Alþýðublaðið - 04.02.1961, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 04.02.1961, Blaðsíða 9
KEFLAVÍK mjólkin ? nauðsyn ;ra til að víla lík- raunabót og hress í grein, iÆ'' aust sína g alltaf itin leik- l Gallop". lltaf upp er þá rek s var ný- ; klædda nds“ svo , að Ben- Élibba, sem kölluð er „Einkum fyrir kvenfólkið en með karlmennina í huga. Þegar Elizabeth Taylor á í brösum með að muna kvi.kmyndaihandriit skellir hún sér beint í bað, að því er hún sjálf segir. í síð- ustu mynd sinni lék hún Kleopötru, en þótt hún hafi baðað sig upp úr asna mjólk telur Liz það sjálf- sagt enga nauðsyn. Dægurlagaskáldið og píanóleikarinn frægi, Russ Conway, segist hafa samið flest sín beztu lög £ baði. Hin töfrandi fagra Hel- ena frá Troyu baðaði sig í íburðarmiklu baðkeri upp úr ilmandi rósarolíu. Þrælar hennar nudduðu handleggi hennar og axlir með myntu, hné hennar og háls með blóðbergi og end uðu á því að nudda hár hennar og augnabrúnir úr „marjoram“. Sagt er, að konur Róm- verja hafi haft upphitaðar sundlaugar. Hin fræga 18. aldar feg- urðardís Frakka, Madame Tallien, baðaði sig á hverj- um degi upp úr safanum af 20 pundum af jarðar- berjum og tveim pundum af hindberjum. Jafnvel Elisabet I. Eng- landsdrottning baðaði sig einu sinni í mánuði hvort sem hún þurfti þess með eða ekki, eins og hún sjálf orðaði það. Tyrkir gerði tyrknesk böð óhemjuvinsæl í Evr- ópu og saunaböð Finna hafa einnig náð miklum vinsældum víða um heim. Svo að sjá má að hægt er að baða sig alla vega. Sagt er, að fegurðarinn- ar vegna sé konum bað bráðnauðsynlegt. Er þeim ráðlagt að blanda ilmvatni og húðkremi saman við Setti sökkul r ■ ■ ■ P i I S I R1 Beta 1 Indlandi TVENNT af útbúnaði Elísabethar drottningar í ferð hennar til Indlands og Pakistans hefur vakið mikla athygli. Það er: ó- grynni gimsteina, sem verða til þess að leynilög- reglumenn Scotland Yard fá nóg að gera í förinni, og pils, sem eru svo þung, að þau lyftast ekki upp fyr ir vindi. Þetta eru aðeins tvö atriði af mörgum, sem Elísabet drottning verður að hafa á bak við eyrað áð ur en hún fer í ferðalög. Starfsliðið £ Buckingham- höll hefur líka nóg að gera í marga mánuði áður en ferðalög hennar hefjast. Margs verður að gæta. Drottning má aldrei vera £ sömu fötunum þegar hún kemur fram opinberlega, en það er oft tvisvar eða þrisvar á dag. Þetta þýðir það, að hún verður að hafa fataskipti jafnoft yzt sem innst. Þá verður að gæta þess, að liturinn á klæðn- aði drottningar stingi ekki í stúf vð borðskreytingar, klæðnað annarra gesta, húsaskreytingar o. s. frv. Gestgjöfum drottningar er tilkynnt fyrirfram smekkur drottningar á ýmsu. T. d. borðar hún ekki ostrur og Filippus prins reyndar ekki heldur. Hún vill helzt ávaxtasafa með matnum og sódavatn, fremur en vín, nema hvað stundum er það kemur fyrir, að hún þyggur kampavín. Filippus vill bjór með matnum — helzt sterkan, en ef hann er ekki á boðstólum þá veikan. Pils drottningar eru með lóðum, svo öruggt sé sem minnst sjáist af fót- leggjum drottningar. Hinir glæsilegu gim- steinar drottningar eru í vörzlu leynilögreglumanna frá Scotland Yard. Þeirra á meðal eru indverskir rúbínar, sem Elísabet erfði eftir ömmu sína, Maríu drottningu. Komust þeir í hennar eigu í reisu hennar til Indlands árið 1911. Snillingur með sprota SEM smápatti angraði hinn heimsfrægi hljóm- sveitarstjóri, Sir John Barbirolli — (sem nú hef- ur tekið við.starfi Leopold Stokowskys sem yfir- hljómsveitarstjóri sym- fóníuhljómsveitarinnar í Houston, Texas)—foreldra sína með því að ganga alltaf um íbúðina meðan hann var að æfa sig á fiðl- una. í vandræðum sínum sögðu þeir afa drengsins þetta. Hann brosti og baðvatnið. Þrennt er það sem ber að varast, er farið er í bað: 1. 