Lögberg-Heimskringla - 25.01.1973, Síða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 25. JANÚAR 1973
7
Mæt hjón lótin
Kóri og Herdís Frederickson
Herdís M. Frederickson Kári Frederickson
Skömmu eftir síðustu ára-
mót v a r Lögberg-Heims-
kringlu ti'lkynnt að Kári
Frederickson hefði látist í
Vancouver, B.C., 26. nóvemb-
er, 1972. Svo leið aðeins vika
þartil blaðinu barst aindláts-
fregn Herdísar konu hans, en
hún lézt 5. janúar, 1973, í
sömu borg. Þar vestur á
Kyrrahafsströndinni b ú a
börnin þeirra tvö sem enn eru
á lífi, þar vildu þau eiga frið-
samt og fagurt ævikvöld, eft-
ir langt og athafnasamt lífs-
starf.
Skammt leið á milli ævi-
loka þessarra hjóna, sem átt
höfðu samleið á ævibrautinni
í rúm 60 ár. Aðeins hálfum
þriðja mánuði fyrir andlát
Kára, höfðu þau haldið upp á
demants brúðkaup sitt, og
notið þeirrar sjaldgæfu ham-
ingju að hafa átt hálfa öld
og áratug betur í hjónaband-
inu. Þau voru gefin saman í
Winnipeg 10. september, 1912,
og bjuggu ung þar í borg. En
starfsferill Kára lá austur í
land, er hann gerðist aðstoðar
„receiver general" fyrir borg-
arráðið í Toronto. Síðar varð
hann umboðsmaður f y r i r
Banik og Canada í sömu borg.
Mrs. Guðrún Margrét Stef-
ansson er dáin. Hún andaðist
28. desember, 1972, á heimili
dóttur sinnar, Mrs. Alex Bur-
gess, 243 Hartford, West Kil-
donan, Man., 69 ára að aldri
og búin að vera lengi veik.
Guðrún var fædd 10. ágúst,
1903, í Húnavatnssýslu á Is-
landi. Foreldrar hennar voru
Jón Kárdal og kona hans,
Guðfinna Kristin.
Árið 1925 flutti Guðrún til
Ameríku með fyrri manni sín-
um, Sigurði Thorsteinsyni, og
Kári Frederickson var 84
ára að aldri er hann lézt.
Hann var sonur Friðjóns
Fredericksonar, er stundaði
verzlun í Glenboro, Man. á
landnámsárunum þar, og
Guðnýjar konu hans.
Kona hans, Herdís Marga-
ret, var fædd í Winnipeg árið
1891, og hafði því einn lun
áttrætt þegar andlát hennar
bar að. Síðar fluttu foreldrar
hennar, Jón Einarson og Guð-
rún Jakobsdóttir, til Foam
Lake, Sask.
Einn son, John, höfðu þau
Kári og Herdís misst. Var
hann í stjórnarnefnd „Cana-
dian Maritime Commission“ í
Ottawa þegar hann lézt. Eftir-
lifandi börn þeirra eru Ted,
embættismaður í innflytj-
endadeild Kanada (immigra-
tion officer) í Vancouver, og
Margaret, aðstoðar „dean of
women“ við British Columbia
háskólann. Einnig l’ifa Herdísi
þrjár systur: Christine (Mrs.
M. Ferris) í Carman, Man.,
Helga (Mrs. S. J. Perkins),
Santa Barbara, Califomia, og
Emily (Mrs. O. Waddell) í
Winnipeg; tveir bræður, Finn-
ur Einarson í Saskatoon,
Sask., og Carl Einarson í Van-
couver.
festu þau kaup í bújörð
skammt frá Árborg. Sigurður
dó árið 1937, en þá flutti Guð-
rún til Árborg með börn sín
þrjú, Kristínu, Jákob og Tobi-
as, og bjó hún þar í bænum
þangað til börnin stálpuðust.
Jakob býr nú á Gimli en Tobi-
as í Surrey, B.C.
Nokkru síðar giftist hún
seinni manni sínum, Gunn-
birni Stefánssyni, sem lengi
bjó í Winnipeg. Þau fluttu til
Vancouver, B.C. árið 1944 og
áttu þar heima upp frá því,
Fredrick Valdimar Johnson
lézt 2. janúar, 1973, í Van-
couver, B.C., 78 ára að aldri.
