Lögberg-Heimskringla - 25.10.1973, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 25. OKTÓBER 1973
JŒfifd oq SkohLX
sfJtih
^ahdtui ýahdáAA&Jon
Auglýstar voru 24 stöður í
Kenya og Tanzaníu á vegum að-
stoðar Norðurlandanna við þró-
unarlöndin. — Sjötíu íslendingar
sóttu um þessar stöður, auk
fólks frá öllum hinum Norður-
löndunum. — Sjö Íslendingíir
geta fengið þarna stöður, er það
mun meira en búist var við.
VeðurfræSingai segja að meðal-
hilinn mánuðina júní til og með
september yrði í ár 0,7 gráSum
á selsíus. lægri en í meðalári. —
Þá var úrkoma 26 mm meiri en
i meðalári . í . Reykjavík, eSa
98 mm.
Borgarráð Reykjavíkur hefur
fengið dómkvadda menn til að
kanna og meta tjón, sem varð í
Reykjavík I ofviðrinu 22.—23.
september sl., þannig að aðilar,
sem urðu fyrir tjóni eigi mögu-
leika á fjárhagsaðstoð frá Bjarg-
ráðasjóði.
Forseti íslands hefur aS tillögu
DómsmálaráSherra skipað Þor-
varS Kerúlf Þorsteinsson, deild-
arstjóra i LandbúnaSarráSuneyt-
inu til að vera bæjarfóketa á
ísafirSi frá 1. október 1973.
Austfirðingar fengu heldur bet-
ur sumarauka aðfararnótt 1. okt.
og fram eftir degi, en þá var
hitinn víða 15—20 stig á selsíus
og náði þessi hiti allt til Akur-
eyrar. Mestur var hitinn á Dala-
tanga en þar fór hitinn upp í
24 stig. — Þetta er sumsé hinn
svokallaði Hnúkaþeyr.
Samningar hafa tekist á milli
Reykjavikurborg og Hafnarfjarð-
arbæjar um lagningu hitaveilu í
Hafnarfjörð og hefjast fram-
kvæmdir væntanlega þegar á
næsta árL
Dr. Páll ísólfsson færði Alþingi
íslands að gjöf fyrir nokkru
handrit sitt að Alþingis-hátíðar-
kantötunni, er hann samdi við
hátíðarljóð Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi og frumflutt var
á Alþingishátiðinni á Þingvöll-
um 1930. — Alþingi ákvað að
gefa verkið út á prenti.
Selfoss eill af skipum Eimskipa-
félags fslands strandaði við SeyS
isf jörS 4 október sl., nánar tiltek-
ið út af Vatnsdalseyri, marg-
ítrekaðar tilraunir voru gerSar
til aS ná skipinu á flot, en þaS
tókst að lokum þann 9. okt, en
til þess þurfti aS fá tvö varðskip,
Þór og óðinn svo og Skógarfoss
og Reykjarfoss.
Breskum togurum við fsland
hefur nú fækkað verulega, og
halda sig mun utar en áður. —
Þegar varðskipin nálgast hafa
togararnir híft inn veiðarfærin
og siglt sem hraðast út fyrir 50
mílna mörkin.
Kennsla í Barna- og Gagnfræða-
skóla Vestmannaeyja mun hefj-
ast þar bráðlega. — Samkvæmt
könnun sem gerð var 31. ágúst
verða 182 börn við nám í Vest-
mannaeyjum í vetur. — Þegar
hafa verið ráSnir 10 kennarar í
fullu starfi og einn í hálfu starfL
Strákagöng á Siglufirði lokuðust
vegna skriðufalla er þar urðu
beggja vegna við göngin, eftir
miklar rigningar á Siglufirði í
byrjun október.
A fundi verðlagsráSs nýlega varð
samkomulag um aS lágmarks-
verð á firski sem gili hefur til
30. september slculi hækka um
15% að meðaltali frá 1. október
1973.
Átta af tólf kúm bóndans á
Snæringsstöðum í Vatnsdal lágu
dauðar i fjósinu er komið var
þar inn einn morguninn. — Er
tjónið metið á upp undir eina
milljón ísl. kr. miðað við árs-
grundvöll, ekki sást á kúnum
en fullvíst er talið að þær hafi
drepist af raflosti vegna út-
leiðslu í fjósinu og sennilega far-
ið í brynningartækin.
Það bar til tíðinda fyrir nokkru
á Höfn i Homafirði að þangaS
kom belgiskur togari með veik-
an mann. Þótti mönnum sem
möskvastærð á Irolli logarans
væri eilthvað grunsamleg og
v.oru tilkvaddir löggildingar-
menn að líta á það. — Kom í
Ijós að möskvamir voru allt niS-
ur í 90 mm aS stærð en þeir
meiga ekki vera minni en 120
mm hér við land. Þá var varpa
togarans klædd innan með nilon.
Ekki er sagan öll sögS þar með.
Skipstjóranum mun ekki hafa lit
ist á þá tilhugun að svara til
saka fyrir ísl. dómstólum og lók
til bragSs aS reyna að laumast
burt um nóttina í skjóli myrk-
ursins. En þá vildi ekki betur til
en svo að logarinn slrandaði í
innsiglingunni svo flóttatilraun-
in rann út í sandinn.
Austur á Skeiðarársandi er nú
hafin bygging alstærstu brúar
landsins, 904 metra brúar yfir
Skeiðará sjálfa, en á sl. ári voru
smíðaðar á sandinum tvær stór-
brýr, 420 metra brú yfir Súlu og
Núpsvötn og 376 metra brú yfir
Gígju.
Sala áfengis jókst um nærri 40
prósenl mánuðina júlí-septem-
ber miðað við sama tima i fyrra.
