Lögberg-Heimskringla - 07.04.1995, Qupperneq 7
Lögberg-Heimskringla • Föstudagur 7. apríl 1995 • 7
MORGUNBLAÐID
• ■
SKOTLAND
mwtN
1. Skagafjörbur Ung|$|6r
LÚrtflhjir- Sfctftá
S. Skofti ÁHUvw
4. ÁJÍUvcr • Isk og Slgje^/
5. Mcí> vt/tMvflrní
í Cacrtamadk
Sá siður farfugla að fljúga jafn-
vel heimsálfa á milli hefur
lengi heillað áhugamenn um
náttúruna. Erfitt er að trúa
því að smáfugl á borð við
steindepil fljúgi suður til Sahara og
krían fari alla leið til Suðurskauts-
landsins.
Hvernig reiðir fuglunum af? Hvað
ræður því að haldið er af stað? Hvemig
rata fuglarnir? Hvað fljúga- þeir hátt,
hratt, margir saman; fáir eða stakir?
Síðastliðið sumar voru tvær skagfírskar
álftir merktar með rafeindabúnaði sem
skilaði gögnum til móðurtölvu í
Toulouse í Frakklandi svo að vísin-
damenn gátu fylgst með þeim um gervi-
tungl og var Náttúrufræðistofnun í
stöðugu tölvusambandi við Toulouse
meðan á mælingunum stóð. Um var að
ræða samvinnuverkefni breskra og
íslenskra vísindamanna undir forystu
prófessors Pennyquick við dýrafræð-
ideild háskólans í Bristol.
Þótt vitað sé að íslenskar álftir
hafist að mestu við á Bretlandseyjum
og írlandi á vetrum var engu að síður
ýmistlegt forvitnilegt sem kom upp úr
dúrnum.
Álftin er stærsti fugl landsins, með
vænghaf upp a 2,2 til 2,4 metra.
Vænghafið er svipað og á haferni, en
örninn er bæði styttri og léttari fugl.
Álftastofninn er ekki stór, aðeins um
19,000 fuglar að hausti. Megnið að álf-
tastofninum flýgur suður til vetrard-
valar á fyrrnefndum slóðum, en
nokkur hundruð fuglar þreyja þorrann
með landsmönnum og halda til á vis-
sum stöðum, einkum á Suðvestur- og
Suðurlandi, t.d. Reykjavíkurtjörn, en
einnig 100 til 200 fuglar á Mývatni.
Olafur Einarsson fuglafræðingur sagði
mikla eftirvæntingu haf ríkt þegar frét-
tist að álftirnar tvær sem merktar voru
í Skagafirði hefðu tyllt sér niður á
vetrarstöðvunum í Caerlaverock við
innanverðan Solway-fjörð, skammt frá
landamærum Skotlands og Englands,
rúmum níu klukkustundum eftir að
þær hófu hið stranga langflug frá
Islandsströndum.
Ólafur sagði að fýrir valinu hefðu
orðið fjölskyldufuglar með þekktar
vetrarstöðvar á friðlandi Wildfould og
Westlands Trust, WWT, þannig að
hægt yrði að endurheimta sendana á
vetrarstöðvunum. ,,Það voru ýmsar
spumingar sem við vildum fá svör við.
Ekki hvað síst hversu hátt álftimar fly-
gju. Flugleið álftanna, hvort þær tylla
sér einhversstaðar niður á leiðinni;
flughraði og fleira kemur og upp í
hugann. Eina skiptið sem vísbending
um háflug hefur fengist var 9. desem-
ber 1967, er flugmenn sáu álftir á radar
á leið frá íslandi til Skotlands. Þetta
var úti af Suðureyjum og hæðin ótrú-
leg, 8,200 m. Verkefninu er ekki lokið,
senditækin verða sett á nýja fugla og
þeim síðan fýlgt aftur til íslands í vor.
Það verður skemmtilegt að fylgjast
með því dæmi, það eru álftir sem við
vitum engin deili á,“ segir Ólafur.'
„Fuglarnir tveir, sem géngu undir
nöfnunum CDD og JSC, flugu til
Skotlands í aðeins 30 til 50 metra hæð
og er það langur vegur frá 8,200
metrum. Það voru pínulítil vonbrigði,
því það er draumurinn í þessum
athugunum að hitta á háflug. Órkulega
á ekki að vera möguleiki fyrir álftir að
ná slíkri hæð og gaman væri að fá um
það vitneskju hvaða skilyrði þarf til að
þær nái því. Það er einnig fróðlegt að
fá upplýsingar um flughraðann, en
I
£
1
eimskringla
Ocelasuiic feooJzA, {cn, Salc!
• ögberg-Heimskringla has two books in the office for sale. We have 16 copies of
I Ljóöakorn, containing poetry written by Lúövík Kristjánsson, published by Lögberg-
Lm Heimskringla in 1983. Mrs. Aöalbjörg Sigvaldason prepared the book for print
and wrote comments. She also collected a considerable amount of the poems.
