Lögberg-Heimskringla - 27.01.1978, Side 4
4
LOGBERG-HEIMSKRINGLA, FOSTUDAGUR 27. JANUAR 1978
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA
PublishecJ every Thursday by
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA PUBLISHING Co. Ltd.
67 st. Anne’s Road, Winnipeg, Manitoba R2M 2Y4 Canada
Telephonc 247-7798
GUEST EDITOR: Jón Ásgeirsson
PRESIDENT: T. K. Arnason
SECRETARY: Emily Benjaminson
TREASURER: Gordon A. Gislason
Subscription $15.00 per year — PAYABLE IN ADVANCE
— Second class mailing registration number 1667 —
Printed by GARDAR PRINTING LIMITED, Winnipeg
BETEL
HVAÐ ER ÞETTA BETEL, heyrði ég tvær ungar
blómarósir spyrja við komuna hingað til Kanada í
'sumar. Þær höfðu séð hvatningu í Lögbergi-Heims-
kringlu þessa efnis: Minnist Betel í erfðaskrám yðar.
Var það von þær spyrðu? Slíkt er og þvílíkt hyl-
dýpið milli hugarheims íslenska unglingsins annars
vegar, og þeirra, sem alið hafa aldur sinn í Kanada,
sumir allt frá frumbýlisárum íslensku landnemanna.
Síðastliðinn sunnudag átti ég þess kost að heim-
sækja vistfólk á Betelheimilinum á Gimli og , Selkirk.
Á báðum stöðunum gafst tækifæri til þess að ræða
svolítið við suma, en alltof fáa þó. Ekki svo að skilja,
að þetta hafi verið mínar fyrstu heimsóknir á þessa
staði, en því oftar sem slík heimili eru sótt heim, því
betur verður ljóst, að vel er að vistfólki búið. Undir
þetta geta vafalaust tekið þeir fjölmörgu íslendingar,
sem lagt hafa leið sína á Betelheimilin, er þeir hafa
komið frá Islandi til þess að skoða sig um í Kanada,
og hitta ættingja og vini.
Á öðrum stað í blaðinu í dag er sagt frá heiðurs-
konu einni, sem átti 95 ára afmæli í gær, fimmtudag-
inn 26. janúar. Spaugsöm og glettin tók hún okkur
tali, er við litum inn á Betel í Selkirk en þar hefur
hún verið búsett síðustu fimm árin. Þar hittum við
líka fyrir einn ágætan heiðursmann, sem spurði með-
al annars um Friðrik Ólafsson, hvemig honum gengi.
— Reyndar vissi hann allt um þennan stórmeistara í
skák, hann vissi líka um unga manninn, sem nýlega
varð heimsmeistari unglinga í skák, Jón J. Árnason.
Og hann taldi allt eins víst, að Friðrik yrði kosinn
forseti Alþjóðaskáksambandsins. Aðspurður um það,
hvort hann telfdi stundum sjálfur sagðist hann hafa
telft í mörg ár, líklega ein 75 ár. Eftir að hann settist
að á Betel hefur samt orðið lítíð um taflmennsku, —
það er ekkert sérlega gaman að tefla við þá hérna, þeir
Jicunna svo lítið, — sagði hann. Hann kvaðst enn ekki
hafa tapað skák á Betel, og oft hefur hann gefið þeim
drottninguna í forgjöf. Það dugar þeim ekki samt.
En það eru líka margir, sem ekki geta teflt á sama
hátt. Þeirra tafl er með öðrum hætti. — Margir hafa
misst sjón, eða heyrn, nema hvort tveggja sé, aðrir eru
rúmfastir, og þá hrjá ellikvillar af ýms utagi. Þeim er
það því mikils virði, að á Betel ,er að finna öryggi og
hjálp. Stundum er telft uppá líf og dauða.
Á Betelheimilinu á Gimli eru tæplega eitt hundr-
að vistmenn, flestir þeirra eru íslenskir, margir fædd-
ir á fslandi, aðrir hér vestra, Sumir hafa aldrei til ís-
lands komið. í Selkirk er vistmannafjöldinn svipaður,
en þar eru færri íslendingar, eða um helmingur vist-
fólksins.
Það er óneitanlega skemmtileg reynsla, að koma
á svona staði, og hitta fólk, sem hefur mestan hluta
æviskeiðsins að baki, og kann frá mörgu að segja.
Og margir tala allt að því lýtalausa íslensku, jafn-
vel þótt þeir hafi aldrei til íslands komið. Þeir hafa
alis upp á íslenskum heimilum, þar sem íslenska var
töluð, og íslensk menning í hávegum höfð. já
Forsætisráðherrafrú fslands:
ÍSLENDINGABYGGÐIR f KANADA
ERU HENNI MINNISSTÆÐASTAR
1 fyrrgreindu viðtali í Vik
unni er ráðherrafrúin spurð:
„Nú hefur þú ferðast mikið
bæði hér heima og erlendis,
áttu þér einhvern uppáhalds
stað?”
