Alþýðublaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 18.12.1960, Blaðsíða 13
Opiö bréf til útlendings Framhald af 7. síðu. hvernig mannfólkið getur smit azt af heilbrigðum hundum, en Velvakandi getui' sjálfsagt frætt okkur um það óvenju- lega fyrirbæri. Slettirekur bæjarins lifa nú sínar sæl- -ustu stundir. (Ég bið að heilsa þeim, sem eiga heima í Nóa- túni). Ef þær eru ekki að kæra menn fyrir ólöglegt hunda- hald, þá útlista þær fyrir manni þær stórhættur, sem því fylgir, eins og t. d. það reg inhneyksli, að hundar era ekki hreinsaðir. Vel á minnzt, hvernig stendur annars á því, að það er engin hundahrei.ns - un í þessum bæ? Er það ekki augljóst mál? Hundar eru vit- anlega ekki hreinsaðir á þeim ' stöðum, þar sem þeir'eiga eng an tilverurétt. Ef bæjarstjóm Reykjavíkur væri svo frjáls- lynd að leyfa Reykvíkingum að eiga hunda, þá mundu hundaeigendur fegnir borga sinn hundaskatt, það er ég alveg sannfærður um. Þegar lögreglustjóri gaf út stríðsyfirlýsingu sína, þá voru hvorki meira né minna en 500 hundar á svörtum lista 'hjá honum. Af þessari háu tölu sést að löngun manna til að eiga þessi dýr er sterk- ari en löghlýðni þeirra, — Nú væri ekki úr vegi að spyrja hvað við séum eigin- lega að burðast með lög- — eða réttara sagt samþykktir, sem almenningur virðir ekki? Væri ekki ráð að nema þær úr gildi? Lög, reglugerðir eða samþykktir, sem skerða frek- lega frelsi bæjarbúa, eiga-ekki rétt á sér í höfuðborg íslenzka lýðveldisins. Sullaveiki e- fyr ir löngu úr sögunni að minnsta kosti hvað Reykjavík snértir. Hún er sem betur fer orðin svo sjaldgæfur sjúkdómur" að sumir prófessoranna í lækriis- fræði við Háskóla íslands haía aldrei séð mann með þessa veiki, og þar með er grund- völlurinn fyrir banninu ýið hundahaldi gjörsamlega hörf- inn. Þótt það þætti éf til 'vfll girnilegt viðfangsefni fyrir sálfræðing bæjarins að rann- saka þessa sterku löngun Reykvíkinga til þess að hafa hjá sér hunda eða önnur dýr, þá getur hann sparað sér c- mak og bæjarsjóður sér pen- inga, því að starfsbræður Ól- afs í stórborgum heims hafa unnið merkilegt rannsóknar- starf á þessu sviði. Niðurstað- an af rannsóknum þeirra er á leikmannsmáli sú, að það sé ekki aðeins hollt og þroskandi fyrir börn að alast upp með hundum eða öðrum dýrurn, iheldur séu þau líka einmana sálum til mikils gleðiauka og jafnvel til geðverndar á stund- um. Stórborgarbúar, sem slíta skónum á hörðu malbiki, hafa fjarlægzt náttúruna manna mest. Þótt sálfræðingar séu að vísu hálfuggandkút af þessu, þá eru þeir samt sem áður ekki svo svartsýnir að halda, að fólk í stórborgum eigi eft- ir að slitna algjörlega úr tengslum við náttúruna. Full- víst þykir t. d. að svo verði ekki, á meðan því er leyft að hafa hjá sér hunda, ketti eða önnur dýr. Það er með öðrum orðum niest skynlausum skepnum að þakka, að þessi nauðsynlegu tengsl haldast við náttúruna. Þetta er nú ein róma álit nafntogaðra bæjar sálfræðinga í höfuðborgum Englands, Frakklands og Bandaríkjanna, Nú vildu auðvitað margir ólmir andmæla mér og segja sem svo, að Reykjavík sé eng- in stórborg og fæstar götur séu malbikaðar hér. Og bað er rétt. Þetta er óforbetran- leg smáborg og ráðamenn hér, sem eru flestir annað hvort fæddir upp í sveit eða ættaðir þaðan, álíta að engir hundár eigi tilverurétt nema xjár- hundar. í þeirra augum er kaupstaðurinn líka of fínn til þess að hér séu hafðir hundar, Þess vegna er það mikil bjart- sýni að halda, að það verði leyft fyrr en sveitamanablóð- ið í æðum bæjarfulltrúanna er komið niður fyrir exnn desx lítra og fleiri gótur hafa ver- ið malbikaðar og það verður í fyrsta lagi um næstu alda- mót. Það er víst tími til kominn, að ég slái botninn í þetta bréf, en áður en ég geri það, verð ég að segja þér eitt. Mér hzt ekkert á þessa hugmynd þína að byggja hús við Sundin biá. því að þar eru grútarbræðsl- ur. Grútarbræðslur við Suud- in blá! Það hljómar einkenni- lega, finnst þér ekki? Það er ekki nóg, að bæjarstjóm Reykjavíkur vilji alla hunda feiga, heldur er lika meiri- hluti fulltrúanna svo ger- sneyddir smekkvísi og fegurð- arskyni, að þeir veita mönnum leyfi til að reisa grútarbræðsl- ur við einhvern fegursta stað á öllu Suðurlandi. Því fer nú verr, að smekkleysi og hunda heródesarismi, sá dulbúni fas- ismi, er ekki eins auðiæknað- ur og sullaveiki Halldór Þorsteinsson. Valdi villist í Reykjavík VALDI villist í Reykjavík heitir bamabók eftir Frímann Jónasson. Þetta er saga um lítinn dreng, sem fer í fyrsta skipti til Reykjavíkur. Útgefandi er Setberg, —• Bjarni Jónsson gerði mynd- skreytingu. N S s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s í s s s s s s s s s s s s s s s s s s s ALLT Á SAMA STAD aliar tegundir bifreiða Merkið, sem allir vandlátir þekkja HAMPSON LOOK FOR THE S RIBS ☆ ☆ Heimsþekkt fyrir gæði Spariö yður benzvn með því að notarétt kerti, en það er CHAMPION EGILL VILHJÁLMSSON H. F. Laugavegi 118. Sími 22240. s s s s s s s s s s s s s S ' s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s • s s s s s s s s s s s Alþýðublaðið — 18. des. 1960

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.