Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 01.04.1976, Qupperneq 8

Lögberg-Heimskringla - 01.04.1976, Qupperneq 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 1. APRIL 1976 JUippt oq Skuhid SlfJtÍA ýaAjctaA 'ýaAitaAAADn Menntamálaraðuneytið hefur með samþykkt ríkisstjóm arinnar ráðið stórmeistarana Friðrik Ólafsson og Guð- mund Sigurjónsson til þess að annast skákkennslu í skólumj útvarpi og fjölmiðlum. Þann 5. febrúar var sagt frá hækkun kaffis, hér í þess- um þætti (Klippt og Skorið). Kaffið hækkaði þá um 17,2% eða úr 512 kr. í 600 krónur. — Nú hefur kaffið hækkað enn og hækkar úr 600 kr. kílóið í 720 krónur eða um 20% sem svarar rúml. $4 kílóið, er þessi hækk- un afleiðing frostskemmdanna sem urðu á kaffi í Brasilíu á sl. hausti. Útlit er fyrir að ferðamannastraumur til íslands verði með meira móti í sumar. Á sumum hótelum borgarinn- ar eru pantanir 10—15% meiri en á sama tíma í fyrra. Varðskipið Ægir klippti á togvíra bresks togara um ' miðjan þessa mánaðar, og varð það til þess að skip- stjórnarmenn bresku freigátnanna á miðunum út af Austfjörðum umhverfðust algerlega, og sigldu Juno og Mermaid alls sjö sinnum á varðskipin Tý og Þór. Það miklar skemmdir urðu á Þór að skipið varð að fara inn til Seyðisfjarðar í nótt sem leið enda skipið illa leikið fyrir. Einnig munu töluverðar skemmdi rhafa orðið á freigátunni Mermaid. Varðskip af Asheville-gerð, sem Landhelgisgæslan hef- ur verið að reyna að fá keypt eða leigð í Bandaríkjun- um, henta ekki vel í Norðurhöfum þa rsem áhrif ísing- ar draga úr sjóhæfni þeirra að sögn bandaríska sjóhers- ins, er leitað var álits hans á skipunum vegna frétta um að íslenska landhelgisgæslan hafi augastað á þeim. Þrjátíu menn hafa undirritað yfirlýsingu þess efnir að þeir vilji stofna hlutafélag um rekstur leiguflugfélags, sem taki við þar sem rekstri Air Viking sleppir, (en það félag hefúr verið úrskurðað gjaldþrota). Áfengi og tóbak hækkaði á íslandi um 20. mars um 15% . Sígarettupakkinn kostar nú 220.00 krónur ($1.24), flaska af pólsku vodka kostar 3.500.00 krónur (19.77). 15% er meðalhækkunin, en sumar áfengistegundirnar hækka um allt að 18%. Tekjur ríkissjóðs í ár eru áætl- aðar um 60 milljarðir, þar af um 6 milljarðir eða 10% vegna áfengis og tóbaksnautnar landsmanna. Á næstu dögum verður að öllum líkindum heimiluð allt- að 10% hækkun á bensíni og kostar þá lítirinn 65 til 66 krónur (c.a. $1.60 gallonið). Nú er beiðni tryggingafélaganna um hækkun á iðngjöldum bílatrygginga til athugunar. Félögin hafa farið fram á 64% hækkun á iðngjöldum. — Ríkisstjórnin hefur leyft 6% hækkun á innlendu kexi — 27% hækkun á hitaveitugjöldum — 30% hækk- un á afnotagjöldum útvarps og sjónvarps — 14% hækk- un gjaldskrá efnalauga — 5% hækkun á gjaldskrá rak- ara, og Strætisvagnar Reykjavíkur og Kópavogs hafa óskað eftir 35% hækkun. Sextíu og þriggja metra hátt mastur brotnaði í Búr- fellslínu 1 í óveðri sem gekk yfir ísland á dögunum, mastrið sem brotnaði, stóð á vesturbakka Þjórsár skammt N.A. af Skarði í Landssveit. Síðastliðið sumar var mastrið og fleiri möstur sem bera línuna uppi, styrk, en styrkingin reyndist ekki næg þegar til kom. Þetta er fimmta mastrið, sem brotnað hefur í þessari línu frá 1969. Næsta sumar verður feiti blandað í grasköggla í öllum fimm graskögglaverksmiðjunum, sem starfandi eru í landinu. Er þetta gert til að auka fóðurgildi grasköggl- anna en ætlunin er að blanda um 4% af tólg og lýsi í þá auk hæfilegs magns af steinefnum og auka þannig fóðurgildi þeirra. Mikil innflúensa herjar nú á Siglufirðinga og er svo komið að stór hluti nemenda Gagnfræðaskólans liggur í rúminu. Þá voru vandkvæði við að koma verksmiðju SR í gang, þegar átti að hefja loðnuvinnslu. þar sem margir starfsmannanna eru veikir. Gjafmildi í garð Listasafns Islands LISTASAFNI íslands berast oft góðar gjafir listaverka og síðasta stór- gjöfin var afhent safninu skömmu fyrir síðustu áramót. Er þar um að ræða 24 málverk eftir ýmsa kunna islenzka list- málara, en þessi málverk eru arfur til Listasafns- ins frá Guðríði Stefáns- dóttur Green, sem gift var Kirby Green og bjuggu þau í Banda- ríkjunum. í Meðal málara þessará tuttugu og fjögurra mynda eru Kjarval, Túbals, Eggert Guð- mundsson, Finnur Jóns- son, Guðmundur Einars- son, Asgeir Bjarnþórs- son, Gunnlaugur Schev- ing og Nína Sæmunds- son. MORGUNBLAÐIÐ, Mynd sem Kjarval gerði af Guðriði Stefánsdóttur. ----- - á