Lögberg-Heimskringla - 01.04.1976, Page 1
Eergstoinn Jonsson,
Eox 213
REYKJAVIK, Iceland
90 ÁRGANGUR
WINNiPEG, FIMMTUDAGINN 1 APRIL 1976
NÚMER 12
SVONA ÚTLITS Á GIMLI f DAG
SÖNGGYÐJUNNI HEATHER IRELAND VEL FAGNAÐ
,,ÞaS er ekki gaman að »)á höfnina 'á Gimli," sagði rauðbirk-
inn, náungi i grænni úlpu í morgun og héll á lofti myndinni
þeirri arna. Allt er reynt að lelja manni trú um 1. april. —
Myndin var :tekin við höfnina á löngu liðnu vori af Dóra
Pelerson og er úr myndasafni, sem Icelandic Canadian Club
of British Columbia gaf Minjasafni frumbyggjanna bar á ald-
arafmæli landnámsins í Nýja íslandi 1975. Robert Ásgeirsson
safnaði myndunum.
,VEISTU UM EINHVERN SEM VILL LEIGJA
LITINN TUNDURSPILLr
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1976
VEL getur komið til greina að Islenzkir varðskipsmenn taki brezka
togara og færi til hafnar, að þvf er Guðmundur Kjærnested.
skipherra á Tý, segir I viðtali við Uli Schmetzer, fréttamann Reuter
um borð f varðskipinu f gær. Jafnframt spáir Guðmundur þvf að
„þorskastrfðið" eigi enn eftir að harðna á næstu vikum.
„Eg er sannfærður um að
átök og árekstrar eiga eftir að
fara vaxandi vegna þess að leik-
reglur beggja aðila verða
grófari og grófari, og allar
athafnir skipanna harðari,"
segir Guðmundur ennfremur í
þessu viðtali. Hann segir enn-
fremur að ef brezku togararn-
ir tækju upp á því að halda sig
frá verndarskipum sinum,
myndu starfsmenn fslenzku
landhelgisgæzlunnar fara um
borð í togarana og reyna að
færa þá til hafnar.
„Sem stendur getum við ekki
farið um borð í þá vegna þess
að freigáturnar vernda þá. Þar
eru 40 menn um borð en hjá
okkur aðeins 25 menn, en ef
togararnir fara að dreifa sér á
Framhald á bls. 8
Söng- og tónlistadómari
dagblaðsins Winnipeg Free
Press hlýddi hugfanginn á
tvær listakonur, sem komu
fram í Winnipeg 22. mars á
vegum “Women’s Musical
Club.” Þó var ánægjan blönd
uð trega.
Winnipeg tapaði miklu þeg
ar þær Heather Ireland og
Ailsa Lawson Zaenker fluttu
þaðan, en borgin vestur á
Kyrrahafsströnd, Vancouver
græddi stórkostlega, segir
Ronald Gibson, en hann er á-
litinn með afbrigðum næm-
ur og dómbær á söng og tón
list.
Heather Ireland er af ís-
lenskum uppruna, dóttir Jó-
hanhesar og Bergljótar
(Beggu) Sigurdson og dóttur
dóttir Guttorms J. Guttorms-
sonar skálds. — Hin fagra
mezzo soprano rödd hennar
vakti athygli í heimaborg
hennar þegar hún var ungl-
ingur og mun hafa átt nokk-
urn þátt í því að hún var fyr-
ir nokkrum árum kjörin
Miss Manitoba, en líka hefur
hún töfrandi yndisþokka til
að bera.
Women’s Musical Club er
víst komið hátt á sextugs
aldur og hefur frá upphafi
tilveru sinnar verið örvandi
afl í söng- og tónlistarlífi
Winnipegborgar. Mánaðar-
lega býður félagið viður-
kenndu listafólki í Kanada
að koma fram á samkomum
þess. Þær Mrs. Ireland og
Mrs. Zaenker voru einar um
skemmtiskrána 11. mars.
Mrs. Zaenker er alin upp
við slaghörpuna. Móðir henn
ar, Mrs. Lawson, er prófessor
í tónlist við Brandon háskól-
ann. Ailsa lék undir söng
Heather og lék verk eftir
fræga snillinga. Þær Heather
og Ailsa hafa haldið fastri
vináttu frá æskuárunum í
Winnipeg og eiga nú sam-
starf um margt vestur á
Kyrrahafsströnd. Mr. Gibson
fer lofsamlegum orðum um
þær í grein sinni, en áheyr-
endur lýstu óblandinni á-
nægju, og þar var fjöldi sam
an kominn.
