Lögberg-Heimskringla - 07.05.1982, Side 3

Lögberg-Heimskringla - 07.05.1982, Side 3
WINNIPEG, PÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982-3 Helgafell gefur út afmæliskveðju til Halldórs Laxness: Bráðum kemur betri tíð „Bráðum kemur betri tíð" nefnist nýútkomin bók frá Helgafelli, sem hefur að geyma úrval úr ljóðum Halldórs Lax- ness. Kristján Karlsson bók- menntafræðingur valdi kvæðin, en myndskreytingu og hönnun bókarinnar annaðist Ragnheiður Jónsdóttir myndlistarmaður. Bókin kemur út í tilefni átt- ræðisfmælis Halldórs Laxness hinn 23. apríl, og er afmælis- kveðja Helgafells, sem gefið hefur út flestar bækur Laxness, til skáldsins. í formálsorðum sínum að bókinni segir Kristján Karlsson svo meðal annars: ,,í formála að Kvæðakveri 1930 getur Halldór Laxness þess að mörg ljóðin séu hermiljóð. Sum eru vissulega skopstælingar, önnur fremur það sem kalla mætti lofstæl- ingu, ort til heiðurs fyrirmyndinni; eitt augljósasta dæmi þess, að vísu yngra, er kvæðið Frændi þegar fiðlan þegir. Einstöku kvæði má jafnvel kalla þýðingu af einni íslensku yfir á aðra, til dæmis Alþingshátíðina. í næstu útgáfu Kvæðakvers 1949 (og 1956), bættust allmörg kvæði við, til dæmis eftirhermur á harðsnúnum rím- og glymkveðskap (úr Sjálfstæðu fólki). Önnur eru einlæg lýrík, og þá ber hæst þrjú kvæði í orðastað Ólafs Kárasonar, úr Ljósi - heimsins: Hjarta mitt, Spegillinn, Þótt form þín hjúpi graflín. Þau eru meðal dýrgripa tungunnar. Fleira er merkilegt um þessi kvæði; bæði vegna stöðu sinnar í skáldsögunni, og í samræmi við ljóðagerð Halldórs yfirleitt, má skoða þau sem lofsöng til skáld- skaparins sjálfs. 0 Fyrir utan hreina skemmtun er gildi hermiljóða venjulega fólgið í því að þau koma upp um eitthvað sem er slitið, staðnað, hégómlegt eða marklaust í ríkjandi skáldskap. Hitt er miklu einkennilegra þegar saman fer í ljóði bæði skopstæling og endursköpun. í flestum kvæðum Halldórs er þessi samleikur hefðar, eftirhermu og nýbreytni til staðar í margskonar hlutföllum, svo að honum bregður jafnvel fyrir í sumum einlægustu ljóðunum. Áhrif þessa frjálsræðis getur að líta víðsvegar í skáldskap samtímans. Sem fyrirmynd merkir þessi samleikur sjálfstæði til að nota hefð í stað þess að láta hana nota sig." Sem fyrr segir ber bókin heitið „Bráðum kemur betri tíð . . ." sem er upphaf fyrsta ljóðsins í Kvæðakveri Halldórs Laxness. Kvæðakverið kom fyrst út 1930 en auk þess geyma ýmsar skáldsögur hans eins og Sjálfstætt fólk, Heims- ljós og Atómstöðin, margs konar kveðskap og hafa mörg þessara ljóða birst í síðari útgáfum Kvæðaskver- sins. ,,Þó að Halldór hafi að sjálfsögðu lagt meiri stund á aðrar greinar bókmennta en ljóðlist, leyfir Helgafeli sér að minna á þýðingu hans sem ljóðskálds með þessari vönduðu afmælisútgáfu," segir meðal annars í fréttatilkynningu sem dreift var til blaðamanna á blaðamannafundi í Norræna hús- inu, í tilefni útgáfunnar. ,,Það er engin lína í vali kvæðanna í bókina," sagði Kristján Karlsson á blaðamannafundinum, ,,aðeins eigin sérviska." Muninn á þessari bók og Kvæðakverinu sagði hann einkum vera þann, að hér væru kvæðin myndskreytt, og vonandi hefði valið einnig tekist þannig að hér væri að finna bestu kvæðin. I bókinnu eru alls 25 ljóð. ,,Ljóðin eru mjög myndræn og það var afar spennandi að fást við þetta verkefni," sagði Ragnheiður. Every Neil Bardal funeral service is performed with honesty, dignity and respect - a long-standing tradition from two previous generations. Mow with a modem interpretation to suit today’s family needs. 