Lögberg-Heimskringla - 31.03.1977, Síða 4
4
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 31. MARS 1977
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 31. MARS 1977
5
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA
Published every Thursday by
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLISHING Co. Ltd.
67 st. Anne’s Road, Winnipeg, Manitoba R2M 2Y4 Canada
Tdlephone 247-7798
GUEST EDITOR: Jón Ásgeirsson
PRESIDENT: T. K. Arnason
SECRETARY: Emily Benjaminson
TREASURER: Gordon A. Gislason
ADV’T MANAGER: S. Aleck Thorarinson
Subscription $15.00 per year — PAYABLE IN ADVANCE
— Second class maiting registratíon number 1667 —
Printed by GARDAR PRINTING LIMITED, Winnipeg '
IVEGVÍSA VANTAR .
HVAÐ HEITA BÆIRNIR?
Lögberg-Heimskringla birtir í dag grein, þar sem segir frá
fyrstu beimsókn ritstjóra blaðsins norður til Gimli og víðar.
Þar er jafnframt greint frá því, að Gunnar bóndi á Breiða-
bliki Sæmundsson fór með komumönnum í ökuferð um sveit
ina þar í grennd, og sagði hann þá frá nöfnum bæja og land-
areigna um leið og ekið var hjá.
Létu flest nafnanna kunnuglega í eýrum, enda alíslensk,
Skálholt, Þingvellir, Oddi, Austurvellir, Hagi.
Nú er það svo, að oft er þarna mikil umferð, og sjálf-
sagt frekar fátítt, að ferðalangar hafi sér við hlið í bílnum
menn sem þekkja hverja þúfu, og geta sagt frá staðarheit-
um. Og þá vantar vegvísa. Það vantar skilti með nafni við-
komandi bæjar á þjóðveginn, skilti, sem vísar heim að bæn-
um.
Þetta yrði til þess að auðvelda ferðafólki að rata, það
yki a ánægju þeirra, sem koma fyrsta sinni á þessar slóðir,
og þetta'yrði til þess að líkurnar á því, að nöfn bæjanna falli
j gleytnsku minnkuðu til muna.
Auk þessa yrði prýði að fallegum skiltum á þjóðvegin-
um.
I sumar er von á fjölda íslendinga hingað, og ætla má
að flestir þeirra ferðist eitthvað um íslendingabyggðir hér í
Kanada. Og þó að þessar slóðir, sem við fórum um að þessu
sinni, séu hér teknar sem dæmi, þá er vafalaust sama uppi
á tenmgnum víða annars staðar. Það er ekki háK ánægja
fyrir íslendinga, sem hingað koma í fyrsta skipti, að ferðast
um, án þess að hafa hugmynd um hvað bæirnir, sem farið
er hjá heita. Vegavísar myndu því auka ánægju ferðalanga
mjög, á því er ekki minnsti vafi. Auk þess er þetta beinlínis
menningarauki. Þessi íslensku nöfn mega ekki gleymast, og
það ber að haldajþeim á lofti. t <
Það eru ekki ýkja mörg ár síðan farin var eins konar
herferð á íslandi, og vegavísar settir upp um allar sveitir. —
Allir merkisstaðir voru merktir, og bændur voru hvattir til
að merkja bæi sína. Þetta bar verulegan árangur, og hefur
áreiðanlega óft komið sér vel fyrir ferðalanga.
Nú veit ég ekki hvaða aðilar ættu að hafa forgöngu um
slíkt hér. Á íslandi var það, ef ég man rétt, Náttúruverndar-
ráð, sem gekkst fyrir því, að allir þeir staðir, sem eru í um-
sjá ráðsins, voru merktir, og einnig lét Ferðamálaráð þetta
til sín taka. Ef til vill fleiri.
Hverjir ættu að annast þetta hér? Það er sjálfsagt mis-
munandi eftir héruðum, eða fylkjum, en æskilegast væri að
einhver einn aðili, eitt félag, eða stofnun, hefði yfirumsjón
með þessu, og saéi um að samræmi væri í gerðum þeirra,
sem síðan tækju þetta að sér á hinum ýmsu stöðum.
Ef til vill er hér tækifæri, verkefni, fyrir íslendingafé-
lögin um allt land.
