Lögberg-Heimskringla - 12.06.1975, Blaðsíða 1
/7 Jan 75
Mra Helgi Danielson
Bojc 10
GIMDI, Man.
ROC ÍEO
MUNH) ÚTVARP ÍSLAND, CKJS 810, WINNIPEG
á hverju miðvikudagskvöldi kl. 8:30 e.h.
Dagskrárstjóri, Guðbjartur Gunnarsson
89. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 12. JÚNl 1975
NÚMER 22
LEIFUR
HALLGRÍMSSON
FORMAÐUR
BETELNEFNDAR
Leifur Hallgrímson, Q. C-,
var kosinn formaður stjórn-
arnefndar Betelstofnunar,
sem var haldinn á Betel
heimilinu í Selkirk 4. maí sl.
Hann tekur við af dr. Ge-
orge Johnson, er hafði gegnt
embættinu undanfarin tvö
ár. Varaformenn eru W. H.
Finnbogason og Dennis B-
Sigurdson; heiðurs formað-
ur dr. P. H. T. Thorlakson,
M. D., Fyrrverandi formað-
ur dr- George Johnson, M.D.,
gjaldkeri K. W. Johannson,
ritari Freeman Skaptason,
heiðurs félagi Norman Stev-
ens, Gimli, Man.
Aðrir í nefndinni eru Grett
ir Eggertson, S. A. Thorar-
inson, Gordon Gíslason, dr.
T- Kenneth Thorlakson, M.
D. og A. P. Johannson allir
búsettir í Winnipeg; John
Guttormson, Lundar, Man.,
Stefan Sigurdson, Riverton,
Man., H. Henrikson, Walter
Dryden, Mrs- L. Thompson,
Selkirk, Man., Mrs. Violet
Einarson, Ernest Stefanson,
Johann T. Arnason, Miss
Sigríður Hjartarson, Gimli,
Manitoba.
TIL CAVILIER NORTH DAKOTA 15. JÚNl
TILVONANDI VESTURFARAR UPPLÝSTIR
UMGANG MÁLSINS
Hinn 26. maí sl- var haldinn fundur á Hótel Sögu á vegum
Þióðræknisflagsins í Reykjavík með þeim hluta ferðahóps-
ins sem ætlar til Kanada í sumar — en fer ekki vestur á
Kyrrahafsströnd.
Var skýrt frá tithögun í Manitöba, hátíðshöldunum og ferða
lögum í aðrar íslendingabyggðir og frekari móttöku gesta.
Á myndinni til hægri stendur séra Ólafur Skúlason við há-
talarann og skýrir málið, en tvisvar þurfti Guðión Einars-
son liósmyndari að færa til myndavélina svo hún næði öll-
um áhéyrendahópnum.
SAGA BETELSTOFNUMAR KEMUR ÚT A NÆSTUNNI
Nú er Frón deild Þjóðrækn-
isfélagsins í Winnipeg búin
að ganga frá öllu viðvíkj-
andi hópferð suður fyrir lín-
una til að fagna þar lýðveld-
is hátíð íslands með sem
flestum af íslenskum upp-
runa.
Ferðinni er heitið til Cavil
ier, N. D. sunnudaginn 15-
júní og verður lagt upp frá
Fyrstu lútersku kirkju, 580
Victor St. í hópferðarbílum
kl. 9.00 að morgni. Ætlast
er til að ferðafólkið hafi með
sér nesti til dagsins, því að-
fangastaðurinn er hinn orð-
lagði skrúðgarður, Gunn-
lögson Park í grennd við
Cavalier, sem umhverfið
þáði að gjöf frá íslenskum
landnema-
Ferðin bostar hvem mann
aðeins $6.00 og farið má
panta af forseta Fróns, Garð
ari Garðarssyni. Símanúmer
hans heima er 253-2495, en á
skrifstofunni 247-5140.
Engin skemmtiskrá er fyr
Framh. & bls. 8.
Frú Ingibjörg S. Goodrid-
ge hefur verið falið að skrá
sögu Betelstofnunarinnar frá
því að fyrsta Betel heimilið
tók til starfa í Winnipeg fyr
ir 60 árum, sagði dr. George
Johnson, M- D. á ársfundi
Betelnefndarinnar 4. maí sl.
Dr. Johnson hefur verið for-
maður Betel nefndarinnar 2
undanfarin ár, en lét af em-
bætti í fundarlok.
Sagan verður skráð á
ensku og skreytt myndum.
Er gert ráð fyrir að bókin
geti komið út í júnílok. —
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGIÐ STYÐUR LÖGBERG-HEIMSKRINGLU
Þjóðræknisfélag Islendinga í Vesturheimi
hefur frá upphafi tilveru sinnar látið sér
annt um íslenska blaðaútgáfu vestanhafs,
og síðastliðin ár hefur það stutt Lögberg-
Heimskringlu með höfðinglegum fjárfram
lögum. Sá styrkur kemur sér vel, því fjár-
hagur blaðsins er jafnan knappur og sí-
fellt barist í bökkum við að halda áfram
útgáfunni. Samvinna blaðsins við Þjóð-
ræknisfélagið er hin heillavænlegasta,
enda hugðarmál beggja óaðskiljanleg.
Nýverið afhenti gjaldkeri Þjóðræknis-
félagið, Grettir Leo Johannson blaðinu
$1000 að gjöf frá félaginu. Bankaávísunn
fylgdi bréf dagsett 6. júní 1975. Þau um-
mæli sem fylgja gjöfinni eru aðstendum
blaðsins svo kærkomin að bréfið er birt
orðrétt á blaðsíðu 2-
Freeman Skaptason hefur
umsjón með útgáfunni, en
Garðar Printing Limited í
Winnipeg mun annast prent-
un hennar og ytri frágang.
Sagan verður rakin í
stuttu máli en engu sleppt
sem varðar þróun stofnunar-
innar. Ingibjörg hefur grann
skoðað efnið, farið vandlega
yfir fundargerðir og önnur
plögg, sem fyrir hendi eru-
Mun margt koma fram í
sögu þessarar merku stofn-
unar, sem nú er gleymt —
mörg viðfangsefni á dagskrá
sem á sinni tíð liðu mönnum
úr minni jafnótt og þeim
voru góð sgil gerð. Fer vel
á því að rifja upp þennan
kafla sögunnar á aldarafmæl
isári vananlegs landnáms ts-
lendjnga í Vesturheimi. Bók-
in verður til sölu á rýmilegu
verði á báðum Betel heimil-
unum og víðar.
í ársskýrslu sinni lét dr.
Johnson vel yfir framgangi
flestra mála, sem nefndin
hefur farið með á árinu, að
því einu undanskildu að enn
hefur ekki tekist að fá sam-
þykki Manitobastjórnar til
Framh. & bls. 8.
Flutt í ný
heimkynni að
67 St. Anne's Road
Fimmtudaginn 12. júní
flytur skrifstofa Lög-
bergs-Heimskringlu í sín
nýju heimkynni að 67 St
Anne’s Road, og bráð-
lega verður hægt að til-
kynna hið nýja símanúm
er, sem okkur verður út-
hlutað.
Garðar Printing Limi-
ted er flutt nú þegar og
komið í fullan gang. —
Sími Garðar Printing
Limited er 247-5140, en
heima símanúmer rit-
stjórans er 774-9921-