Lögberg-Heimskringla - 20.10.1977, Qupperneq 5
LOGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 20. OKTOBER 1977
5
stöðum. Þar eru komnir ein
hverjir úr þessari stóru fjöl-
skyldu eða vinir hennar. Þá
eru hljóðfærin tekin fram og
söngurinn ómar enn í húsa-
kynnum þessa glaða hóps.
Fjölskyldan stóra er sam-
rýmd, góðviljuð og glað-
sinna. Mikil barátta er að
baki, en Lovísa lítur þakklát.
um öxl og bjartsýn til fram-
tíðar og þakkar Guði sitt.
mikla barnalán. Það er víð-
sýnt á Helgastöðum út yfir
vatnið. Þar er gott að koma
Mér finnst, að hér hafi ég
fcngið að sjá i hnotskurn
sögu eyjarinnar. Hér birtist
það allt þrotlaust starfið,
nægjusemin, sjálfsbjargar-
viðleitnin, sorgin og gleðin,
barningurinn og ijarnalánið.
Mannfundir
og félagslíf
Taugin er sterk til æsku-
' haga. — Aldur og aðstæður
vafda því, að Ingibjörg og
I-Ielgi Sigurgeirsson eru flutt
frá Mikley, en hús þeirra á
Reynivöllum (oftast kallað
Myllan) stendur þcim opin
og þvi dvelj^ þau þar mörg-
um stundum ásamt syni sín-
um, Brynjólfi sem vinnur að
fiskveiðum og fiskflutning-
um.
Þau hjón hafa bæði tekið
virkan þátt í atvinnu og fé-
lagsmálum byggðarinnar.
Þau eru því fróð um þau
efni og margar ánægjustund
ir átti ég á heimili þeirra i
sumar og naut ég þá bæði
gestrisni þeirra og fróðleiks.
Ingibjörg var mikilvirk i
félagsmálum eyjai’innar og
hún segir mér frá ýmsu. —
Heimilin voru fyrstu sam-
komustaðirnir. Fólkið hélt.
við fornum íslenskum siðum.
Lesnir voru húslestrar og
Passíusálmar. Fólk var ákaf
iega bókelskt..
Árið 1896 var stofriað
bókafélagið Morgunstjarn-
an. Og eignaðist það brátt. á-
gætt bókasafn, sem var not-
að mikið. Bækur gengu á
milli heimilanna og voru bók
staflega lesnar upp ti! agna.
Öll kennsla fór fyrst fram
i heimahúsum, en fljótlega
i’eis skólahús. Börnin kunnu
lengi vel enga ensku, fyrr en
þau komu i skólann. — Héj’
voru margir góðir kennarai'
og nemendur frá Mikley
gátu sér gott orð i fram-
haldsskólum.
Tvö kvenfélög störfuðu á
Mikley. Hið eldra hlaut
nafnið Undina og var fyrsti
formaður þess Margrét Tóm
asson. Það tók l.il starfa 4.
mars 1886. Fundir fóru fram
lil skiptis á heimilum félags
kvenna óg veitingar voru
bornar fram. Á fundum fóru
fram umræður um ýmis mál
efni og konur prjónuðu eða
saumuðu. Félagið vann mik-
ið fyrir kirkju og söfnuð. Þá
voru haldnar skemmtanir og
æfð leikrit og söngur. Ingi-
björg minnist þess, ao sýnd
voru leikritin Maður og
kona, Sálin hans Jóns mins
og Happið. Samhjálp og að-
stoö við bágstadda var mjög
merkilegur þáttur í félags-
starfinu og má þar nefna, að
stofnaður var hjálparsjóður,
sem veitti fjárhagslega að-
stoð, er fóikið varð fyrir á-
fölium. Árið 1940 var stofn-
að Kvenfélag Unitara og var
fyrsti formaður þess Ingi-
björg Pálsson. Mjög var líkt
um starfsemi þess félags og
bæði unnu þau frábært starf
' fyrir byggðarlagið.
Mykleyingar bjuggu að
sinu í félagsmálum sem
öðru. Á vetrum var komið
saman og spilað, lesið og
sungið. Oft var dansað af
miklu fjöri og léku heima-
menn fyrir dansinum.
Farið var á skautum i
tunglsljósi og til mannfunda
var stundum farið á sleðum
og bjöllur hengdar í aktygi
hestanna. Það þótti börnun-
um ævintýralegt.
1 maímánuði var haldin
vorhátið á Mikley, áður en
fiskimenn héldu til veiða. —
Bátar höfðu þá verið málað-
ir og allt var tilbúið til burt-
ferðar. Á bessum hátiðum
var farið í leiki og iþróttir,
oft var hlutavelta og svo auð
vitao dansað að lokum.
