Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 01.04.1976, Qupperneq 4

Lögberg-Heimskringla - 01.04.1976, Qupperneq 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 1. APRÍL 1976 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLI8HED EVERY THURSDAY BY LOGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLISHING Co. Ltd. 67 6T. ANNE'S ROAD, WINNIPEG. MANITOBA R2M 2Y4 CANADA TELEPHONE 247-7798 • EOITOR: CAROLINE GUNNARSSON PRCSIDENT, K. W. JOHANNSON, VICE-PRESIDENT, DR. L. SIOURDSOM, SECRETARY-TREASURER, EMILY BENJAMINSON, ADV'T M ANAGER, 8. ALECK THORARINSON SUBBCRIPTION $16.00 PER YEAR — PAYABLE IN ADVANCE — SECOND CLASS MAILING REGISTRATION NUMBER ISS7 - PRINTTED BY GARD^R PRINTING LIMITED — PHONE 247-6140 ÞORRABLÓT UM ALLA VESTURÁLFU FRÁ VETRI TIL VORS Frá ómunatíð hafa íslendingar haldið upp á Þorrann með innilegri matarást, en sú ást er öllum mönnum 1 blóð borin og við hana halda þeir ævilangri tryggð. Þeir fæðast í þennan heim grátandi af sulti og maturinn einn þaggar niðri í þeim, en það sem eftir er ævinnar njóta þeir sán best þar sem einn eða fleiri sitja saman við matborðið. Það er stað- reynd að ekkert sameinar mannfólkið eins og blessaður mat- urinn. Rauðhærður skoti hefu rsagt mér, að þegar hann var smástrákur hafi hann gengið í lið með íslensku strákunum, sem spiluðu “hockey” á svellunum í vesturhluta Winnipeg- borgar, vegna þess að þeir buðu honum alltaf heim með sér eftir leikinn. Hann vildi síst missa af því að fá rúgbrauð og rúllupylsu með kaffinu, og einhvernvegin fannst honum meira gaman að stinga upp í sig kleinum, sem var hnýtt upp á í miðjunni, en kleinum sem hann fékk heima hjá sér. “Þær voru bara brauð með gati í miðjunni, en hnúturinn í miðj- um íslensku kleinunum var bestur á bragðið,” sagði hann. Hann þarf að komast á þorrablót, borða lyst sína af ís- lenskum réttum og hafa kannski upp á sumum strákanna, sem voru leikbræður hans í gamla daga en nú eru foknir út í veður og vind. Það virðist ekki hafa verið algengur siður í byggðum íslendinga vestanhafs á landnámsárunum, að blóta Þorra með ærlegum átveislum. Það er svo skammt á milli Þorra og jóla að efnahagurinn hefur kannski ekki leyft þeim að halda hverja stórveisluna ofan í aðra. En nú eru þorrablót haldin um alla álfuna, frá vetri til vors, og skiptir það minnstu hvort þau eru haldiryi í fimmtu viku eftir jól eða rúmum sjö vikum fyrir sumardaginn fyrsta. Þorri var allur í bak og burt þegar Islendingafálagið, Norðurljós í Edmonton, Alberta, hélt honum minningamót 6. mars sl., en landamir settu það ekki fyrir sig. Auk ná- grannanna í Calgary, lögðu þeir land undir hjól alla leið frá Winnipeg, Manitoba og frá Wynyard, Regina og Wetaskawin í Saskatchewan til að snæða saman þorramat í Edmonton, syngja, dansa, hlusta á upplestur íslenskra ljóða og hylla skautbúna konu í öndvegi Fjallkonunnar. S. Alex Thorarinson, ræðismaður íslands í Vesturfylkj- unum, gerði sér ferð frá Winnipeg og hélt ræðu um menn- ingu og lífsviðhorf Norrænu frændþjóðanna fimm. Ræðan var í léttum dúr, kýmin og skemmtileg, jók mjög á gleði áheyrenda og bjó yfir sígildum sannleika, segir fréttaritari