Alþýðublaðið - 08.12.1960, Síða 7
ÞAD rennur kalt vatn nið
ur eftir bakinu á mér þegar
ég horfi í augu ungu náms-
kommnar o-g sé, að hún titr-
ar af æsingi og áhuga. Létt-
ur roði sezt í kinnar hennar.
Kannski hvarflar það að
henni í brot af sekúndu, að
það sem hún er að segja
hefði þar til fyrir ellefu ár-
um verið mcsta brot á góðum
siðum, sem hugast gat £ hinni
4000 ára gömlu menningu
Kína. Hun var að tala illa
um og afneiía foreldrum sín
um.
Ég sit í hálfrökkrinu og
hlusta á hina 21 árs Fang
Yen, hlusta á regnið sem
lemur rúðurnar og hugsa uni
mann, sem uppi var fyrir
Iöngu síðan, já, löngu fyrir
daga Alexanders mikla og
Cesars. Hann hét Konfúsíus
°g hann sagði, að menn
asttu að virða fjölskylduna og
foreldra sína. En nokkur
þúsund árum síðar komst
rússneski vísindamaðurinn
Pavlov að því, að hægt er að
láta hunda fa vatn í munn
inn ef leikið er á taugavið-
brögS þeirra.
Stúlkan, sem situr gagn-
vart mér, hefur hún lært um
kenmngar Konfúsíusar og
orðið fyrir áhrifum af þeim,
eða hafa þeir menn, sem
nota aðferðir Pavlovs á menn
náð vaídi yfir henni?
Ég þarf ekki Iengi að bíða.
—• Faðlr minn er borgara
Ieg eftirlégukind. Menntamað
ur af gamla skólanum. Hann
hlaut líka menntun sína í
Bandaríkj unu m. En síðustu
árin er honum að fara svo-
lítið fram. Nú varast hann að
gagnrýna flokkinn.
Ég hafði ýtt á hnáppinn o2
hér var hið vélræna svar,-
Pavlov hafði sigrað.
Þegar Fang Yen hafði
þann .g afneitað föður sínum
— 49 ára prófessor í Nank-
ing, og sett hann í skamma
krókinn, þá galaði enginn
hani þrisvar, en í svip há-
skólarektorsins, Hsiun Kuen
Tsui var stolt og sigurgleði.
Hann var hreykinn af fram-
leiðslu sinni, stoltur af ár-
angri á.alangrar þjálfunar.
Stúlkan titrar. En það 'er
af áhugá á að sanna rektorn
um hvað hún kunni lexíuna
vel og hve vel henni tekst að
sýna útlendum. blaðamanni
að í hinu nýja Kína eru borg
aralegar hugmyndir ekki látn
ar standa í vegi fyrir ,,stökk
inu mikla fram á við“, mót-
un kommúnumannsins, heims
byltinguna.
Þetta samtal fór fram í há-
skólanum í Peking, þar sem
úrvalið úr nemendum lands-
ins er við nám, 11 000 stúd-
entar og 182 prófessorar. Að
eins einn af hverjum fimm
tán, sem um sækja, fá að-
gang. Háskólinn í Peking
var stofnaður fyrir 62 árum.
Við sitjum í skrifstofu
rektors. Ég hafði beðið utan-
ríkisráðuneytið um leyfi til
þsss að fá að ræða við einn
stúdent, þannig að aðeins
túlkur væri viðstaddur, en
í þessu viðtali eru níu manns,
rektor, Fang Yen, þrír aðrir
stúdentar, tveir menn, sem
engin skýring er gefin á,
túlkur og. loks ég.
Viðtalið stendur í þrjá
klukkutíma. Það byrjar á því,
að rektorinn heldur ,,nökkur
inngangsorð“, sem standa í
klukkutíma, hreinn áróður.
Hann býður mér að ganga
urn háskólalóðínía, en ég hefi
engan áhuga á því, vil held-
ur ræða við hina ungu stúd
enta. Rektorinn er undrandi
á þessari afstöðu minni, Hann
brosir sa’mt og leyfir- mér
að ræða við unga fólkið í
stundarfjórðung. Mér tekst
að lengja það upp í 35 mínút
ur.
