Lögberg-Heimskringla - 23.11.1972, Qupperneq 7
1
Dr. Steinn var meðal styrk-
ustu stofna Nýja íslands og
stóð af sér sviptivinda sam-
tíðarinnar jafnauðveldlega og
stuðlabergið sem forfeður
hans höfðu að tákni um trygg-
lyndi og festu. Hégóma- og
tildursleysi voru ríkir þættir
í fari hans. Hann kom til dyr-
anna eins og hann var klædd-
ur og hafði mikla sæmd af.
Slíkir eiginleikar eru gulli
betri, ekki sízt á okkar há-
væru öld, sem er einlægt að
ota að okkur yfirborðskennd-
um auglýsingum og markhtl-
um orðum.
Umhyggja dr. Steins fyrir
mönnum og málefnum var
sprottin af greindarlegri íhug-
un fremur en geðhrifum líð-
andi stundar. Fyrir þá sök
báru menn óskorað traust til
hans, hvort heldur sem hann
var kvaddur að sjúkrabeði
sveitunga sinna eða til fylgis
við málefni þeirra á þingi.
Hann gat sér orðstír í hví-
vettna og naut ekki hvað sízt
virðingar meðal andstæðinga
sinna á stjórnmálasviðinu. Til
forna töldu menn slíkt orð-
spor góðs drengs aðal, og nú
minnist ég þess, að íslenzku-
menn halda því fram að orð-
in drengur og drangur séu
merkingarskyld, þannig að
bæði séu þau í ætt við óbifan-
leik bjargsins eða klettsins
sem haggast ekki í veðrum.
Samkvæmt þeirri forn-
íslenzku lífsskoðun sem hér
býr að baki hefði dr. Steinn
hlotið hinar hæstu einkunnir.
Dr. Steinn átti yfir að ráða
sérstæðri og skemmtilegri
kímnigáfu. „Hvað ætlið þið
eiginlega að gera við öll þessi
fjöll þama á íslandi?“, spurði
hann mig endur fyrir löngu.
Mér vafðist tunga um tönn,
en minntist þess þó að hafa
heyrt einhvern ávæning af
því, að Steinn bóndi á Gauta-
stöðum í Stíflu, langafi dr.
Steins og langa-langafi minn,
hefði fundið ásauð sínum
beitilönd í fjallshlíðunum um-
hverfis Stífluna, og þá stund-
ina held ég, að við höfum
báðir kennt hóflegs ættar-
stolts. Byggðir okkar fólks eru
að vísu komnar í eyði, en við
höfðum það nú samt á til-
finningunni, að gamli Steinn,
forfaðir okkar, hefði ekki ein-
ungis grætt nokkuð á því
sjálfur að klífa í brattann,
heldur hefði það brekkumeg-
in (þetta orð kemur fyrir í
Konungsskuggsjá) sem hann
sótti í fjöllin gengið að ein-
hverju leyti í erfðir. Kynni
mín af dr. Steini sannfærðu
mig um, að svo hefði verið.
Fyrir rúrnu ári lagði ég leið
mína um Stíflu' í Fljótum
norður, hiria fornu ættbyggð
okkar dr. Steins læknis. Á
Gautastöðum í Stíflu hófst
frændsemi okkar, en sú jörð
er í eyði og einnig næsti bær,
Tunga, það fornfræga höfuð-
ból. Enn sem fyrr blasir þó
Tungudalurinn við vegfarend-
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. NÓVEMBER 1972
7
Dr. Steinn Ólafur Thompson
Framhald af bls. 5.
*
um, en þangað á forfaðir okk-
ar, Steinn bóndi, að hafa
gengið oftlega. Sauðahjarðir
hans breiða sig nú ekki leng-
ur um hlíðarnar, og fjárgöt-
urnar eru fyrir löngu orðnar
hluti af órjúfanlegri kyrrð
eyðidalsins, en hreinlegt yfir-
bragð fjallanna er enn hið
sama og á dögum Steins
bónda. Sagt er að fólk beri
lengi svipmót þeirra dvalar-
staða, sem forfeður þeirra
byggðu lengst. Því var það
eðlilegt umræddan dag, að
mér fyndist svipurinn yfir
Tungudal einhvem veginn
minna mig á yfirbragð lækn-
isins í Riverton. Vafalaust
hefir hann sjálfur fundið til
þessa skyldleika, og einmitt
þess, vegna hefir spurningin,
sem hann forðum varpaði
fram við mig, um Islandsfjöll,
átt sér talsvert dýpri rætur
en ég í fljótu bragði áttaði
mig á.
