Lögberg-Heimskringla - 19.06.1975, Síða 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. JÚNI 1975
4.
Var það Sumarliði?
Norska konan sem Martha
nefnir i þessu bréfi sinu frá árinu
1964 er Ellen Marie Mageröy i
Osló sem varö doktor i Islenskum
tréskurði 1967. Mageröy telur að
sami maður, Sumarliði Þorvalds-
son, hreppstjóri á Sveinseyri i
Hraunssókn, hafi skorið út mun-
ina hennar Mörthu, og einnig
brúðarhjónastólinn I Gautaborg
Er þetta niðurstaða hennar af
samanburðarrannsókn á tveim
kistlum sem hún telur gerða af
sama manni, og er annar kistill-
inn i eigu Þjóöminjasafns en hinn
i eigu Halldóru Ingólfsdóttur Eld-
járn forsetafrúar.
Jóhann Gunnar telur hins vegar
aö margir aðrir hagleiksmenn
komi til greina og sé allt i óvissu
um það hver hafi smiðað þessa
ifögru gripi, nema hvaö fullvist
'megi telja að þeir hafi verið verk "
snillinga i Dýrafirði.
Mikið borið í litla kirkju
Þá bendir Jóhann Gunnar á að
þáð sé misminni hjá Mörthu
Spreckelsen að Hraunskirkja hafi
verið aflögð um þaö leyti sem
foreldrar hennar bjuggu i Dýra-
firði. Þvert á móti var kirkjan þá
nýbyggð i þeirri mynd sem hún
stendur enn, reist 1885. Og þetta
er býsna merkilegt hús eftir þvi
sem Jóhann Gunnar segir:
„Þetta litla guðshús, bænda-
kirkja og annexia frá Söndum frá
fornu fari, hefur verið óvenjulega
mikið skreytt innan dyra meö út-
skurði i milliþil og bekki. Kemur
það i ljós i lýsingum á kirkjunni
frá ýmsum timum”. Er það siöan
rakið nánar.
Höfðingsskapur Mörthu
Stjórn byggðasafnsins á ísa-
firði skrifaði gömlu frú Mörhu út
til Randers haustið 1973 og falað-
ist eftir kaupum á þeim gripum
sem hjá henni eru. Sú gamla
svaraði i samráði við son sinn
sem hún hafði arfleitt: „Dýra-
fjörður og allt sem tengist
gömlum tslandsminningum er
mér svo dýrmætt að þaðer mér
stærsta ánægjan að geta gefiö
dýrgripina aftur til þeirra heima-
lands.” Segir hún að sonur sinn
mun annast afhendingu gripanna
án endurgjalds að sér látinni, en
Martha er nú á niræðisaldri.
hj—
Ruggustól fyrir brúðar-
bekk
„Hér heima i stofunni okkar hef
ég nokkra gamla skorna muni úr
Dýrafirði: brúðarbekk úr
Hraunskirkju utan við Haukadal.
Hafði kirkjan verið lögð niður.
Kirkjan var þá horfin, en bekkur-
inn var hjá konu nokkurri þar
ytra og var allur i brotum. Hún
ætlaði að nota hann til eldiviðar,
en mamma sendi Sörensen út
eftir til hennar. Konan skildi ekki
hvað mömmu gengi til að vilja
eignast stólinn, en sakir þess aö
hana sárlangaði i ameriskan
ruggustól sem stóö i búðinni hjá
Wendel urðu þau ásátt um aö
mamma skyldi fá bekkinn en hún
ruggustólinn og auk þess nokkra
fjárhæð.
Svo var maður á stöðinni allan
veturinn að gera viö stólinn og
skay hann út marga nýja stúfa og
bætti inn, svo að stóllinn varð eins
og nýr.
Auk þessa bekks á ég litinn út-
skorinn kirkjustóL snotrasta grip
Our new address is 67 St» Anne's Road
and our new phone no. is 247-5140
GARDAR PRINTING LIMITED
Byggð^safn Vestfjarða
á ísafirði hefur fengið vil-
yrði fyrir því að nokkrir
forkunnar fagrir tréskurð-
armunir sem nú eru í eigu
aldraðrar konu í Dan-
mörku verði af hentir safn-
inu að gjöf að henni látinni.
Gripirnir eru úr Dýrafirði,
og taldir frá 18. öld, skorn-
ir í sérstökum vestfirskum
stíl og mjög vel varðveittir.