Lögberg-Heimskringla mun fylgjast með þróun þessara
mála í framtíðinni og leitast við að birta fréttir af því, sem
gerist í þessu sambandi, ef það gerist þá eitthvað.
Hvað finnst lesendum um þetta? Hver er skoðun þeirra,
sem sitja í stjórnum íslendingafélaganna? Fróðlegt væri að*
fá álit sem allra flestra á þessu máli.
Við höfum aðeins farið um lítinn hluta íslendinga-
byggða, og sú ferð varð til þess, að þessar hugleiðingar eru
settar á blað. Sjálfsagt er mismunandi, eftir héruðum, hvern
ig þessu er háttað, ef til vill eru vegvísar í sumum sveitum,
en á þeim slóðum, sem við fórum um eru engir. Og eftir að
hafa heyrt öll þessi íslensku bæjarnöfn af vörum Gunnars
bónda á Breiðabliki, finnst okkur ástæða til að koma þessu
á framfæri hér í bláðirtu.
Islensk bæjarnöfn í Kanada mega ekki falla í gleymsku,
þeim ber að halda á lofti. Það má t.d. gera með því að setja
upp vegvísa. Þeir vísa líka veginn. '.,
FARK> I HEIMSOKN
Sunnudaginn 20. mars fór rit
stjóri Lögbergs-Heims-
kringlu í heimsókn að Gimli.
Breiðabliki og Odda. Heim-
sókn þessi er fyrir marga
hluta sakir í frásögu fær-
andi. Margt nýstárlegt bar
fyrir augu og eyru, margt at-
hyglisvert og lærdómsríkt
fyrir mann, sem er nýkom-
inn til Kanada og heimsækir
þessa staði í fvrsta skipti.
frá Siglufirði og dóttih
þeirra Vala, sem verður
tveggja ára eftir fáeina daga.
Þau þrjú síðastnefndu hafa
verið í Winnipeg frá því í
haust. Eftir stuttan stans á
heimili þeirra Marjorie og
Teds héldum við Garðar,
Álfheiður og Hulda áfram
norður til að heimsækja
Margréti og Gunnar Sæm-
Fánar blöktu hjá T«d 09 Marjoria á Gimli
Fyrst var farið að Gimli.
Tekið var hús á Marjorie og
Ted Árnasvni og þeginn
kaffisapi hjá þeim. Með í
förinni voru Garðar prent-
smiðjustjóri Garðarsson, Álf
heiður kona hans og Hulda
dóttir þeirra, Tryggvi Árna-
son frá Akureyri, Björg
Skarphéðinsdóttir kona hans
undsson, bónda á Breiðabliki
í Gevsisbvggð.
Þar var okkur tekið tveim
ur höndum og boðið upp á
kræsingar. Þá fannst undir-
rituðum engu líkara en hann
væri kominn á alíslenskt
sveitaheimili.
Gunnar er maður fjolfróð-
ur, hann er fæddur í Kanada
fyrir 68 árum, og talar rei-
prennandi íslensku, hefur
lýtaláusan framburð og býr
yfir miklum orðaforða.
Hann fór með okkur Garð
ari í ökuferð um nágrennið,
og sagði okkur þá frá því,
sem fyrir augu bar, og það
var hreint ekki svo lítið, sem
Gunnar gat frætt okkur um.
Var einkar skemmtilegt að
heyra Gunnar segja frá þvi,
hvað bæirnir heita — allir
íslenskum nöfnum, utan
einn, hverjir búa á hinum
ýmsu jörðum, sem við ókum
hjá, 'hverra manna það fólk
er o.s.frv. Það þarf meira en
stutta ökuferð síðdegis á
sunnudegi til að meðtaka all
an þann fróðleik, sem Gunn-
ar miðlaði okkur.
Okkur bar að garði í Odda
um miðjan dag í glampandi
sólskini. Þar búa tveir bræð-
ur, Einar og Franklin John-
son. Einar var á hlaðinu að
dunda við traktorinn og
tóku þeir stráx tal saman, á
íslenzku, Gunnar og hann. —
Þeir ræddu veðurfar og bú-
skaparhorfur eins og sveita-
manna er siður, og innan
skamms kom svo Franklin
akandi á annarri dráttarvél.