Norðurljóss, en saga mótsins birtist orðrétt á ensku síðum blaðsins. Ekki fara sögur af þorrablótum annarsstaðar í Vestur- heimi en í Winnipeg á fyrri árum aldarinnar. Þá var það klúbburinn Helgi Magri, sem blótaði þorra með promp og prakt, en nú er Helgi Magri farinn leið allrar veraldar og þeir með honum, sem kunnu sögur af blótunum hans. Marga áratugi varð ekki annað séð en að Þorra-blótin væru líka dauð hér 1 álfu. En lengi lifir í kolunum og á síðari árum hefur verið rösklega skarað í þeim af ungu fólki af íslenskum uppruna, sem hefur dregið sig saman í íslendingafélög. í hinni hálf ensku og hálf frönsku menningarborg, Montreal, í Toronto og í Vancouver vestur á Kyrrahafsströnd, eru nú haldin þorrablót á ári hverju. Þessi forníslenski þjóðsiður er að festa rætur vestanhafs. Hvað hefur viljað honum til lífs? Kannski hafa þorrablótin í gamla daga orðið sjálfdauð vegna þess, að þar fengu allir málsmetandi menn að halda ræður og þær voru, að sögn, þyngri á meltingunni en sjálfur þorramaturinn. Nú hafa þorrablótin tekið aftur sína fornu gleði. Þetta eru átveislur, kryddaðar dansi, söng og fjörugum samræðum. Þessi mót eru ómissandi vestur-íslenskri þjóð- menningu í þessu dreifða mannfélagi, sem hefur misst eigna rétt á öllum götuhornum í Winnipeg. C. G. ATHYGLISVERÐ LJÓÐ VESTUR-ÍSLENSKRAR SKÁLDKONU HAUSTIÐ 1973 kom út á vegum bókaútgáfunnar Helgafells i Reykjavik ljóöabókin Hvlli ég væng i hvitum voftum eftir Binu Bjöms (Jakobinu B. Fáfnis). Margir f hópi hinna eldri Is- lendinga vestan hafs munu minnast hennar. Séra Egill H. Fáfnis, sonur hennar, var á sinni tift vinsæll prestur og vift- kunnur meftal Vestur-tslend- inga, en lézt um aldur fram haustift 1953. (Sjá minningar- grein míúa um hann I Heims- kringlu 17. febrúar og Lögbergi 18. febrúar 1954, og I Timanum 10. júli sama ár.) Dóttir Jako- blnu, Bjarney H. Fáfnis, er utn langt skeift haföi veríö hársnyrj- ingarkona I Fargo, N. Dakota, lézt þar 16. des. 1973, sjötug aö aldri, vinsæl kona og vel metin af þeim, er hana þekktu. Fáfnis- ættarnafnift báru þau eftir aö þau fluttust vestur um haf. Dr. BJÖRN Sigfússon, þáver- andi háskólabókavörftur, bjó þessi kvæfti Jakobinu föftursyst- ur sinnar undir prentun, og fylg- ir þeim úr hlafti meft ítarlegum og prýftilegum eftirmála, er hann nefnir „Umgerft kvæfta og ævi”, og hittir þaft ágætlega I mark, þvi aft hér er æviferill skáldkonunnar rakinn af mikilli nærfærni og ljóft hennar túlkuft meft hann aft bakhjalli af ríkri samúft og sambærilegu innsæi. Hér verftur einnig rakinn ævi- feriíl Jakobinu Björnsdóttur, einsog hún hét aft skirnarnafni, en einungis á þaft minnt, aft þær mæftgur, hún og Bjarney, fóru vestur um haf til Winnipeg haustift 1923, en Egill haffti farift þangaft tveim árum áftur. Jako- bína lézt i Winnipeg 15. april 1941, nærri 67 ára aö aldri. Um Binu-nafnift fer dr. Björn þessum oröum í eftirmála sín- um: „Nafnform Bfnu i titli og ritgerft minni er þaft sem hún sjálf og aftrir notuöu stööugt um hana- i talmáli f S-Þingeyjar- sýslu, tif aftgreiningar frá öftr- um Jakobinum, alloft skriflega einnig. Dr. Björn lætur þess einnig getift, aft þaft hafi verift