Lögberg-Heimskringla - 28.01.1983, Page 7

Lögberg-Heimskringla - 28.01.1983, Page 7
WINNIPEG, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983-7 Tíminn og Minningarnar Framh. af bls. 3 ugt, var stigið skref sem athygli vakti og vænta má að sé upphaf langrar fer- ðar til vegsauka, ef rétt og vel er á málum haldið. Víst er, að list- unnendum vestra og miklu víðar er nú fullkunnugt um að við eigum býsna margt og fjölbreytilegt í fórum okkar til að sýna og kynna og þeir hafa látið þá ósk í ljós að fá nýrra og meira að heyra. Gjöful menningartengsl ættu allar þjóðir að kostgæfa. Ég vík ekki frá þeirri skoðun, að því nánari kynni sem þjóðir hafa hver af annarri, þeim mun meira tillit taka þær hver til ann- arrar. Slík tengsl brýna friðarviljann og skapa skilyrði til að vopnum fækki. Þjóð okkar hefur einnig á velferðar- tímum reynst sómarík meðal þjóða fyrir hve einarðlega hun bregst við hvenær sem mannúðar- og mannrétt- indamál eru á baugi. Sameinuðu þjóðirnar hafa um skeið hvatt þjóðir til að sinna sérstaklega ýmsum þeim málum sem betur mega fara í heiminum; ár aukinna kvenréttinda, ár barnsins, ár fatlaðra og ár aldraðra. Öllum þessum málum höfum við veitt brautargengi og einkum lagt okkur fram við að hlúa sem best að og gera sem mest til gleði þeim sem á einhvern hátt eru vanmegnugir. Nú hafa Sameinuðu þjóðirnar tekið þá ákvörðun að nýja árið skuli helgað bættum fjarskiptum og samgöngum milli þjóða heims og er það vel. Enn búa margir við slíka einangrun að þeir þekkja ekkert til umheimsins. Ár unga fólksins En hvenær skyldum við mega vænta árs unga fólksins? A því leikur enginn vafi að það gæti orðið öllum til gagns og gleði að staldra við oftar en gert er og leggja sérstaka rækt við æskufólk sem er á erfiðu skeiði lífsins á mörkum þess að vera börn og fulltíða menn. Við mættum koma því betur til skila hve óendanlega hlýtt okkur er til unga fólksins og hvernig við viljum veg þess sem mestan og bestan án þes að vera sírexandi til að leiða því fyrir sjónir okkar eigin sann- leika, oft ærið gamaldags. Við mættum reyna að skilja betur unga fólkið, nýstárleg og skemmtileg uppátæki þess. Þau eru mörg öðruvísi en við eigum að venjast sem eldri erum, þótt einu sinni höfum verið ung. Eitt af einkennum tímans, sem svo hratt líður yfir í minningar, er, að með honum breytist lífs- afstaðan frá ári til árs með nýjum uppfinningum og nýjum lífsvenjum. Löngum hafa eldri kynslóðirnar fjargviðrast út af yngri kynslóðum sem ekkert var um að feta nákvæmlega troðnar slóðir. Það mætti einnig spyrja hvort það væri æskilegt. Kynni það ekki að vera merki um stöðnum og afturför? Unga fólkið þurfum við af metnaði að virk- ja með okkur fyrir framtíðina, gleð- jast með því og sameiginlega vinna bug á tómlæti sem víða virðist einkenna bæði unga fólkið og fullorð na. Enn skal á það minnst, að ekkert er dapurlegra en að hafa ekki annað fyrir stafni en að drepa tímann, láta hann hverfa út í buskann í gleym skunnar dá. En til bóta þarf sjálfsaga og það ekki aðeins æskunnar. Eigi fullorðið fólk að miðla æskunni af ríkidæmi reynslu sinnar, þarf það einnig að temja sér aga og síðast en ekki síst að rækta með sér kærleika. Einkunnarorð Fyrir og um þessi áramót hefur mönnum orðið einkar tíðrætt um mikinn vanda þjóðarbúsins og erfið úrlausnarefni. Þegar litið er til minn- inganna sem er saga þessa lands og þessarar þjóðar, hefur svo ótal oft verið svart á álinn — svartara en nú er. Dr. Kristján Eldjárn, dyggur vinur okkar allra, sem við