Lögberg-Heimskringla - 20.10.1977, Síða 1
Bergsteinn
Box 218
Reykjavik,
Jónsson
Iceland
91. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 20. OKTOBER 1977
NUMER 35
Kirkjan í Brandon, þar seni fundurinn var haldinn.
lcelandic Canadian Ciub ■ jj^ JR 1 d nOKI
of Wesfern Manitoba 1 1 i uun
THE ICELANDIC CANADIAN CLUB of Western Mani-
toba hélt fund í Brandon á sunnudaginn var. — Við áttum
þess kost að sitja þennan fund, og njóta gestrisni formanns
félagsins, Mrs. Guðrúnar Mclnnis, og manns hennar á heim-
ili þeirra hjóna í Brandon. — Þrátt fyrir nafnið á félaginu,
þá eru félagsmenn hér um bil eingöngu frá Brandon. Okkur
var sagt, að þeir væru alls um fimmtíu og þrjátíu sóttu
fundinn á sunnudaginn.
ÞaÖ vakti nokkra furðu
okkar, að félag með svona
“stóru” nafni, skuli ekki ná
nema til eins bæjar, með um
það bil 38 þúsund íbúum, og
einnig það, að ekki skuli
vera nema um fimmtiu
manns í félaginu, — ef það
er rétt, sem einhver sagði
okkur þarna á fundinum, að
Hans G. Andersen
í Kanada
HANS G. Andersen, sendi
herra var í Ottawa í vik-
unni meðal annars til þess
að sitja fund Norð-Vestur
Atlantshafsfiskveiðinefnd
arinnar, International
Committee for North
Western.Atlantic Fisher-
ies. Meginverkefni fundar
ins var að gera tillögur til
breytinga á stofnskrá
nefndarinnar, en steirfs-
svið hennar hefur breyst
verulega á síðustu árum
vegna breytinga á fisk-
veiðilögsögu þeirra rikja,
sem eiga aðild að nefnd-
inni. já
í Brandon væru áreiðanlega
allt að fimm hundruð manns
sem gætu rakið ættir sínar
til íslands.
Annað er það, sem nefna
mætti í þessu sambandi, að
fátt var af ungu fólki á fund
inum. Virðist því vera um
sama vandamálið að ræða
hjá þeim í Brandon, og víða
annars staðar, að erfitt reyn
ist að fá unga fólkið til þess
að taka þátt í félagsmálum
íslendingafélaganna hér
vestra. Er nánar vikið að þvi
í forystugrein blaðsins í dag.
Á fundinum í Brandon var
rætt um bækur, sem aðgengi
legar eru á bókasafninu i-
bænum, og endurnýjun á
þeim, og einnig var talað um
islenskukennslu fyrir þá sem
hafa áhuga á þvi að læra ís-
lensku.
Þá lá fyrir álit stjórnar-
innar um það, hvort félagið
ætti að vera aðili að Þjóð-
ræknisfélagi Islendinga í
Vesturheimi. Taldi stjórnin
það óþarft, og voru fundar-
menn allir á sama máli, og
var því tillagan samþykkt
án verulegra umræðna um
málið.
Aðspurðir sögðu nokkrir
fundarmanna, utan dag-
skrár i fundarlok, að þeim
virtist enginn hagur í því að
vera aðilar að Þjóðræknisfé-
laginu, það þyrfti að greiða
gjald fyrir hvern einstakan
félagsmann, og engir pening
ar væru til. Auk þess fengju
þeir ekkert i staðinn, sem
vert væri að sækjast eftir og
því væri eins gott að láta það
ógert.
Lögberg-Heimskringla
hafði af þessu tilefni sam-
band við Stefan J. Stefanson
forseta Þjóðræknisfélagsins,
og verður birt viðtai við
hann um félagsmálin í
næsta blaði.
1 lok fundarins i Brandon
gafst ritstjóra Lögbergs-
Heimskringlu tækifæri til
þess að ávarpa fundarmenn,
og síðan var kvikmyndin
“They shouldn’t call Iceland
Iceland” sýnd, og var henni
mjög vel tekið. Það varð svo
að ráði, að hafa myndina í
Brandon alla vikuna og verð
ur hún sýnd í skólum og á
fundum hjá félögum, eins
og til dæmis Kiwanis, Lions
og fleiri.
