. T. H. Marteins-
son .............. $100.00
C. P. A. Employees
Fund .............. $50.00
Scandinavian Business Men’s
Club .............. $50.00
Edmonton Icelandic National
League ....,...... $100.00
George Eyford — Prince Ru-
pert .............. $20.00
Mr. and Mrs. Luther Chris-
opherson .......... $10.00
* * *
í minningu um Alice Le
Messurier dáin í Vancouver,
Dec. 1967.
Sólskin ............ $25.00
* * *
í minningu um Mrs. Edna
Watson, dáin í Vicíoria, 1968.
Dr. & Mrs. Halldór Kárason
— Bellingham ...... $10.00
* * *
í minningu um Mrs. Jóhönnu
Pálson Vancouver, B.C.
Dr. & Mrs. Richard Beck —
Victoria, B.C...... $10.00
* * *
í minningu um móður mína
Krislínu
Michael Johnson — Edmon-
ton .................. $5.00
Hjartans þakklæti frá stjórn-
arnefndinni,
Emily Thorson, féhirðir,
Ste. 103-1065-W. 11., Van-
couver 9, B.C.
Betel Building Fund
In loving memory of Þorgerð-
ur Sigurdson
Mr. Halldor Sigurdson
526 Arlington St., Winnipeg,
Man............... . $500.00
* * *
Canadian Fish Producers
Ltd., 311 Chambers St., Wpg.,
Mr. J. Page, Manager $250.00
* * *
Icelandic Canadian Club of
Toronto
H. J. Pétursson, Pres. $100.00
* * 1 *
In loving memory of Eric
Joel son of the late Sigfus
Joel, and his wife Anna now
living in Vancouver, B.C.
Miss Ida Swainson,
Wpg., ............. $15.00
* * *
Mrs. Jona Halverson,
39 Saybrook Ave., Toronto 18,
Ont.............. $10.00
* * *
Ladies Aid of the First Uni-
tarian Church of Winni-
peg ................. $150.00
Með innilegu þakklæti fyr-
ir hönd fjársöfnunarnefndar
Betels.
K. W. Jóhannson, féhirð-
ir 910 Palmerston Ave.,
Winnipeg 10, Man.
STYftKTARSJÓÐUR
LÖGBERGS-
HEIMSKRINGLU
í kærri minningu um Mr. og
Mrs. Franklin og Aldís Pót-
ursson
Mrs. Guðrún Magnússon
Mr. og Mrs. D. J. Jensson
Mr. og Mrs. W. R. Henderson
Mr. og Mrs. G. M. Magnússon
Mr. og Mrs. Wilfred
Holm ............... $25.00
Mr. og Mrs. Einar Guttorms-
son Libau, Man........ $20.00
Beztu þakkir,
K. W. Jóhannson, féhirð-
ir L.-H. 910 Palmerston
Ave., Winnipeg 10. Man.
For Solc
ICELANDIC SWEATERS
100% HAND KNIT WOOL
NATURAL COLORS
U.S. $25 or CAN. $27, PPD.
Stote Size, Color, Style Preference
ICELAND - CALIF0RNIA C0.
1090 SANSOME ST.
SAN FRANCISCO, CA. 94111
Calif. Res. Add 5% Tax
GOING TO ICELAND?
Or perhaps you wish to viiit
other countnes or placei here,
in Europe or elswhere? Where-
ever you wish to travel, by
plane, ship or train, let the
Triple-A-Service with 40 yeara
travel experience make the
arrangements. Passports and
other travel documents secured
without extra cost.
Write, call or telephone to-
day without any obligations to:
ARTHUR A. ANDERSON
TRAVEL SERVICE
103 Claremont Ave.,
Winnipeg 0, Man.
TeL: GLobe 2 5446
WH 2-5949
Asgeirson Paints & Wallpapers
Ltd.
BUILDING MATERIALS
696 Sargent Avenue
Winnipeg 3, Manltoba
• All types of Plywood
• Pre-finish doors and
windows
• Aluminum combination
doors
• Sashless Units
• Formica
• Arborite
• Tile Boards
• Hard Boards etc.
• Table Legs
Phones
SU 35-967 SU 34-322
FREE DELIVERY
Left Your Wedding Photo Arrangements Late ?
For qualily wedding pictures, custom done,
call 247-8790 afler 6 p.m.
Large number of proofs supplied for your approvaL