984 Portage at AubrQí Street Winnipeg, Manitoba R3G 0R6 24-Hour Telephone Service 786-4716 familyI funeral COUNSELLORS Winnipeg's only Bardal family-owned Funeral Seruice. Open 9 to 5 Monday thru Saturday. Ask for a free brochure. ,,Tíminn sem ég hef unnið að þessu hefur ekki verið langur, en ég hefði gjaman viljað halda áfram, og það var í rauninni afmælið sjálft, og það að bókin átti að koma út þá, sem varð til þess að ég varð að hætta. Annars væri ég vafalaust enn áð! Umgjörð um myndirnar í bókinni er alls staðar svipuð, þar sem ég nota glugga sem eins konar ramma. Gluggana hef ég fengið víða að, ofan úr Árbæjarsafni, Dillonshúsi, austan frá Skógum, úr Unuhúsi og víðar. Ljóð Laxness sé ég sem glugga er skáldið leyfir okkur að horfa út um," sagði Ragnheiður. Hin nýja bók er vönduð að allri gerð, í stóru broti, 80 blaðsíður. Hún er sett í Bliki, bundin í Bókfelli, en litgreind, brotin um og prentuð í prentsmiðjunni Grafík h.f. Sem dæmi um þá vinnu sem lögð hefur verið í prentunina má nefna, að svarthvítar myndir Ragnheiðar við sum ljóðin, voru litgreindar og prentaðar í fjórum umferðum eins og litmyndirnar, til að gefa þeim rétta áferð, til samræmis við litmyndirnar. ,,Það má því segja að prentunin sé nokkurt afrek einnig, ekki síður en efnið sjálft," sagði Erna Ragnarsdóttir, sem stjórnaði blaðamannafundinum fyrir hönd Helgafells. Upplag bókarinnar er takmarkað við 1000 eintök. Við mörg kvæða Laxness hefur verið samin tónlist, og hafa mörg þeirra laga náð vinsældum. í tilefni afmælis skáldsins efndi Helgafell til tónleika í Norræna húsinu, sumar- daginn fyrsta. Þar komu fram lista- fólkið Kristinn Sigmundsson og Sigríður Ella Magnúsdóttir og sungu lög við ljóð eftir Halldór, við und- irleik Jónínu Gísladóttur og Jórunn- ar Viðar. Lögin eru eftir tónskáldin Atla Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirs- son, Jón Þórarinsson, Karl O. Runólfsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Þórarin Guðmundsson, Jón Nordal og Jórunni Viðar. Ljóðin eru, í sömu röð og höfund- ar laganna við þau: Bráðum kemur betri tíð, Maístjarnan (Sól)L, Vöggu- ljóð á hörpu, Dans (Vikivaki), Lagstúfur úr Atómstöðinni, Vor hinsti dagur er hniginn, Hvert örstutt spor og tvö hin síðustu við lög Jórunnar Viðar, Glugginn óg Unglingurinn í skóginum. Lag Jórunnar við hið síðastnefnda er samið sérstaklega í tilefni afmælisins nú, að beiðni Ragnars Jónssonar í Helgafelli (í Smára). Þa voru einnig sungin ljóð úr „Söngbók Garðars Hólm", við lög Gunnars Reynis Sveinssonar. —AH THE BEST PflRT OFYOUR TRIPTO EUROPE COULD BE ASTOPOVER INICELAND. STOPOVER TOURSINCLUDING HOTEL.TRANSFERS, SIGHTSEEING AND SOME MEALS ATINCREDIBLY LOW PRICES. FROM $44.1DAY; $74.2 DAYS; S99.3DAYS. Now you can take advantagdof Icelandair’s inexpensive Stopover Tours of Iceland while you’re taking advantage of our low fares from New York or Chicago to Europe. Iceland is a land of volcanoes, giant waterfalls, Viking museums, glaciers, geysers, concerts, art shows, duty-free shopping and hot-springs pools. You’U get transfers between airport and Reykjavik, room at the first-class Hotel Loftleidir or Hotel Esja, continental breakfast daily, city sightseeing tour, and more. All at unbelievably low prices. From $44,1 day; $74, 2 days; $99, 3 days. Discounts up to 50% on all Icelandair domestic fares, car rental rates and Reykjavik Excursion Tours also included. So on your next trip to Norway, Sweden, Denmark, Great Britain or Luxembourg, stop in Iceland for a few days. For further information see your travel agent or call 800/555-1212 for the toll free Icelandair number in your area. *Prices are per person, double occupancy and are in effect April 1 through ^^^^^^^^^^^September 30, 1982 and subject to change. ICELANDAIR NOWMORí THAN EVER YOURBEST VALUE TO EUROPE

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.