Alþýðublaðið - 26.01.1961, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 26.01.1961, Blaðsíða 9
AVVUW Pokarottan er ótúttlegt kvikindi SAMTÍNINGUR Sir Winston Churchill er heiðursfélagi fjölda fé- laga. Nú er hann einnig heiðursfélagi slökkviliðs- ins í Alexandria í Virgin- iu. Er hann fyrsti og eini útlendingurinn sem þessi heiður hlotnast. Slökkvi- lið þetta var stofnað af George Washington, fyrsta forseta Bandaríkjanna, árið 1774. Forsetalausir í 1 tíma Sé nákvæmlega farið í •sakirnar verður ekki kom- izt fram hjá þeirri stað- reynd, að Bandaríkja- menn höfðu engan forseta í nálega einn tíma valda- tökudag John F. Kenn- edys. Samkvæmt ' stjórnar- skrárbreytingu nokkurri nr. 20 lauk valdaskeiði Eisenhowers kl. 12 á há- degi stundvíslega þann 20. janúar. En þar eð hátíða- höldunum £ tilefni dags- ins seinkaði, sór Kennedy ekki embættiseið sinn fyrr en kl. 12,51 e. h. — eða 51 mínútu of seint. Þetta mun ekki vera einstakt fyrirbæri. Þetta gerist við valdatöku hvers nýs forseta. Er þess getið, að Banda- ríkin hafi alltaf staðið þessi stundarforsetaleysi af sér með prýði. HIN vinalega en hættu- lega pokarotta, sem er nagdýr og hefur um lang- an aldur verið bændum í Ástralíu slæmur vágestur, er nú smám saman að hverfa af sjónarsviðinu. Hafa bændur iagt mikið kapp á að útrýma þessum vágesti, því hann eyði- leggur fyrir þeim upp- skeru og beitiland. Poka- rottan finnst nú aðeins í Suðaustur-Astralíu og á eynni Tasmaníu. Pokarottan, sem er ekki ósvipuð birni, er með breitt höfuð, stuttan háls, ófullkomna rófu, digran líkama og stubbslega fæt ur. Skinn hennar, sem þykir einkar fallegt, er ýmist svart, gulleitt eða gráleitt. Hún hefur sterk- ar klær og grefur með þeim og sterkum tönnum löng göng ofan í jörðina. Heimili hennar eru um 4 m. löng göng með „hreiðri“ í enda þeirra, sem hún klæðir berki. Xlt frá þess um vistarverum sínum grefur hún síðan fjölda annarra gangna. Geta göng þessi þannig orðið allt að 500 m. löng. Pokarottan fer úr greni sínu, þegar skyggja tekur til þess að afla sér fæðu, sem er einkum rætur, börkur, gras og grænmeti. Bezt þykir henni ný og ilmandi taða. Kvendýrið fæðir eitt afkvæmi í einu og eins og kengúrur, ber það af- kvæmið í poka unz það hefur klæðzt skinni. Þótt pokarottur séu friðsöm dýr ræðst kvendýrið á karldýrið, ef (paS sýn'ir afkvæmi hennar ágengni. Ef pokarottur eru tamdar frá fæðingu verða þær gáskafull og ástúðleg gæludýr. Þannig varð El- ízabet Bretadrottning stór hrifin af pokarottunni ,,Winkie“ í heimsókn sinni til Astralíu. Til eru fjórar tegundir pokarottu. Yenjulega eru þær um hálfur metri á lengd, en stærsta tegund- in ér um metri á lengd og vegur 80 pund. Fyrsta pokarottani, .s!am sögur fara af er pokarotta, er skipbrotsmenn rákust á á smáeyju undan strönd Suð austur Astralíu. Lifðu þeir á henni unz þeim barst hjálp. K VENSKÖ'R Frá Vestur-Þýzkalandi nýkomnir. Gott verð. Póstsendum. I LÁRUS G. LÚÐVÍGSSON Skóverzlun — Sími 1-58-82. Ufgerðarmenn - Sfcipstjórar Seljum vélsteypta LÍNUSTEINA og NETJASTEINA — Gamla verðið — Pípuverksmiðjart h.ff. Rauðarárstíg TILBOÐ óskast í smíði á veitingaborðum og stólum fyrir F'c- lagsheimilið í Biskupstungum. Véitingaborð 25 stk. 60x100 em. Veitingaborð 9 stli. 70x70 cm. Stólar með stoppaðri setu og baki 220 stk. Stóiar með krossviðarsetu og baki 70 stk. Upplýsingar um útboðsskiimáQa eru gefnar á Teikni stofunni Tómasarhaga 31, Reykjavík. VerkamannaféEagfS Dagsbrun Tilkynning Kosning stjórnar, varasíjórnar, stjórnar vinnudeilu- sjóðs, trúnaðarráðs og endurskoðenda íýxir árið 1961 fer fram í skrifstofu félagsins dagana 28. og 29. þ. m. Laugardaginn 28. janúar hefst kjörfundur M. 2 o. h. og stendur til kl. 10 e. h. Sunnudaginn 29. janúar hefst kjörfundur M. 10 f. h. og stendur tiipkl. 11 e. h. og er þá kosningu lokið. Atkvæðisrétt hafa eingöngu aðalfélagar sem eru skuildlausir fyrir árið 1960. Þeir sem skulda geta greitt gjöild sín meðan kosning stendur yfir og öðlast þá atkvæðisrótt. Inntökubeiðnum verður ekki tekið á móti eftir að kosning er hafin. Kjörstjóm Dagsbrúnar. Alþýðublaðið — 26. jan. 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.