Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 19.06.1975, Qupperneq 5

Lögberg-Heimskringla - 19.06.1975, Qupperneq 5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. JÚNI 1975 4. Var það Sumarliði? Norska konan sem Martha nefnir i þessu bréfi sinu frá árinu 1964 er Ellen Marie Mageröy i Osló sem varö doktor i Islenskum tréskurði 1967. Mageröy telur að sami maður, Sumarliði Þorvalds- son, hreppstjóri á Sveinseyri i Hraunssókn, hafi skorið út mun- ina hennar Mörthu, og einnig brúðarhjónastólinn I Gautaborg Er þetta niðurstaða hennar af samanburðarrannsókn á tveim kistlum sem hún telur gerða af sama manni, og er annar kistill- inn i eigu Þjóöminjasafns en hinn i eigu Halldóru Ingólfsdóttur Eld- járn forsetafrúar. Jóhann Gunnar telur hins vegar aö margir aðrir hagleiksmenn komi til greina og sé allt i óvissu um það hver hafi smiðað þessa ifögru gripi, nema hvaö fullvist 'megi telja að þeir hafi verið verk " snillinga i Dýrafirði. Mikið borið í litla kirkju Þá bendir Jóhann Gunnar á að þáð sé misminni hjá Mörthu Spreckelsen að Hraunskirkja hafi verið aflögð um þaö leyti sem foreldrar hennar bjuggu i Dýra- firði. Þvert á móti var kirkjan þá nýbyggð i þeirri mynd sem hún stendur enn, reist 1885. Og þetta er býsna merkilegt hús eftir þvi sem Jóhann Gunnar segir: „Þetta litla guðshús, bænda- kirkja og annexia frá Söndum frá fornu fari, hefur verið óvenjulega mikið skreytt innan dyra meö út- skurði i milliþil og bekki. Kemur það i ljós i lýsingum á kirkjunni frá ýmsum timum”. Er það siöan rakið nánar. Höfðingsskapur Mörthu Stjórn byggðasafnsins á ísa- firði skrifaði gömlu frú Mörhu út til Randers haustið 1973 og falað- ist eftir kaupum á þeim gripum sem hjá henni eru. Sú gamla svaraði i samráði við son sinn sem hún hafði arfleitt: „Dýra- fjörður og allt sem tengist gömlum tslandsminningum er mér svo dýrmætt að þaðer mér stærsta ánægjan að geta gefiö dýrgripina aftur til þeirra heima- lands.” Segir hún að sonur sinn mun annast afhendingu gripanna án endurgjalds að sér látinni, en Martha er nú á niræðisaldri. hj— Ruggustól fyrir brúðar- bekk „Hér heima i stofunni okkar hef ég nokkra gamla skorna muni úr Dýrafirði: brúðarbekk úr Hraunskirkju utan við Haukadal. Hafði kirkjan verið lögð niður. Kirkjan var þá horfin, en bekkur- inn var hjá konu nokkurri þar ytra og var allur i brotum. Hún ætlaði að nota hann til eldiviðar, en mamma sendi Sörensen út eftir til hennar. Konan skildi ekki hvað mömmu gengi til að vilja eignast stólinn, en sakir þess aö hana sárlangaði i ameriskan ruggustól sem stóö i búðinni hjá Wendel urðu þau ásátt um aö mamma skyldi fá bekkinn en hún ruggustólinn og auk þess nokkra fjárhæð. Svo var maður á stöðinni allan veturinn að gera viö stólinn og skay hann út marga nýja stúfa og bætti inn, svo að stóllinn varð eins og nýr. Auk þessa bekks á ég litinn út- skorinn kirkjustóL snotrasta grip Our new address is 67 St» Anne's Road and our new phone no. is 247-5140 GARDAR PRINTING LIMITED Byggð^safn Vestfjarða á ísafirði hefur fengið vil- yrði fyrir því að nokkrir forkunnar fagrir tréskurð- armunir sem nú eru í eigu aldraðrar konu í Dan- mörku verði af hentir safn- inu að gjöf að henni látinni. Gripirnir eru úr