Lögberg-Heimskringla - 13.10.1977, Blaðsíða 6

Lögberg-Heimskringla - 13.10.1977, Blaðsíða 6
6 LOGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 13. OKTOBER 1977 JÓN TRAUSTI ANNA FRÁ STÓRUBORG SAGA FRÁSEXTÁNDU ÖLD é ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ REYKJAVÍK Maðurinn, sem undir bagganum var, missti jafnvægið og steyptist áfram og bagginn á hann ofan. Lengi ]á hann og brauzt um með baggann ofan á höfðinu, áður en hann fékk velt honum af sér. Hjalti stóð á meðan og hló að honum. En þegar maðurinn var laus undan bagganum og reis upp sá Hjalti, að það var ekki ráðsmaðurinn, heldur einn af land sctum húsmóðurinnar, sem Eyvindur hét. Hann var þar í vinnu um daginn. Það var gamall maður, stór vexti, hægur og hversdagsgæfur, en þungur á brúnina og illur, ef hann reiddist. „Biddu við, Hjalti minn!” mæltí hann blár og þrútinn i framan, og röddin skalf af reiði. „Seinna koma sumir dag- ar, en koma þó. Hamingjan hossar þér hátt núna, en svo verður ekki alltaf. Einhvern tíma leggur guð hönd sína á þig. Þá kanntu að minnast þess, hvað það er að særa gaml- an mann.” Meira fékk hann ekki sagt að sinni^ því að hann fékk hóstakviðu og hóstaði upp blóði. Hjalti stóð höggdofa og ráðalaus. Þessum manni hafði hann ekkert illt viljað gera. Hann færði sig hægt nær hon- um og langaði til að biðja hann fyrirgefningar. „Farðu bölvaður!” æpti Eyvindur gamli af mikilli reiði og steytti að honum hnefann. I því kom önnur blóðgusan fram úr honum. Hann hneig niður, og fólkið þyrptist í kringum hann til að vita, hvað um væri að vera, og hjálpa honum. Enginn yrti á Hjalta, en augnatillitin, sem honum voru send, sögðu öll eitt og hið sama: Ólánsgreyið þitt! Guð hjálpi þér! Þar hefirðu orðið manni að bana. — Það var við öðru eins að búast. Hjalti fleygði frá sér stönginni, gekk rakleitt heim i bæ- inn og sagði húsmóður sinni grátandi frá því, hvernig kom- ið væri. Hún strauk blitt um vanga hans, eins og góð móðir, og mælti: „Þetta er bending til þín frá guði um að fara gætilega. Taktu þér hana til íhugunar. Hamingjan er svo fallvölt.” Þessi hógværu orð fengu meira á Hjalta en þó að hún „Þú hefir gott hjarta, vinur minn,” bætti hún við. „Mundu hefði rekið honum utan undir. eftir að gera ætíð öllum mönnum gott, hvenær sem þér veitist tækifæri til þess. Þá vegnar þér vel, hvað sem kann að mæta. — Og þá eignastu fleiri vini en þú veist af sjálf- ur — og betri vini.” Aldrei hafði hann heyrt hana tala jafnbliðlega. Anna lét bera Eyvind inn í baðstofu og sendi heim til hans til að segja tíðindin og það með, að hún skyldi hjúkra honum og sjá um hann, meðan hann þyrfti að liggja. Faðir önnu hafði verið talinn afbragðs læknir, og fólk trúði því fastlega, að hún væri það líka. Eyvindur hresstist furðu fljótt, en þurfti þó að liggja lengi. Hann kenndi verkjar fyrir brjóstinu, og við og við hóstaði hann upp blóðdrefjum. En allan þann tíma, sem hann lá, vék Hjalti varla frá hvilu hans. Hann stundaði hann með einstakri alúð og nákvæmni og vildi aldrei af honum lita, Og hann bað hann margsinnis og hjartanlega að fyrir- gefa sér. Gamli maðurinn gerði það með tárin i augunum og bað guð þess að láta ekki ábænir sínar hrína á honum. En hann var hræddur um, að þær bænir yrðu ekki heyrðar nema að nokkru leyti. Forlög Hjalta væru þegar skráð á hærri stöðum. Þó sagði honum svo hugur um, að ekki mundi Hjalti verða öllum heillum horfinn. Margir bhðviðrisdagar Komu meðan Eyvindur lá, en Hjalti sinnti þeim ekkert. Hann kaus heldur að vera inni ,honum tiJ skemmtunar. Það var sem hann efaðist enn þá um það, að hann væri búinn að fá fyrirgefningu hans að fullu. Hann skrafaði við hann um alla heima og geima. En á meðan skar hann út traföskjulok handa húsraóður sinni. Þú crt óhcppinn vinur, það var ekki borgað út í gær. Nú veit ég þó alltaf, hvar hann cr að finna. Ef þcr ætlið að drckkja minn- inu hcr við barinn, — má cg þá biðja .vður að borga fvrirfram? Siatial frá Sttor-AMrrlkt — M cr xJiMkrrim’ Á því var rósahringur með hvössum þyrnum. En innan i hringnum var kringlóttur reitur. Þar var mynd af riddara, sem hleypti fram á harðastökki. En slanga reis upp áf jörðunni og vafði sig um fæturna á hestinum, svo að harin hlaut að steypast. 