Lögberg-Heimskringla - 18.09.1975, Blaðsíða 1
July 't i
v-in Jo'n530n ,
IjO Tí'i^ ^ 1
Box 218
K, Icaland*
Bliíi ‘w *'v 1
CANADA ICELAND CENTENNIAL
CONFERENCE OCTOBER 3, 4, 5, 1975
89. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 18. SEPTEMBER 1975
NÚMER 31
FORSETAHJÓN ÍSLANDS SKOÐA AFMÆLISGJÖF
VESTUR-ÍSLENDINGA TIL KANADAÞJÓÐARINNAR
Á ALDARAFMÆLI FYLKISSAMBANDSINS
FORSETI ÍSLANDS, dr Krisíján Eldjám og
frú Halldóra Eldjárn komu við í Þjóðskjala.
safni Kanada begar bau heimsóttu Oltawa í
sumar. Þar var beim svnd málmplaian mikla,
sem Kanadamenn af íslenskum uppruna gáfu
þjóðinni aldarafmælisár Fylkissambandsins
1967, enda er töflunni komið fvrir rétl fyrir
innan aðaldyr hússins, bar sem ekki verður
framhjá henni gengið. Leiðsögumaður forsela
hjónanna var dr. Wilfred I. Smith, þjóðskjala
vörður, sem staldraði við á meðan forseta-
hjónin lásu kafla úr Grænlendingasögu á
þrem tungumálum. Taflan var gefin í minn.
ingu um landnám Leifs Eiríkssonar fyrir 1000
árum og skvrir lesmálið sem grafið er í málm
inn frá siglingum íslendinga, sem könnuðu
land í Kanada á tíundu öld.
Nú réttum átta árum eftir aldarafmæli
Fylkissambandsins, er komið að aldarafmæli
varanlegs landnáms íslendinga í Kanada, og
þótti tilhlíðilegt að fá töfluna að láni, flylja
hana lil Winnipeg og hafa hana tU sýnis í
listasafninu þar, þegar komu fyrstu landnem-
anna til Manitoba verður minnst með Canada
Iceland Conference í oktober. Þetla fékksl
fyrir tUmæli dr. P. H. T. Thorlakson, M. D. í
Winnipeg Er taflan þó ekki létt í flultningi,
því hún er 600 pund á þyngd og stór um sig.
Canada Iceland Conference fer fram í
Winnipeg Convention Centre Theatre 3. 4. og
5. oklóber, en laflan verður tU sýnis í lista-
safni Winnipegborgar (Winnipeg Art Gall.
ery) frá 2. október til 2. nóvember. — Henni
verður komið fyrir á sama svæði og safni af
málverkum listmálarans Emil Walters, en
hann er af íslenskum uppruna, fæddur' í Win-
nipeg og víðkunnur listamaður í Bandaríkj-
unum og öðrum heimslöndum.
SAGA SINGERS ÞÁTTTAKANDI I FESTIVAL CANADA
íslenski kórinn í Edmont-
on, Alta., Saga Singers, tók
þátt í þjóðlistahátíðinni,
Festival Canada, í Ottawa,
síðastliðinn júlí. Þessi sumar
hátíð í höfuðstaðnum stefnir
að því að bregða upp sýnis-
hormim af menningarerfð-
um hinna ýmsu þjóðabrota,
_-em sameinast í kanadísku
þjnðinni Þjóðlistanefndin
<Cnnadn Folk Arts Concil) sá
nrn bátíðina á vegum innan-
ríkisráðuneytisins, og var
hverju fylki falið að velja
sína merkisbera. í Alberta
varð kórinn Saga Singers fyr
ir valinu, ásamt kínverskum
dansflokki frá Calgary.
Valdir flokkar sýndu list
sína í Ottawa um hverja
helgi allan júMmánuð, og
bar drógust saman skemmti-
kraftar úr öllum hlutum
landsins. sem rekja rætur
sínar til margra heimslanda
og hafa fært þjóðarheildinni
margþættar menningarerfð-
ir.
Saga Singers kom fram
helgina 18—20 júli, og var
hópurinn á sviði með kín-
verska dansflokknum frá
Calgary, flokki frá Charlotte
town í Prince Edward Island
som dansaði þjóðdansa frá'
T.æbanon, fransk-kanadískum
bjóðdansa flokki frá Grand-
by í Quebec og tveim söng-
flokkum frá Nova Scotia, er
sungu þjóðsöngva Acadia
byggðarinnar gömlu, sem
var af frönskum uppruna og
er fræg í annálum austur-
stranda fylkjanna. Tveir ein-
söngvarar af sama uppruna
sungu arfgenga þjóðsöngva;
hónur frá Montreal dansaði
þjóðdansa frá Haiti eftir
trumbuslætti, þýskur
kvennakór frá Ottawa kom
fram og fimna manna hópur
frá Moncton New Brunswick
söng þjóðsöngva sinnar
landsbyggðar.
