Alþýðublaðið - 25.05.1961, Qupperneq 3
UM hvítasunnuhelgina
var í fyrsta sinn á vorinu
farið á bílum inn í Land-
mannalaugar. Alls tóku
32 þátt í förinni, allt ungt
fólk, og var ekið í þrem
ur Dodge Weapon bifreið-
um með drifi á öllum hjól
um. Vegurinn var blaut-
ur og víða undir vatni og
snjó og á Frostastaðahálsi
var mikill skafl, sem tafði
förina nokkuð. Þar skipt-
ust menn á að moka með
6 skóflum traðir í skafl-
inn, og tók það verk 4—5
klukkustundir. Komust
bílarnir síðan klakklaust
að kvíslinni við skálann,
en eyrarnar voru ófærar
með öllu. Eigendur bíl-
anna eru Ásgeir Torfason,
rafvélavirkjanemi, Hilmar
Heiðdal, prentmynda-
smíðanemi, sem tók þessa
mynd af einum bílnum í
tröðunum, og Nikulás
Sveinsson, rafvirki. Eru
þeir í fjallaferðum á bíl-
um sínum, livenær sem
færi gefst, og líkar að
sjálfsögðu ljómandi vel.
Bonn, 24_ maí..
(NTB-Reuter).
MÁLSVARI vestur-þýzku rík
isstjórnarúmar sagði í dag, að
svo liti út. sem Danmörk væri
að verulegu leyti tilbúin til að
ganga í bandalag Sexveldanna.
Sagði málsvarinn, sem er blaða-
fullrúi Adenauers kanzlara, —
þetta eftir fund Kampmann for
sætisráðher.ra Dana með Adenau
er kanzlara og fleirt vestur-
þýzkum ráðherrum í dag.
Felix von Eckardt, sem er
nafn málsvarans, sagði að ef
Danmörk ákveði að ganga í
bandalag sexveldanna. hvort
sem það verður að eigin frum-
kvæði eða vegna ákvörðunar
Breta um aðild að sexveldunum
muni hin þýðingarmestu verzl-
unarsambönd Dana og V-Þjóð-
verja batna mjög. V.-þýzka
stjórnin liti samt sem áður á
málið af raunsæi og gleymir því
ekki að Danmörk hefur fra fornu
fari sterk bönd við Bretland og
meginh’uti danskra landbúnað-
arafurða fara á brezkan mark-
að
Aðrar fréttir í kvöld hermdu
að þýzka stjórnin hefði í viðræð-
um þessara forystumannu kvatt
mjög dönsku stjórnina til að
ganga í bandalag Sexveldanna
og gera það heldur áður en Bret
ar ganga í það en eftir.
Viðræður ráðherranna fóru
fram í skrifstofu kanzlarans og
stóðu í 'l5 mínútur.
Jóhannesarborg, 24. maí.
LÖGREGLAN í SuSur-Afr-
iku framkvæmdi í dag umfangs
miklar aðgerðir til að hindra þá,
sem ætlað er að vilji stauda að
HANDFÆRA-
VEIÐAR
ísafirði 19. maí.
NÝLEGA var gerður sainning-
ur á milli Sjómannafélags ís-
firðinga og Útvegsmannafélags
ísaf jarðar um kjör háseta og mat
sveina á handfævaveiðum í bát-
um yfir 12 rúmlestir. Hásetar
skulu fá í slnn hlut. 65% af verð-
mæti þess afla, sem þeir draga,
matsveina- 90%. Útgerðin legg
úr hvcrjum ókeypis til eitt færi,
línurúllu og 10 króka, en skip-
verjar skulu sjálfir kosta viðhald
þess. Skinverjar fæða síig sjálfir.
AHan annan útgerðarkostnað,
olíur, ís o fl. leggur útgerðin til
þeim að kostnaðarlausu — Þó
skulu skinve jar taka hlutfalls-
legan þátt í "'roiðslu á salti sé
fiskurinn sal'aður.
Fiskver« t:l sjómanna skal
aldrei vc^ lægra en það, sem
útgerðin - Bé.
fyrirhuguðum mótmælaaðgerð-
um gegn kynþáttaaðskilnaðinum
er S.-Afr,íka verður lýðveldi 31.
maí n, k.
Áður en handtökurnar í dag
fóru fram var ætlað ao 8—10
þús. Afríkumenn hefðu þegar
verið handteknir áður ea hand-
tökum er gerðar hafa verið í
sama tilgangi. Ekki er vitað hve
margir voru handteknir í dag.
Hins vegar fóru þær víða fram
borgum landsins.
Forsæ'.isráðherrann hefur ver
ið að svara spurningum stjórn-
arandstæðinga um hinar ýmsu
gerðir stjórnarinnar og það sem
hún hyggst gera á næstunni.
Háttsettur lögreglumaður í
Jóhannesarborg hefur sagt frá
því, að þær aðgerðir sem nú hafa
verið f amkvæmdar, séu aöeins
byrjunin. Meðal þe'irra er lögregl
an hefur handtekið var formað-
ur suður-afríska kvennasam-
bandsins, og stjórnarmaður einn
í stjórnmálafélagi Indverja í S.-
Afríku. Þá er lögreglan að leita
framkvæmdastjóra liins Afríska
þjóðarrýðs sem er í felum, en
hefur sent út fjöldan allan af til-
kynnlnvu"^ og ásökunum undan-
farið -—"a mótmælaaðgerð-
anna.
M. TSHOMBE FÉKK
TillPAACAI I Fulltrúar SÞ
K AUbAAr ALL othuga mán a
Elizabethville, 19. maí„
(NTB-Reuter).
MOISE TSHOMBE, forseti
Katanga-ríkis í Kongó, sem liald
ið hefur verið fangelsi í Leopohl
ville frá því að hann var fang-
elsaður í Loquilhatville fyrir
mii('gum vikum síðíin, hefur
fengið alvarlegt taugaáfall. —
SÞ-fulltrúi var þegar kvaddur í
fangelsið tii Tshombe og lýsti
hann því yfir að Tshombe mvndi
líklega þola heimsókn Iæknis.
Jafnframt hefur verið upplýst,
að efnahagsmálaráðherrann {
Tsliombestjórninni í Katanga,
hafi láiizt í kvöld af vöidum
hjartaslags. Var hann þá í
Brazzaville í Frönsku Kongó.
Samkvæmt nýjum fréttum frá
Elizabethville munu Baluba og
Luluakynþættirnir í Suðtir-Kas-
ai enn halda áfram stríði sínu.
Leiðrétting
SÚ villa varð í blaðinu í gær
að í fyrirsögn var sagt, að
„blaðaútgáfa licfst í S-Kóreu“,
en átti að vera „blaðaútgáfa
HEFT í S-Kóreu“. Lesendur
eru beðnir afsökunar á þessari
missögn.
Munu margir Afríkumenn hafa
misst líf sitt í átökum þessum
og þorp verið eydd.
+ FÉLAGSHEIMILI FUJ í
Reykjavík að Stórliolti 1 verður
opið í kvöld frá kl. 8,30, Ungt
fólk er kvatt til að fjölmenna og
stytta sér stundir við skák, spil,
lestur, tóni'ist og fleira, sem til
gamans má gera. — Stjór.nin.
Alþýðublaðið — 25. maí 1961 J