3. HALLUR GRÁMUNKUR Eitt kvöld á þorra sat Anna einsömul i svefnlofti sinu. Hún sat þar oft einsömul um þær mundir, og enginn vissi hvað hún hafðist að. — Hún bannaði stúlkunum að koma til sín, nema hún kallaði á þær. — Enginn mátti ganga þar út og inn, nema Hjalti. — Hann þurfti aldrei leyfis að spyrja. Þetta kvöld var hann ekki við. Anna sat einsömul og saumaði — einhverjar undur litlar og undarlega sniðnar flikur. Ilún var í besta skapi og síbrosandi yfir saumunum. Þá var hurðinni hrundið hranalega upp, og maður kom inn i loftið óboðinn. „Friður se með þer! sagöi maðunnn og hoí hendurnar lil hálfs, eins og til blessunar. Það var sem kaldan gust legði af kveðjunni. Anna fleygði saumunum upp í hviluna og tók kveðjunni glaðlega. „Pater Hallur!” mælti hún. „Hvaðan ber þig að?” Maðurinn stóð þegjandi og starði á hana hvössum, myrk- um augum. Hallur var flökkumunkur af Grámunkareglu, sem hann hafði gengið í í Danmörku. Meðan klaust.rin stóðu, mátti hann jafnan leita þar athvarft. Nú var fokið í þau skjólin. Nú lífði hann í þeirri trú, að hann væri skriftafaðir á ýms- um heldri heimilum, sem enn héidu við gamla siðinn, og fyrir bað fékk hann mat. Nú vissi hann ofurvel, að pápiska hans var fyrirboðin og fór hann því hálfgert huldu. höfði. Hann var í dökkgrárri munkakápu úr grófu. vaðmáli. — Hettan á kápunni var einasta höfuðfat hans, og hana hafði hann látið falla niður á bakið, um leið og hann kom inn úr dyrunum. Höfuðið var nauðrakað að ofan, en út úr vöng- unum stóð strítt hý, eins og svínsbroddar. — Kápan var reyrð saman um mittið með ullarbandsreipi. Við það hékk þriþætt svipa, með harða hnúta á öllum endunum. Hana notaði hann tiJ hirtingar á sjálfan sig. Bænaband var um hálsinn, og hékk við það kross með Kristsmynd. Berir voru fæturnir í skónum og blóðrauðir af kulda. Eins voru hend- urnar. „Eg er minnstur minni bræðranna,” mælti Hallur. „En ég flyt þó enn þá erindi guðs og hins heilaga Franciskusar. Gerið iðrun, því að guðs riki er nálægt! Þetta eru hinir síðustu og verstu tímar.” „Heldurðu það?” mælti Anna glettnislega. Það var sem logaði upp í munkinum. Hann stóð með op- inn munninn, sem bæði var stór og ófríður, og eldblæ sló ,á fölar, magrar kinnarnar. „Guðniðingurinn i Skálholti — !” mælti hann. „Veistu, hvað hann hefir gert? Hann hefir riðið í Kallaðarnes á sjálfri kyndilmessu og rifið niður krossinn heilaga, sem guð hafði gefið mátt til að gera kraftaverk á sjúkum og særðum. Heilagan dóm hefir hann dirfst að snerta með sínum saurugu höndum. Vei, vei! Bölvun guðs er yfir hon- um!” „Sei-sei! Vertu ekki svona æstur, heilági pater. Engar formælingar inni hjá mér að minnsta kosti.” Munkurinn sefaðist. ögn við þetta. „Ó, ég vildi, að guð hefði gert mig að biskupi. Eg skyldi hafa bannfært þá, bannfært þá, alla saman, þessa guðníð- inga, — bannfært þá alla saman, konunginn líka. Bannfært þá, þangað til jörðin hefði opnað sig og gleypt þá lifandi!” Anna horfði stöðugt. á hann með góðlegri kímni. „Skelfing liggur illa á þér i dag, pater”, mælti hún. „Hirðirinn er sleginn og hjörðin tvistruð,” mælti munk- urinn með „heilagri” gremju. „Helgidómar eru saurgaðir og heilagir menn svivirtir. Klaustrin eru lögð undir kóng, og guðs fólk hrekst vegaiaust á hjarninu, eigandi hvergi höfði sínu að halla.” „Það er satt. Þið eruð illa staddir núna, vesalings munk- arnir. Viltu nú ekki vera hjá mér í vetur, pater, og kemba ull?” Munkurinn lét sem hann heyrði ekki þetta. Hann kreppti hnefana og hóf þá til himna um leið og hann mælti: ,,En guð reisir aft.ur við riki sitt! Þetta er aðeins reynslu- timi. Heilagir kerúbar koma með logasverð og sveifla þeim yfir fylkingum fjadmannanna. Enn oru margir guði trúir. — Og enn Jifir Jón biskup Arason á Hólum.” Framh. i nssta blaOi

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.