Lögberg-Heimskringla - 08.02.1980, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 08.02.1980, Blaðsíða 1
LÖGBERG Siofa&ð 14. janúar 1888 Preserves Heritoge — Assures Future 94. ARGANGUR Winnipeg, föstudagur 8. febrúar 1980 NUMER4 FRAMBJÓÐENDUR TIL FORSETAKJÖRS Guðlaugur Þorvaldsson Albert Guðmundsson Pétur Thorsteinsson 1 leiðara þessa blaðs er í stuttu máli rætt um Forseta Islands og hið háa embætti sem hann hefur gegnt. Kjörtímabil forseta er fjögur ár, og hefst það 1. ágúst en lýkur 31. júlí. Kjör forseta hins íslenska lýðveldis fór í fyrsta sinn fram á fundi Sameinaðs Alþingis á Þingvöllum 17. júní 1944. — Var þá Sveinn Björnsson þáverandi ríkisstjóri kjörinn til eins árs. Þjóðkjör forseta til fjögurra ára skyldi í fyrsta sinn fara fram sumarið 1945. Sveinn Björnsson var þá einn í framboði og var því sjálfkjörinn og einnig árið 1949. Hann lést snemma árs 1952. Fór fyrsta þjóðkjör forseta fram þá um vorið. Voru frambjóðendur þrír, þeir Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóri, — Bjarni Jónsson, vígslubiskup og Gísli Sveinsson, fyrrverandi sendiherra. Eins og kunnugt er, sigraði Ásgeir í þessum kosningum. Hann var síðan sjálf- kjörinn árið 1956, 1960 og 1964. Annað þjóðkjör fór fram vorið 1968. Voru þá frambjóðendur dr. Kristján Eld- járn, þjóðminjavörður og dr. Gunnar Thoroddsen sendiherra. Dr. Kristján sigr- aði og var síðan sjálfkjörinn árin 1972 og 1976. Um síðustu áramót tilkynnti hann íslensku þjóðinni að hann yrði ekki aftur í kjöri. Þrír frambjóðendur til forsetaembættisins hafa þegar gefið sig fram. — Þykir tilhlýðilegt að gera nokkra grein fyrir þeim. Guðlaugur Þorvaldsson Guðlaugur Þorvaldsson er fæddur árið 1924 að Járn- gerðisstöðum í Grindavík, sonur þeirra hjóna Þorvalds Klemenssonar útgerðarbónda og trésmiðs og Stefaníu Tómasdóttur. Hann stundaði nám við Flensborgarskólann í Hafnarfirði, lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1944 og em- bættisprófi í viðskiptafræði frá Háskóla Islands árið 1950. Hann gerðist sama ár fulltrúi á Hagstofu Islands og deildarstjóri frá árinu 1956. Á vegum ríkisstjómarinn- ar hefur hann unnið að rann sóknum á ýmsum þeim mál- um, sem lúta að verðlags- og knupgjaldsmálum. Árið 1960 var Guðlaugur settur prófessor í viðskipta- fræði við Háskóla Islands í forföllum Gylfa Þ. Gíslason- ar þáverandi menntamála- ráðherra. Siðar var hann skipaður i fast prófessors- embætti og kjörinn rektor Háskóla Islands. Þvi starfi gegndi hann þangað til ný- lega að hann var skipaður sáttasemjari íslenska ríkis- ins. Hann er kvæntur Krist- ínu Hólmfríði Kristinsdóttur úr Reykjavík. Albert Sigurður Guðmundsson Albert Sigurður Guðmunds- son er fæddur árið 1923 í Reykjavík. Eftir brautskrán- ingu frá Samvinnuskðlanum vorið 1944 hélt hann utan til tveggja ára verslunamáms í Glasgow. Hann gerðist atvinnumað- ur í knattspymu og var um árabil einn frægasti keppand inn í þeirri grein í gjörvallri Evrópu. Átti hann þá heima í Glasgow, London, Nancy, Milano, París og Nizza. Víst má fullyrða að á knatt spyrnuárunum væri Albert einhvér frægasti Islendingur- inn i heimi. Þetta var áður en Halldór Laxness fékk bók menntaverðlaun Nóbels og Friðrik Ólafsson tók að leggja fyrrverandi heims- meistara að