hugsum til með miklum söknuði, lét svo um mælt í áramótaræðu sinni árið 1980 er hann skildi við embætti: „Kjörorð Jóns Sigurðsonar var Eigi víkja, og getur þýtt margt, meðal annars að aldrei megi láta undan síga í sókn þjóðarinnar að markmiðum frelsis og menningar í þessu landi, á hvaða vettvangi sem er. Það merkir einnig MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja JOHN V. ARVIDSON PASTOR 10:30 a.m. The Service followed by Sunday School & coffee hour. pere Electric Co. /r 460 Scotia Street, Winnipeg, Manitoba R2V1X8 Residential & Commercial New Wiring, Repairs & Maintenance Free Estimates LARRY LIEBRECHT Phone 339-3941 JOHN WDOWIAK « að ekki skuli æðrast og þaðan af síður örvænta, þó að eitthvað gefi á bátinn." Ég vil gera þessi orð forvera míns að einkunnarorðum okkar á ný- ju ári. Islenska þjóðin er sífellt að velja sér framtíð, tilveru. Sú spurning hlýtur að vera áleitin í hugum okkar um þessar mundir: Hvað viljum við Islendingar? Viljum við komast yfir sem mest, ná öllu sem hugurinn girn- ist og löngunin blæs okkur í brjóst? Viljum við setja markið svo hátt að engin leið sé að ná því? Eða viljum við meta hvað okkur er fært, velja úr þau svið sem við getum náð árangri á og vinna að því að nýta möguleika okkar út í æsar? Við skulum vera hófsöm, en þó set- ja markið hátt. Á erfiðum tímum gerum við það hvert öðru best að standa saman. Treysta hvert öðru; leggjast á eitt til sameiginlegrar farsældar. Við viljum svo margt, og við höfum svo mikið að gefa hvert öðru að tímabundnir erfið- leikar breyta engu um hve gott það er að búa í þessu landi. Meðan við eigum okkur þann metnað að gera okkar besta, þá mun vel farnast. Sé markið sett svo hátt að við verðum að neyta allra okkar krafta, þá erum við á réttri leið. Þá er andinn í þjóðinni glaðvakandi í bjartsýnni önn daganna. Því skal ekki gleymt, að í tímanna rás höfum við nokkurt vald yfir hvernig minningarnar um okkur verða. Gleðilegt ár! Business and Proff essíonal cards TAYLOR, BRAZZELL, McCAFFREY 4th Floor, Manulife House 386 Broadway Avenue, Winnipeg, Man R3C 3R6 Telephone (204) 949-1312 Telex 07-57276 Mr Clenn Sigurdson attends in Cimli and Riverton on the first and third Fridays of each month Cimli Office - 3rd Ave and Centre St., Telephone 642-7955, Hours 9:30 a.m to 5:30 p m Riverton Off ice - Riverton Village Off ice, Hours 1:00.p m to 3:00 p m Asgeirson Paints & Wallpapers Ltd. 696 Sargent Avenue Winnipeg, Man. R3E 0A9 PAINTS Benjamln Moore Sherwin Willlams C.I.L. HARDWARE GLASS and GLAZING WOOD and ALUMINUM 783-5967 Phones: 783-4322 \ Tallin & Kristjansson Barristers and Solicitors 300 - 232 Portage Avenue Winnipeg, Manitoba R3C 0B1 ALBERT W EYOLFSON. LL.B. GOODMAN and KOJIMA ELECTRIC ELECTRICAL CONTRACTORS 640 McGee Street Winnipeg, Man. R3E 1W8 Phone 774-5549 M. KOJIMA RES.: 889-7564 Evenings and Holidays Barrister and Solicitor Associated with the firm of CHRISTIE, DEGRAVES, MACKAY 400-433 Portage Ave., Winnipeg, Man.. R3B3A5 Ph. Business (204) 947-6801 Ph. Residence (204) 888-2598 T.A. GOODMAN & GRANTHAM Barristers, Solicitors and Notaries Public. Room One, Municipal Buillding 337 Main Street Y S. A. Thorarinson BARRISTER and SOLICITOR 708 SOMERSET PLACE 294 PORTAGE AVE. R3C0B9 Off. 942-7051 Res. 489-6488 Stonewall, Manitoba Ph.: 467-2344, 467-8931 - Winnipeg Line: 475-9692 TUELON OFFICE every Thursday 144 Main Street Telephone: 886-3193 ' Minnist ^BETEL í erfðaskróm yðar

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.