Þessir fjórir stúdentar
læra ensku og hafa leiðrétt
túlkin-n 'hvað eftir annað, en
þegar viðíal okkar hefst
bregður s-vo við, að þeir geta
ekki komið upp orði á ensku,
halda sér fast við túlkinn.
Ekki var tími til nema ör-
fárra spurninga. Er 4- spyr
þá hvor þeir vilji ræða við
mig seinna, er svarið: „Við
höfum ekki tíma“. Ég sný
mér aÖ rektor. Sama svar:
Ekki tímh
— Það eru 11 000 stúdent
ar við háíkólann, segi ég. Get
ur verið að enginn þeirra
hafi tíma til að ræða við mig
í örfáar mínútur?
•— Nei, svarar hann, eng-
inn hefur tíma.
Ekki tíma og ekki löngun.
í ár eru liðin 90 ár frá fæð
ingu Lenins og undanfarna
mánuði hafa bókaverzlanir í
Kína fyllst af nýjum útgáf-
um af verkum hans. Meðal
þeirra er bók hans um hvérn
ig berjast skuli við sósíal-
demókrata. Stúdentarnir fjór
ir, sem sitja á móti mér vita
því vel, að ég er „sósíalfas-
isti“ í starfi hjá blaði í eigu
kapitalista, sem sagt hand-
langari kapitalista.
-Nei, þurfi maður endilega
að ræða við blaðamann, þá
er langtum betra að hann sé
hreinlega afturhaldssinni og
hafi aldrei kynnt sér marxis
ma, sósíalfasistar hafa þann
leiða vana, að koma með ó-
þægilegar spurningar. Þetta
er afstaða kommúnista um
heim allan, en hér er þetta
lögmál, — aðeins kínverskir
kpmmúnistar hafa hina réttu
trú.
Stúdentar í Kína hafa
mikla trú en engann tíma.
Þeir eru áhugasamir og
leggja hart að sér og sama
máli gegnir um alla þá, sem
eru við nám í Kína.
í lýðskólum eru 92 milljón
ir unglinga, 15 milljónir eru
í miðskólum, ein milljón í
háskólum, 10 milljónir í skól
um fyrh- fúllorðna og fimm
niilljónir barna á barnaheim
ilum. í allt eru þetta 120
milljónir manna við nám í
einhverri mynd.
Þegar Maó kom með skip
unina um að láta ,,'hundrað
■blóm blómstra11 fyrir þrenvur
árum, voru það ekki aðeins
þeir flokksmenn, er óánægjðir
voru, sem létu í sér heyra,
heldur ekki síður mennta-
mennirnir. Pekingblöðin köll
uðu það „illgresi“. Háskól-
inn í Peking var órólegasti
staðurinn í Kína um þær
mundir. Kennarar og stúdent
ar skiptust í tvo hópa: þá,
sem lofuðu flokkinn og þá,
sém kröfðust andlegs frels-
is.
Það voru firnm milljónir
manna og kvenna með góða
menntun, sem risu upp, lækn
ar, verkfræðingar, kennarar.
Þegar flokksforustan hafði
komizt að hverjir voru rós
ir og hverjir illgresi, var tek
ið til við að hreinsa til í
blómagarðinum, — os þagga
niður gagnrýnina. Það varð
að tryggja framtíð valda-
mannanína. Gripið \<ár til
þess ráða. að ala upp nýja
menntastétt, breyta hverju
einasta barni og hverjum
stúdent í verkamann og ör-
eiga.
Allir Kínverjar verða að
gagnsýrast af stétíameðvitund
inni, verða meðlimir öreiga-
stétíarinnar. Það varð að
þurrka út fjölskyldutilfinn-
inguna. gera út af við yfir-
ráð foreldra og áhrif þeirra
á börn sín en koma áhrifurn
flokksins yfir hvern einstakl
ing.
