Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 21.11.1980, Qupperneq 4

Lögberg-Heimskringla - 21.11.1980, Qupperneq 4
4-WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 21, NÓVEMBER 1980 Ritstj órnargrein íslensk landkynning Á miðöldum áttu íslendingar sömu þjóðtungu að kalla og aðrar Norður- landaþjóðir og fólk það sem byggði norrænar nýlendur utan Skandinavíu- skagans. Má orða þetta þannig að ís- lenska hafi þá verið miklum mun stærri tunga í landfræðilegum skilningi en síðar varð. Hvergi verður þess vart í íslenskum fornritum að höfundar þeirra ali með sér ugg vegna smæðar tungunnar sem þeir rita á. Er skemmst að minnast að þess eru nokkur dæmi að íslenskir höfundar færu til Noregs til að rita ævisögur konunga. Þegar leið að skiðaskiptaöld, mátti gerla sjá að staða íslenskrar tungu hefði breyst. Aðrar norrænar tungur höfðu þá tekið miklum breytingum, m.a. vegna áhrifa frá granntungum í suðri og sýnilegt að íslenskir höfundar gætu ei lengur ástundað list sína utan land- steina á eigin tungu eða flutt út ljóð og sagnir. Einangrun tungunnar skapaði mikinn vanda meðal annarsj á þann hátt að fólk í grannlöndum varð fáfróðara um ísland en áður, og fyrr en varði voru það einungis lærðir menn í Skandinavíu sem sýndu íslandi áhuga vegna þess að þar væru bækrur sem telja mætti til merkilegra fornleifa. Sunnan Skandinavíuskagans tóku að myndast kynjasögur um Íslendinga, sem sumar hverjar komust á prent og urðu vinsælt lesefni. Þess var áður getið á þessari síðu að höfundar Land- námu hefðu svarað óhróðri um forfeður sina með íslensku riti. Upp úr aldamótunum 1600 varð að grípa til annarra ráða, en árið 1609 gaf Arngrímur Jónsson lærði út bók á latínu til andsvars erlendri fáfræði. Bók þessa nefndi hann Crymogæu (grískt heiti á íslandi) og varð hún eitt fyrsta og áhrifamesta kynningarrit um ísland, sögu þess og menningu ritað á erlendu máli, en ritverk á latínu lásu þó einungis lærðir menn og þess vegna tókst Arngrími ekki að vinna bug á alþýðufáfræði, og segja má að næstu aldir væri þekking, erlendra manna á Islandi bundin örfáum stofnunum sem helguðu störf sín miðaldafræðum. Þegar kom fram á 19. öld vöktu ferðabækur um Island, margar hverjar ritaðar á ensku, talsverða athygli erlendra lesenda. Þar áttu helst hlut að máli aðalsmenn sem sigldu til Islands í leit að ævintýrum. Bækur þessar reyndust þó einhæft lesefni. Höfundar sögðu frá því sama, töldu sig hafa upp- götvað skemmtilega forneskju meðal hvera og eldfjalla. Bækurnar urðu þannig barnslega einfaldar í augum þeirra sem betur þekktu og meira vissu. Hér hefur verið farið fljótt yfir sögu, en benda má á það að íslendingar hafa nú um langa hríð samið sín eign land- kynningarrit. Mætti þar um semja langa skrá, en að sinni verður látið nægja að vekja eða réttara sagt endurvekja athygli lesenda þessa blaðs á ritinu ICELAND REVIEW sem samið er á ensku og berst víða um heim nokkrum sinnum á ári. Þeir Haraldur J. Hamar og Heimir Hannesson stofn- uðu þetta rit fyrir næstum aldar- fjórðungi til kynningar á íslandi. Þeir félagar fóru vel af stað og enda þótt Haraldur J. Hamar hafi nú einn gegnt starfi aðalristjóra um allanga hríð, hefur hvergi verið slegið af kröfum. Má með sanni segja að ICELAND REVIEW sé enn vandaðasta tímarit sem gefið er út á ensku innan hins norræna menningarsvæðis. Fleiri les enskuna heldur en lat- ínuna hans séra Arngríms, og víst er það m.a. þessu tímariti