Dýrafirði, og taldir frá 18. öld, skorn- ir í sérstökum vestfirskum stíl og mjög vel varðveittir. Frá þessu er greint i Arsriti Sögufélags tsfirðinga 1974,en það er nú nýkomið út. Margt fróðlegt efni er i ritinu en hér verður látið við það sitja að kynna frásögn um hina vestfirsku smiöisgripi sem á sinum tima hröktust i útlegð til Danmerkur en koma nú aftur til heimalandsins. Dýrfirskir kirkjugripir endurheimtir úr útlegð Einn af ritstjórum Arbókarinn- ar, Jóhann Gunnar Ólafsson fyrrv. fógeti, ritar greinina „Kirkjustólar úr Dýrafirði” þar sem hann greinir frá tildrögum þess að byggðasafnið falaðist eft- ir tréskurðarmununum, en I grein um byggðasafnið er skýrt frá málalokum. Baksláin úr brúðarstólnum. ÞJÖÐVILJINN Fengsæll hvalveiöari Um aldamótin, eða nánar tiltekiö frá 1894 til 1906, hafði hvalveiðimaðurinn Lauritz Berg búið á Framnesi við Dýrafjörð ásamt konu sinni Mörthu. Eignuöust þau nokkra verömæta kirkjumuni og fluttu út með sér. Komust þeir allir nema einn I eigu dóttur þeirra sem heitir Martha Herdis von Spreckelsen, en hún fæddist fyrsta búskaparár þeirra Bergshjónanna á Fram- nesi og býr nú i Randers I Dan- mörku. Verðmætur brúðhjóna- bekkur lenti hins vegar hjá af- komanda Begshjónanna i Gauta- borg. Martha Spreckelsen og Karen systir hennar komu til tslands ár- iö 1955 til þess einkum að heimsækja æskustöðvarnar i Dýrafirði og færðu þær þá Þjóð- minjasafni aö gjöf altarisklæði sem veriö haföi i Sandakirkju. Jón Jónsson klæöskeri á Isafirði hafði veriö bernskufélagi þeirra systra og gerðist hann fylgdar- maður þeirra vestra. Upp úr þvi hófust bréfaskriftir milli hans og Mörthu þar sem m.a. bar á góma það sem gamla konan geymdi heima i stofunni hjá sér i Rand- ers: Hann var lika keyptur i Dýrafirði, en ég hef þvi miður enga hug- mynd um i hvaða kirkju hann hefur staöiö. Og svo á ég útskor- inn kistil, einnig úr Dýrafiröi. « gerð um gamlan isienskan tré- skurð iangaði hana til að sjá þá. Hún var mjög hrifin af þeim ... og sagöi að á Vestfjörðum hefði ver- ið sérstakur tréskurðarstill, still sem ekki þekktist annars staðar (sérstök tegund jurtaskreytis) og þessir munir minir væru einkenn- andi og liktust öðrum munúm sem hún hefði séö......Vestfjarða- skurðurinn væri einhver hinn besti á tslandi....”. Vestf jarðaskuröurinn En i sumar kom norsk kona og sagði mér að hún hefði frétt til þessara muna minna, og vegna þess að hún vinnur að doktorsrit- JÓHANN J. E. KÚLD: fslenskt landném í Kanada Heimskringlur stofnuðu Snorri og Frímann og standa uppi báðar í dag. Vitnandi um heimsins vegferð og tímann, vorönn og batnandi hag. Lögberg var flutt af Fróni yfir hafið og fest þar á prentað á blað. Mannlíf allt varð brátt menningu vafið, muna skulum við það. Afram brýst stofninn djarfur í dáðum, á draumsýnar framfarabraut- Og öxin þau bylgjast á ökrum sáðum, arðsöm og létta þraut. Ég hilla vil Kanada íslensku aettir úr afdal og brimavör. Þeim fylgdu yfir hafið verndarvaettir og voru með þeim í för. Leysum ei böndin, bindum þau fastar beggja megin við haf. Þó torfær sé leiðin rjúkandi rastar, við reynum að komast af. meö lokuöum kassa undir setu. Brúðarstóllinn úr Hraunskirkju frá hlið.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.