Verðhækkun hefur orðið nokk-
ur síðan í fyrra, en þó er um
verulega neysluaukningu að
ræða samkv. heimildum Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins
MESSUBOÐ
Fyrsla lúterska kirkja
John V. Arvidson, Pastor.
Sími: 772-7444
9:45 a.m. Sunday School
10:00 a.m.
The Service
HJÁLPARNEFND
SAMBANDSAFNAÐAR
í kæri minningu um —
Lilliam Jones, Rósa Dahllke,
Johanna Jeffery og Harry
Reid. $20.00
Mrs. Margret Thorvaldson
með þakklæti
Kristín R. Johnson,
féhirðir
Leiðréfting
1 greininni um — Lome
Bjamason „íslendingur frá
Gimli lifandi liður í korn-
verslun,“ L.-H. 27. sept. var
það skakkt hermt að móðir
Lornes væri látin. Þeir sem
eiga hlut að eru beðnir afsök-
unar á þessari leiðu villu.
Þess má geta að síðastliðið
sumar voru æskuvinir Lom-
es Terry og Loma Tergesen
á ferð í Evrópu og heimsóttu
þá Lome og Brendu konu
hans í Brussel.
STYRKT ARS J ÓÐUR
LÖGBERGS-
HEIMSKRINGLU
Mr. og Mrs. Th. J. Palsson
Arborg, Man. $100.00
Mrs Helgi Palsson,
Arborg, Man. $10.00
Mr. og Mrs. Hjalti Tomasson,
San Jose, Califomia $15.00
Kelso, Washington USA $5.00
Miss Hrefna Egilsdóttir R. N.,
Chicago, Illinois USA $10.00
Mrs. Guðrun B. Arnason
Gimli, Man. $5.00
In loving memory of our aunt,
Sigrun Lavergne.
Margaret Tomasson, San Jose,
Califomia,
Bernice Swait, Ontario,
Shirley Thorvardson, San Jose
Sharon Thorgerson, Winnipeg,
Man. $25.00
Mrs. H. Holm,
Meðtekið með þakklæti,
K. W. Johannson, Treas.,
910 Palmerston Ave.,
Winnipeg, Man.
R3G 1J5
Dónarfregnir
Magnús Jónatan Danielson
andaðist 25. september 1973
á Árborg Memorial sjúkra-
húsinu í Árborg, Man., 69
ára að aldri, og hafði átt við
langvarandi sjúkdóm að
stríða.
Hann var fæddur að Gimli
Man., 30. nóvember 1903, en
flutti til Árborg á yngri ár-
um og rak þar bifreiðaverk-
stæði (garage) þar til heilsan
tók að bila. Hann var í sveit-
arstjóm R. M- og Bifrost um
árabil, þjónaða í stjómar-
nefnd „Chamber of Comm-
erce“ var einn af þeim sem
stofnaði fyrsta — „curling
rink“ og „recreation centre“
bæjarins. Síðustu sex árin
starfaði Magnús fyrir Ever-
green skólahéraðið í Arborg,
var fyrsti bílstjóri er ók böm
um þar í skóla.
Auk eftirlifandi eiginkonu,
syrgja Magnús tvær dætur,
Mrs. Beatrice Olafson í Riv-
erton, Man., og Mrs. Harold
Einarsson (Blanche) í Winni
peg, einn sonur Roderic í
Brandon, Man., 9 bamaböm
og eitt bama-bamabam. —
Einnig syrgir hann einn bróð
ir, Ben Danielson og fjöldi
annarra skyldmenna óg
vina Tvo bræður haifði haníl
misst, Guðjón í Árborg árið
1972, Helga að Gimli, 1973.
Tengdasonur hans, Haraldur
Olafson frá Riverton, lést
órið 1971.
Séra Robert Byhre flutti
kveðjumál í lútersku kirkj-
urrni að Árborg.
RICHARD BECK:
Andstæður
Sumarkvöld
Blærinn strýkur boga símim
bláa voga,
heiðar stjómur hátt í dýpi
himins loga.
Hauslmörk
Bólstrar yfir bládjúps hyl
brúnadökkir banga,
þungt er öldu undirspil
út við flúðavanga.
Garlic-laukur er heilnæmur
Garlic-laukur er sóttvamarmeðal, sem hreinsar blóSið og
hamlar gegn rotnunarsýklum. í Adams Garlic Pearles er
sérstök Garlic-olía er notuð hefir verið til lækninga árum sam-
an. Milljónir manna hafa um aldir neytt Garlic-lauks sér til
heilsubótar og trúað á hoUustu hans og lækningamátt. Eflið
og styrkið heilsu ykkar. Fáið ykkur í dag 1 lyfjabúð einn pakka
af Adams Garlic Pearles. Ykkur mun líða betur og íinnast þið
styrkari, auk þess sem þið kvefist sjaldnar. Laukurinn er í
hylkjum, lyktarlaus og bragðlaus.
...NEW!
Lowestjetfares
nonstop to Iceland
from Chicago
lcelandic Airlines (Loftleidir) now gives you a
choice of non-stop scheduled jet flights to lceland
from New York OR CHICAGO! All with lowest jet
fares of any scheduled airline to lceland and to
Luxembourg in the heart of western Europe.
ALSO, regularly scheduled jet service from
New York or Chicago, via lceland, to Oslo, Copen-
hagen, Stockholm, Glasgowor London. You can stop
over and visit lceland, at no extra air fare, on your
way to the rest of Europe.
For full details and folders on new fares, see
your travel agent or contact:
ICELANDIC LOFTIEIDIR
630 Fifth Ave., New York, N.Y. 10020; Phone (212) 757-8585
37 S. Wabash Ave., Chicago, III. 60603; Phone (312) 372-4797
Phone Toll Free In Continental U.S.: (800) 221-9760