'Varizt að fara í bað strax eftir mat. 2. Varizt að hafa vatn- ið of heitt (þótt sumar kon ur haldi að það sé grenn- andi, er það talin vitleysa). 3. Varizt asagang. Gef- ið tíma til að slappa af. (Annars verða fegurðará- hrif baðsins engin). keypti á stundinni cello handa John litla, sem leysti vandann. Ef hann ætlaði að leika á cellóið varð hann að sitja kyrr. Sir John er fæddur í London og var móðir hans ítölsk, en faðirinn fransk- ur. Hann verður 62 ára á þessu ári. Hann er hljóm- sveitarstjóri Hallé-hljóm- sveitarinnar, en því starfi hefur hann gegnt síðan 1943. Frægur gagnrýnandi sagði einu sinni um Barbi- rolli: „Með snilld sinni á tónsprotanum hefur hann kennt þúsundum venju- legs fólks að skilja góða tónlist11. Sjálfur segir Bar- birolli: „Þeim, sem lengi hafa verið hljómsveitar- stjórar finnst hljómsveit- in vera sitt eigið barn“. Sir John hefur geysi- mikinn áhuga á krikkett og horfir oft á kappieiki. En hann leikur aldrei sjálfur, enda verður hann að fara varlega með hend- urnar. Það er dýrmætasta eign góðra hljómsveitar- stjóra. SUÐURNES Leikfélsg Yeslmannaeyja sýnír Þrjá skálka gamanleik eftir GANDRUP1 Félagsbíóinu í Keflavík í KVÖLD (laugardag) kl. 9 og Á MORGUN (sunnu- dag) kl. 2 (barnasýning). Leikstjóri: Eyvindur Erlendsson. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1 í dag í Félagsbíóinu, LEIKFÉLAG VESTMANNAEYJA. Hyacinfhur Ódýrar skálar með HYACINTHUM kr. 45,00 stk. verða seldar í dag. Blóma- og grænmetlsmarkaðurgnn Laugavegi 63. — Sími 36585. AMERÍSKUR KARLMAÐ U R, 35 ára, hvítur, ógiftur, 5 fet og 7 þumlungar á hæð, 160 pund að þyngd, venjulegur í útliti, að nokkru fatlaður á hægri hönd (slys í verksmiðju), iðnlærður, í vinnu cg á bifreið, vill skrifast á við ög gifta’st íslenzkri stúlku, um 25 ára, Ijóshærðri, lítilli, grannri, laglegri, með góða framkomu, sem ekki drekkur og er siðferðilega góð, cg skrifar og tatar nokkra ensku. Ser.dið mynd og skrifið: Joseph Strangis, P.O.Box 723, Brockton, Mass. U.S.A. Ingólfs-Café Gömlu dansarnir í fevöld kl. 9. Aðgöngumiðasala frá kl. 5. — Sími 12826. Lögfak Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengnum úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyrir- vara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Lestagjaldi og vitagjaldi af skipum fyrir árið 1961, áfölln- um og ógreiddum skemmtanaskatíi og miðagjaldi, gjöld- um af innlendum tollvörutegundum og matvælaeftiriits- gjaldi, söluskatti og iðgjaldaskatti 4. ársfjórðungs 1960, vangreiddum söluskatti og útflutningssjóðsgjaldi eldri ára, svo og skráningargjöldum og iðgjöldum atvinnurekenda og atvinnuleysistryggingagjaldi aí lögskráðum sjómönnum fyrir árið 1960 ög 1. ársfjórðung ársins 1961. Borgarfógetinn í Reykjavík, 3. febr. 1961. KR. KRISTJÁNSSON. Hafnarfjörður og nágrenni! Pökkunarsfúfkur óskast strax. Hraöfrystihúsiö FROST H . F. Hafnarfirðí. Sími 50165. f.-------------------------------------- AlþýðublaSið — 4. febr. 1961 g)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.