Lögberg-Heimskringla - 12.11.1982, Blaðsíða 5
MINNING
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982-5
Dr. Böðvar Bjarkijakobson
Dr. Böðvar Bjarki Jakobsón
læknir í Neepawa lést á sjúkrahúsi í
Winnipeg þann 5. okt. síðastliðinn.
Dauða hans bar að með skjótum
hætti. Aðeins örfáum dögum fyrir
andlátið hafði fundum okkar borið
saman úti á Manitóbaháskóla. Hann
var þá hress og kátur, og grunaði
mig síst að sá myndi okkar hinsti
fundur. Bjarki var maður lífsins og
gleðinnar, og skuggar sorgarinnar
víðs fjarri í návist hans.
Dr. Bjarki var fæddur á bænum
Viðey í Geysisbyggð, rétt utanvert
við Arborg í Manitóba þann 20.
ocktóber 1926, sonur þeirra hjóna
Böðars (Helgasonar) Jakobssonar og
Guðlaugar Eyjólfsdóttur. Böðvar
fluttist vestur aldamótaárið rúmlega
tíu ára gamall með foreldrum sínum
Helga Jakobssyni frá Sigmund-
arstöðum í Þverárhlíð, Sæmunds-
sonar, bónda á Steinum í
Stafholtstungum, Helgasonar, og
Ingibjörgu Böðvarsdóttur frá
Örnólfsdal, Jónssonar, bónda í
Brennu í Lundarreykjadal.
Foreldrar Guðlaugar, konu Böðvars,
voru þau Eyjólfur Einarsson og
Þóranna Björnsdóttir, Geir-
mundssonar, en þau hjón fluttust frá
Mjóafirði vestur um haf árið 1884.
Dr. Bjarki lauk embættisprófi í
læknisfræði frá Manitóbaháskóla
árið 1954 og stundaði síðan
framhaldsnám í þeirri grein við
Deer Lodge og Grace skjúkrahúsin í
Winnipeg. Frá 1955-1957 var hann
læknir í Moosomin, Saskatchewan
og næstu sjö ár, þ.e. frá 1957 - 1964 í
Whitewood, Saskatchewan. Árið
1964 fluttist hann með fjölskyldu
sinni til Neepawa í Manitóba og
gegndi þar læknisstörfum til
dauðadags. Auk aðalstarfs lét hann
sig fjölmörg önnur viðfangsefni máli
skipta. Má métt nefna að ásamt
konu sinni vann hann ósleitilega að
eflingu lista af ýmsu tagi í Neepawa,
en þau hjón áttu mikinn þátt í því að
hleypa af stokkunum hinni árlegu
listahátíð Neepawa (The Neepawa
Fine Arts Festival), sem fyrir löngu
hefur áunnið sér frægð um
Manitóbafylki þvert og endilangt.
Eftirlifandi eiginkona dr. Bjarka,
er Sigrún Borga, dóttir þeirra hjóna,
Indíönu (Sveinsdóttur) og Kristjóns
Sigurdson, en þau bjuggu lengi á
Helluvaði í Geysisbyggð. Þau Bjarki
og Borga eignuðust átta börn,
Kristine Ingu (f. 26. okt. 1951), Gest
Owen (f. 26. maí 1953), Þóru Louise
(f. 8. jan. 1955), Irene Öldu (f. 28.
mars 1956), Karl Douglas (f. 5. ágúst
1957), Glen Eric (f. 25. nóv. 1958),
Ölmu Lynn (f. 18. ágúst 1960) og
Lornu Susan (f. 25. júní 1962). Öll
eru börnin hin glæsilegustu, vel
gefin og menntuð og hafa unnið
mikil námsafrek.
Vor eftir vor mátti sjá Borgu og
Bjarka við skólaslit við
Manitóbaháskólann eða Win-
nipegháskólann. Börn þeirra, eitt
eða fleiri í senn, voru þá að
brautskrást frá þessum stofnunum.
Þetta voru góðir dagar, sumarblíða á
næsta leiti og framtíð björt.