Það er stórkostlegt að
vera boðið að syngja í Winni
peg á vegum Women’s Music
al Club og þetta var eftir-
minnileg stund, segir íslensk
söngkona, sem var viðstödd,
í HEIMABORGINNI
Mrs. Pearl Johnson. — Hún
segir að Heather hafi alltaf
haft fagra og sterka söng-
rödd og ríkar tilfinningar, en
nú sé tæknin svo þróuð, að
hún hafi sjaldan séð jafn
hraða þroskun.
En hún kann að stilla til-
finningunum í hóf. Hún söng
“Black Roses” eftir Sibilius
af mikilli snilld, segir Mr.
Gibson í grein sinni. Þar tal-
aði viðkvæmur sársauki sínu
máli, en ekki um of.
Heather er gift lögfræð-
ingi, William Ireland og flutt
ist með honum til Vancouver
fyrir nokkrum árum.
TÓKU UPP ÞYKKJUNA FYRIR ELDGÖMLU
ÍSAFOLD
Það er sjaldgæft að dag-
blöðin í Winnipeg halli einu
orði á ísland eða íslensku
þjóðina. Þess vegna er það í
frásögu færandi, að 1 Winni-
pgg Free Press birtist 20.
mars grein, sem gerði íslend-
ingum í borginni svo órótt í
skapi, að þeir létu blaðið ó-
spart heyra til sín, og sumir
hringdu á Lögberg-Heims-
kringlu, vildu að eitthvað
yrði gert í málinu.
Greinin var nafnlaus og
ekki greint frá uppruna
hennar. Hún fynnur landi og
þjóð allt til foráttu. Þess er
getið í upphafi greinarinnar,
að Eiríkur rauði, Ketill flat-
nef og aðrir landnámsmenn
hafi kastað stólum, drykkjar-
ílátum og fatnaði fyrir borð
á siglingum í kringum eyj-
una og sest þar að sem þessa
muni rak að landi, búið um
sig og getið börn, en nú
séu Reykvíkingar, sem svalla
á Hótel Sögu ekki þess megn
ugir að kasta til stólum, enda
sjáist ekki í stólana fyrir
máttvana mannskrokkum. —
Greinarhöfundur telur óvíst,
að þessir karlar séu þess
megnugir að geta afkvæmi
þegar þeir staulist í bólið á
laugardagsnóttum. — Hann
kvartar líka um að sterl-
ingspundið megni litlu á
drykkjukránum í Reykja-
vík. Til dæmis fer eitt gin og
tonic með nærri þrjú pund
sterlings, segir hann.
Um ýmislegt annað er fjall
að í sama tón, en ekki verður
farið út í það frekar hér.
Leifur Hallgrímson, lög-
fræðingur í Winnipeg, gerði
greininni góð §kil í bréfi,
sem birtist í Free Press og
svarar þessum rógburði
skörulega.
Ræðismaður íslands í Win
nipeg S. Alex Thorarinson,
mótmælti greininni í bréfi
til ritstjóra Free Press og
baðst skýringar. Hann fékk
það svar að margar tylftir
manna hefðu símað blaðinu
og komið þar persónulega til
að tjá óánægju sína. Honum
var sagt að greinin væri tek-
in upp úr breska blaðinu
Guardian of London og væri
eftir Alan Waite, en nafn
höfundar hefði fallið úr.
Ritstjórinn, sem svaraði
bréfi ræðismannsins, segir
það vera skoðun sína, að ef
nafn ’nöfunaar hefði verið
birt og jafnframt nafn blaðs-
ins, sem upphaflega birti
greinina, hefðu lesendur taf-
arlaust áttað sig á uppruna
hennar og anda.
Vorveislo í
fundarsal
Fyrstu lútersku
kirkju
Það er ekki hægt að gera
tveimur dagstundum bet
ur skil á vorbjörtum
laugardegi en með 'því að
rabba yfir kaffibollun- .
um í fundarsal Fyrstu
lútersku kirkju i Winni-
peg. Þar er ætíð margt
um manninn og mikið
um úrvals kaffibrauð,
borð fagurlega skreytt
og glatt á hjalla.
Konur Fyrsta lúterska
safnaðar halda sitt ár-
lega “Spring Tea” laug-
ardaginn 24. apríl n.k.
kl. 2.00 til 4.00 e.h. — Að
vanda verður hægt að
kaupa lifrarpylsu, brauð
og annað góðgæti til að
hafa heim með sér, í
neðri sal kirkjunnar. —
Einnig verða þar á boð-
stólum hannyrðir og alls
konar eigulegir munir.