Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 06.02.1975, Qupperneq 4

Lögberg-Heimskringla - 06.02.1975, Qupperneq 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 6. FEBRÚAR 1975 SNJÓFLÓÐIÐ f HNÍFSDAL 1910 Frú Steinunn Eyjúlfsson í Seattle skrifar L.-H. 27. janúar. „Þegar ég las um snjóflóðið í Neskaup- stað, segir Steinunn, „komu upp í huga mínum minningar frá snjóflóðinu, sem féll í Hnífsdal við ísafjarðardjúp og 20 manns létu lífið. Nokkra tók snjóflóðið með sér út í sjó, og tvennt fannst aldrei svo ég vissi.” Steinunn var á ísafirði þegar þessi sorglegi at- burður gerðist, en Hnífsdalur er stutt fyrir utan Isafjörð. Hún lætur fylgja erindi ort af séra Lár- usi heitnum Thorarensen, sem þá var kandidat á ísafirði: Helengill flaug yfir felli Um bergsala byggðina alla fór bylgjandi náhljómur fjalla, hann breiddist frá brún yfir grundir og bylgjumar léku þar undir- Er hel engill flaug yfir felli sprakk fannhengja þung yfir svelli, og steyptist sem myrðandi móða á morgni yfir dalverpið hljóða. Og saman í ástvina örmum þar elskendur lokuðu hvörmum, og aðrir á einstæðings brautum þar andaðir hvíldust frá þrautum Úr titrandi tælandi siónum og teknir úr gröf upp úr snjónum í moldu þið leggist í líni á leið ykkar geislarnir skíni. Nú sofið hér saman í friði fyrst sólin er hnigin að viði, og búið er heimsstríð að heyja að hryggjast og gleðjast og deyja. Oss setur hér hrelda og hljóða af helgidóm föðursins góða. með samhryggð af annara sálum vér sameinumst þögulir tárum. Ort hefur séra Lárus heitinn Thorarensen þá kandidat á ísafirði. FARA MENN BRÁÐUM AÐ GERA SÉR MAT ÚR FRÉTTABLÖÐUNUM? Því verður vísft ekki neitað að flest blöð beri töluvert af andlegu léttmeti fyrir lesendur. Að minnsta kosti fá all- ir, sem nokkuð fást við blaðamensku að heyra það, að sumt af þessu prentaða máli þeirra, sé ekki þess virði að eyða pappír undir það. Þetta lætur maður sér lynda og tekur sannleikanum með jafnaðargeði. Með einhverju þarf að stoppa í götin milli fréttanna, og það í snatri, því alltaf er maður í kapphilaupi við þetta eii'ífa “deadline,” sem sífellt er á hælunum á manni, og verður því fjótaskrift á mörgu, sem heimtað er á mmútunni- En nú er nýtt komið upp á teninginn. Því er spáð að innan skamms fari menn að stinga gaffli í görnlu frétta- blöðin dín, bera þau sér til munns í smábitum og næra á þeim Hkamann. Þau hafa nefnilega í sér mörg þau efni sem liíkaminn þarf á að halda til að njóta samvistar við sálina til lengdar, og góð næring er víst í þeim nema prentmáUnu. — Blekið þarf að hreinsa úr blöðunum áður en menn leggja sér þau tiil munns. Margar milljónir manna í heiminum líða matarskort, og enn fleiri líða fyrir skort á prótéin efni. Þetta les maður um daglega í blöðunum, annars kæmi það flatt upp á mann hvað vísindamenn eru famir að gera í málinu, en flest vandamál heimsins lenda á þeim, hvort heldur er að halda lífinu í mannfólkinu eða flýta fyrir því inn í eilífðina. — Naut og kýr hafa ekki við að framleiða kjöt og mjólk handa öllum, enda þarf ekki allt til þeirra að sækja, segja þeir sem vitið hafa. Vel má búa til góðan mat úr mörgu, sem nú er hent í sorpið, og pappír af öllu tagi leggur sitt til. — Mér skilst að hann haldi öllum öðmm efnum saman, sé eins og egg í pönnukökum. Eg las þessa frétt einmitt í morgun, í einu hinu virðu- legasta, fróðlegasta og skemmtilegasta blaði sem ég þekki, “The Christion Sciance Monitor.” Þar er vandlega farið út í allt málin uviðkomandi, vísindalegar rannsóknir, vélar og hvaðeina, en við sleppum því, það er mér ofurefli að skilja og skýra slíkt og annað eins, enda kærir sig enginn um að ættfræða það, sem borið er á borð, ef það er gott á bragðið? Ef allt gengur vel fer maður að