Frá þessu er greint i Arsriti
Sögufélags tsfirðinga 1974,en það
er nú nýkomið út. Margt fróðlegt
efni er i ritinu en hér verður látið
við það sitja að kynna frásögn um
hina vestfirsku smiöisgripi sem á
sinum tima hröktust i útlegð til
Danmerkur en koma nú aftur til
heimalandsins.
Dýrfirskir kirkjugripir
endurheimtir úr útlegð
Einn af ritstjórum Arbókarinn-
ar, Jóhann Gunnar Ólafsson
fyrrv. fógeti, ritar greinina
„Kirkjustólar úr Dýrafirði” þar
sem hann greinir frá tildrögum
þess að byggðasafnið falaðist eft-
ir tréskurðarmununum, en I grein
um byggðasafnið er skýrt frá
málalokum.
Baksláin úr brúðarstólnum.
ÞJÖÐVILJINN
Fengsæll hvalveiöari
Um aldamótin, eða nánar
tiltekiö frá 1894 til 1906, hafði
hvalveiðimaðurinn Lauritz Berg
búið á Framnesi við Dýrafjörð
ásamt konu sinni Mörthu.
Eignuöust þau nokkra verömæta
kirkjumuni og fluttu út með sér.
Komust þeir allir nema einn I
eigu dóttur þeirra sem heitir
Martha Herdis von Spreckelsen,
en hún fæddist fyrsta búskaparár
þeirra Bergshjónanna á Fram-
nesi og býr nú i Randers I Dan-
mörku. Verðmætur brúðhjóna-
bekkur lenti hins vegar hjá af-
komanda Begshjónanna i Gauta-
borg.
Martha Spreckelsen og Karen
systir hennar komu til tslands ár-
iö 1955 til þess einkum að
heimsækja æskustöðvarnar i
Dýrafirði og færðu þær þá Þjóð-
minjasafni aö gjöf altarisklæði
sem veriö haföi i Sandakirkju.
Jón Jónsson klæöskeri á Isafirði
hafði veriö bernskufélagi þeirra
systra og gerðist hann fylgdar-
maður þeirra vestra. Upp úr þvi
hófust bréfaskriftir milli hans og
Mörthu þar sem m.a. bar á góma
það sem gamla konan geymdi
heima i stofunni hjá sér i Rand-
ers:
Hann var lika keyptur i Dýrafirði,
en ég hef þvi miður enga hug-
mynd um i hvaða kirkju hann
hefur staöiö. Og svo á ég útskor-
inn kistil, einnig úr Dýrafiröi.
«
gerð um gamlan isienskan tré-
skurð iangaði hana til að sjá þá.
Hún var mjög hrifin af þeim ... og
sagöi að á Vestfjörðum hefði ver-
ið sérstakur tréskurðarstill, still
sem ekki þekktist annars staðar
(sérstök tegund jurtaskreytis) og
þessir munir minir væru einkenn-
andi og liktust öðrum munúm
sem hún hefði séö......Vestfjarða-
skurðurinn væri einhver hinn
besti á tslandi....”.
Vestf jarðaskuröurinn
En i sumar kom norsk kona og
sagði mér að hún hefði frétt til
þessara muna minna, og vegna
þess að hún vinnur að doktorsrit-
JÓHANN J. E. KÚLD:
fslenskt landném í Kanada
Heimskringlur stofnuðu Snorri og Frímann
og standa uppi báðar í dag.
Vitnandi um heimsins vegferð og tímann,
vorönn og batnandi hag.
Lögberg var flutt af Fróni yfir hafið
og fest þar á prentað á blað.
Mannlíf allt varð brátt menningu vafið,
muna skulum við það.
Afram brýst stofninn djarfur í dáðum,
á draumsýnar framfarabraut-
Og öxin þau bylgjast á ökrum sáðum,
arðsöm og létta þraut.
Ég hilla vil Kanada íslensku aettir
úr afdal og brimavör.
Þeim fylgdu yfir hafið verndarvaettir
og voru með þeim í för.
Leysum ei böndin, bindum þau fastar
beggja megin við haf.
Þó torfær sé leiðin rjúkandi rastar,
við reynum að komast af.
meö lokuöum kassa undir setu. Brúðarstóllinn úr Hraunskirkju frá hlið.