Alþýðublaðið - 25.05.1961, Page 16
42. árg. — Fimmtudagur 25. maí 1961 — 114. tbl.
Brezkir togarar
sakaðir um sjórán
Hinn síðasti og aivarlegasti
árekstur varð nýlega er tveir
brezkir togarar sigldu gegnum
og eyðilögðu 60—70 net sem 2
danskir kútterar höfðu lagt út.
Ekki vildu togararnir taka tillit
til mótmæla dönsku fiskimann-
anna og neituðu að afhenda af-
ganginn af netunum eða þá veiði
sem í þeim var. Þá hafa brezkir
togarar hafist sVipað að annars-
staðar. þótt ekki hafi það verið
í jafn stórum mæli og nú„ í mót-
mælum sínum segja dönsku fiskj
menniröir að framferði brezku
togaranna verði ekki likt við
neitt annað en sjórán og krefjast
þess að danska stjórnin krefjist
öflugra aðgerða gegn þeim.
Trygve Lie
hefur störf
Oslo, 24. maí.
(NTB)
TRYGGVE LIE mun hefja
starf sitt að nýju sem fylkisstjóri
í Oslo og Akershus 1. júlí n. k.
Hefur hann haft frí úr embætti
sínu undanfarin tvö ár til að
vinna að útlendri fjárfestingu
í uppbyggingn iðnaðarins í Nor-
egi. Hann mun halda áfram sem
formaður í ráðgjafianefnd máls
þessa. Einar Gerhardsen forsæt-
isráðherra sagði á blaðamanna-
fundi í dag að Stórþingið fengi
siðar skýrslu um störf hans, en
sjálfur væri hann mjög ánægður
með árangurinn af störfum
Trýggve Lie.
■ Vestmannaeyjum, 24. maí. ' "
í DAG er veðrið farið að
skána, en hér var mjög slæmt
veður-. Ekki munu þó hafa orðið
teljandi skemmdir af völdum
veðurs, nema hvað eitthvað af
þökum fór úr lagi og rúður
brotnuðu.
Allt er hér í gangi og eitthvað
af aðkomufólki hér enn, þó að
mikið’ hafi fækkað. Mikill fjöldi ■’
báta er kominn af stað og aðrir
að búa sig út„
P. Þ.
Kaupmannahöfn, 24. maí.
(NTB).
FOKREIÐIR, danskir fiski-
menn hafa tilkynnt sjávarútvegs
málaráðuneytinu um framferði
brczkra togara á Doggermiðum
og hafa þeir jafnframt krafizt
þess að ríkisstjórnin mótmæli í
London.
Úr miðbæ
oð Árbæ
LJÓSMYNDARI Alþýðu-
blaðsins kom að þessum
manni á horni Suðurgötu
og Túngötu í gærdag;
hann var að brjóta undir,-
stöður undan húsinu. —
Þetta er með elztu húsr
um bæjarins og í því bjó
Jonas Hallgrímsson um
skeið, Nú er í ráði að
flytja það upp að Árbæ.
Það hefur staðið autt að
undanförnu, en var til
skamms tíma noíað sem
íbúðarhús.
ÆTUR FYRIR
Forseíinn vill
ekki tala viö
Kóreumanninn
Seoul og Washington, 24. maí.
(NTB-AFP).
HI’NN nýi forsætisráðherra S-
Kóreu, Chang Do Yung hers-
feöfðingi, hefur sótt um vega-
Dréfsáritun til Washington til að
-tritta Kennedy forseta. Litlu eft
lr að þetta var tilkynnt í Seoul,
lýsti blaðafullrúi bandaríska
utanríkisráðuneytisins, L’incoln
Ti hite, yfir því, iað forsetinn
igæti með engu móti tekið á
rnóti forsætisráðherranum, en
feins vegar yrði vafalaust af hálfu
«endiráðsins í Seoul rætt við for
nætisráðherrann um hugsanlega
feomu hans siðar til Washington.
í GÆRMORGUN var í Bæjar-
þingi Reykjavíkur kveðinn upp
dómur í máli, sem Vilhjálmur
skáld frá Skáholti höfðaði gegn
dómsmálaráðherra og fjármála-
rððherra f.h. ríkissjóðs. Voru VU
hjálmi dæmdar 60 þús kr í skaða
bætur, auk vaxta frá 27. marz
1959, og 7400 kr. í málskostnað.
Bjarni K. Bjarnason, fulltrúi
borgardómara, kvað upp dóm-
ihn, en meðdómendur voru lækn
arnir Ragnar Kjartansson og
Jakob Jónasson.
Málavextir eru þeir, eins og
Alþýðublaðið rakti 6. maí 1959,
að Vilhjálmur var handtekinn
af lögreglunni á Reykjavík árið
1958 og fluttur nauðugur- á
Kleppsspítalann, þar sem hann
var hafður í !haldi nærri heilt
ár. Hafði hann þó full mannrétt-
indi, bæði sjálfræði og fjárræði,
er þetta átti sér stað. Samkvæmt
íslenzíkum Iögum er þó ekkr
hægt að taka mann fastan og
setja á geðveikrahæli, án þess
að svipta hann fyrst s.iálfræði
og fjárræði, en slíkum úrskurði
má skjóta til Hæstaréttar.
Vilhjálmur var 5—6 mánuði
á órólegu deildinni á Kleppi, en
síðan fluttur á rólegu deildma.
Er hann hafði dvalizt á hælinu
£ 10 mánuði, kom þangað lækna
kandidat, er kannaðist við Vil
hjálm. Var Það einungis fyrir''
velvilja og milligöngu hans, að
Vilhjálmur var látinn laus, og
væri hann ef til vill í haldi enn,
e£ hann hefði ekki hitt kandídat
inn þarna.
Þegar eftir að Vihjálmur fékk
frelsi sitt á ný, leitaði ihann til
Egils Sigurgeirssonar, hæstarétt
arlögmanns, er rak mál hans
gegn. ríkissjóði, sem nú hefur
verið dæmt í fyrir bæjarþingi,
eins og að framan greinir. Logi
Einarsson, fulltrúi í dómsmála-
ráðuneytinu, rak málið fyrir
hönd ríkissjóðs.
Ekki hefur enn verið ákveðið,
hvort aðilar áfrýja dóminum til
Hæstaréttar.
■ ■
VEÐRÁTTAN undanfarna daga
liefur hrellt landsmenn mjög og
maJ'S'ir haft þungar áhyggjur
vegna hins nýkviknaða gróðurs.
Mörgum Reykvík'ingum hefur
orðið tíðlitið til garða sinna og
veðurguðirnir lítt verið dásam-
aðir þessa köldu daga.
Alþýðublaðið hefur snúið sér
til tveggja fróðra manna um
gróður og gróðurvernd og spurt
þá álits um áhrif veðurfarsins á
gróður í Reykjavík.
Ingólfur Davíðsson grasafræð-
ingur taldi, að enn sem komið
væri hefði veðrið ekki valdið
miklum skemmdum, þó mætti
þegar sjá skemmdir á gróðri,
sem stæði áveðurs svo og á ný-
gróðursettum plöntum.
Gróðri, sem stæði í skjóli,
taldi !hann ekkj mjög hætt, að
svo komnu máli.
Á gróðrarstöðinni Sólvangi
Framh. á 14, síðu’.