EDMONTON Framh. bU. 3 of Iceland, from Winnipeg. He gave a delightfully light- hearted survey of the five Nordic cultures — their per- sonality characteristics, work ethic, morals and gen- eral attitude to life. These observations were developed on a visit to the five countri- es, and although the humour was abundant, there was a lot of underlying truth as well. After the formal program, guests danced to the music of Bud’s Combo, an exellent trio led by Bud Bergthorson, originally of the Wynyard district, who has been enter- taining in Edmonton for twenty years. There were many out-of- town guests at the Thorra- blot this year, from Wyn- yard, Regina, Calgary and Wetaskawin. It was great to have all these people join in the celebration. Les Greenham, recipient of the Viking of the Year award, acted as marshall for the evening, keeping food lines moving, dances varied and tending to other neces- sary business. A1 Arnason and his com- mittee are to be thanked for the excellent arrangements which resulted in the succes- sful celebration of Thorra- blot for the second time in Edmonton. TUNDURSPILLI Framh. af bls. 1 stærra svæði verður taka mögu- leiki,“ sagði Guðmundur ennfremur. Hann sagði ennfremur, að athafnir freigátnanna og varð- skipanna væru orðnar full fífl- djarfar með tilliti til vetrarveð- urs og sjólags á Islandsströnd- um. Um hinn mikla fjölda árekstra á miðunum sagði Guðmundur hins vegar: „Það er hægt að koma í veg fyrir þá, en við styðjumst ekki við sömu reglur — við Islendingar förum eftir alþjóðareglum en Bretarn- ir notast við gömlu heimsveldis- reglurnar, þar sem hinn sterk- ari hefur ávallt réttinn sin megin.“ ____ Guðmundur sagði ennfremur að merkja mætti mun á stjórn- hæfni yfirmanna freigátnanna. „Svo virðist sem sumir þeirra háfi aldrei starfað i hinum þunga sjó N-Allantshafsins og hafi litla reynslu í hertækni af þessu tagi. Þeir þekkja ekki einu sinni inn á starfshætti fiskimannanna og hvernig þeir athafna sig á skipum sínum meðan skipherrar okkar, yfir- menn og hásetar hafa allir unnið á fiskiskipum löngu áður en þeir réðust til landhelgis- gæzlunnar." Um ásakanir Breta i þá veru að víraklippingar varðskipanna gætu valdið sjórslysum og jafn- vel dauðsföllum brezkra togara- manna sagði Guðmundur. „Við höfum skorið á 130 vörpur í þorskastrfðinu og það hafa ekki orðið nein slys nema hvað 2 brezkir fiskimenn hafa fengið taugaáfall. Þeir (togaraáhafn- irnar) vita að við nálgumst þá og hafa nægan tima til að forða sér frá hættustöðum þar sem vírinn gæti lent áþeim.“ Guðmundur sagði enn- fremur, að afli Breta hér við land hefði dregizt verulega saman þar sem skipstjórum tog- aranna væri ekki heimilað að fiska þar sem þeir vildu og vegna tapaðra vinnustunda af völdum varðskipanna, þegar togararnir hafa orðið að hífa inn veiðarfærin. „ÞeiF fá nú aðeins smáfisk meðan fiskimenn okkar fá góðan afla úti af suðvestan- verðu og vestanverðu landinu, þar sem brezku togararnir væru nú að veiðum ef ekki kæmi til að freigáturnar þola ekki sjóþungann og ísinguna og þessum slóðum," sagði Guð- mundur og bætti við: „Það er ekki laust við að ég finni til með togaraskipstjórunum, sem verða að standa í brúnni allan sólarhringinn til að gæta að ferðum okkar." Loks var Guðmundur su- ður um fyrirætlanir um kaup eða leigu á hraðskreiðari skipum til að vinna upp gang freigátnanna. „Mér þætti akkur i þvi að hafa aðgang að litlum tundurspilli, sem gengi 35 til 40 hnúta, en með sliku skipi treysti ég mér til að stöðva öll fiskiskipin. Ef þú veizt um ein- hvern sem er tilbúinn að leigja mér eitt af þessum skipum, vin- samlega láttu mig vita.“ MESSUBOÐ FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA JOHN V. ARVIDSON. PASTOR Súni: 772-7444 * Sunday School 9.45 Services Sundays 9.45 and 11.00 a.m. Icelandic Service APRIL 25lh — 7 o'clock MIDNIGHTSUN FLIGHT WINNIPEG to ICELAND Deluxe Service — Air Canada — DC8. Advanced booking Charter I.D. No. 76-2037. Departing June 29, returning July 26. Return fare including "Missed Flight Insurance'' $375.00 per person.-------Not included js $8.00 Can. Transp. Tax. — $100.00 payable on booking, balance payable by April 30, 1976 ---------Your Travel Agent: VIKING TRAVEL LTD. 37 Macklin Avenue, Brance Office, Gimli Winnipeg, Manitoba R2V 2M4 P.O. Box 1499 R0C 1B0 Tel: (204) 338-1161 Tel: (204) 642-8276

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.