að þakka að erlendar þjóðir eru nú fróðari um Island en áður gerðist. Frá upphafi hefur ritstjórunum tekist að afla fjölbreytts efnis um nútíð og fortíð íslensku þjóðarinnar og frágangur allur á ritinu hefur verið til fyrirmyndar. Því er þessa getið hér að ugglaust höfum við hér vestra ekki veitt ICELAND REVIEW þann stuðning og sýnt því þann áhuga sem það óneitanlega á skilið. Ættum við nú að gera gangskör að því að afla því sem flestra kaup- enda. NEWS FROM ICELAND er fylgirit ICELAND REVIEW og er sú útgáfa samþjöppuð og haglega gerð skrá um flest það sem efst er á baugi í íslensku þjóðlífi á hverjum tíma. Þess má geta að gegnum tíðina hefur ICELAND REVIEW gefið út mikinn fjölda af bókum fyrir erlendan markað. Eru þær kunnáttusamlega gerðar og hinir eigulegustu gripir. Þeim sem hug hafa á að afla áskriftar að ICELAND REVIEW skal bent á að heimilisfang ritsins er HVERFISGATA 54, 101 REYKJAVÍK, ICELAND, P.O. BOX 93. H.B. Ræða utanríkisráðherra íslands Ólafs Jóhannessonar á Allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna Hr. forseti, Leyfið mér að taka undir orð starfs- bræðra minna og óska yður til ham- ingju með kjör yðar í forsæti á 35. alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Eg er þess fullviss, að reynsla yðar og þekk- ing kemur yður að góðu haldi við leit að lausn á þeim mörgu viðfangsefnum, sem þetta allsherjarþing mun fjalla um. Leyfið mér einnig að bjóða velkomin í samtök okkar hin nýju þátttökuríki. Framkvæmdastjóri samtakanna, Kurt Waldheim, og starfslið hans hafa haldið áfram fórnfúsu og markvissu starfi að þeim verkefnum, sem Sam- einuðu þjóðirnar hafa falið þeim. Leyfið mér, hr. forseti, að færa þeim þakklæti fyrir störf þeirra og votta framkvæmdastjóranum fullan stuðn- ing minn. Það er mér sérstök ánægja að fá tæki- færi til að ávarpa allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna. Eg átti sæti í sendi- nefnd íslands á framhaldsfundi fyrsta allsherjarþingsins hér í New York árið 1946, þegar ísland gerðist aðili að þessum samtökum. Þá var bjartsýni ríkjandi. Sjálfsagt hafa bjartsýnustu hugsjónamenn orðið fyrir nokkrum vonbrigðum. Þeir hafa ekki séð allar vonir sínar rætast. En orð og störf hugsjónamanna bera oft ávexti, þótt þeim sjálfum auðnist ekki að sjá þá. Hugsjónir verða ekki hlekkjaðar til lengdar. Þær hafa vængi og fljúga til framtíðar og yfir öll landamæri. Þegar litið er yfir farinn veg Samein- uðu þjóðanna, sem svo miklar vonir voru bundnar við í öndverðu, blasa við sjónum skin og skuggar og margvíslegar myndbreytingar. Á þeim aldarþriðjungi, sem samtök Samein- uðu þjóðanna hafa starfað, hafa þau vissulega áorkað miklu til góðs fyrir alla heimsbyggð. Það er þó engu að síður umhugsunarefni, að nokkur mál, sem voru á dagskrá þingsins 1946, eru enn á dagskrá þess nú 34 árum síðar. Sýnir það okkur, að enda þótt vel sé starfað þá er oft torsótt að markmið- inu, og á þolinmæði þarf oft að halda. Á hinn bóginn höfum við einnig hér á þessu þingi áþreifanlega sönnum um þær miklu breytingar, sem orðið hafa á þessu stutta skeiði í sögu mannkyns- ins. Frá því að ég kom hér á þingið 1946 hefur tala aðildarríkja um það bil þrefaldast, og mestur hluti hinna nýju ríkja, sem bætzt hafa í hópinn eru fyrr- verandi nýlendur, sem nú eru orðnir fullgildir aðilar í samfélagi þjóðanna. Hr. forseti, • Það er því miður ekki ofmælt, að frá því að síðasta reglulegt allsherjarþing kom hér saman