fá pappírskjöt í soðið innan 25 ára, svo það getur orðið aðgalveislukosturinn þegar haldið verður upp á næstu aldamót- Þá getur maður gert sér gott af kræsingunum með góðri samvisku, því matseðl- unum verður sjálfsagt haldið saman svo menn fái að borða þá einhvern tíma seinna þegair þeir hafa lyst á. Vísindamenn sögðu frá þessu bruggi sínu á fundi, sem þeir héldu um síðustu mánaðarmót í Geneva, N.Y. Á þess- háttar fundum koma þeir venjulega öllu upp um sig, en enginn tekur eftir því nema blöð, sem eru svo samvi^kusöm að vera alltaf allstaðar, svo þau geti sagt manni hvað muni ske áður en það skeður. Kjötið sem menn borða í framtíðinni verður ekki kjöt, sagði einn vísindamaðurinn, en það fer eins vel undir tönn og verður kryddað með ekta kjötsafa. Eins sagði hann að mundi verða um mjólkina. Hún yrði samansett af alskonar gerfiefnum en enginn mundi fynna það á bragðinu. Jurtir og allskonar olía verða í öllu þessu kiamímeti. En matarmestur er pappírinn, segja þeir. Hann er alveg furðulegt hráefni í svonalagaðan samsetning, og best eru fréttablöðin því þau eru eintómur selljulósi (cellulose), að blekinu undanskildu og úr þeim má gera ágæta máltíð þeg- ar þar að kernur. Þau eiga eftir að koma mannkyninu að góðum notum blessuð blöðin- C.G. LÖGBERG-HEIMSKRINGLA Published every Thursday by LÖGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLISHING Co. LTD. 512-265 Portaga Avenue, Winnipeg, Man. R3B 2B2 Edilor Emerilus: Ingibjörg Jonsson Edilor: Caroline Gunnarason President, K. W. Johannson; Vice-President, Dr. L. Sigurdson; Secretary-Treasurer, Emily Benjaminson; Adv’t Manager, S. Aleck Thorarinson. Subscription $10.00 per year — payable in advance TELEPHONE 943-9931 “Second class mail registration number 1667” Printed by: GARDAR PRINTING LIMITED Eg á einn lítinn nágranna, sem hefur gaman af dyra- bjöllunni minni og ég held helst að hann hafi ekki sinnt jólagjöfunum sínum fyrir mér og bjöllunni. — Það er bara verst að ég á bágt með að stökkva upp á nef mér við krakka og svo verður auminginn litli fyrir von- brigðum, nema þegar mamma hans nær í hann og tuskar hann til fyrir óþekkt- ina. Einu sinni kom ég til dyr- anna, og þar stóð hann með einn puttann á bjöllunni en öll fötin sín og þurkuna á öðrum handleggnum, „farðu heim til þín og klifraðu aft- ur ofan í baðið því nú ertu orðinn óhreinn á fótunum,” sagði ég. „Nei, ég skríð heldur í rúm ið mitt,” sagði strákur. — „Mamma sér ekki fætumar ef ég er nógu fljótur að komast í rúmið.” Hann sagði að hún væri alltaf að þvo sér og reka sig í rúmið nú ætlaði hann að fara sjálfur í bólið áður en hún kæmi aftur inn, þá losnaði hann að minnsta kosti við að þvo sér tvisvar á einu kvöldi „Hvar er mamma þín?” „Hún er ofan í kjallara að þvo af því ég missti kókið mitt ofan í rúmið.” „Á ég að segja henni að þú hafir komið með óhreinar fætumar og narrað mig til dyranna?” Hann stakk upp í sig þum alfingri og brosti út undir eyru. „Þú segir ekki eftir mér. Langar þig til að eiga kött? Eg get náð þér í kött.” „Af hverju segi ég ekki eftir þér, og af hverju villtu nú mér í kött?” spurði ég. „Af þvi þú ert gráhærð amma” flyssaði Htli snáðinn. Atlar ömmur eiga kött, og ég skal passa hann fyrir þig ó hverjum degi ef þú segir ekki eftir mér.” „Maður má ekki hafa kött í blokkinni ” „Kellingin hinumegin á kött. Haxm slapp út þegar ég hringdi bjöllunni hennar í ó- gáti. Ó hún var reið, ó það var gaman, ég skal ná í gula köttinn hennar handa okkur, hún má ekki hafa hann hvort sem er.” — Svo þaut hann eins og á mjúkum katt arlöppum að dyrum bonunn- ar, með bjöllu puttann á lofti. Þá heyrðist til mömmu hans í stiganum og hann hipj aði sig heim. C.G.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.