Auk eftirlifandi eiginkonu,
Guðrúnar, s y r g j a Fredrick
ein systir, Mrs. Mary Armis-
haw í Vancouver, og fjórir
bræður, John Ami í Winni-
peg; Matthías Ásvaldur, Van-
couver; Lárus Thorarinson,
Lundar; Alexander Archibald,
New Westminster, B.C., og
mörg systkinabörn.
t
Grimsy Anderson lézt 2.
janúar, 1973, á Concordia
sjúkrahúsinu í Winnipeg, 68
ára að aldri.
Hann var fæddur og uppal-
inn að Winnipeg Beach á
ströndum Winnipegvatns og
hlaut þar menntun sína. Hann
stundaði smíðar fyrir North
American Lumber Company
þartil hann lét af vinnu árið
1970.
Auk eftirlifandi eiginkonu
hans, Annie, syrgja hinn látna
tveir synir, Alexander og
Ronald; tvær dætur, Mrs.
Audrey Urbonas og Mrs.
Nancy Soltys, öll í Winnipeg.
Barnabömin eru 12. Fjórar
systur lifa hann, Mrs. Earl
Knudsen, Mrs. Helga Isfeld,
Mrs. Laura Thorlakson og
Mrs. Hanna Hallderson.
Kveðjumál flutti séra Ing-
þór Isfeld, en hinn látni var
jarðsettur að Winnipeg Beach.
t
Sæun J. Johnson lézt 7. jan-
úar, 1973, á sjúkrahúsi í Sioux
Loökout, Ont., 83 ára að aldri.
Hún var almennt kölluð Sus-
an.
Mrs. Johnson var fædd í
Hallson, N. D., en bjó flest sín
hjúskapar ár í Winnipeg og
ól þar upp böm sín. Mann
sinn, Frederick missti hún ár-
ið 1932, og flutti til Sioux
Lookout árið 1946 á heimili
dóttur sinnar, Mrs. Margaret
Atwood. Hún var umhyggju-
söm móðir og húsfreyja er
hafði hugann mest við fjöl-
en Gunnbjörn lézt árið 1971.
Nú eru þau bæði horfin, og
þeirra sárt saknað af stórum
vinahópi, auk hinna nánustu,
barna Guðrúna/ þriggja, sem
þegar hefir verið getið, syst-
ur hennar, Mrs. Jónínu Ein-
arson á Gimli, og fjögra
b r æ ð r a . Þeir eru Konráð
Jónsson á íslandi, Paul Kár-
dal að Ninette, Man., Ólafur
Kárdal í St. Paul, Minn., og
Finnbogi Kárdal á Gimli.
Barnabörnin eru sex.
Útförin fór fram frá lút-
ersku kirkjunni í Árborg að
viðstöddum f j ö 1 d a tryggra
góðvina.
„Þreytta sál, sofðu rótt.
Gefi þér guð sinn frið,
góða nótt.“
DÁNARFREGNIR
skylduna. Hana lifir einn son-
ur, Franklin A. í Winnipeg,
og þrjár dætur, Mrs. R. At-
wood (Edith) í Vancouver,
Mrs. S. Atwood (Margaret) í
Sioux Lookout, og Mrs. H.
Zurbrigg (Lillian) í Edmon-
ton, Alta.; einn bróðir, S. V.
Eyford í Steinbach, Man., og
tvær systur, Mrs. T. Ellison í
Vancouver og Mrs. A. Eyford
í Winnipeg. Barnabörnin eru
12 og barna-barnabömin 16.
Mrs. Johnson tilheyrði St.
Andrews United kirkjunni í
Sioux Lookout og þaðan var
hún jarðsungin af séra G.
Godley.
f
Mrs. Guðrún Goodman lézt
7. janúar, 1973, á heimili sínu
í Kenora, Ont., 76 ára að aldri.
Hún var fædd í Glenboro,
Man. 9. september, 1896.
Mann sinn Fred Goodman,
missti hún 11. janúar, 1962, en
hana lifir ein dóttir, Mattie
kona dr. Earl Bryngelson, og
fjögur barnabörn, einnig fjög-
ur systkini, Mrs. W. A. Mere-
dith (T h o r a), Miss Sylvia
Christie, Mundi og Steve
Christie, öll í Glenboro, Man.
Hún t i 1 h e y r ð i lútersku
kirkjunni í Glenboro og þar
var hún jarðsett.
JL
T
Guðný Jónson lézt 6. janú-
ar, 1973, á Winnipeg General
Hospital.
Gwen, eins og hún var
venjulega kölluð, var fædd 3.
júlí, 1905, að Gimli, Man., og
ólst þar upp. Hún útskrifaðist
úr kennaraskólanum í Brand-
on, Man., árið 1927, og gerðist
barnakennari að Hecla, Man.