Það var að öllu leyti mjög
ánægjulegt að koma til
Brandon og hitta fólkið, sem
kom til fundarins, og eru
formanni félagsins og félags
mönnum öllum hér með
færðar bestu kveðjur og ósk
ir um farsæld í starfi. já
ENN
VERKFALL
ÁSTANDIÐ VERSNAR STÖÐUGT
ÞEGAR LÖGBERG-HEIMSKKINGLA fór í prentun
var enn verkfall á fslandi, og víða hafði skapast vand-
ræðaástand vegna þess. Á nokkrum stöðum hefur kom-
ið til átaka, þegar verkfallsverðir hafa reynt að stöðva
meint verkfallsbrot.
Áhrif verkfailsins eru mjög viðtæk, og snerta marg-
ar óskyldar starfsgreinar. — Samgöngur milli Islands
og annarra landa hafa legið niðri að langmestu leyti,
örfáar undanþágur hafa verið veittar, t.d. í sambandi
við sjúkraflug, og þeir útlendingar, sem urðu stranda-
glópar á Islandi, og verst voru á sig komnir, hafa feng-
ið að fara frá landinu. Þá hefur ennfremur fréttst af
einni ferð frá Evrópu, — þaðan fór Flugleiðavél með
íslendinga, sem höfðu beðið eftir fari heim.
Ríkisst-jórnin fjallar um mólið
Þorsteinn Ingólfsson, sendiráðsritari i Washington
tjáði blaðinu í viðtali á þriðjudaginn var, að daginn áð-
ur, það er mánudaginn 17. október hefði Geir Hall-
grímsson, forsætisráðherra kvatt sér hljóðs utan dag-
skrár á Alþingi, og gert grein fyrir viðhorfum ríkis-
stjórnarinnar.
Hafði ríkisstjórnin átt fund með fulltrúum Banda-
lags Starfsmanna Ríkis og Bæja (ESRB) áður, og þá
hafði meðal annars verið rætt um skýrslu kjaradeilu-
nefndar, þar sem kom fram, að í sex tilvikum höfðu
ákvarðanir nefndarinnar ekki verið virtar.
Umræður um verkfallið stóðu í um fjórar klukku-
stundir á Alþingi. Sáttafundur var haldinn á mánudag,
en ekki er blaðinu kunnugt um niðurstöður hans.
Reykjavík semur
Reykjavikurborg hefui’ samið við sína starfsmenn, og
var tillaga sáttanefndar samþykkt á fundi starfsmanna
á þriðjudag. — Um eitt þúsund starfsmenn greiddu at-
kvæði með tillögunni, en um 500 vildu fella hana. Ekki
er að fullu Ijóst, hvað tillagan felur í sér.
Áður höfðu nokkur sveitafélög önnur samið við
starfsmenn sína.
Siðustu fréttir
Verkfallið hefur nú staðið yfir í átta daga, þegar þetta
er skrifað, eða frá 11. október, og þetta er í fyrsta
skipti, sem félagsmenn BSRB fara í verkfall, þvi til
skamms tíma hofðu opinberir starfsmenn ekki verk-
fallsrétt.
Erfitt hefur verið að afla frétta af ástandinu, ekkert
símasamband við ísland, útvarp liggur niðri, nema
hvað útvarpað er veðurfregnum og tilkynningum, sem
varða öryggismál, og senn fer sjálfsagt að bera á skorti
á varningi. Þannig munu á föstudaginn í síðustu viku
alls hafa verið um tíu daga birgðir af bensíni til í land-
inu.
BlaSinu seinkar
Vegna verkfallsins er ekki hægt að koma Lögbergi-
Heimskringlu til áskrifenda á Islandi, fyrr en því hef-
ur verið aflýst.
Lesendur blaðsins hér vestra geta fengið frekari upp
lýsingar á ritstjórnarskrifstofu blaðsins, því Þorsteinn
Ingólfsson, sendiráðsritari í Washington mun senda
okkur fréttir af framvindu mála. já