fyrir ári, hafa orðið veðrabrigði í samskiptum austurs og vesturs, sem ásamt ýmsum öðrum at- burðum á alþjóða vettvangi varpa nú nýjum skuggum á stöðu alþjóðamála. Þar er einn dekksti skugginn ástand- ið í Afghanistan. Mikill meiri hluti þeirra rikja, sem eiga sæti í þessari virðulegu stofnun, hörmuðu hernaðaríhlutunina í Afghanistan með samþykkt ályktunartillögu á 6. sér- staka skyndiþingi samtakanna. Þar var skýrt kveðið á um, að fullveldi og stjórnmálalegt sjálfstæði allra ríkja væri grundvallaratriði í stofnskrá sam- taka okkar og brot gegn því væri and- stætt markmiðum stofnskrárinnar undir hvaða yfirskini sem væri. Þess vegna bæri að kalla allan erlendan her frá Afghanistan tafarlaust og skilyrðislaust. Meira en 8 mánuðir eru nú liðnir frá því að þessi ályktun var samþykkt og enn hefur ekkert verið gert til að fara eftir henni. Ég tel það því skyldu mína sem fulltrúa smá- þjóðar, er setur traust sitt á fulla virðingu fyrir ákvæðum stofnskrár hinna Sameinuðu þjóða, að minna hér og nú á ákvæði ályktunar sérstaka aukaþingsins í janúar s.l. og nauðsyn þess að þegar verði hafizt handa um framkvæmd þeirra. Sá atburður, sem ég hef hér gert að umræðuefni, hefur að mínu mati átt stærstan þátt í kólnandi sambúð og aukinni spennu milli austurs og vesturs, þótt önnur atriði hafi vissulega einnig komið þar til. Slökunarstefnan, sem tók að mótast í Evrópu á síðari hluta sjöunda áratugs- ins og fékk sitt fasta form í loka- samþykkt Helsinki-ráðstefnunnar 1975, hefur vissulega orðið fyrir áfalli og það gagnar engum að fela þá staðreynd. Á hinn bóginn er ég einnig þeirrar skoðunar að vilji menn varð- veita frið og öryggi , sé ekki um annað að ræða en leitast við að framfylgja slökunarstefnu. Tækniþróun í samgöngum og vopnabúnaði veldur því, að kalt stríð getur hvenær sem er breytzt í beina styrjöld og þá er enginn óhultur, hvar sem hánn býr á jarðar- kringlunni. Því er það, að enda þótt ég sé hér að ræða um samskipti nokkurs hluta þeirra ríkja, sem hér eiga full- trúa, þá varðar þetta mál hvert einasta mannsbarn. Samskipti stórveldanna og fram- koma þeirra á alþjóðavettvangi hafa vissulega gífurleg áhrif á alla þróun mála í heiminum. Það er staðreynd, sem ekki þýðir að loka augunum fyrir. En við megum ekki' gleyma því að hinar smærri þjóðir heims bera einnig mikla ábyrgð. Ákveðin og einörð afstaða þeirra getur skipt sköpum um farsæla framtíð mannkyns. í sáttmála samtaka okkar og öðrum meginyfirlýs- ingum eins og t.d. Mannréttinda- yfirlýsingunni, er að finna flest helztu grundvallaratriðin, sem okkur ber að fylgja inn á við og út á við, ef við - stefnum heilshugar að velferð alls mannkyns. Því miður hefur víða miðað skemur en skyldi í átt að raunverulegri framkvæmd þeirra stefnumála, er við höfum sett okkur sem markmið, en það þýðir ekki að við eigum að leggja árar í bát: Þvert á móti á þessi staðreynd að verða okkur hvatning til continued on page 8 Lögberg - Heimskringla Published every Friday by LÖGBERG- HEIMSKRINGLA INCORPORATED 1400 Union Tower Building, 191 Lombard Avenue, Winnipeg, Manitoba R3B 0X1 — Telephone 943-9945 EDITOR: Haraldur Bessason ASSISTANT EDITOR: Margrét Björgvinsdóttir SECRETARY: Emily Benjaminson Typesetting, Proofreading and Printing — Typart Ltd. Subscription í 15.00 per year - PAYABLE IN ADVANCE $20.00 in Iceland — Second class mailing registration number 1667 —

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.