Hann hafði verið að sinna
kindunum, sem hann sýndi
okkur síðar. Eg er því miður
ekki nógu vel að mér í sauð-
fjárvísindum til að geta haft
eftir allt það, sem Franklin
hafði að segja okkur um roll
urnar sínar, en skemmtilegt
Gunnar bóndi Sæmundsson
var á að hlýða.
Við kvöddum bræðurna i
Odda reynslunni ríkari og
héldum ökuferðinni áfram.
Hundarnir í Odda fylgdu
okkur úr hlaði að gömlum
og góðum hundasið með við
eigandi hljóðum eins og þeir
væru að bjóða okkur að
koma aftur í heimsókn. Það
má vel vera að við þiggjum
það.
Að Breiðabliki komum við
svo aftur er degi var tekið
að halla. Þá 1 eiddi Gunnar
okkur í' enn nýjan heim. —
Hann sýndi okkur bækurn-
ar sínar. Um það, sem þá bar
fyrir augu mætti skrifa langt
mál, en verður ekki gert að
sinni, en þá varð okkur enn
betur ljóst hve djúpt hinar
íslensku rætur geta legið í
sómamönnum eins og Gunn-
ari Sæmundssyni.
Frá Breiðabliki var enn
haldið að Gimli. — Þá voru
komnir fleiri gestir til Marj-
og Teds. Fríða fráfarandi rit
stjóri þessa blaðs Björnsdótt
ir og Valur sonur hennar,
Stefán J. Stefánsson og Olla
kona hans. — Og enn voru
fram bornar veitingar.
Þar dvöldum við svo 1
góðu yfirlæti fram eftir
kvöldi, og héldum svo aftur
heim til Winnipeg. — Ted
kvaddi okkur á hlaðinu. og
fór svo að taka niður flöggin,
en í tilefni dagsins hafði
hann dregið þrjá fána að
húni, íslenska fánann, kanad
íska fánann og fána hátíðar-
innar að Gimli 1975.
Og þar með lauk þessari
sunnudagshátíð okkar. Þessa
ferð fór ég í boði þeirra
Garðars og Alfheiðar. Þau
hafi bestu þakkir fyrir.
ja.
Pennavinir
Við höfum fengið bréf frá
tveimur stúlkum, sem báð
ar óska eftir að skrifast á
við kanadíska jafnaldra
sína. — Þær heita Jenny
Ragnarsdóttir Brekkugötu
3, Hrísey og Guðrún Ás-
geirsdóttir, Hafralæk, Að-
aldal Suður Þingeyjar-
sýslu. Þær vilja skrifast á
við krakka 16 til 18 ára.
Eg óska eftir pennavinum
á aldrinum 10 til 13 ára,
sem skrifa á ísienzku.
Sigurbjörn Hjaltason,
11 ára.
Austurbrún, Djúpavogi,
Iceland.
I
- Eg heiti Gerður og mig
langar til að komast í
bréfasamband við ein-
hverja, sem skrifa ís-
lenzku. Eg er 12 ára og á
heima LKeflavík;
Gerður Jóna Úlfarsdóttir
Kirkjuvegi 28, Keflavík
Iceland.
Guðrún Ingólfsdóttir,
Heiðmörk 29, Hveragerði
og Hrönn Þorsteins Wilkc
Þelamörk 42, Hveragerði,
óska eftir pennavinum
bæði strákum og stelpum
á aldrinum 13 til 15 ára.
Þær eru sjálfar 13 ára. —
Þær hefðu gaman af að fá
mynd með bréfunum.
Óska eftir að fá að skrif-
ast á við krakka á aldrin-
um 18 til 20 ára.
Steinunn Stefánsdóttir,
Þóroddsstöðum,
Ólafsfirði, Iceland.
*Óska eftir að fá að skrif-
ast á við krakka á aldrin-
um 14 til 16 ára.
Ólöf Kristín Stefánsdóttir
Þóroddsstöðum,
Ólafsfirði, Iceland.
Eg óska eftir íslenzkum
pennavinum á aldrinum 5
—7 ára, bæði strákum og
stelpum.
Elfa S. Elfarsdóttir,
Sjólist, Stokkseyri,
Iceland.