Dr. Böðvar Bjarki Jakobson
Nærri má geta að oft hefur verið
líf og fjör á Jakobsonsheimilinu. Þótt
börnin stunduðu öll bóknám af
kappi, áttu þau sér fjölmörg önnur
hugðarefni, svo sem félagsmál,
íþróttir og þá ekki síst söng- og
tónlist. Stofnuðu þau sérstakan
söngflokk sem söng víðs vegar hér í
fylkinu bæði í fjölmiðlum og við
ýmis hátíðleg tækifæri. Söng þá
faðir þeirra gjarna með þeim, en
hann var bæði söng- og hljómlistar-
maður. Börnin stunduðu og öll nám
í þessum greinum og unnu til
verðlauna á því sviði. Innan veggja
heimilisins og vébanda
fjölskyldunnar störfuðu þannig
bæði kór og hljómsveit.
Á heimili dr. Bjarka var stunduð
menningarrækt sem hafði jákæð
áhrif og varð drjúgur skerfur
kanadískri mennt í víðtækara
skilningi. Hér hefur þó ekki allt
verið til tínt. Bæði lögðu þau hjón
sérstaka alúð við íslenskar erfðir,
svo sem tungu ísiensku þjóðarinnar
og bókmenntir, og bæði heimsóttu
þau ættjörð forfeðra sinna oftar en
einu sinni. Dr. Bjarki dreif sig þá eitt
sinn á íslenskt læknaþing, og fengu
íslenskir starfsbræður hans þá ekki
Continued from page 4
were Rev. and Mrs. Fredriksson's
children: Hugh and Joanne Amey,
Vancouver, B.C.; Nyel and Jan
Fredriksson, Austin, Manitoba; Mrs.
Vivian Carruthers, Fort McMurray,
Alberta; Dr. Allan Fredriksson,
Mount Vernon, Washington; Mrs.
Stellamae Vertz, Glenboro,
Manitoba; and Harvey Johnson,
Regina.
Rev. Fredriksson was born in
Iceland in 1899. He has travelled ex-
tensively in his native country, with
the most recent visit by Rev. and
Mrs. Fredriksson occurring this past
summer.
Rev. Fredriksson graduated from
the Pacific Theological Seminary,
Seattle, in 1932 and was ordained in
ráðið af málfarinu að þar færi ann-
arrar kynslóðar Kanadamaður. Við
andlát hans er horfin úr okkar hópi
rammíslensk rödd, en “einn kemur
þá annar fer," segir máltæið, og er
nú gott til þess að vita að einn sonur
þeirra Borgu og Bjarka, Glen Eric, er
um þessar mundir að ljúka íslen-
skunámi við Háskóla Islands og
annar sonur þeirra, Gestur Owen,
nýkominn þangað til náms í sömu
grein. Má með sanni segja að
Jakobsons fjölskyldan láti ei hálfan
huga duga í neinu því sem hún tekur
sér fyrir hendur.
Nú hefur verið drepið á fáein
meginatriði úr ævi dr. Bjarka, og
sýna þau ljóslega að hann var mikill
hamingjumaður. Sagan er þó ekki
nema hálfsögð. "Hver er sinnar
gæfu smiður", segir fornklassískt
spakmæli, og sönnuðust þau orð
mjörg eftirminnilega á dr. Bjarka.
Rúmlega tvítugur að aldri fékk hann
lömunarveikina, og lék hún hann
svo grátt að um skeið var ekki annað
sýnna en að honum væri þorrinn
máttur til gangs, og virtust þá horfur
um erfitt nám og störf að því loknu
að engu orðnar. Með frábærum
kjarki og viljaþreki tókst honum þó
að endurhæfa sig þangað til hann
gat gengið einn og óstuddur. Hélt
hann þá óhikað áfram námi, enda
þótt það krefðist erfiðisvinnu til
nauðsynlegrar fjáröfluunar á
ökrunum norður í Nýja íslandi.
Telja allir sem til þekktu að sigur
Bjarka á þessum erfiðleikum væri
afrek sem seint verði til jafnað.