Þar giftist hún eftirlifandi
manni sínum, Sigurgeiri Jón-
son, árið 1929. Eftir að börn
þeirra hjóna voru uppkomin,
tók hún til starfa á ný sem
kennari þar á eyjunni, og hélt
því áfram í mörg ár. Hún söng
í söngflokki lúterSku kirkj-
unnar í byggð sinni. Fyrir 15
mánuðum síðan fluttust þau
hjón til Winnipeg og bjuggu
þar síðan að 203 Rotunda
Towers.
Fimm börn lifa Mrs. Jón-
son, Mrs. Clifford Tomasson
(M a r 1 e e n) í Thunder Bay,
Ont., Kenneth í Edmonton,
Norman, Royce og Gary, allir
í Winnipeg, en þrjú börn
höfðu þau hjón misst. Barna-
börnin eru 17. Sjö systkini
hennar eru á lífi, þrír bræður,
Einar Solmundson að Hecla,
Man., Leo í Florida og Sol-
mundur í Winnipeg; fjórar
systur, Mrs. Margaret Sigurd-
son á Gimli, Man., Mrs. Begga
Petursson í Toronto, Mrs.
Freda Gordon í Florida, og
Mrs. Thorbjörg Davidson í
Winnipeg.
Hún var jarðsungin fra út-
fararstofunni á Gimli af dr.
Phi'lip M. Petursson og borin
til grafar í Gimh grafreitnum
af sonunum fjórum, tengda-
syni sínum Clifford Tomasson
og bróðursyni, Ted Solmund-
son.
f
Clara Friðrika Halldorson
lézt 7. janúar, 1973, á Winni-
peg General Hospital, 68 ára
að aldri.
Mrs. Halldorson var fædd
og uppalin að Arnes, Man.,
og bjó 23 ár að Hnausa, Man.
Hún var tvígift, missti fyrri
mann sinn, Ella Einarson árið
1945. Seinni maðurinn, Mundi
Halldórson, lifir hana og býr
á heimili þeirra hjóna að 418
Dufferin Ave., 1 Selkirk, Man.,
en til Selkirk lutti hún árið
1963.
Mrs. Halldorson skilur eftir
sig einn son, Clarence Einar-
son í Riverton, Man., og fimm
dætur: Mrs. Marino Helgason
(Siggu) í Prince Rupert, B.C.,
Mrs. Kris Johannesson
(Beggu) í Riverton, Man., Mrs.
Stoney Eyolfson (B e r n i c e),
Mrs. Helgi Sigurdson (Ellen),
báðar á Gimli, og Mrs. Ray-
mond Osterstag (Josie) í Sel-
kirk. Barnabömin eru 20 og
barna-barnabömin 2, en eftir-
lifandi systkini hennar eru
Mrs. Jona Arnason á Gimli,
Mrs. Bill Stefanson (Capa) í
Vancouver, B.C., og Helgi Jo-
hannesson á Gimh. Tvo bræð-
ur hafði hún misst, Herbert
og Traverse Johnson, og eina
systur, Mrs. Jóhönnu Einar-
son.
Hún var jarðsungin af séra
Ingþór Isfeld frá Riverton-
Hnausa lútersku kirkjunni, og
jarðsett í Riverton grafreitn-
um.
t
Elli Gladstone Anderson lézt
á Betel heimilinu á Gimli 8.
janúar, 1973.
Mr. Anderson, sem var 78
ára að aldri, hafði stundað
landbúnað og fiskiveiðar í
grennd við Gimli á yngri ár-
um, en hafði verið í þjónustu
Gimli bæjar í 22 ár og var
verkstjóri þegar hann lét af
starfi árið 1966.
Framhald á bls. 8.
ARDAL LUTHERAN
LADIES AID
MEMORIAL FUND
Framhald af bls. 3.
In memory of Mrs. Jona Sig-
urdson
Ardal Luth. L. A.... $10.00
Mr. and Mrs. J. Vigfus-
son.................$5.00
* * *
In loving memory of Gauli
Hornfjord
Páll Stefanson,
Stefan Stefanson,
Anna Stefanson and
Gudrun Stefanson . . $20.00
* * *
Mr.. and Mrs. S. B. Hom-
fjord ................. $25.00
Gratefully acknowledged,
Magnea S. Sigurdson.
Guðrún Margrét Stefansson
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlautstu friðinn
og allt er orðið rótt.
Nú sæl'l er sigur unninn
og sólin björt upprunnin
á bak við dimrrta dauðans nótt.