Heklubúar sóttu sjaldan
burtu um skemmtanir. Þeir
undu glaðir við sitt.
„Urðu menn nokkurn tima
saupsáttir”? spyr ég.
„Jú, það gat nú komið
fyrir,” svarar Ingibjörg, „og
þá voru hnefar stundum látn
ir semja sátt”. — „Það hafði
þó sjaldan slæmar afleiðing-
ar Við vorum raunverulega
alltaf sem ein fjölskylda. —
Samlifið var yfirleitt elsku-
legt,” segir Ingibjörg og ég
veit, að hér mælir góður full
trúi þeirra, sem lögðu sig
fram um farsælt félagslíf um
áratugi.
Framh. í næstu vikii.
Kjörinn fyrsti
varaíorseti
bæjorsambandsins
í Manitoba
Magnús Elíason hefur ver
ið kjörinn fyrsti varafor-
seti bæjarsambandsins i
Manitoba, The Manitoba
Association of Urban
Municipality. Það var gert
á fundi, sem haldinn var
fyrr í þessum mánuði. —
Magnús býður sig fram í
bæjarstjórnarkosningun-
um í næstu viku, en hann
liefur nú tekið þátt í
stjórnmálum í um 45 ár.
já
Hrighrrg -
i|rtmakrtngla
9
247 7798
rz
P,
DHKT
Ab •
.... bensinið hefur enn hækkað a íslandi. Nú kostar
líterinn 93 krónur, og sýnist okkur það lauslega reikn-
að vera samsvarandi um 418 krónum fyrir gallonið eða
jafnvirði um $2.10 pr. gallon, sem er talsvert dýrara en
í Kanada, — þar kostar gallonið 79—84 cent....
.... i frétt frá Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna segir,
að tap á rekstri fiskvinnslustöðva á Islandi nemi 2500-
3000 milljónum króna á ári, miðað við núverandi skil-
yrði, eins og fram kemur í fréttinni. Hefur verið boðað
til aukafundar um málið, og viðræður eru hafnar við
ríkisstjórnina....
... .H.f. Eimskipafélag íslands óskaði eftir því við verð
lagseftirlitið að fá að hækka farmgjöld um 37%, en
fékk heimild til þess að hækka þau um 10%. Þá hefur
verið ákveðið að hækka upp- og útskipunargjald um
28% og er það í kjölfar nýrra kjarasamninga....
.... ýmislegt er gert til þess að laða erlenda ferða-
menn til íslands. Nýlega rákumst við á auglýsingu, þar
sem meðal annars stendur þessi sannleikur: “Iceland
is a Cheese Country, — did you know that?” Ekki er
okkur kunnugt um meðalát pr. niaiin í heiminum í dag,
en á Islandi mim hvert mannsbarn snæða, um 8 kíló-
grömm af osti að jafnaði á þessu ári ....
.... nýlega var haldinn í Reykjavik stofnfundur sam-
taka áhugamanna um áfengismál. Fundurinn var hald
inn í Háskólabiói og þar var húsfyllir, — um eitt þús-
und manns....
m
*
On your uaj to \oruaj, Suetlen
or Denmark.
Why settle for the usual? Make your
next trip to Scandinavia an exciting,
fun-filled and edueational experience
with a visit to Iceland. Stopover tours
of 1 to 3 days from $10 to $30. All fares
include room with bath/shower at First
Class Hotel Loftleidir, sightseeing trips
and 2 meals daily, transfers betvveen
hotel and airport. Exclusive on Icelandic
Airlines for passengers flying fróm New
York or Chicago to Norway, Sweden or
Denmark. Now this tour is available on
the 22-45 day excursion fare. AU rates
effective Oct. 1,1977.
Iceland-so much to sec and do.
Volcanos, Viking museums, glaciers,
geysers, theater, cpncerts, art shows,
duty-free shopping, saunas and indoor
hot-spring pool at your hotel,
smorgasbord lunches. It’s the land of
Leif Ericson, settled by Scandinavians
in the year 874 A.D., where people speak
the unchanged Old Norse of more than
1,000 veai's ago.
No other scheduled airline jets to
Scandinavia at lower fares than we do!
See your travel agent or contact
Icelandic Airlines, (530 Fifth Avenue,
New York, N.Y. 10020. Phone
(212) 757-8585 or call (800) 555-1212 for
the Toll Free Number in your area.
§lop over
In lceland.
sIO a-day.
Icelandic
LOWESTJET FAKES TO TIIE IIEAHT OF EIJROPE OFAKV SCIIEDIILED AIKLIVE.