Bjarn- eyju aft þakka, aft ljóftabók móft- ur hennar kom út heima á Is- landi, og aft Bjarney hafi einnig valift upphafsorft kvæftisins „Farfuglinn” sem bókarheiti og skilgreinir dr. Björn þaö nánar. Og gott er til þess aö vita, aö Bjarney liffti þaft aft handleika og lesa ljóftabók móftur sinnar, og var þaft, aft vonum, mikift fagnaftarefni, aft þvi er mág- kona hennar, frú Ellen Fáfnis, tjáfti okkur hjónum, er hún til- kynnti okkur lát Bjarneyjar. Og sannarlega gat hún eigi reist móftur sinni fegurri eöa varan- legri minnisvarfta en meft þvi aft hlutast til um þaft, aft ljóft henn- ar kæmu út heima á ættjörftinni. Skal nú nokkru nánar aft þeim vikiö, þótt fljótt verfti yfir sögu farift. I bókinni eru 30 ljóft, ort frá þvi aft Jakobina var 17 ára, og þangaft til hún var 66 ára gömul. Ljóft hennar frá yngri árum bera þvi vitni, um annaft fram, hve rik hagmælska var henni i blóft borin. Og ánægjulegt er aö fylgja henni i spor á þroska- braut hennar f skáldskapnum fram eftir ævinni. Frá þvi tima- bili má nefna kvæfti „ölduna” (1905), sem þrungiö er undir- öidu djúpra tilfinninga og tákn- myndin skýrum dráttum dreg- in. Kvæfti hennar um Höllu og Fjalla-Eyvind („Halla” og „Ot- laginn”) eru bæfti efnismikil og um allt hin athyglisverftustu. A þaft sérstaklega vift um hreim- mikift og myndauftugt kvæftift um Höllu, þrungiö sterkri samúftarkennd. Ber kvæfti þetta þvf órækan vott, hve hlut- skipti Höllu og örlög hafa orkaö djúpt á hug skáldkonunnar, eins og fleiri ljóft hennar staft- festa, og ummæli hennar i óbundnu máli, sem dr. Björn vitnar til i ritgerft sinni. Ljóft Jakobinu til móftur henn- ar skipa mikift rúm I kvæöabók- inni, og eru hin merkilegustu aft sama skapi frá skáldskaparlegu sjónarmiöi. Hnitmiftaö og hjartahlýtt er þetta litla ljóft „Til mömmu” (1916): Þeir segja þaft heimskingjans hugarburft, aft handan vift gröf komi dagur. Þeir sjá ekki neitt nema harölæsta hurft, hver hugsjón verftur sem gróöurlaus urft. En ég sé, aö aftur ris dagur, mamma, sá morgunn er fagur! Hér lýsir sér einnig ágætlega sá sterki trúarstrengur, sem er undirtónn i svo mörgum kvæft- um Jakobínu, og hvergi fremur en f sálminum „Sköpunar- saga”. Djúþstæftar æskuminning- arJakobinu veröa henni, aft von- um, ofarlega 1 huga i móftur- kvæftum hennar, og ekki sizt I „Mófturkveöju”, sem er sér- staklega fagurt kvæfti, þrungift einlægni, saknaöarkennd og þakkarhuga. Þrjú siftari erindi kvæftisins eru ágæt dæmi þess, hvernig þar er i strengi gripift: Börn sem i vernd þinni blunduftu rótt, er baöst þú og tárin runnu, veit ég aldrei eiga þá nótt, aft ekki geti til nestisins sótt geisla af guölegri sunnu, . . . gjöf hennar mömmu er þau unnu. Minning þin ofin um árin min er óslitinn gullinn þráftur. ókomins lifs á leift hann skín ljúfustu tárum fáftur. Og maftur er minningum háftur. Þvi hvaft sem þú leiftst í teigstu létt hvert spor meft leiftur I skörpum augum, . . . ástvinar minning og öruggt þor var aflgjafi heilum taugum,.... þau ljós skulu loga úr haugum. En áhrifamest og almennast aft gildi af ljóftum skáldkonunn- ar til móftur hennar er þó kvæö- iö „Farfuglinn” (1936), sem á sér, eins og