ERNA Finnsdóttir, forsætis-
ráðherrafrú íslands segir
meðal annars í viðtali við
Vikuna fyrir skömmu, að ís-
Iendingabyggðir í Kanada
ER STÉTTASKIPTING
EKKI TIL
Á ÍSLANDI
ÞVl hefur stundum verið
haldið fram, að á Islandi
væri engin stéttaskipting,
þar væru allir jafnir. — Það
má sjálfsagt túlka orðið
„stéttaskipting” á mismun-
andi vegu, og verður ekki
gerð tilraun til þess hér, að
skilgreina þetta orð.
1 síðasta blaði var frá því
skýrt að ráðherrar á Islandi
hafi fengið launabætur, —
einnig þingmenn. — Þar var
sagt, að ráðherramir hefðu
um eina milljón króna í laun
á mánuði, og þá eru með tal-
in ýmis konar fríðindi, sem
sem þeir hafa.
Eitt af þvi, sem ráðherrar
fá framyfir annað fólk er
það, að ríkið greiðir allan
kostnað við rekstur bifreiða
þeirra, sem þeir raunar fá
„á útsölu,” — þ. e. þeir
njóta tollfriðinda og lána-
kjara, sem almenningur fær
ekki.
Nú er ef til vill ekkert við
þessu að segja. Landsfeðurn
ir verða að komast til og frá
vinnu, og þeir hafa í mörgu
að snúast.
Það, sem vekur mann með
al annars til umhugsunar í
þessu sambandi er sú stað-
reynd, að Félag íslenskra bif
reiðaeigenda hefur látið
reikna það út, að rekstur á
bandarískri bifreið kostar
um 200 þúsund krónur á
mánuði, eða jafnmikið og
meira, en allt mánaðarkaup
alls þorra launþega í land-
inu. já
séu sér minnisstæðastar úr
ferðalögum erlendis.
Vikan birti ítarlegt viðtal
við forsætisráðherrafrúna,
og er meðfylgjandi mynd,
sem er ein cif mörgum, sem
fylgdu viðtalinu, tekin úr
blaðinu. Á henni er Erna
með tveimur barnabörnum
sínum, en börn þeirra Ernu
og Geirs Hallgrímssonar eru
fjögur. '
Forsætisráðherrah j ónin
komu síðast til Kanada ár-
ið 1975, en þá voru þau heið
ursgestir Þjóðræknisfélags-
ins, og hélt ráðherrann aðal-
ræðuna á þinginu.
FRÁ ÞVÍ er skýrt í einu ís-
lensku dagblaðanna fyrir
skömmu, Dagb'laðinu, að til
átaka hafi komið við bíla-
stöð Steindórs í Reykjavík,
er þangað kom drukkinn
maður og bað um bíl. Þar
var þá engan bíl að fá, og
var manninum sagt það. —
Undi hann því illa og mun
hafa hagað sér dólgslega, því
stöðvarstjórinn henti honum
út.
Komumaður gerði aðra til
raun, en þá var hann „af-
greiddur” svo hressilega, að
hann lá rotaður í blóði sínu
þar til lögreglan kom á vett-
vang og flutti manninn á
slysadeild. — Hann reyndist
margbrotinn i andliti. Já,
sumir geta fengið slæman
höfuðverk „morguninn eftir
kvöldið áður.”
Annars minnir þetta á
gömlu söguna um tannlækn-
inn og Steindór, sem þá var
á lífi, og margar skemmtileg
ar sögur eru til um.
Það var einhverju sinni, að
tannlæknir hringdi á stöðina
Spurningunni svarar Erna
þannig: „Mér finnst alls stað
ar fallegt á Islandi, svo erf-
itt er að velja sér uppáhalds-
stað, en ég kann alltaf vel
við mig á Þingvöllum. — Is-
lendingabyggðir í Kanada
eru þær slóðir erlendis, sem
mér finnst hvað áhugaverð-
astar og minnisstæðastar. —
Mér kom mjög á óvart,
hvessu vel fólk af íslenskum
ættum hefur haldið móður-
málinu og sambandi sín á
milli. Sjálf er ég þakklát fyr-
ir að vera Islendingur og
vildi hvergi annars staðar
búa.” já
og pantaði leigubíl. — Stein
dór varð sjálfur fyrir svör-
um, og sagði engan bíl í bili.
Tannlæknirinn varð fúll við,
minnti Steindór á, að hann
væri nú einu sinni einn af
bestu viðskiptavinum stöðv-
arinnar, og því hlyti Stein-
dór að geta sent sér bíl.
„En það er bara enginn
bill á stöðinni”, sagði Stein-
dór.
„Mér er alveg sama um
það”, sagði tannlæknirinn,
„ég verð að fá bil strax, og
þú hlýtur að geta bjargað
þvi. Sendu bíl eins og skot.”
„Hvernig get ég það, þeg-
ar ég hef engan bil,” mald-
aði Steindór í móinn, „eða
getur þú dregið tönn úr tann
lausum kjafti”. ja
Takið virkan
þótt í starfsemi
Pjóðræknisfélaganna
og deilda þeirra.
SÆLLA ER AÐ GEFA EN ÞIGGJA
- Á KJAFTINN