velli á alþjóðleg um skákmótum. Eftir að Albert lagði knatt spyrnuskóna á hilluna hélt hann aftur til Islands, og gerðist stórkaupmaður í Reykjavík og jafnframt um- boðsmaður og ræðismaður Frakka bæði í Hafnarfirði og Reykjavík. Hin síðari ár hefur hann verið einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og vákið á sér mikla athygli.. Kvæntur er Albert, Bryn- hildi Hjördisi Jóhannsdóttur frá Reykjavík. Pétur Jens Thorsteinsson Pétur Jens Thorsteinsson er fæddur í Reykjavík árið 1917, sonur þeirra hjóna Egg erts Briems óðalsbónda í Við ey og Katrínar Pétursdóttur Thorsteinsson. — Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skóla Reykjavikur vorið 1937 prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla Islands 1941 og em- bættisprófi í lögum frá sama skóla 1944. Gerðist hann þá fyrst starfsmaður í utanrík- isráðuneytinu í Reykjavík en fór fljótlega til starfa í ís- lenska sendiráðinu í Moskvu, þar sem hann dvaldist til 1947, þegar hann varð full- trúi í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík. Árið 1950 tók hann við stjórn viðskiptadeildar utan- ríkisráðuneytisins og varð deildarstjóri þess ráðuneytis ári síðar. Árið 1953 var hann skip- aður sendiherra Islands í Sovétrikjunum. Gegndi hann þvi embætti næstu árin, varð þá ambassador og náði skipunarsvæði hans einnig til Ungverjalands og Rúmen- íu. Árið 1961 var Pétur skip- aður ambassador Islands í Sambandslýðveldinu Þýska- landi og Grikklandi og jafn- framt sendiherra í Júgóslav- íu. Ári síðar var hann am- bassador í Frakklandi og jafnframt fastafulltrúi Is- lands hjá Norður-Atlants- hafsbandalaginu (NATO) og Efnahags- og framfara- stofnuninni (OECD). — Á sama tíma var hann sendi- herra í Belgíu og ambassad- or í Luxembourg. Ambassad- or Islands í Bandaríkjunum varð Pétur árið 1965. Náði skipunarsvæði hans þá jafn- framt til Kanada, Argentínu, Brasiláu og Mexíkó. Pétur hefur verið fulltrúi Islands á f jölmörgum alþjóð- legum ráðstefnum og átt sæti í mörgum nefndum sem önnuðust samninga fyrir Is- lands hönd við aðrar þjóðir. Kona Péturs er Oddný Elísabet Stefánsson frá Reykjavik. Þegar þau hjón dvöldust í Washington, heimsóttu þau Kanada nokkrum sinnum. — Voru m.a. heiðursgestir á einu áf ársþingum Þjóðrækn isfélags Islendinga í Vestur- heimi, sem hcddið var í Winnipeg. DR. THORVALAR JOHNSON MINNST í DAGBLÖÐUM Á fSLANDI Þ^'ðjudaginn 15. janúar birti Morgunblaðið í Reykja- vík minningargrein eftir Ein ar J. Siggeirsson um dr. Thorvald Johnson. Einar rekur þar æfiferil Thorvaldar og hin ýmsu störf hans í þágu visindanna. Hann segir m.a.: Þrotlausar rannsóknir Thorvaldar og samstarfvmanna hans hafa leitt til þess, að nú er í rækt- un hveiti, sem er ónæmt fyr- ir ryðsveppum og síðan 1954 hefur ekki brotist út hveiti- ryðfaraldur í Rauðárdalnum. Hann getur þess einnig að Thorvaldur kom við á Islandi á leið sinni frá Pakistan og kynnti sér rannsóknir á plöntusjúkdómum á Islandi. Einar J. Siggeirsson starf- aði við rannsóknir á hveiti- ryðsrannsóknum í Fargo, Norður-Dakota, og var það árið 1946 að leiðir þeirra Thorvaldar lágu saman, en þá var hann sendur til Win- nipeg frá Fargo til að starfa með dr. Thorvaldi.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.