Árið 1958, þ.e.a.s. fjórúm árum
eftir embættispróf, fékk Bjarki
hjartaslag. Sýndi hann þá sömu
þrautseigjuna sem fyrr. Hann var
ráðinn í því að hjálpa "til heilsu
öðrum", komst til heilsu sjálfur og
sinnti síðan sjúkum talsvert á þriðja
áratug. Fyrir örfáum árum kenndi
hann síns gamla meins öðru sinni.
Tók hann sér þá nokkurt orlof, og að
því loknu var í ráði að hann lækkaði
the First Icelandic Church in Win-
nipeg, by the Icelandic Lutheran
Synod, the same year. He has serv-
ed the following parishes of the
Synod in Western Canada: Foam
Lake, Kandahar, Churchbridge-
Thingvalla, Serath, Quinton, Vibank,
Kronau and Davin parishes in Saskat-
chewan; the Lundar-Langruth, Glen-
boro, Erickson, Clanwilliam and the
Argyle parishes in Manitoba. In
Alberta, he has served parishes in
Scandia and Rolling Hills.
Rev. Fredriksson has also.served on
the executive board of the Synod, is
past president of the Synod’s
ministerium, has been active in
various sport organizations, is a
forrner mernber of the Kiwanis Club
and past president of the Glenboro,
seglin um sinn við læknisstörfin. Sú
ráðagerð var honum ekki að skapi,
heldur hóf hann störf að nýju eins
og ekkert hefði í skorist og var í
fullu starfi þegar hann skyndilega
féll frá.
Saga dr. Bjarka er að innra kjarna
um gifturík störf og hamingju.
Oðrum þræði er hún hetjusaga. Hið
síðarnefnda kom mér sérstaklega í
hug þegar ég las andlátsfregn hans í
dagblöðunum hér í Winnipeg. Þar
var hann nefndur fullu nafni Böðvar
Bjarki. Foreldrar hans gáfu honum
þetta nafn minnug þess að það hafði
áður borið ein ágætasta hetja forn-
aldar. Böðvar bjarki hinn forni var
einn af köppum Hrólfs krakar
einhvers göfugasta konungs sem
uppi hefur verið á Norðurlöndum
Böðvar bjarki reyndist ósigrandi
þangað til hann var að lokum beittur
vélum og galdri. "Engi yðar er hans
jafningi," mælti Hrólfur konungur
til annarra manna sinna. Frægð hins
forna kappa frá Hleiðru hefur
haldist fram á þennan dag, ekki
einungis sakir ofurmannlegrar
hreysti og hamremmi, heldur fyrst
og fremst vegna mannkosta og
drenglyndis sem hetjuna prýddu.
Málstaður Böðvars bjarka var ávallt
svo góður að hann hlaut að hætta lífi
sínu honum til varnar. Að
orrustulokum er þess aldrei spurt
hve lengi hetjan hafi sótt eða varist,
heldur skipta málstaður og bar-
áttuaðferð öllu máli.
Æviskeið dr. Böðvars Bjarka
Jakobsonar varð miklu skemmra en
við hefðurn kosið. Gerningar sem að
lokum hefta för allra góðra manna
sóttu hann heim um miðjan dag.
Orðstír hans varð þó slíkur að nú
skipar hann gama bekk og sá forn-
frægi maður sem hann ungur þáði
nafn sitt frá.
Við vottum aðstandendum Dr.
Bjarka dýpstu samúð.
Haraldur Bessason
Manitoba, Chamber of Commerce.
While serving at Erickson,
Manitoba, Rev. Fredriksson, a
respected long distance swimmer,
swam 19 miles across frigid Clear
Lake. It was the first time the resort
lake, located just 20 miles from
Erickson, had been conquered. Rev.
Fredriksson was 61 years of age at
the time of the swim.
Since 1975, Rev. and Mrs.
Fredriksson have lived in Regina and
they will continue to reside in the
Saskatchewan capital in their retiring
years.
Rev. Fredriksson, throughout his
career, has been a powerful public
speaker and has spent considerable
time comforting shut-ins at their
home and in the hospital.
50th Anniversary of
Rev. Fredirksson's ordination