Eg óska eftir íslenzkum
pennavinum, strákum og
stelpum, á aldrinum 10 til
12 ára. Áhugamál: hand-
bolti, sund, leikfimi, körfu
bolti og margt fleira.
Valgerður Þ. Elfarsdóttir,
Sjólyst, Stokkseyri,
Iceland.
lóska eftir pennavinum,
sem eru 16 ára. Áhugamál
in ^ru: frímerki, mynda-
söfnun.
Sigrún Tryggvadóttir,
Mávahlíð 20. Reykjavík,
Iceland.
Við erum tvær stelpur a
íslandi og okkur langar til
að komast í kynni við
stelpur og stráka á aldrin
um 13 til 15 ára. Við er-
um 13 ára. Æskilegt væri
að fá mynd með fyrsta
bréfi.
Jóhanna Árnadóttir,
Smáratúni 11, Keflavík,
Iceland
Herborg Valgeirsdóttir,
Hátúni 5, Keflavík,
Iceland.
Mig langar til að skrif-
ast á við íslenzka krakka
í Kanada, bæði stelpur og
stráka. Eg er 19 ára og ég
hef áhuga á útilífi, bókum
og músík.
Helen Jónsdóttir,
Aragötu 8.
Reykjavík, Iceland.
Franklin Johnson kvaddi okkur á hlaSInu
auglýsið í
LÖGBERGI-
HEIMSKRINGLU
Títibpí oq $kohid
225% aukning hjá ISCARGO. Flutningar hjá íslenska
flugfélaginu ISCARGO frá Rotterdam til Reykjavíkur
jukust um 225% fyrstu tvo mánuði þessa árs, miðað
við sama tíma árið á undan. Heildarflutningar frá Evr-
ópulöndum jukust um 114% á sama tíma. Meginástæð-
urnar fyrir þessari gífurlegu aukningu, eru einkum
tvær að sögn forráðamanna fyrirtækisins. íslensk fyrir
tæki eru farin að nota flugvélar meira til flutninga á
varningi, og svo hefur Iscargo nú tekið upp samstarf
við hollenskt fyrirtæki, Bleckmann, sem annast dreif-
ingu fyrir mörg útflutningsfyrirtæki í Evrópu.
AUKNING HJÁ FLUGLEIÐUM 6.9%. Flugvélar Flug-
leiða, þ.e. Flugfélag íslands, Loftleiða og International
Air Bahama fluttu á síðasta ári samtals 714,394 farþega.
Gildir þetta bæði fyrir áætlunarflug og leiguflug, og er
það 6.9 % aukning frá því árið áður. í fyrra var í fyrsta
skipti farið í leiguflug með pílaghíma milli Kanó í
Nígeríu og Jeddah í Saudi-Arabíu og voru fluttir alls
15,859 farþegar á milli þessara staða.
MJÖG GÓÐ AÐSIÓKN hefur verið að leikhúsum
Reykjavíkur í vetur. Hjá Leikfélagi Reykjavíkur hefur
sætanýting verið um 90%, og um 35 þúsund gestir hafa
komið í Iðnó í vetur. Þjóðleikhúsið hefur fengið um
70 þúsund gesti, sem af er vetri, og haldi fram, sem
horfir í leikhúsunum tveim, þá verða leikhúsgestir í
vetur um 200 þúsund alls. Lætur því nærri að aðsóknin
jafngildi því, að hvert einasta mannsbarn fari í leikhús
einsu sinni á ári. Það er sjálfsagt heimsmet.
HELGI ÓLAFSSON TEFLIR í KALIFORNÍU. Helgi
Ólafsson skákmaður tekur þátt í skákmóti í Lone Pine
í Kaliforníu um þessar mundir. Ekki er vitað með vissu
hve margir skákmenn taka þátt í þessu móti, en í fyrra
voru þeir milli 50 og 60, þar af um 20 stórmeistarar. —
Bandarískur milljónamæringur fjármagnar þetta mót
og eru fyrstu verðlaun 10 þúsund dollarar. Petrosjan
sigraði í fyrra.