Dr. Steinn var fæddur í Sel-
kirk, sonur þeirra hjóna, Sig-
urlaugar Steinsdóttur frá Vík
í Héðinsfirði og Sveins Tóm-
assonar frá Skarði í Lundar-
reykjadal. Hann lauk B.A.
prófi við Manitóbaháskóla ár-
ið 1914, gegndi herþjónustu
í heimsstyrjöldinni fyrri frá
1916 til 1918. Hann lauk lækn-
isprófi við Manitóbaháskóla
árið 1921 og gerðist ári síðar
læknir í Riverton, þar sem
hann átti heima æ síðan. Hann
var fylkisþingmaður Gimli-
kjördæmis frá 1945 til 1958.
Á r i ð 1923 kvæntist dr.
Steinn Þórdísi Önnu dóttur
þeirra hjóna frú Guðrúnu Eir-
íksdóttur og Gunnsteins Ey-
jólfssonar rithöfundar og tón-
Framhald af bls. 3.
Ólu dóttur sinni og manni
hennar, Bert Astrope.
Auk Mrs. Atsrope lifa Guð-
rúnu tvö önnur börn, Mrs.
Melba Phillips í Winnipeg, og
Bill sonur hennar í Vancouv-
er, 13 barnabörn og fimm
barna-barnabörn.
skálds. Frú Þórdís er kona
stórglæsileg og góðum kostum
búin. Frú Þórdís lifir mann
sinn ásamt börnum þeirra
hjóna fjórum að tölu.
Dr. Steinn hefir nú kvatt
þennan heim eftir langt og
margbrotið ævistarf, og mun
orðstír hans lengi hfa.
Guðrún var j arðsungin af
Archdeacon J. Hood frá St.
James Anglican kirkjunni í
Poplar Park, og borin til graf-
ar í reit fjölskyldunnar í
kirkjugarðinum þar af Jónasi
Guttormson og fimm dætra-
sonum: Landon, Bert og Eric
Astrope, Lorne og David Phil-
lips.
DÁNARFREGNIR
Hefirðu nokkurntíma farið með
“management consnltant” í hreinsun ?
MANITOBA DEPARTMENT OF INDUSTRY AND COMMERCE
NORQUAY BUILDING, WINNIPEG, MANITOBA R3C 0P8
Hon. Leonatd S. Eyans, Minister Leonard Remis, Deputy Minister
„Taken him to the cleaners,“ eins
og þar stendur?
Það höfum við gert, og Dale Mac-
Farlane þykir vænt um. Þetta er
liður í því starfi Iðnaðar og Verzl-
unardeildar Mamtobafylkis, sem
stefnir að þróun iðnaðar framtaka
í bæjum og byggðum fylkisins. Það
er leitast við að veita smærri at-
hafna- og verzlunarmönnum út um
land tilsögn í að stjórna fyrirtækj-
um, sem þeir standa fyrir. Við
prófuðum f y r s t hugmyndina í
Dauphin, og sáum að tilraunin þar
tókst vel. Upp að þessu hafa fleiri
enn tuttugu sveitaþorp í Manitoba
notið þessarar hjálpar. í Portage
la Prairie, vakti ráðgjafi er ferð-
ast um fylkið á okkar vegum, máls
á því við Dale MacFarlane, sem
stjórnar „laundromat“, að hann
mundi geta dregið að sér fleiri
viðskiptavini ef hann breytti um
með auglýsingar. Dale tók ráðum
hans, og segir nú sjálfur að hann
hafi haft stóran hagnað af árangr-
inum. Viltu fræðast frekar um
þetta prógram okkar? Hafðu þá
samband við okkur, það getur far-
ið með þig eins og Dale og marga
aðra, að það verði fyrirtæki þínu
til stórgróða.