þaft ber vitni, djúpar rætur I persónulegri reynslu, sem dr. Björn lýsir i eftirmála sfnum. Þaft ýar I upphafsorft þessa kvæftis, sem Bjarney sótti titilinn aft ljóftum móftur sinnar. Tel ég kvæfti þetta eitt hift ágæt- asta I bókinni, bæfti um efni og ljóöform, og táknrækt i rikum mæli. Verfta menn þvi aö lesa þaft I heild sinni til þess aö njóta þess til fullnustu. Af skyldum toga spunnift er lokakvæfti bók- arinnar, „Finnast þau spor?” (1939-1941), hugsun hlaftiö og þrungiö djúpri ættarkennd. Fyrr og síftar á ævinni orti Jakobina vel kveftin og athyglis- verft tækifæriskvæfti á glefti- og sorgarstundum, áftur en hún fluttist vestur um haf, og þeim megin hafsins. Ljóftabókin er hin snyrtileg- asta aö frágangi. Framan viö hana er ágæt mynd af skáldkon- unni. Bókarprýfti er aft kápu- myndinni, sem fellur einnig vel aft innihaldinu. Hana teiknafti Hólmfriftur Bjartmarsdóttir á Sandi, S. Þingeyjarsýslu, en kvæftin eru eftir afasystur henn- ar. Richard Beck SyýJlí Honum er best að sýna sig ekki í Winnipeg, karlinum sem talaði ljótt um ísland í grein, sem birtist í einu dag- blaðinu á dögunum. Honum yrði það kannski á að fá sér vatnsblöndu í glas og 'þá gæti það gloprast upp úr honum hvað hann heitir. Svo pískr- aði hann því kannski að ein- hverjum að þessi smart grein væri út af sér komin. — 30 þúsund íslendingar mundu finna þetta út á mín- útunni og þá væn manngrey ið alveg búinn að vera. „Hver sagði þér að hann Ketill Flatnef hafi hent frakkanum sínum út í sjó og byggt bæinn sinn þar sem hann kom í leitirnar á ís- landi”, mundi einhver spyrja „Þetta hefur verið forláta flýk, að hún skildi ekki verða sókuð af vatni og bara sökkva. — Voru víkingarnir kannski farnir að ganga í regnkápum? — Hann Ketill Flatnef, sem aldrei komst til tslands!” Það kemst enginn upp með það í Winnipeg að tala illa um Eldgömlu ísafold. Eg er að hugsa um að bródera 30 þúsund flögg með “íslend- < . ingar viljum við allir vera.” Þau mundu seljast á meðan okkar Winnipeg æslenders er að renna reiðin. „Kanski manngreyið hafi fengið íslenskt brennivín út í kaffið sitt og ekki þolað það af því hann er með kveisu út af þorksstríðinu,” sagði ég við einn landann hérna í Winnipeg þegar hann fónaði mér um þetta, „svo var hann að flækjast á íslandi með nokkur pund af breskum peningum og þau fljóta kannski ekki vel í Reykiavík nú sem stendur, . sökkva bara til botns í einu staupi of skosku viskí,” sagði ég- „Hann hefur nú bara feng ið náttmeri í rúminu sínu heima á Englandi og farið á henni til Reykjavíkur ein- hverja nóttina eftir að hann hefur étið offylli sína af ís- lenskum þorski,” sagði land- inn. „Hann finnur ekki snjó á íslandi til að grafa í tómu flöskurnar sínar, svo e;f hann á eftir að fara til Reykjavík- ur ætti hann að hafa með sér nóg af einhverju öðru til að hlaða í kringum þær, hann á nóg af því — þú veist hvað ég meina.” Þessi maður má ekki hætta sér út i stríð við víkingana í Winnipeg. Betra væri honum að fara á freigátu til íslands, kasta sér fyrir borð eins og öndvegissúlu og halda til inn an í einhverjum hvalnum í nokkra mánuði. C.G.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.