Samkomurnar voru allar
haldnar úti. fyrstu tvö kvöld
in i skrúðgarðfhum Confeder
ation Park í grepnd við Þióð
listasafnið í Ottawo, og voru
þar saman komnir allt
að 5.000 áheyrendur í- hvert
sinn. En eftir hádegi á suonu
daginn 20. júlí, fór skemmt-
unin fram í hino fagra bá-
lendi í grennd við Ottawa,
Gatineau Hills, á sviði sem
bjóðarútvarpið CBC á þar.
Framh á bls. 8
KANTATAN ER SÖNGUR BARÁTTU
MANNSEMDAR OG SIGURVISSU
Dr. Hallgnímur Helgason tón
skáld segir í bréfi til Lög-
bergs-Heimskringlu, að hanh
hafi varið rúmum 8 mánuð-
um í að fullsemja tónverk
við Sandy Bar, eftir Gutt-
orm J. Guttormsson, og haft
mikla ánægju pf starfinu. —
Verkið er symfónsk kantat.a
samin að beiðni Canada Ice-
land Centennial Conference
Committee í minningu um
komu fyrstu íslensku land-
nemanna til Manitoba í okto-
ber 1875.
Kantatan verður leikin 12.
október af Winnipeg Sym-
phony Orchestra undir
stjórn Piero Gambo, í Mani-
toba Centennial Concert
Hall í Winnipeg. Gerir dr.
Hallgrímur ráð fyrir að
skreppa vestur og vera þar
viðstaddur.
Hallgrímur Helgason
Kantatan er söngur baráttu,
mannsemdar og sigurvissu,
segir Hallgrímur:
„ . .. Fyrir mér vakti fram
ar öllu öðru að heiðra minn-
ingu vaskra landa minna,
Framh á bls. 8
NÝ FRÍMERKI TEIKNUÐ AF
TOM BJARNASON
1 sepffember koma út fjög<-
ur 8-centa frímerki, sem
draga áthygli að siglinga-
sögu kanadísku þjóðarinnar,
en skip og sæfarar hafa átt
'merkan þátt í menningar-
þróun þjóðarinnar frá fyrstu
tilveru hennar. .
Frímerkin hefur Tom
Bjarnason í Toronto teiknað
en myndirnar eru af frægum
strandferðaskipum frá nítj-
ándu öld. Fyrst er gufuskip-
ið “Beaver”, sem Hudson’s
Bay, félagið lét smíða árið
1834, 109 tonpa far og fyrsta
skipið ,sem gekk fyrir gufu
á Kyrrahafi. En gufuorkan
nægði ekki til að flytja kola-
farm frá Englandi vestur á
Kyrrahafs strönd og varð
Tom Bjarnason
skipshöfnin að draga upp
segl til að ljúka fyrstu ferð-
inni. En Beaver stóð sig vel
í samkeppni við bandarísk
skip og hjálpaði tjl að halda
ströndinni í höndum kanad-
ískra verslunar viðskipta. —
Það strandaði í Vancouver
árið 1888.
Skipið Neptune hóf sigl-
ingar árið 1873, var leigt til
Framh á bls. 8
KENNSLUBÓK f
fSLENSKU
Á næstunni kemur út
kennslubók í íslensku, sem
Guðbiartur Gunnarsson hef-
ur samið en Steinunn dóttir
Próf. Haralds Bessasonar
skreytt myndum, en Harald-
ur hefur haft yfirumsjón
með verkinu, segir Guðbjart-
ur og fer eftirfarandi orðum
um bókina:
Tvo síðastliðna vetur hefi
ég kennt íslensku á kvöld-
námskeiðum, sem Manitoba-
háskóli rekur fyrir almenn-
ing. — Fyrri veturinn fór
kennslan fram í Fyrstu lúth-
ersku kirkju og voru nem-
endur um 50 talsins í þremur
flokkum. Síðast liðinn vetur
fór kennslan fram í húsa-
kynnum háskólans og voru
nemendur nokkuð færri, trú-
Framh á bls. 8