ISLENDINGUR RÁÐINN TIL STARFA í KENYA. —
Gunnar Pálsson, deildarstjóri hefur verið ráðinn til
starfa við sérstakt verkefni á vegum norræna sam-
vinnusambandsins, og verður aðsetur hans í Mombasa í
Kenya. Tómasi Sveinssyni hafði verið boðið staðan, en
hann gat ekki tekið við 'henni. Um 300 umsækjendur
voru um 11 stöður, þar af ellefu frá íslandi. Fleiri stöð-
ur hafa verið auglýstar á íslandi. Þá má geta þess, að
Guðjón Illugason, skipstjóri er nú í Kenya til að kynna
sér aðstæður og möguleika á fiskveiðum, en Guðjón
hefur víða farið í sama tilgangi.
ÍSLENDINGAR HAFA NÚ VEITT um 530 þúsund lest
ir af loðnu. Á vertíðinni í fyrra veiddust alls um 300
þúsund lestir. — Aflahæsta skipið, Sigurður RE hefur
fengið rösklega 20 þúsund lestir á vertíðfnni í ár.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS HEFUR TEKIÐ NÝTT er-
lent lán. Lánið var tekið í Þýskalandi og er 50 milljónir
marka, eða um 4000 milljónir íslenskra króna.
HERNAÐARTÆKNI OG “ÞORSKASTRÍД. — Út er
komin ný bók hjá Universitetsforlaget í Oslo og IPC
Science and Technology Press Ltd. i Guldford. Bókin
hytir “New Strategic Factors in the North-Atlantic”
og í henni er meðal annars fjallað um útfærslu land-
helgi og “þorskastríð” þ.e. baráttu íslendinga og Breta
um fiskveiðiréttindi við ísland. Efni bókarinnar er að
verulegu leyti byggt á niðurstöðum ráðstefnu, sem hald
in var á vegum Atlantshafsbandalagsins árið- 1975, í
Reykjavík. Björn Bjarnason skrifstofustjóri í Forsætis-
ráðuneytinu er einn af höfundum bókarinnar.
BORGAREÓKASAFNIÐ lánaði á síðasta ári 1.040.244
bækur. Það er nokkru minna en árið þar á undan. Þetta
jafngildir því, að á árinu hafi verið lánaðar um 12 bæk-
ur á hvern Reykvíking. Hver bók er að jafnaði lánuð
fjórum sinnum á ári.
2500. FUNDUR BÆJARSTJÓRNAR AKUREYRAR. —
Nýlega var haldinn 2500. fundur bæjarstjórnar Akur-
eyrar. Allir aðalfulltrúar í bæjarstjórninni sátu fund-
inn, auk bæjarstjórans Helga M. Bergs. Forseti 'bæjar-
stjórnarinnar er Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri. —
Elsti núlifandi bæjarfulltrúi á Akureyri er Halldóra
Bjarnádóttir, sem nú er 103 ára, býr á Blönduósi og
gat ekki komið því við að sitja fundinn, en henni var
boðið til fundarins, eins og öðrum fyrrverandi fulltrú-
um. í tilefni þessara tímamóta bæjarstjórnarinnar var
samþykkt samhljóða að verja 2.5 milljónum króna til
skráningar sögu Akureyrar.
Lægstu Þotufargjöld
beinaleið til Islands
frá Chicago
Loftleiðir (Icelandic Airlines) gefa nú völ á áætl-
unar þotuflugum til íslands frá New York EÐA CHI-
CAGO! Allt fyrir lægri þotufargjöld, en nokkur önnur
áætlunar flugþjónusta hefir upp á að bjóða til Islands
og Luxembourg, í miðpunkti Evrópu.
Einnig reglubundin áætlunar þotuflugþjónusta frá
New York eða Chicago, með Island í leiðinni, til Oslo,
Kaupmannahafnar, Stockholms, Glasgow og London.
Þú getur staðið við og litast um á íslandi, á leiðinni
til annarra Evrópu landa, án þess að borga auka far-
gjald.
Leitaðu fullra upplýsinga og ferðabæklinga hjá
ferða agentum. 'eða hafðu samband við:
ICELANDIC LOFTLEIDIfí
620 Fifth Ave., New York, N.Y. 10020; Ph. (212) 757-8585
18 S. Michigan Ave., Chicago, 111. 60603; Ph. (312) 372-4806