Hið nýja fræöslukerfi var
skipulagt í ársbyrjun 1957,
nokkrum mánuðum áður en
kommúnurnar voru stofnað-
ar. -
Takmark kínverska komm
únistaflokksins er sett fram í
riti eftir Lu Ting-yi, kom
það út á vegum flokksins ár
ið 1958.
Þar segir:
Ríki okkar er byggt á ein-
ræði öreiganna, sósíalistiskt
ríki. Fræðsla okkar er ekki
borgaraleg heldur sósíalsk. —
Sósíalisk menntun er eitt
bezta vopnið í baráttunni fyr
ir því, að breyta hinu gamla
og byggja upp nýtt samfélag.
Það hefur alltaf verið stefna
kínverska kommúnistaflokks
ins, að kennslan eigi að þjóna
pólitík vinnustéttanna og
vera þannig stjórnað af
kommúnistaf lokknum.
Hin borgaralega skoðun,
að menntun sé til fvrir
menntunina er röng, og
kennsla þarf ekki að vera í
höndúm ,,sérfræðir>ga“.
' Allir Kinverjar verða að
hljóta margþætta menntun.
verkamennirnir yerða að
véra bændur og bændurnir
verkamenn. Við teljum, að
almenningur eigi að gegna
herþjónustu og hermenn, sem
komnir eru á eftirlaun eigi
að vinna við framleiðslustörf
in.
Líkamsþjálfun Xþað er
vinna) er börnum nauðsyn-
leg. Þar að auiki verður að
Hákon Hedberg skrifar fjórðu grein sína frá Peking
innprenta börnum á unga
aldri anda og hetjuskap
kommúnismans.
Kommúnistaflokkurinn (tvð-
prósent af þjóðinni) verður
að haía forustu á öllum svið
um, kennarar verða að við
urkenna forustuhlutverk
flokksins.
I þessu riti er ekki minnst
einu orði á eina 11 stjórn-
málaflokka sem meðlimum
friðar- og menningarnefnda
er jafnan bent á með stolti
sem sönnun viðsýnis.
í Sovétríkjunum geta flest
ir verig í armslengd frá
kommúnistaflokknum, en i
Kína verða allir að vera
„sannir sósíalistar“.
Lesendur furða sig kann-
ski á því hvernig hægt er að
kenna smábörnum ,,sam-
vinnulegan hetjuskap'*.
Strax á vöggustofum læra
börnin að syngja saman
..Frelsum Formósu“ og hinir
50 milljón. meðlimir Ungra
frumherja á aldrinum 9—15
ára ganga í einkennisbún-
ingi. með trébyssur og takai
þátt í Bandaríkjahatursvik-
um. ,
Fimm ára bör.n eru látin
klippa út myndir af Maó Tse
Tung.
Ég spurði Yu Iíwa Chen,
sem er skólastýra í skóla þar,
sem eru 1210 börn á aldrin-
um 7—13 ára: — Hvenær
byrjið þið að kenna börnum
um heimsvaldasinna og
Bandaríkin? Hún horfði undr
andi á mig og fannst spurn-
ingin auðheyrilega barna-
leg.
— Börn í fyrsta bekk skilja
auðvitað, að bandarískir
heimsvaldasinnar eru óvinir
okkar.
— Má ég tala við barn í
fyrsta bekk og heyra af
hverju Kíiia os Bandaríkin
eru óvinaþjóðir?
— Nei. það er kennslustund'
núna.
— Kannski um tólfleytið
þegar frí er?
— Nei. það er slæmt fyrir
börnin, þau gætu orðið
hrædd.
Þá hættir blaðamaðurinn
frá Marz að spyrja um þetta
•en grennsíast í þess stað um,
hvenær farið sé að kenna
marx-leninisma. Svarið er,
að ekki séu neinir sérstakir
tímar ætlaðir til fræðslu í
þeim efnum, heldur er túlkun
Maós á þessum tveim spá-
Frar thald á 14. sí-Su.
Alþýðublaðið
8. des. 1960 y