There are also 7 copies of Vesturfaraskrá, written by Júníus H. Kristinsson, a histo-
rian. This book is a major historical work, containing a record of 14,268 lcelanders
who emigrated to America in the years 1870-1914. The book details the counties,
farms, marital status, occupation, age and sometimes ships taken.
Price of Ljóöakorn is $10.00 adding 3.50 for postage and Vesturfaraskrá is $60.00
adding $5.00 for postage — while supplies last.
Name:.
I Address:
City/Town:.
Post/Zip Code:_
Prov./Country:
_Phone #:________
Mail with cheque or money order to:
Lögberg-Heimskringla Inc.
699 CARTER AVE., WPG., MB, CANADA R3M 2C3 TEL.: (204) 284-5686
hann var á hluta leiðarinnar 130
kílómetrar á klukkustund. Það tók
fuglana aðeins rúmar níu klukkus-
tundir að komast yfir hafið og tylla sér
á skoska grundu,“ segir Ólafur. Og
hann heldur áfram:
„Það var ennfremur athyglisvert að
athuga atferli fuglanna áður en þeir
lögðu að stað. CDD verpti í Glaum-
bæjareyju og misfórst varpið í flóðum.
JSC verpti aftur á móti við Garðsvatn
og kom upp fimm ungum ásamt maka
sínum. Fuglarnir höfðu hvor sinn hát-
tinn á.“
„Ef við byrjum á JSC, þá hélt parið
til á varpstöðvunum fram á haust.
Þann 16. október tóku fuglarnir sig
hins vegar upp, flugu inn Skagafjörð,
yfir Sprengisand og höfðu sólarhrings-
viðdvöl við Langasjó. Síðan höfðu
fuglarnir sólarhringsviðdvöl við Skaftá
nærri Eldgjá, en frá 19. októbr dvöldu
þeir á túnum í Landbroti. Um fimm
leytið að morgni 26. október lögðu
álftimar síðan í hina ströngu ferð yfír
hafið áðu á sjónum fýrir sunnan Isle of
Skye, í svokölluðu Sound of Sleet á
leið sinni og voru komnar á skoska
jörð rúmlega níu klukkustundum eftir
að þær lögðu af stað.“
„CDD hafði annan hátt á hann hélt
til ásamt maka sínum í Skagafirði þar
til um klukkan sex að morgni 26
október, að fuglarnir tóku sig upp og
flugu rakleitt yfir hálendið, sömu leið
og fyrri fuglarnir, áðu ekki, heldur
héldu rakleitt á haf út og voru staddir
yfir Meðallandsbugt um klukkan elle-
fu. Um klukkan sex voru fuglarnir
staddir um 50 sjómílur vestur af
Suðureyjum. Þar settust þeir á sjóinn
og eyddu þar nóttinni. Morguninn eftir
hófu þeir sig aftur til flugs og luku
ferðinni til Caerlaverock, friðlands
WWT við Solway-fjörð.“
Athygli vekur, að fuglamir leggja í
ferðina miklu á sama morgni þótt þeir
séu staddir hvor í sínum landshluta.
Hvað veldur?
„Það er veðurfarið. Fuglamir bíða
eftir norðlægum áttum og háþrýs-
tisvæði. Þetta haust var mikill
lægðagangur fram eftir öllum október,
sem sagt stöðugur mótvindur fyrir
fugla á suðurleið, en þennan morgun
birti upp og skipti loks um átt. Þá taka
farfuglar sig upp og flykkjast af stað,
ekki bara álftir. Þá er tímasetningin
athyglisverð, fuglarnir virðast kjósa
dagsbirtu, samanber að lagt er upp í
bítið og þeir setjast á sjóinn til hvfldar
og eyða þar nóttinni.“
„Til marks um þetta má geta þess,
að ég var staddur skammt frá Vík í
Mýrdal næsta dag og sá þá álftahópa
leggja í hann. Það var síðdegis og
hóparnir sneru við. Veðrið var að
breytast aftur, lægð að koma inn. Þær
höfðu misst af strætó og urðu að bíða
næsta rofs í lægðaganginu. Þannig er
fartíminn breytilegur, allt eftir því
hvemig viðrar. Það getur dregist lengi
vel, dæmið frá 1967 er frá desember.
Trúlega hafa það þó verið álftir af
suðausturhorninu, en þær hafa tilh-
neigingu til að fara ekki fýrr en það er
virkilega farið að þrengja að þeim og
frjósa undir þeim.“
r
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
L
J Logberg 1
1 Heimskringla
Afo-cu-I
for the perfect investment in your lcelandic heritage
Your Weekly lcelandic Newspaper
□ Manitoba $39.90/year (inc. GST & PST)
□ Elsewhere in Canada $37.45/year (includes GST)
□ United States/lceland/Others $40./year
□ Donation in addition to subscription (Charitable #: 0582 817-22-21)
Name:________________________________________________
Address:________________________________________________________
City/Town:______________________________Prov./Country:__________
Post/Zip Code:__________________;_______Phone #:________________
Mail with cheque or money order to:
Lögberg-Heimskringla Inc.
699 CARTER AVE., WPG.', MB, CANADA R3M 2C3 TEL.: (204)284-5686
n
j